Skessuhorn


Skessuhorn - 10.07.2002, Page 8

Skessuhorn - 10.07.2002, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 10. JULI 2002 SBlSSUlrto*.! Auglýsing um deiliskipulag í Eyja- og Miklaholtshreppi Snœfellsnessýslu. Samkvæmt ákvæðum 18. og 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 er hér með lýst eftir athugasemdum við tillögu að deiliskipulagi fyrir 9 frístundahús og skógræktarsvæði í landi Þverár, Eyja- og Miklaholtshreppi. Tillagan ásamt byggingar- og skipulagsskilmálum liggur frammi hjá skipulags- og byggingarfulltrúa, Hrossholti, frá 11. júlí til 8. ágúst á venjulegum i skrifstofutíma. Athugasemdum skal skila fyrir 22. ágúst 2002 og skulu þœr vera skriflegar. Skipulags- og byggingarfulltrúi. 4?^ NAUTGRIPA- BÆNDUR ATH! Frá og med 8. júlí verða allar kýr sem koma til slátrunar staðgreiddar Sláturfélag Suðurlands, svf. Akraneskaupstaburl Útbobá skolplögn Akraneskaupstaður óskar eftir tilboöum í lagningu á skolplögn, frá Kalmansvík að Flatahverfi. Útboðsgögn verða til sölu á kr. 5000, hjá tækni-og umhverfissviði Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8, 300 Akranesi, frá og með kl. 14.00, þriðjudaginn 09. júlí, n.k. Tilboðunum skal skila til tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8, 300 Akranesi, í lokuðu umslagi, þannig merktu: „SKOLPLÖGN FRÁ KALMANSVÍK AÐ FLATAHVERFI2002." Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 30. júlí, n.k. kl. 10.30 á skrifstofu tækni- og umhverfissviðs Akraneskaupstaðar, Dalbraut 8, 300 Akranesi, að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska. Akranesi 03.07.02 Tcekni-og umhverfissvib Akraneskaupstabar. Fylgst með ökumönnum í Borgamesi og á Akranesi Fyrirmyndarökumenn fá glaðning Keppt í ökuleikni í tengslum við átakið A næstu dögum mun lögreglan verða meira á ferðinni til að fylgjast með ökumönnum í Borgarnesi og á Akranesi. Þetta er liður í átaki sem Sjóvá-Almennar og Bindindisfélag ökumanna standa fyrir í sumar með Okuleikninni í samstarfi við lög- regluna og umferðarfulltrúa Um- ferðarráðs, Landsbjargar og fleiri aðila. Atakið verður kynnt þann 16. júlí í Borgamesi og 18. júlí á Akra- nesi. Astæða átaksins er samkvæmt upplýsingum frá Sjóvá-Almennum fyrst og fremst aukinn ölvunarakst- ur yfir sumarið en á síðasta ári var hann mestur í júní og júlí. Aður- nefndir aðilar mtrnu því verða á ferðinni og stöðva ökumenn, til að kanna ástand þeirra og bflsins. Þeir ökumenn sem em til fyrirmyndar í akstrinum og hafa bflinn í lagi geta þó farið að hlakka tdl því þeir fá smágjöf afhenta frá Sjóvá-Almenn- um auk þess sem þeir verða hluti af hóp „Fyrirmyndarökumanna" og geta jafnvel unnið utanlandsferðir. I tengslum við átakið verður haldin hjólreiðakeppni fyrir 9 ára krakka og eldri, Go-kart leikni fyr- ir 12 ára og eldri og fyrir þá sem em komnir með ökuleyfi, mun verða boðið upp á Ökuleikni, þar sem keppendur fá að kynnast akst- urseiginleikum nýs VW Polo. Veg- leg verðlaun era í boði. Skömmu áður en Ökuleiknin hefst munu tveir þekktir aðilar úr bæjarlífinu keppa sín á milli á fjarstýrðum bfl- um. Fyrst með ölvunargleraugun og síðan án þeirra. Sá sem bemr ekur, fær verðlaun. I Borgarnesi keppa Stefán Skarphéðinsson sýslumaður og Helga Halldórs- dóttir forseti bæjarstjórnar en þeir Ólafur Þórðarson þjálfari IA og vöruflutningabílstjóri og Ólafúr Þór Hauksson sýslumaður á