Skessuhorn - 10.07.2002, Page 2
2
MIÐVIKUDAGUR 10. JULI 2002
Jáiasunuk.i
Þrjár
hátíðir
um
helgina
Ferðamenn sem leggja leið
sína á Vesturland, sem og Vest-
lendingar, þurfa ekki að sitja
aðgerðalausir nú um helgina
því ekki færri en þrjár fjöl-
skylduhátíðir eru í boði.
Á Akranesi verður ein stærsta
bæjarhátíð sumarsins, Irskir
dagar sem nú verða haldnir
með sérstökum glæsibrag. Þar
er boðið upp á fjölbreytta dag-
skrá með írsku yfirbragði. Há-
tíðin hefst formlega á morgun
fimmtudag þegar Akraborgin
kemur í heimsókn á fornar
slóðir en þá eru nákvæmlega
fjögur ár síðan hún hætti sigl-
ingum.
Meðal skemmtikrafta á há-
tíðinni eru Irska hljómsveitin
Ash Plant og Riverdanshópur
sem koma sérstaklega til lands-
ins vegna írsku daganna. Þá má
nefna Kaffibrúsakarlalana,
Papana og fleiri og fleiri.
Svokallaðir „Tax Free“ dagar
verða ennfremur í verslunum á
Akranesi þessa daga, þar sem
hægt verður að gera góð kaup.
Leifshátíð
Tuttugu og fimm norskir vík-
ingar koma til landsins í rilefni af
Leifshátíð 2002 sem haldin er á
Eiríksstöðum í Haukadal. Þar
verður að vanda margt til
skemmtunar og andi Eiríks rauða
og hans samtíðarmanna mun
svífa yfir Haukadalsvatninu.
Sandaragleði
Á Hellissandi verður mikið
húllumhæ en svonefnd Sand-
aragleði verður endurvakin um
helgina. Þar verður ýmislegt í
boði, meðal annars fjölbreytt
tónlistaratriði. GE
Kviknaði í bát í Ólafsvíkurhöfii
Sjúkrahús Akraness
Fæðingardeild „lokuð“ í tvær vikur
Engar fæðingar hafa
verið leyfðar á fæðinga-
og kvensjúkdómadeild
Sjúkrahúss Akraness
frá 4. júlí síðastliðnum
og mun svo vera fram
til 17. júlí. Ástæðan er
sú að ekki fékkst stað-
gengill fyrir Stefán
Helgason, yfirlækni á
deildinni, en hann er í
sumarleyfi.
Anna Bjömsdóttir, deildarstjóri
fæðinga- og kvensjúkdómadeildar,
segir ástandið slæmt. „Það er að
vísu ekki lokað hér heldur mega
konumar ekki fæða hérna þar sem
enginn kvensjúkdómalæknir er á
bakvakt. En þær mega koma hingað
og liggja sængurleguna og þær hafa
gert það fjórar. Ein reyndar fæddi
hér barn á sunnudagskvöldið svo
þær em fimm sem hafa fætt á þess-
um tíma sem deildin hefur verið í
lamasessi.“ Anna segir þetta vera í
fyrsta skipti sem SHA hafi þurft að
grípa til þessa örþrifaráðs. „Við
höfum aldrei upplifað þetta, hér
hafa alltaf verið læknar. Þetta er í
fyrsta skipti sem þetta kemur upp á
og vonandi það síðasta.Við vitum
ekki hver ástæðan er fyrir þvx að
svona erfiðlega gengur að fá afleys-
ingalækni. Hvort það em svona fáir
í námi eða hvort þeir læknar sem til
era vilji einfaldlega frekar vera í
Reykjavík. Við vonum bara að þetta
leysist farsællega og að hingað verði
ráðinn fæðinga- og kvensjúkdóma-
læknir sem allra fyrst. Stefán er bú-
inn að vera á vöktum sjálfur í 11
vikur og hefur ekki komist út fyrir
göng á þeim tíma. Það heldur það
enginn út.“
Anna segir að Magnús Kolbeins-
son, skurðlæknir, sé á bakvakt í fjar-
vera Stefáns. „Hér verður alltaf
einhver sérffæðingur að vera á-
byrgur ef eitthvað kemur upp á og
Magnús tók það að sér núna. Við
miðum við að hafa hér vaktþjón-
ustu allan sólarhringinn og við get-
um ekki gefið okkur út fyrir að vera
með fjölgreinasjúkrahús með vakt-
þjónustu allan sólarhringinn án
þess að standa við það.“ Anna segir
að ekki séu líkur á því að fæðingar
verði bannaðar á deildinni lengur
en ffam að 17. júlí. „Við vonum svo
sannarlega ekki. Hér er að minnsta
kosti skráður keisaraskurður þann
18. júlí.“
SÓK
Borgarfjarðarsveit
Skrifstofa Borgarfjarðarsveitar
verður lokuð vegna sumarleyfa
frá 22. júlí til 6. ágúst að báðum
dögum meðtöldum.
Starfsfólk
Búfjárslysum í Borgarfirði fækkar
Skipulegar aðgerðir hafa slál-
að umtalsverðum árangri
Tíðni búfjár-
slysa hefur óvíða
verið meiri á und-
anförnum áram
en í Borgarfirði.
