Skessuhorn - 17.01.2002, Blaðsíða 8
8
FÖSTUDAGUR 17. JANÚAR 2002
aáUUUIIU^i
Hús
Húseignin að Borgarbraut 49 í Borgarnesi
ertil sölu. Húsið er samtals 139 fm og hefur
verið töluvert endurnýjað. Nánari upplýsingar
veitir undirritaður á skrifstofutíma.
Pétur Krístinsson hdl.
Sími 438 1199
Stj órnmálaskóli
S j álf stæðisf lokksins
Helgamámskeið Stjómmálaskólans hefst
föstudaginn 25. janúar nk. í Grunn- og
fjölbrautaskólanum í Ólafsvík.
Skólinn verður starfandi frá föstudeginum til
og með sunnudeginum 27. janúar.
Námskeið stjómmálaskólans em ætluð áhugasömu fólki
um stjómmál bæði skólafólki og fólki úti í atvinnulífinu
og er farið yfir fjölmörg atriði. Fyrirlestrar og umræður
eru t.d. um flokksstarnð, sveitarstjómarmál, mennta-
og menningarmál, fjölmiðlamál, byggðamál,
samgöngu- og ferðamál.
Einnig fá þátttakendur þjálfun í ræðumennsku.
Áhugasömum er bent á að skrá sig í síma: 862 2998 eða
senda tölvupóst á tyrol@islandia.is
im
Borgarbraut 61
310 Borgarnes
Sími: 437-1700
Fax: 437-1017
INGI TRYGG VASON hdl.
lögg. fasteigna- og skipasali
NÝTTÁ SÖLUSKRÁ
Fálkaklettur 7, Borgarnesi
Einbýlishús, íbúð 133 ferm., bílgeymsla og geymsla
68 ferm. Forstofa flísalögð, hol og gangur parketlagt.
Eldhús parketlagt, viðarinnrétting. Stofa teppalögð,
einn veggur og loft viðarklætt. Fimm herb., eitt
parketlagt en fjögur dúklögð, skápar í 2 herb.
Þvottahús og búr. Stór geymsla á neðri hæð og
bílgeymsla.
Verð: 14.500.000.
BORGARBYGGÐ
TIL FASTEIGNAEIGENDA
í BORGARBYGGÐ
Álagningu fasteignagjalda 2002 í Borgarbyggð er
lokið og er nú verið að senda álagningarseðla
til gjaldenda.
Gjalddagar eru fimm þ.e. 15. janúar, 15. febrúar,
15. mars, 15. apríl og 15. maí. Vanskilavextir
reiknast 30 dögum eftir gjalddaga.
Sérstök athygli er vakin á að Sparisjóður
Mýrasýslu sér um innheimtu gjaldanna
eins og undanfarin ár.
Frekari upplýsingar um álagningu eru
gefnar á bæjarskrifstofunni.
Bæjarritari
Höfði þakkar fyrir Opið hús í 20 ár
„Opið bús“fer afstað á Höfða 2. apríl 1982 með léttri sveiflu. Edda Hálfdánardóttir, formaður
félagsmálaráðs, stígur dans við einn þátttakanda, Dísa á Höfðanum og Stefán í Skipanesi fylgjast með.
Sitjandi á bekkfrá v. Krístín og Sigurður á Geirsstóðum, Steini í Reykhólum og Ragnheiður frá
Miðfelli. Til hcegri md sjá Guðjón í Bæjarstceði, Berg Ambjömsstm og Ólínu í Skipanesi.
Nú í ár flytur opna hús-
ið starfsemi sína frá Dval-
arheimilinu Höfða og í
stærra, hentugra og von-
andi betra húsnæði sem
Akraneskaupstaður hefur
tekið á leigu hjá Verkalýðs-
félagi Akraness að Kirkju-
braut 40.
Það var 2. apríl árið
1982 sem Höfði, fyrst
dvalarheimila, opnaði hús
sitt fyrir skipulögðu félags-
starfi meðal aldraðra og
öryrkja. Varð það upphaf-
ið að þeirri félags- og
þjónustumiðstöð sem
heimilið hefur síðan rekið.