Akra- nesi. SÓK Ný kynslóð ferðakorta gefinút Landmælingar Islands hafa gefið út fyrsta ferðakortið af þremur í nýrri röð vandaðra ferðakorta í mælikvarðanum 1:250.000. Fyrsta kortið nær yfir Vestfirði og Norð- urland. Hin kortin tvö koma út á næsta ári. Annað tekur til Suður- og Vesmr- lands en hið þriðja til Ausmrlands. Nýju ferðakortin em stærri en geng- ur og gerist um landakort og em stærsm ferðakort sem gefin hafa verið út hér á landi á einu blaði. Stærð hvers korts er 86 x 137 cm. Samanbrotin em þau hins vegar með sama umfang og önnur kort Landmælinga. Nýja ferðakortið er að öllu leyti unnið stafrænt. Kortið er byggt á I tilefni af útkomu nýja feröakortsins afhenti Magnús Guð- mundsson, forsýóri Landmœlinga Islands, Sturlu Böðvarssyni samgönguráðherra, fyrsta eintak kortsins d hlaíamannafundi sem haldinn var af þesrn tilefni t síðustu viku. grunnupplýsingum úr gögnum Landmælinga Islands sem hafa verið uppfærðar og endurbættar þar sem þess var þörf. Stór hluti kortaupplýsinganna er fenginn úr stafrænum kortagrannum. Staf- ræna vinnslan gerir síðari tíma breytingar á kormnum afar auð- veldar. Um helgina verður haldin Sandaragleði á Hellissandi og verður mikið þar um að vera afþví tilefni. Undanfarið hafa btejarbúar og aðrir unnið að því aðfegra beeinn og Ijósmyndari Skessuhoms rakst á þennan unga mann utan við Hótel Hellissand á dögunum þar sem hann vann hörðum höndum að því að helluleggja. rfcysjf, ‘t oháe ’t/u'd Vísunda- kenningin Þií gætir hafa heyrt þessa kenningu áður en enginn hefur líklega náð að útskýra hana jafnvel og hinn ótrúlega vitri Clijf Clavin úr þættinum Staupasteini sem var sýndur á RUV við miklar vinsældir um árabil, eins og menn muna sjálf- sagt eftir. Dag einn var Cliff að út- skýra Vísundakenninguna fyrir Norm. ,Jú, sjáðu til Norm. Svona virkar þetta. Hraði vísundahjarðar tak- markast alltaf af hraða þeirra vísunda sem komast hægast yfir. Þegar veiðimenn eða rándýr elta hjörðina em það alltaf þeir hægförustu og veikustu sem aftast em sem nást fyrst og em drepnir. Það að náttúran hafi þennan hátt- inn á kemur sér vel fyrir hjörðina sem heild vegna þess að hraði og heilsa hópsins sem heildar bamar þegar þeir veikusm era drepnir reglu- lega. A sama hátt getur manns- heilinn einungis starfað jafh- hratt og jafnvel og hægusm heilasellurnar. Mikil neysla alkóhóls drepur heilasellur eins og við allir vimm, en náttúran sér til þess að það ræðst á hægustu og lélegustu heilasellurnar fyrst. Þannig leiðir regluleg neysla bjórs til þess að lélegusm heilasellurn- ar drepast og heilinn verður þar með hraðvirkari og ná- kvæmari fyrir vikið. Það er einmitt út af þessu sem manni finnst maður alltaf aðeins gáf- aðri eftir að hafa drukkið nokkra bjóra.“ Mýá mykjuskán Tvær mýflugur sitja á mykjuskán. Önnur þeirra rekur við. Hin flugan límr hneyksluð á þá fyrri og segir með vanþóknun: „Væri þér sama! Eg er að borða!“ Lögfræð- ingar og vinir þeirra Maður labbar inn á bar og er mjög argur. Barþjónninn færir honum drykk og spyr hann hvað ami að. Maðurinn svarar ekki en tautar í sífellu: „Allir lögffæðingar era skít- hælar.“ Maður sem simr í horni staðarins hrópar: „Heyrðu vinur! Þetta finnst mér hin argasta rnóðgun!" Argi maðurinn spyr: „Hvers vegna? Ertu lögfræðingur?“ „Nei,“ svarar hinn. „Eg er skíthæll.“

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.