Skessuhorn - 10.07.2002, Page 6
6
MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002
jhUsiiiuk.
Bjarki Gunnlaugsson gekk tdl liðs við
Skagamenn fyrir skemmstu eins og al-
kunna er og svo virðist sem það hafi
gert gæfumuninn. Liðið situr nú í
fjórða sæti deildarinnar eftdr að hafa
lengi vel vermt botnsætdð og er komið
í átta liða úrslit í bikarkeppninni.
Ohætt er að halda því ffam að þessi ár-
angur sé að minnsta kosti að einhverju
leytd Bjarka að þakka sem hefur heldur
betur verið á skotskónum í sumar og
hefur skoraði í hvorki meira né minna
en öllum þeim deildarleikjum sem
hann hefur spilað tdl þessa. Það er
bjargvættur IA sem er í skráargatd vik-
unnar.
Bjarki Gunnlaugsson
Nafn: Bjarki Bergmann Gunnlaugsson.
Fæðingardagur og ár: 6. mars 1913.
Hæð: 174 cm.
Starf: Heimavinnandi húsfaðir.
Fjölskylduhagir: Trúlofaður Gyðu Hlín Bjömsdóttur. Við eigum tvö
böm, Viktor 5 1/2 árs og Tönju Kristínu sem er tæplega tveggja ára.
Uppáhalds matur: Islenskt lambakjót og humar.
Uppáhalds drykkun Gott rauðvín, þau bestu komafrá Bordeaux hér-
aði í Frakklandi.
Uppáhalds sjónvarpsefni: Fréttir á Stöð 2.
Uppáhalds leikari innlendur: Ingvar E. Sigurðsson.
Uppáhalds leikari erlendur: Robert Deniro og Al Pacino.
Besta bíómyndin: Godfather I og II, Godfather III var mun síðri.
Uppáhalds íþróttamaður: Eg get ekki gert upp á milli Amars, Garð-
ars og Rúnars Gunnlaugssona.
Uppáhalds íþróttafélag: IA og Tottenham. Þegar Sol Campbell gekk
til liðs við til Arsenal fylgdi ég reyndar með í kaupunum ogjylgist nú
meira með Arsenal.
Uppáhalds stjómmálamaður: Davíð Oddsson. Er ekki bara einn
stjómmálamaður á Islandi?
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur: Bubbi Morthens.
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: U2.
Hvað meturðu mest ífari annarra? Heiðarleiki er númer eitt, tvö
og jnjú. Að geta treystfólki og því sem það er að seg/a.
Hvaðfer mest í taugamar á þér ífari annarra? Oheiðarleiki og
óstundvísi.
Þinn helsti kostur: Stundvísi.
Þinn helsti ókostur: Óþolinmæði.
Mottó: Ekkert svoleiðis. Maðurfer aldrei eftir því hvort sem er, betra
að sleppa því bara að eiga sér mottó.
Verða Skagamenn Islandsmeistarar í ár? Þeirfá að minnsta kosti
titil hver sem hann verður.
Afhverju ákvaðstu að ganga til liðs við Skagamenn? Bara. Mér
fannst það vera rétt í stóðunni. Þeir stóðu í veseni og ég ákvað að sjá
hvort ég gæti hjálpað þeim eitthvað.
Ertu ánægður með þá ákvörðun? Já, mjög svo. Þetta hefur gengið
betur en égþorði að vona.
Eitthvað að lokum? Allir að mæta á völlinn.
^Teldð til*í ísskápnum
Akumesingurinn Erna Haraldsdóttir sér um
eldhúskrók þessarar viku í Skessuhorni. Hún
segir að mjög gott sé að elda þennan fiskrétt
þegar tekið sé tdl í ísskápnum þar sem hægt sé
að nota hvaða grænmeti sem er í réttinn og
einnig ýmsa smurosta.
Tekið til í ísskápnum
2 góðýsuflök 1. Ýsuflökin skorin í bita og velt
1 paprika upp úr hveitiblöndunni, steikt í
1-10 sveppir olíu og sett í eldfast mót.
1/2 púrrulaukur 2. Grænmeti skorið í bita og
2 kramin hvítlauksrif steikt í olíunni og hellt yfir fisk-
inn.
