Skessuhorn - 05.06.2002, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚNÍ 2002
SSgSSUHOBKl
Grafin heiðargæsabringa fyrir fjóra:
Hráefiii:
Bringa af einni heiðargæs (úr-
beinuð)
Gróft salt, mikið af því
1 msk. sinnepsfrœ
1 msk. baselika
1/2 msk. oregan
1 msk. timjan
1 msk. rósmarin
1 msk. salt
1 msk. svartwr pipar
1 msk. dillfræ
1 msk. sykur
1 msk. rósapipar
Aðferð:
Bringurnar kaffærðar í saltinu
og hafðar í 3-4 tíma. Þá er salt-
ið skolað af. Öllu kryddinu
blandað saman og bringurnar
þaktar með blöndunni. Látið
standa í lágmark 1 sólarhring
(bara betra eftir því sem lengra
líður).
Sósa
2 msk. púðursykur
1 msk. worcestersbire
2 msk. rauðvínsedik
1 tsk. dijonsinnep
1 dl góð olía.
Ollu hrært saman, olían seinust út
í.
Verði ykkur að góðu!
Grafin heiðargæs
Ólafur Stefánsson frá Litlu-
Brekku á Mýrum er orðlagður
fyrir hæfni í eldhúsinu. Hann hef-
ur verið haldinn ólæknandi veiði-
ástríðu ffá blautu barnsbeini og
segir að sé hann ekki á veiðum
eða með fjölskyldunni þá verji
hann helst ffítíma sínum á rell-
unni TF KOK sem hann á í félagi
við nokkra góða Borgfirðinga.
Ólafur er búsettur í Reykjavík
og á þar fjölskyldu og starfar sem
verktaki við trésmíði. Þó að tími
villibráða sé kannski ekki alveg nú
um stundir þá er víst að margir
skotveiðimenn eru farnir að
renna hýru auga til hausts og það
má jú alltaf borða ljúffenga villi-
bráðina. Fyrir Ólaf er nærtækast
að bjóða lesendum Skessuhoms
upp á uppskrift af grafinni heiðar-
Ólafur Stefánsson
gæsarbringu. og segir hann að
þessi réttur sé frábær sem forrétt-
ur eða á hlaðborð.
Ágúst Júlíusson var meðal þeirra átján
sem fóm til Danmerkur fyrir hönd
Sundfélags Akraness fyrir skömmu og
tóku þátt í einu stærsta sundmóti sem
haldið er í heiminum ár hvert. Árangur
Agústs var glæsilegur. Hann komst í úrslit
í fimm greinum og vann til
silfurverðlauna í 25 metra skriðsundi á
tímanum 13,25 sekúndur. Við fengum
Ágúst til að vera gest í skráargati vikunnar.
Agiíst Júlíusson
Nctfn: Agúst Júlíusson.
Fæðingardagur og ár: 28. janúar 1989.
Hæð: Eg man það ekki. Það var 1,51 m í haust. Segjum bara 1,58 m.
Starf: Eg er í Brekkubæjarskóla og æfi sund.
Fjölskylduhagir: Eg bý hjá foreldrum mínum.
Uppáhalds matur: Hamborgari.
Uppáhalds drykkur: Djús.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Fótboltaleikir, Heklusport og svoleiðis.
Uppáhalds leikari innlendur: Jón Gnarr.
Uppáhalds leikari erlendur: Jackie Chan.
Besta bíómyndin: Lord of the Rings.
Uppáhalds íþróttamaður: David Beckham.
Uppáhalds íþróttafélag: IA og Liverpool.
Uppáhalds stjómmálamaður: Davíð Oddsson.
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Strákamir í Quarashi.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Veit það ekki. Allir góðir.
Hvað meturðu mest ífari annarra: Að þeir séu skemmtilegir og góðir.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra: Baktal og svoleiðis.
Þinn helsti kostur: Eg er góður í sundi.
Þinn helsti ókostur: Eg er ekki mjög góður í skólanum.
Af hverju byrjaðirðu að æfa sund? Það ersvo langt síðan að ég man það
ekki. Eg byrjaði þegar ég varfimm ára. Frændi minn var að æfa.
Hvaða sund er skemmtilegast? Flugsund og skriðsund.
I hvaða sundi ertu bestur? Baksundi. En það er svo þreytandi.
Kom árangur þinn í Danmörku þér á óvart? Já, mjög.
Æfirðu ofi í viku? Fimm til sex sinnum. Oftast í matartímum.
Hefur aldrei hvarflað aðþér að hætta? Nei, eðajú stundum. En það eru
skemmtilegir krakkar íþessu.
Hvar sérðu þigjyrir þér eftirfimm ár? Eg ætla bara að halda áfram að
æfa.
Eitthvað að lokum? Nei, bara takkfyrir. Þetta var gaman.
Einkunnir úr samræmdum prófum
Vesdenskir nemendur bestir
í ensku og náttúrufræði
Einkunnir úr samræmdum próf-
um liggja nú fyrir og í ljós kemur að
nemendur á Vesturlandi standa sig
best í ensku og náttúrufræði þar
sem meðaleinkunnin er í báðum til-
fellum 7,3 en verst í stærðffæði. At-
hygli vekur hins vegar að nemend-
ur á Vesturlandi eru undir meðaltali
í öllum greinum nema stærðffæði
en í þeirri grein var meðaltalið 5,5
bæði á Vesturlandi og á landsvísu.
