Skessuhorn


Skessuhorn - 13.04.2000, Page 6

Skessuhorn - 13.04.2000, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 13. APRIL 2000 ^■casunuu:. dagar hjá okkur til pásks Eldhústæki verða á sérstöku tilboðsverði í tilefni opnunar I o kaafanga stsBkkunar a Eærri deild með eldhústæki Sjón er sögu ríkari STILLHOLTl 23 AKRANESI 430 2500 HIJÓMSÝN VS8SLUN ♦ MYNOBANDAUICA ♦ VJ0CÍ80ARWÓNUSTA MÉ HRiH m 1 k TT • 13 • Málningar- og parket- kr/m2 smelluparket Eik, beyki og kirsuber -auðvelt að leggja -ekkert lim LA kr/m2 plastparket Beyki, eik, kirsuber, marbau, mahogny, fura. 19,5*128,5/7,2 i hádeginu og laugardaga frá kl. 10-14 AKUR - byggingetvörur Smiðjuvöllum 9 - 300 Akranes Sími 431 2666 Fax 431 2750 netfang akur@akur.is - veffang www.akur.is J • -.I y«r>,ui UWi'/.y I gptií': i / r \ r j A i umhverfisvæn i - L/ j málning 20% staðgreiðsluafsláttur af KOPAL innimálningu BYKO innimálning (gljáil0): 4. lítrar. kr. 1.690 - 10 lítrar kr. 3.750 Mikið úrval af málningarverkfærum og viðgerðarefnum Arinbjöm Kúld handsalar samning við Gísla Gíslason bæjarstjóra d Akranesi um vöktun stofnana bæjarins. Vaktfyrirtæki rill hætta / Onóg þátttaka og lág verð helsta ástæðan Frá því á síðasta ári heftir Arin- björn Kúld rekið fyrirtæki sitt Or- yggisþjónustu Vesturlands í Borg- arnesi og á Akranesi. Starfsemin byggist upp á samningum við fyrir- tæki og stofnanir um heimsóknir á staðina og almenna vöktun verð- mæta. Undirtektir fyrirtækja hafa verið misgóðar og að sögn Arin- björns vantar talsvert uppá að end- ar nái saman í rekstrinum og þá sérstaklega í Borgarnesi. “Af þess- um sökum hyggst ég hætta starf- seminni í Borgarnesi um næstu mánaðamót. Eg er hins vegar tilbú- inn að endurskoða afstöðu mína ef fleiri fyrirtæki bætast við, menn greiða betur fyrir veitta þjónustu og grundvöllurinn fyrir rekstrinum lagist þannig”, sagði Arinbjörn. Þeir atvinnurekendur í Borgarnesi sem blaðið ræddi við, og kaupa vöktun, eru margir hverjir uggandi yfir því ef gæslan leggst niður. Af- brotatíðni sé almennt að aukast en ástandið hafi hins vegar batnað þann tíma sem fyrirtækið hafi verið starfandi. Eitthvað virðist því vanta uppá samstöðumátt borgneskra fyrirtækja hvað þetta snertir. Góð þátttaka í Snæfellsbæ Af þessum sökum hafði Skessu- horn samband við Helga Krist- jánsson sem rekur Oryggisþjón- ustuna í Snæfellsbæ og innti hann eftir viðbrögðum fyrirtækja þar við þjónustunni. “Það vill nú svo til að fyrirtæki mitt verður 5 ára þann 1. maí næstkomandi og er annað elsta fyrirtæki sinnar teg- undar á landinu. Eg hef alla tíð fengið afar jákvæð viðbrögð og góða þátttöku fyrirtækja. Eg byggi mína verðskrá upp þannig að verðið er lágt vegna þess að flest fyrirtæki kaupa vöktun. Menn vita það einnig að vöktunin hefur oft sannað sig bæði til að koma í veg fyrir skaða í húsum og við höfnina auk þess sem innbrot hafa upplýsts fyrr. Enda stendur lögreglan við bakið á starfseminni og þeirra orð eru að bærinn hafi breyst til batn- aðar eftir að regluleg vöktun hófst”, sagði Helgi Kristjánsson í Snæfellsbæ. MM a 56. ársþing Iþróttabanda- lags Akraness Laugardaginn 8. apríl s.l. hélt Iþróttabandalag Akraness 56. ársþing sitt. Rétt til setu á þinginu höfðu 42 fulltrúar frá öllum aðil- darfélögum IA og var rúmlega helmingur þeirra mættur. A þing- inu var lögð fram sérstaklega vön- duð ársskýrsla unnin af starfsmanni IA Jóni Þór Þórðarsyni. A þinginu voru kosnir í stjórn Iþróttaban- dalags Akraness þeir Sturlaugur Sturlaugsson formaður, Þorvarður Magnússon, Ragnheiður Runólfs- dóttir, Halldór Fr. Jónsson og Hugi Harðarson. Varamenn voru kosnir þau Magnús Oddsson og Ingunn Ríkharðs- dóttir. Kristinn Reimarsson frá ISI kynnti nýjar hugmyndir um gæðastjórnun hjá aðildarfélögun ÍSÍ, þar sem fyrirhugað er að veita félögum að uppfylltum ákveðnum skilyrðum viðurkenninguna “Fyrirmyndar- félag”. I lok þings urðu kröftugar umræður í kjölfar ræðu formanns Knattspyrnufélags IA Smára Guðjónssonar, þar sem hann hvatti bæjarfulltrúa á Akranesi til að gera umhverfi íþróttastarfs á Akranesi sambærilegt við það sem best gerist annarsstaðar. Smári benti á að Akraneskaupstaður væri að verða eftirbátur annarra sambærilegra sveitarfélaga hvað varðar beina rekstrarstyrki til íþróttafélaga. PO

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.