Hveitiblanda: 3. Osturinn bræddur í rjómanum,
4 msk. hveiti grænmetiskrafti bætt út í og hellt
aromat yfir fiskinn.
salt 4. Hitað í ofni í 20 mín í 200°C.
sítrónupipar paprikuduft Borið fram með bestu lyst ásamt hrísgrjónum, salati og brauði.
Sósa:
1 peli rjómi 1/2 piparostur 2 tsk. grænmetiskraftur Verði ykkur að góðu!
Bátar, dósir og Bono
Rætt við Guðmund Orn Björnsson bátasérfræðing
á Skaganum
Guðmundur Örn Björnsson er
einn af þeim Skagamönnum sem
allir þekkja enda er hann sjálfur
Skagamaður í húð og hár. Guð-
mundur Örn, sem er aldrei kallað-
ur annað en Addi, hefur óbilandi
áhuga á öllu tengdu sjávarútvegi
og á yfir 500 tölublöð af Fiskifrétt-
um, gengur um Skagann og safnar
dósum fyrir tugi þúsunda á ári og
telur þær svo í vinnunni, veit allt
um U2 og hefur nú búið ásamt
tveimur félögum sínum, þeim
Hirti Grétarssyni og Guðmundi
Elíasi Pálssyni í raðhúsi á Eini-
grund í nærri tvö ár. Blaðamaður
Skessuhorns hitti Adda á heimili
hans og spjallaði við hann um lífið
og tilveruna.
Skagfirðingar
skemmtilegir
„Ég á afmæli 28. desember,
fæddur 1976. Varð 25 ára í fyrra,“
segir Addi aðspurður um aldur
sinn. „Það var gaman þegar ég átti
afmæli í fyrra. Ég bauð fullt af vin-
um mínum og kærastan mín, Sól-
veig Harpa, kom. Hún er indæl
hún Solla. Hún býr á Sauðárkróki
f Skagafirðinum, Skagfirðingar eru
svo skemmtilegir. Hvað finnst
þér?“ Addi kynntist Sollu á Isa-
firði. „Við byrjuðum saman 6.
október í fyrra. Ég kynntist henni
á bocciamóti. Boccia er mjög
skemmtileg íþrótt en það er ekki
málið að vinna heldur að vera með
þótt sumir haldi annað. I vor
keppti ég á Hængsmóti á Akureyri.
Þá kom ég sko ánægður heim, það
er sko pottþétt. A ég að segja þér
ástæðuna? Ég fékk hálsmen frá
kærustunni. Ég gaf henni rós dag-
inn eftir af því að þá vorum við
búin að vera saman í 30 vikur.“
Fór í túr með Ingunni
Eins og áður sagði hefur Addi
gríðarlegan áhuga á sjávarútvegi
og hann hefur gerst svo frægur að
fara í túr með nýjasta skipinu í
flota Haraldar Böðvarssonar hf.,
Ingunni. „Ingunn er glæsileg. Ég
fór í túr með þeim í mars, við vor-
um í tvo daga á loðnuveiðum. Það
tók tvo daga að fylla skipið, hún
ber 2000 tonn. Hann Matti skip-
stjóri bauð mér að koma með.
Fínn hann Matti. Hann spurði mig
í mars í fyrra hvort ég væri tilbú-
inn að koma í túr með honum. Ég
fór ekki fyrr en ári seinna því ég
þurfti að fá samþykki frá mömmu
og pabba. Það var langur tími.
Jahá, mér fannst það.“
Aðspurður um hvers vegna hann
hafi svona mikinn áhuga á skipum
segir Addi: „Mér finnst bara sum
skip svo falleg. Eins og t.d. Vík-
ingur. Hann var smíðaður í Þýska-
landi 1960 í Bremerhaven. Hann
ber 1400 tonn, sem er ekki mikið.
En það skiptir kannski engu máli.