Félagsmálaráð Akraness
hefur frá upphafi, ásamt
Höfða, staðið fyrir því
fjölbreytta starfi sem boðið hefur ver-
ið uppá.
Lengst af hefur opna húsið verið
síðdegis á mánudögum og miðviku-
dögum, en boðið hefur verið uppá
námskeið af ýmsu tagi, spil, söng og
aðra skemmtun. Samkomumar era
nú orðnar 950 alls á þessu 20 ára
tímabili en þær hafa verið mjög vel
sóttar allt frá upphafi. A annað hund-
rað manns hafa sótt opna húsið á
miðvikudögum og er þá hvert sæti
skipað; heldur færri hafa komið á
mánudögum.
Stjóm Höfða, starfsfólk og íbúar
heimilisins vilja nota þetta tækifæri
og þakka öllum þeim mörgu sem lagt
hafa hér hönd á plóg; félagsmálaráði
og þeirra ágæta starfsfólki, félögum
úr FEBAN og öðrum sem lagt hafi
málefininu lið. Um leið óskum við
Akraneskaupstað, félagsmálaráði, Fé-
lagi eldri borgara og öðrum þeim
sem sækja félagsstarfið til hamingju
með nýja staðinn.
Opna húsið, í þessi 20 ár, hefur
verið íbúum Höfða mikilvæg viðbót
við annað öflugt félagsstarf á heimil-
inu. Vonandi geta gestir utan úr bæ
sem sótt hafa okkur heim sagt hið
sama. Þrátt fyrir að opna húsið hverfi
á braut frá Höfða, verður heimilið á-
ffarn öflug þjónustumiðstöð, en á-
herslur hafa breyst eins og jafnan
gerist á löngu tímabili.
Dægradvöl:
Dagvistun eða dægradvöl fyrir
aldraða og öryrkja er kosmr sem boð-
ið verður áfram uppá, en það var
einnig fyrir 20 árum, eða haustið
1981, sem hún tók til starfa. Dag-
deildin var sú fyrsta sinnar tegundar
hér á landi og var hún hugsuð fyrir þá
einstaklinga sem bjuggu einir heima
og fóru á mis við nauðsynlegt samfé-
lag við aðra. Þetta fólk vildi búa á-
fram heima og forðast þannig stofn-
anavist, en leitaði eftir ýmiskonar
þjónustu, starfsþjálfun og félagsstarfi.
Boðið er uppá dvöl eftir þörfum
hvers og eins, einn eða alla daga vik-
unnar. Alilli 20 og 30 manns njóta í
dag þessarar þjónustu, en á annað
htmdrað aldraðir eða öryrkjar hafa
sótt dægradvölina í þau 20 ár sem
hún hefur veið rekin.
Útseldur matun
I október 1994 var farið að senda
út mat ftá mötuneyti Höfða til aldr-
aðra og öryrkja úti í bæ. A milli 3000
og 4000 máltíðir hafá verið sendar út
árlega. A milli 25 og 40 einstakling-
ar nýta sér árlega þessa þjónustu, sem
er undir stjóm félagsmálaráðs Akra-
ness.
Ferðaþjónusta fadaðra:
Þann 1. nóvember s.l. hófu Akra-
neskaupstaður og Dvalarheimilið
Höfði í sameiningu að reka ferða-
þjónusm fyrir fatlaða og aldraða, en
áður hafði Höfði rekið akstursþjón-
usm vegna þeirra öldraðu sem sótt
hafa dagvistun á heimilinu frá 1981.
Þessi þjónusta hefur farið vel af stað
með bifreið af fullkomnusm gerð.
Hún er útbúin fyrir tvo hjólastóla auk
7 sæta.
Sjálfseignaríbúðin
27 raðhús og 15 bflskúrar voru
reist á lóð Höfða á árunum 1984 til
1993. Stærðir íbúðanna á Höfða-
grund eru frá 80 til 90 fermetrar.
Húsin voru reist fyrir forgöngu
stjómar Höfða. I húsunum hafa búið
alls 80 einstaklingar eða hjón um
lengri eða skemmri tíma. Búseta í
þjónustuíbúðum er góður kostur fyr-
ir þá aldraða sem vilja halda eigið
heimili sem lengst.