Meðaleinkunn Vestlendinga í ís-
lensku var 6,3 en 6,4 á landinu öllu
og 6,0 í dönsku miðað við 6,4 á
landinu öllu. Reykjavík hefur hæsta
meðaltalið í heildina.
Á meðfylgjandi töflu má sjá
helstu niðurstöður. SOK
Sálfræðiverkefni í FVA
íslenska Enska Náttúru- Stærð- Danska
ffæði firæði
Reykjavík 6,6 7,8 8,2 5,7 6,6
Nágr. Rvk. 6,5 7,7 7,9 5,8 6,7
Suðurnes 5,9 7,2 7,2 4,9 6,2
Vesturland 6,3 7,3 7,3 5,5 6,0
Vestfirðir 6,2 7,2 7,3 5,1 6,1
Norðurl. vestra 6,3 7,0 7,6 5,2 6,0
Norðurl. eystra 6,3 7,3 7,6 5,3 5,9
Austurland 6,3 7,3 7,4 5,1 6,3
Suðurland 6,1 7,0 7,4 5,0 5,7
Landið allt 6,4 7,5 7,8 5,5 6,4
Vesdendingar með eindæmum hjálpsamir
í sálfræðiáföngum í Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi eru á
ári hverju gerðar fjölmargar at-
hyglisverðar kannanir. I vor gerðu
þær Guðrún Kristófersdóttir,
Nína Borg Reynisdóttir og Ólöf
Lilja Lárusdóttir nokkuð merki-
lega könnun en viðfangsefni henn-
ar var að kanna hjálpsemi og/eða
afskiptaleysi fólks gagnvart öðrum
sem eru hjálparþurfi.
„Bilaðir“ bílar
í vegkanti
„Tilgangur tilraunarinnar var
fyrst og fremst að sýna fram á áhrif
hjálpsamra fyrirmynda á hjálpsemi
eða afskiptaleysi manna,“ segir
Guðrún. „Til þess að komast að
því hver þau væru ákváðum við að
leggja bíl úti í vegkanti neðan við
Hafnarfjall sem átti að virðast bil-
aður. Svo lögðum við öðrum bíl
sexhundruð metrum framar þar
sem ökumaður hans hafði fengið
hjálp frá öðrum vegfaranda. Sam-
kvæmt kenningunni átti þessi fyr-
irmynd að ýta undir hjálpsemi
annarra." Auk þess að komast að
því veltu höfundar tilraunarinnar
því fyrir sér hvort skipti máli hvers
kyns hjálparþeginn væri og hvort
kynjamunur væri á þeim sem byðu
fram aðstoð sína.
Konum fremur
hjálpað en körlum
Meginniðurstöður könnunar-
innar voru þær að áhrif hjálpsamr-
ar fyrirmyndar voru síður en svo
til að auka tíðni hjálpseminnar.
Heil 90% vegfarenda stöðvuðu
fyrir nauðstaddri konu þegar fyrir-
myndin var engin en hlutfallið
lækkaði niður í 20%, eða um
77,8%, þegar ökumenn sáu að
hjálpsamur vegfarandi var á næsta
leyti. Því er greinilegt að fólk legg-
ur frekar fram hjálparhönd þegar
enginn annar er nálægur. Hins
vegar mældist einnig 22% munur
á því hvort stoppað var fyrir karli
og konu og vart þarf að taka það
fram að færri stoppuðu fyrir
körlunum. Þó var úrkomulaust
þegar stöðvað var fyrir konunum
en karlagreyin stóðu úti í hríð.
Óvæntar niðurstöður
Guðrún segir þessar niðurstöð-
ur hafa komið þeim á óvart. „Þetta
var þveröfugt við það sem við
bjuggumst við. Við héldum að 20-
30% myndu stöðva 'og svo var
meiningin að auka það hlutfall
með fyrirmyndinni. Hjálpsemi
fólks var samt það sem kom okkur
mest á óvart og allir tóku því mjög
vel að einungis væri um könnun að
ræða enda afhentum við öllum sér-
stök viðurkenningarskjöl fyrir
hjálpsemina." Samkvæmt skýrslu
sem gerð var um könnunina hafa
rannsóknir sýnt að nálægð annarra
getur haft þau áhrif að fólk hugsi
með sér að það sé ekki endilega í
þeirra verkahring að hjálpa, heldur
muni aðrir sem eru viðstaddir ör-
ugglega leggja fram hjálparhönd.
SÓK
Allir með hjálma!
Þessir krakkar voru kampakátir með nýju hjálmana sína.
Akranesdeild Rauða kross ís-
lands gaf öllum nemendum í þriðja
bekk grunnskólanna á Akranesi
hjólreiðahjálma á dögunum. Þetta
er orðinn árlegur viðburður í starfi
deildarinnar og hafa hjálmarnir
sem hafa verið gefnir í gegnum
árin eflaust komið að góðum not-
um. Áður en hjálmarnir voru af-
hentir fengu börnin að sjá mynd-
band um hvernig eigi að nota þá
svo rétt sé og ekki síður hvernig
getur farið fyrir þeim sem nota þá
ekki.
SÓK