Svo er ég líka áskrifandi að Fiski-
fréttum. Ég er búinn að vera á-
skrifandi síðan 1995 og á yfir 500
blöð, þetta er risastór bunki.“
U2 og Land og synir
„U2, þeir eru snillingar að mínu
mati,“ svarar Addi þegar hann er
inntur eftir því hver sé hans uppá-
halds hljómsveit. „Af íslensku
hljómsveitunum held ég mest upp
á Land og syni. Ég er búinn að fara
níu sinnum á ball með þeim. Níu
sinnum, hvorki meira né minna.
Ég sá þá í fyrsta skipti spila á
Langasandi. Það var annað hvort
'97 eða '98, ég man það ekki alveg.
Ég á tvo diska með þeim, bol, ég á
plakat og allt mögulegt. Söngvar-
inn heitir Hreimur. Mér finnst
hann sætur, já, mér finnst það.
Hefurðu tekið viðtal við hann?
Nei, er það ekki. Aldrei? Óhepp-
in.“
Allt veltur á Óla Þórðar
Það er víst enginn sannur
Skagamaður nema fylgjast með
blessuðum boltanum og Addi læt-
ur ekki hanka sig á svoleiðis smáat-
riði. „Ég veit nú ekki hvernig þeim
á eftir að ganga í sumar. Þetta er
nú ekki búið, ekki nema rétt hálfn-
að. Ég veit ekki hvort þeim tekst
að verja titilinn. Það kemur bara í
ljós hvernig Óli verður. Mér finnst
þetta velta á honum. Hann er jú að
þjálfa liðið.“ Þegar talið snýst að
enska boltanum leikur enginn vafi
á því hvaða liði Addi heldur með.
,Auðvitað Liverpool, ég er meira
að segja í Liverpool bol. En þú?
Manchester United. Þeir eru alltaf
að monta sig. Ég þoli það ekki. I
heimsmeistarakeppninni hélt ég
með Þjóðverjum. Ég átti ekki von
á því að þeir myndu tapa úrslita-
leiknum.“
Saftiar dósum fyrir 100
þúsund á ári
Óhætt er að halda því fram að
hver einasti Skagamaður hafi ein-
hvern tímann séð Adda á rölti um
Skagann með svartan ruslapoka í
annarri hendi að tína dósir. „Ég fer
að safna dósum á hverjum einasta
degi. Það eru líka verðmæti, það er
engin spurning. Pabbi sagði
reyndar alltaf að þetta væri rusl og
drasl. En mest hef ég fengið 37
þúsund í einu, það er sko met hjá
mér. Ég var með 70 poka þá, það
er sko ekkert smá Sigrún mín, ekk-
ert smá! Ég er búinn að finna svo-
lítið af dósum á þessu sumri. Það
er svo misjafnt hvað ég græði á
þessu en ég fæ svona 100 þúsund á
ári, hvorki meira né minna. Fyrir
þá peninga kaupi ég geisladiska.
Ég á 192 diska. Mig vantar bara
átta diska í viðbót og þá á ég 200.“
Græddi á ættarmóti
Addi er búinn að vera í sumarfríi
í þrjár vikur og á eina eftir. „Um
síðustu helgi fór ég á ættarmót. Ég
kom heim með þrjá poka af dósum
þá. Þrjá poka! Það er sko ekki lítið.
En það er gaman að fara á ættar-
mót. Það eru svo margir skyldir
mér. Til dæmis hún Elín Málm-
fríður fegurðardrottning, hún er
skyld mér.“ Aðspurður um hvort
leynist ekki fleiri stórmenni í ætt-
inni flissar Addi vel og lengi. ,Jú,
ég er nú til dæmis skyldur öðrum
frægum. Ég ætla nú varla að þora
að segja það... Arni Mathiesen,
hann er skyldur mér. Ég held að
ættin heiti Klingenbergsætt.“
Heimsfrægur
eins og Bono
Addi verður þungt hugsi þegar
blaðamaður býður honum að segja
eitthvað að lokum. „Þetta er erfitt,
ég verð að viðurkenna það. Jú, ég
veit. Hverjir eru bestir?!" segir
hann og neitar að svara fyrir sig.
„Hvað segirðu, hvenær kemur
blaðið út?“ spyr Addi blaðamann
þegar hann er á förum. „Á mið-
vikudaginn segirðu. Það er fínt. Þá
verð ég heimsfrægur. Heimsfræg-
ur eins og Bono.“