HjúkrunardeUd:
A síðastliðnum 10 árum hefur
hluta af dvalarheimilinu verið breytt í
hjúkrunardeild, en það er ffamkvæmt
í samræmi við kröfúr tímans. I dag
eru íbúar Höfða 78 alls og eru 39
skráðir á hjúkrunarrými en 39 á þjón-
usturými. A næsm árum má gera ráð
fyrir að íbúum á hjúkrunanými fjölgi
á sama tíma og íbúum á þjónusm-
rými fækki. Kostnaður við að koma
upp hjúkrunardeildinni á þessum 10
árum er 40 milljónir (25 milljónir í
byggingarkostnað og 15 milljónir í
ýmsan búnað). Framlög úr Fram-
kvæmdasjóði aldraðra hafa numið
35%, eða 14 milljónum. Hlutur
eignaraðila var því aðeins kr. 26 millj-
ónir. Að dómi fagmanna var kosm-
aður við þessar breytingar mjög lítill,
enda tiltölulega auðveldur í fram-
kvæmd.
Nú í ársbyrjun eru starfsmenn á
Höfða 88 alls í 62 stöðugildum. Um
leið og við endurtökum þakkir okkar
til opna hússins, viljum við þakka öll-
um þeim mörgu sem lagt hafa okkur
lið með góðum gjöfúm og heimsókn-
um á árinu 2001. Heimilisfólk, stjóm
og starfsfólk óskar íbúum Akraness
og sveitanna strnnan Skarðsheiðar
gleðilegs árs með þökk fyrir allt gam-
alt og gott.
Ásmuvdur Olafison, framkvæmda-
stjári Dvh. Höfia
Góð bók Borgfirðings
Mér finnst gott
að hafa verið til
af ýmsum
Ég keypti dálitla ljóðabók á síð-
ustu jólaföstu: Mér finnst gott að
hafa verið til, heitir hún og er eftir
Kristján Arnason frá Skálá í Sléttu-
hlíð. Hann er raunar Borgfirðing-
ur, eins og margir vita, fæddur að
Skarði í Lundarreykjadal; ólst upp á
Stálpastöðum í Skorradal en átti
síðan heima á Kistufelli áður en
hann flutti norður í Skagafjörð.
Kristján hefur stundað búskap og
smíðar. Að hætti margra starfs-
bræðra í bændastétt hefur hann
fengist við skáldskap; hefur gefið út
eina ljóðabók áður: Fjöllin sál og á-
sýnd eiga (1994).
Ég naut lesturs hinnar nýju
ljóðabókar Kristjáns Arnasonar og
vildi því mega vekja athygli les-
enda Skessuhorns á henni. Hún er
sérlega fjölbreytt, bæði að efni og
formi: Sum ljóðanna eru full af
gáska og glettni, stundum ögn
grárri, en önnur eru blandin al-
vöru og trega. Þar á milli verða svo
ljóð sem fjalla um flóknustu spurn-
ingar tilverunnar og lýsa djúpri og
skarpri hugsun.
Strax á fyrstu ljóða-
opnu bókarinnar sjáum
við breidd efnisins: á
vinstri síðu kvæðið
Skálárkarlinn, býsna
glettna sjálfslýsingu
skáldsins, en á þeirri
hægri kvæðið Móður-
minning, einkar fallega
kveðju skáldsins til móð-
ur sinnar, en minningu
hennar tileinkar Kristján
bókina. Ég vil að öðru
leyti ekki hafa af lesend-
um ánægjuna við að
kynnast af eigin raun
kvæðum Kristjáns Arna-
sonar, bendi þó á kaflann
Eftirmæli og afmælis-
ljóð. í honum bregður
Kristján upp afar
athyglisverðum myndum
samferðamönnum; ég nefni t.a.m.
kvæðin um Þórð í Haga og hjónin í
Gilstreymi, Hannes og Guðrúnu.
Og það er af fleiru að taka.
Mér fannst gott að hafa lesið
þessa bók.
Bjami Guðmundsson
Hvanneyri.