Skessuhorn - 05.06.2002, Side 2
2
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002
Lögreglan á Snæfellsnesi
Fremur annasöm helgi
Síðastliðin helgi var fremur anna-
söm hjá lögreglunni á Snæfellsnesi.
EUefii ökumenn voru teknir fyrir of
hraðan akstur og þrír vegna gruns um
ölvunarakstur. Að sögn Olafs Guð-
mundssonar, yfirlögregluþjóns, má
greinilega merkja aukinn hraða á
vegum úti með hækkandi sól. Olafur
segir að sé mið tekið af tímabilinu ffá
1. janúar til 31. maí hafi lögreglan
tekið mun fleiri ökumenn fyrir
hraðakstur í ár miðað við í fyrra.
Hljómsveitin Á móti sól lék á dans-
leik í samkomuhúsinu í Grundarfirði
á laugardagskvöldið og segir Olafur
að komið hafi til einhverra ryskinga á
milli heimamanna og aðkomufólks.
Voru kona og karl flutt á heilsugæslu-
stöðina í Grundarfirði og einn á lög-
reglustöðina.
Þá var lögreglunni tilkynnt um það
aðfararnótt sunnudagsins að bifreið
væri horfin frá þeim stað sem eigend-
umir skildu hana eftir á í miðbæ
Grundarfjarðar og fannst hann aftur
um sunnudagsmorguninn í Kolgrafa-
firði við Kolgrafahlíð.
smh
Haraldur
til áramóta
Haraldur Líndal verður að öll-
um líkindum bæjarstjóri í Dala-
byggð til áramóta. Hann mun ekki
hafa hugsað sér að vera lengur en
út kjörtímabilið en að sögn Guð-
rúnar Jónu Gunnarsdóttur verð-
andi oddvita hefur verið samið við
hann um að gegna starfinu til ára-
móta þannig að rýmri tími gefist
til að finna eftirmann. GE
Einbýlishús
óskast
til leigu
Einbýlishús óskast til leigu seinni hluta
sumars og til lengri tíma. Æskileg staðsetning
er Grundarhverfi eða Jörundarholt,
stærð 130 - 150 ftn. Areiðanlegir leigjendur
og skilvísum greiðslum heitið.
Nánari upplýsingar gefur Guðjón S. Brjánsson,
SHA í s. 430 6010 eða gsm 897 4661
Oortónleikar
rre^jukórsins
Freyjukórinn heldur vortónleika í
Reykholtskirkju sunnudaginn 9. júní kl. 15:00.
Á efnisskránni er fjölbreytt úrval innlendra og
erlendra laga, en auk kórsins koma fram
einsöngvarar og kvartett.
Stjórnandi kórsins er Zsuzsanna Budai, undirleik
i annast þau Steinunn Árnadóttir píanó, Haukur
; Gísiason kontrabassi og Lára Kristín Gísladóttir
þverflauta. Einsöngvarar eru þær Unnur
l Sigurðardóttir og Kristín Magdalena
Ágústsdóttir.
Aðgangseyrir er 1500 krónur, frítt fyrir
börn yngri en 12 ára.
Ævinna í boði
Njarðtak óskar eftir meiraprofsbílstjóra
til að hafa umsjón með gámaplani í
Borgarnesi.
Upplýsingar á skrifstofutíma í síma
898 8264, Ólafur
Hestaíþi
kosningadaginn ver<3
indási í Borgarnesi l
ipt verður
Skráninj
kl. 20-22 í sí!
ím frestað var á
fr haldið
júní kl. I0.00.
|álti og gæðingaskeic
laginn 13. júní
»9 og 437 I660
íþróttanefnd
Laxveiðin byrjar rólega
Gylfi Gautur Pétursson formadur Stangveiðifélags Reykjavtkur meðjjrsta laxinn úr
Norðurá.
