Skessuhorn


Skessuhorn - 10.07.2002, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 10.07.2002, Blaðsíða 7
 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 2002 7 Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull Fyrsta sumarið fer vel af stað Sjálfboðaliðar frá Bretlandi á leið til starfa Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull var stofnaður þann 28. júní á síð- asta ári og er því orðinn rúmlega ársgamall. I ár er hins vegar fyrsta sumarið þar sem um skipulagða dagskrá er að ræða og Guðbjörg Gunnarsdóttir, þjóðgarðsvörður, segir þetta fyrsta heila sumar sem þjóðgarðurinn er starfandi fara vel af stað. Hún veit þó ekki hversu margir hafa lagt þangað leið sína. „I augnablikinu stendur yfir taln- ing á ferðafólki. Þeir sem koma niður í Dritvík og Djúpalónssand eru taldir með ákveðnu millibili og þá fáum við vonandi mynd af ferðamannastraumnum.“ I þjóðgarðinum er boðið upp á ýmiss konar skipulagða dagskrá, bæði gönguferðir og bamastundir. „Þátttakan hefur verið misjöfn. Hún fer mikið eftir umferðinni og að sjálfsögðu veðrinu. Svo vita ekki allir af því sem í boði er en þetta festir sig vonandi í sessi fljót- lega. Barnastundirnar era fræðslu- og leikjadagskrá fyrir 5-12 ára. Krökkunum er leiðbeint í því að skoða umhverfi sitt, plöntur, pöddur og steina og svo er farið í ýmsa leiki. Barnastundirnar era á laugardags-, sunnudags- og mið- vikudagsmorgnum klukkan 11 og yfirleitt leggjum við af stað ffá tjaldstæðunum. Núna á laugardag verðum við með fjöraferð í Kletts- vík við Hellissand í tengslum við Sandaragleðina og á sunnudag verður barnastundin á Arnarstapa. Kvöldröltið okkar er á föstudags- og þriðjudagskvöldum en á laugar- dögum kl. 13 er lengri ganga. Núna á laugardaginn verður t.a.m. gengin Klettsgatan að Búðar- kletti," segir Guðbjörg og bendir á að allar nánari upplýsingar sé hægt að fá hjá sér í síma 436-6860 alla virka daga frá 9-17 og frá 10-14 um helgar. Einnig á vefsíðu www.natturavernd.is. Margir hafa lagt hönd á plóginn við vinnu við þjóðgarðinn og í lok síðasta mánaðar unnu starfsmenn úr vinnuskóla Snæfellsbæjar þar í viku við að hreinsa, taka til, taka upp gamlar girðingar og fleira. I næstu viku koma þangað sjálf- boðaliðar frá samtökunum BTCV alla leið frá Bretlandi. „Þessir sjálfboðaliðar hafa unnið mikið og gott starf bæði í Skaftafelli ogjök- ulsárgljúfrum við stígagerð og fleira. Þetta er fólk sem fer víða um heim og vinnur án launa en fær mat. Samtökin hafa komið í mörg ár til Islands á hverju ári og það er mjög mikill akkur í því að fá þau hingað." INGI TRYGG VASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61 310 Borgarnes Sími: 437-1700 Fax: 437-1017 NÝTTÁ SÖLUSKRÁ VEITINGASTAÐUR í BORGARNESI Til sölu veitingastaðurinn Vivaldi í Borgamesi. i Staðurinn er í fullum rekstri. Umeraðræða « innréttingar, tæki, áhöld, húsgögn og viðskiptavild. ! Staðurinn er mjög vel staðsettur, við Brúartorg, með ! tilliti til umferðar. Getur hentað mjög vel fyrir tvo aðila. Auglýsing um breytt deiliskipulag frístundabyggöar í landi Borga, Borgarbyggö. Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari breytingum, er hér með lýst eftir athugasemdum við ofangreint deiliskipulag. Tillagan mun liggja frammi á Bœjarskrifstofu Borgarbyggbar frá 12. júlí2002 til 9. ágúst 2002. Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna fyrir 23. ágúst 2002 og skulu þær vera skriflegar. Borgarnesi 2. júlí 2002 Byggingarfulltrúinn í Borgarbyggb Arbókin 2001 á tilboðsverði hjá útgefanda og í Pennanum - Bókabúð Andrésar UPPHEIMAR

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.