Fyrir þremur
áram hóf vega-
gerðin í samvinnu
við lögreglu og
bændur átak til að
stemma stigu við
þessu vandamáli. I
þeim tilgangi að
halda búfé frá
þjóðvegunum hef-
vegagerðin
ur
Jenni R. Olason aígætir veggirðingu skawmtfrá Fiskilæk.
Mynd: GE
Hefur þú áhuga á að kynna eða selja vörur
þínar á útimarkaði sem haldinn verður þann
20. júlí nk. á Hvammstanga?
Hafðu samband við Ferðamálafulltrúa
Húnaþings vestra, s. 455 2515
- netfang ferdamal@hunathing.is.
unnið skipulega að viðhaldi og
endurnýjun girðinga meðfram veg-
unum þar sem umferðin er mest.
Þá hefur vegsvæðið þar sem um-
ferðin er mest verið smalað reglu-
lega yfir sumarmánuðina.
Að sögn Jenna R. Ólasonar sem
stjómað hefur verkinu fyrir hönd
vegagerðarinnar hafa þessar að-
gerðir skilað umtalsverðum ár-
angri. „í fyrra varð umtalsverð
fækkun búfjárslysa frá því árinu
áður og það þökkum við ekki síst
betri girðingum og þessum smala-
mennskum." í sumar hafa girðing-
ar á um 20 km kafla undir Hafnar-
fjalli verið endurnýjaðar og segir
Jenni að á þeim slóðum sé ástandið
orðið gott. „í sumar hafa ekki orð-
ið nema sex umferðaróhöpp sem
tengjast búfé en öll nema eitt hafa
orðið í Norðurárdal og það er það
svæði sem er verst í dag. Við höfum
ástæðu til að ætla að ástandið geti
orðið enn betra ef allir leggjast á
eitt,“ segir Jenni. GE
Eldur kviknaði í skipinu Austur-
borg SH í Ólafsvíkurhöfn skömmu
fyrir miðnættið í gærkvöld. Tölu-
verðan tíma tók að slökkva eldinn
og urðu miklar skemmdir á bám-
um. Einn maður úr áhöfhinni var
fluttur á sjúkrahús með reykeitran.
Mikinn reyk lagði af eldinum yfir
bæinn en slökkviliðið var fljótt á
staðinn og kom í veg fyrir frekara
tjón.
Austurborg erum 30 tonna bátur og að
sögn lögreglu í Olafsvik var áhöfnin ný-
farin frá borði þegar eldsins varð vart.
Einn úr áhöfninni fór aftur um borð og
er talið að hann hafi fengið reykeitrun.
Mynd: Alfons
Sportstúlka
Akraness
kj'
• •• •
lonn
Þann 24. ágúst næstkomandi
verður haldin keppni um titilinn
Sportstúlka Akraness á Café Mörk
en átta stúlkur koma til með að
keppa um titilinn. Þetta er í fyrsta
skipd sem keppnin verður haldin
en ædunin er að gera hana að ár-
legum viðburði á Akranesi. For-
keppnir verða dagana 16. og 17. á-
gúst en stúlkurnar átta verða
kynntar bæði í Séð og heyrt og í
Skessuhomi að þeim loknum.
Silja Allansdóttir hefur umsjón
með keppninni sem er haldin í
samstarfi við ýmis íyrirtæki bæði á
Akranesi og í Reykjavík. Ber þar
helst að nefita Lind ehf., Lidu búð-
ina, Mozart, Ozone, Ölgerðina
Egil Skallagrímsson, Ævintýra-
ferðir og Flugskóla íslands en
stúlkumar koma allar til með að
fara í siglingu með Ævintýraferð-
um og þær sem lenda í þremur
efetu sætunum fá kynnisflug hjá
Flugskóla Islands.
Að sögn Jóhanns Pálmasonar,
annars eigenda Café Merkur, verð-
ur keppnin með léttu sniði. Stúlk-
umar koma til með að sýna föt og
boðið verður upp á fordrykk og
létta rétti. SÓK
Mikil aukning
ferðamanna í
Dalasýslu
Aðilar í ferðaþjónustu finna
fyrir umtalsverðri aukningu á
streymi ferðamanna í Dali vestur
að sögn Ölmu Guðmundsdóttur
ferðamálafulltrúa.
Strax á vormánuðum hafði
gestum á Eiríksstöðum fjölgað
um 48,2% á milli ára, mánuðina
;an. - 31. maí en þá vora gestir á
Eiríksstöðum 927 manns.
Þá var einnig umtalsverð aukn-
ing gesta á hótelinu að Laugum í
Sælingsdal, á sama tímabil. GE
Sama mann-
eskjan í tveimur
árekstrum
Síðastliðinn laugardag urðu
tveir árekstrar í umdæmi lögregl-
unnar í Borgarnesi. Fyrri árekst-
urinn varð skammt frá Brú í
Hrutafirði. Ung kona slasaðist í
árekstrinum og átti að flytja hana
í sjúkrabíl á Akranes. Rétt ofan
við Borgames lenti sjúkrabiffeið-
in hinsvegar í árekstri við jeppa-
biffeið. Ökumaður jeppans slas-
aðist töluvert og voru haim og
konan úr fyrri árekstrinum flutt á
sjúkrahús í Reykjavík. GE