Laxveiðin fer venju ffernur rólega
af stað að þessu sinni en fyrstu tvær
ámar af þeim „stóru“ hafa nú verið
opnaðar. Norðurá var opnuð síðast-
liðinn laugardagsmorgun og að
venju var það stjóm Stangveiðifé-
lags Reykjavíkur sem hefur ána á
leigu sem skipaði fyrsta hollið að
mestu og það var varaformaðurinn
Gylfi Gaumr Pémrsson sem náði
fyrsta laxinum, tíu punda hrygnu,
um klukkutíma eftir að áin var opn-
uð. Annar lax kom á land síðar um
daginn en þetta telst ffemur rýr
uppskera á opnunardaginn í Norð-
urá.
Þverá var opnuð í gærmorgun og
fór hún svipað af stað og Norðurá
en þar veiddust líka tveir laxar, 10 og
12 pimd. GE
Irlandsstofa á Akranesi?
Eins og fram hefur komið f
Skessuhorni gerði nefnd sem
starfar að írskum dögum tillögu til
bæjarstjómar í vor þess efnis að sett
verði upp Irlandsstofa á Akranesi.
Að sögn Gísla Gíslasonar, bæjar-
stjóra, er hugmyndin að baki því að
útbúa eitt af húsunum við Byggða-
safnið að Görðum þannig að þar
geti dvalist gestir, meðal annars frá
Irlandi, t.d. málarar, rithöfúndar,
tónlistarmenn o.s.ffv.
Nú hefur bæjarráð Akraness
samþykkt að skipa þriggja manna
starfshóp sem leggi fyrir bæjarráð
og stjóm byggðasafnsins tillögu um
hvernig megi koma tdllögu um Ir-
landsstofú í ffamkvæmd. í nefnd-
inni koma til með að sitja fulltrúi
stjórnar byggðasafnsins, menning-
ar- og skólafulltrúi og markaðsfull-
trúi Akraness. „Stjóm byggðasafns-
ins tók vel í hugmyndina og sá
starfchópur sem settur var á lagg-
irnar á að skoða hvernig megi
koma þessu í framkvæmd," segir
Gísli. „Ljóst er að það mun kosta
eitthvað að útbúa eitthvert húsið
þannig að unnt verði að búa í því.
Nefndin á að skila áliti ekki síðar en
í lok ágúst þannig að þá fyrst verð-
ur unnt að skoða hvenær og hvem-
ig megi koma þessu í gagnið.“
SÓK
Bæjarstjómarkosningar í Borgarbyggð
Framsóknarmenn kæra
Framsóknarfélag Mýrasýslu hefur
fyrir hönd B-listans í Borgarbyggð
lagt ffam kæm vegna sveitarstjóm-
arkosninganna þann 25. maí sl.
Eins og komið hefur fram í Skessu-
homi réði hlutkesti því að 2. bæjar-
fulltrúi Borgarbyggðarlista fór inn í
bæjarstjóm en ekki 4. maður B -
lista.
Með kærunni er í fyrsta lagið far-
ið ffam á að tiltekið atkvæði greitt
B-lista sem úrskurðað var ógilt verði
tekið gilt og þar með séu fjórir
frambjóðendm' B-lista réttkjörnir
bæjarfúlltrúar. Verði ekki fallist á
þessa kröfú er farið ffam á að öll at-
kvæði sem greidd vora á kjörstað og
utan kjörfundar verði endurtalin og
endurúrskurðað um vafaatkvæði.
I fféttatilkynningu ffá Framsókn-
arfélagi Mýrasýslu segir að við at-
hugun hafi komið í ljós að hægt
hefði verið að fá kosningu til sveit-
arstjórnar í Borgarbyggð ógilta í
heild sinni. „Hefði sú krafa byggst á
því að eitt ógilt atkvæði sem greitt
var utan kjörfúndar væri inni í taln-
ingunni. Þá er einnig hægt að færa
rök fyrir því að ekki hafi verið stað-
ið með óumdeilanlegum hætti að
hlutkesti milli 4. manns B-lista og 2.
manns L-lista.
Framsóknarmenn hafá ákveðið að
efna ekki til málssóknar sem gætd
haft jafn afdrifaríkar afleiðingar í för
með sér og endurkosningu til sveit-
arstjórnar eða armars hlutkestis milli
frambjóðenda. Verði fallist á fyrr-
nefúdar kröfur um endurtalningu
og/eða endurúrskurð um gild at-
kvæði munu þeir hlíta niðurstöðum
þeirrar framkvæmdar og líta svo á
að allri óvissu um úrslit kosninganna
sé þar með eytt“ segir í fféttatril-
kynningunni.
GE
Krakkamir í Grunnskólanum í Borgamesi létu undan blíðunni í morgun ogfóru í
skrúðgöngu um bæinn. Mynd: GE
Hvalfj arðargöng
Mikið um
hraðakstur
Mikið hefur verið um að öku-
menn sem aka í gegnum Hvalfjarð-
argöng virði ekki hámarkshraða.
Um síðustu helgi óku um 5800 bíl-
ar dl suðurs lun göngin og tæplega
200 þeirra óku á ólöglegum hraða
eða um 3% ökumanna. Flestir aka
á 84-89 km hraða en þeir eru þó
nokkrir sem keyra á allt að 120 km
hraða en hámarkshraði í göngim-
um er 70 km/klst
Hvítasunnuhelgin var einnig
slæm í þessu trilliti en þá fóru rúm-
lega 12 þúsund bílar til norðurs um
göngin. Þar af voru 137 á ólögleg-
um hraða. Einn þeirra ók hraðar en
nokkur hefur gert áður ffá því
göngin voru opnuð fyrir fjóram
árum síðan, á 147 km hraða. Hann
verður sviptur ökuleyfi í þrjá mán-
uði og verður gert að greiða 70
þúsxmd krónur í sekt. SOK
Gísli áfram
bæjarstjóri
Meirihlutd bæjarstjómar Akra-
ness kom sér saman um að fara
þess á leit við Gísla Gíslason að
hann gegndi áffam starfi bæjar-
stjóra og varð hann við þeirri ósk.
Þegar hefur verið gengið ffá
samningi við Gísla.
Meirihlutamyndun er ekki lok-
ið að öllu leyti en reiknað er með
að það verði gert á allra næstu
dögum. A þriðjudaginn kemur
verður svo fyrsti bæjarstjómar-
fundur nýrrar bæjarstjórnar á
Akranesi. SÓK
Borgarbyggð
Sami
meirihluti
Sjálfctæðisflokkur og Borgar-
byggðarlisti hafa náð samkomu-
lagri um áffamhaldandi meirihluta-
samstarf í bæjarstjóm Borgar-
byggðar en meirihlutasamkomu-
lagið hefur þegar verið samþykkt í
viðkomandi bæjarmálafélögum.
Helga Halldórsdóttir oddviti
Sjálfstæðisflokks verður forseti
bæjarstjómar en Finnbogi Rögn-
valdsson oddvitd Borgarbyggðar-
listans verður formaður bæjarráðs.
Að sögn Helgu standa yfir við-
ræður við hugsanlegt bæjarstjóra-
effii en hún vildi ekki gefa upp
hver þar væri á ferðinni en sagði
það myndi skýrast á næstu dögum
hvort samið yrði við þann aðila
eða starfið auglýst. GE
Björg áfram
bæjarstjóri
Allar líkur eru á óbreyttum
meirihluta sjálfstæðismanna og
Framsóknarflokks í Grundarfirði á
komandi kjörtímabili. Oddvitar
listanna hafa imdirritað samkomu-
lag um meirihlutasamstarf með fyr-
irvara um samþykki flokksfélag-
anna.
Samkvæmt samkomulaginu
verður Sigríður Finsen oddviti
sjálfstæðismanna forseti bæjar-
stjómar og Guðni Hallgrímsson
oddviti ffamsóknarmanna verður
formaður bæjarráðs. Allar líkur eru
á að Björg Ágústsdóttir verði áfram
bæjarstjóri í Grundarfirði þótt ekki
hafi verið gengið frá samningum
við hana. QE