Skessuhorn - 10.07.2002, Blaðsíða 11
SIEgSSUKiOSft
MIDVIKUDAGUR 10. JULI 2002
11
~3
Ná Skagamenn að
verja íslands-
meistaratitil sinn
í knattspymu?
Högni Haraldsson
-Já, auðvitað.
Sigurrós María Sigurbjöms-
dóttir
-Nei, e'g held ekki.
Berglind Pétursdóttir
->•
Þóra Hlín Þórisdótor
-Já, ekki spuming.
Vésteinn Sveinsson
-Nei, en þeir lenda í einu af þrem-
ur efstu scetunum.
Brynja María Brynjarsdóttir
-Nei, en þaö gæti verið möguleiki
efþeirfá Amar Gunnlaugsson til
liðs við sig.
ÍPRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR - ÍÞRÓTTIR -
Sundmeistaramót íslands
Kolbrún sexfaldur
íslandsmeistari
Sundmeistaramót íslands fór
fram um helgina og var árangur
Sundfélags Akraness ágætur á
mótinu. Liðið endaði í 4. sæti í
stigakeppni liða með 7 gullverð-
laun, ein silfurverðlaun og 3
bronsverðlaun.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir stóð
sig að venju framúrskarandi vel,
sigraði örugglega í öllum þeim
sex greinum sem hún keppti í og
tryggði sér sex íslandsmeist-
aratitla auk þess sem hún vann
Kolbrúnarbikarinn annað árið í
röð en hann er veittur því sund-
fólki sem vinnur bestu afrek
mótsins samkvæmt stigatöflu. [
ár fékk Kolbrún Ýr bikarinn fyrir
sigur sinn í 100 m skriðsundi en
fyrir hann hlaut hún 741 stig. Hún
synti sundið á tímanum 59,43
sekúndum. Aðrar greinar sem
Kolbrún Ýr keppti í voru 100 m
baksund, 200 m baksund og 50
m flug-, bak- og skriðsund.
Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir.
Gunnar Smári Jónbjörnsson
náði einnig góðum árangri á
Sundmeistaramótinu en hann
sigraði í 1500 m skriðsundi eftir
harða keppni.
Kolbrún Ýr er nú að undirbúa
sig fyrir Evrópumeistaramótið í
sundi en það fer fram í Berlín í lok
þessa mánaðar.
SÓK
íslandsmeistararnir komnir á skrið
Öruggur sigur á
Fylki í Árbænum
Hjörtur Hjartarson
islandsmeistarar IA unnu örugg-
an sigur á erkifjendunum í Fylki á
útivelli, 3-1 á sunnudag. Þrjú mörk
frá Skagamönnum á fimmtán mín-
útna kafla í fyrri hálfleik gerðu út
um leikinn og var eftirleikurinn
næsta auðveldur.
Fyrir leikinn munaði 7 stigum á
liðunum og er óhætt að fullyrða að
Skagamenn hefðu misst toppliðin
of langt frá sér hefðu þeir tapað
leiknum. Það var hinsvegar Ijóst
strax frá upphafi að Skagamenn
ætluðu sér ekkert annað en sigur.
Ekki voru nema sex mínútur
liðnar af leiknum þegar Gunnlaug-
ur Jónsson vann skallaeinvígi eftir
hornspyrnu, boltinn rataði þaðan á
kollinn á Bjarka Gunnlaugssyni
sem stýrði honum yfir línuna.
Fimmta mark Bjarka í fjórum leikj-
um en hann hefur skorað í öllum
þeim deildarleikjum sem hann hef-
ur spilað í sumar.
Strax í næstu sókn mátti
minnstu muna að Fylkismönnum
tækist að jafna en Ólafur Þór
Gunnarsson gerði vel í að verja
skalla af stuttu færi.
Áfram héldu Skagamenn og á
13. mínútu skoraði Kári Steinn
Reynisson sitt fyrsta mark í sumar.
Bjarki sendi laglega stungusend-
ingu inn fyrir vörn Fylkis þar sem
Ellert Jón Björnsson sendi boltann
á Kára sem rak endahnútinn á lag-
lega sókn.
Náðarhöggið kom svo á 21.
mínútu. Ellert braust upp hægri
kantinn og lék á varnarmann áður
en hann sendi knöttinn fyrir mark-
ið. Þar mætti Hjörtur Hjartarson
boltanum, kastaði sér fram og
skallaði boltann í nærhornið úr
þröngu færi. Staðan í leikhléi 0-3.
Fimm mínútum eftir að flautað
var til seinni hálfleiks gerðist um-
deilt atvik. Andri Karvelsson var
með boltann við endalínu ÍA meg-
in, þar sem einn leikmaður Fylkis
pressaði hann. Fylkismaðurinn
virtist brjóta á Andra sem datt fram
fyrir sig og á boltann og handlék
knöttinn um leið. Línuvörðurinn
flaggaði og áttu flestir von á því að
dæmd yrði aukaspyrna á Fylki en í
stað þess dæmdi dómarinn, eftir
að hafa ráðfært sig við aðstoðar-
mann sinn, vítaspyrnu. Úr henni
skoruðu Fylkismenn eina mark sitt
en minnstu munaði að Ólafi mark-
verði tækist að verja fjórðu víta-
spyrnu sína í röð í efstu deild.
Liðin skiptust á að sækja í seinni
hálfleiknum. Fylkismenn voru held-
ur meira með boltann en Skaga-
menn fengu mun hættulegri færi.
Það besta fékk Grétar Rafn Steins-
son þegar hann tætti vörn Fylkis í
sundur með frábærum einleik en
markvörður Fylkismanna varði.
Fleiri mörk voru ekki skoruð og
lokatölur því 1 -3.
Við sigurinn skutust Skagamenn
upp um fimm sæti, úr því níunda í
það fjórða. Taka ber þó með í
reikninginn að nokkur lið eiga leiki
inni á ÍA.
Leikurinn við Fylki var beint
framhald af frammistöðu liðsins í
deildarleiknum á undan gegn ÍBV.
Leikmenn sýndu mikla baráttu frá
fyrstu mínútu og geislaði sjálfs-
traustið og sigurviljinn af þeim.
Flestir leikmenn liðsins voru að
spila vel en enginn þó betur en Ell-
ert Jón Björnsson. Þá átti Pálmi
Haraldsson einnig frábæran leik.
Næsti leikur Skagamanna er á
Akureyri gegn Þór á fimmtudaginn.
SÓK
Skallagrímur enn án stiga
Áttunda tapið í röð
Hvorki gengur né rekur hjá
Skallagrími í 2. deildinni og fátt
virðist geta komið í veg fyrir að
þeir spili í 3. deildinni á næsta ári.
Skallagrímur tapaði sínum áttunda
leik í sumar í átta leikjum, nú fyrir
Völsungi á heimavelli, 1-3.
Sem fyrr fengu Skallagríms-
menn mark á sig snemma leiks og
var staðan orðin 2-0 gestunum í vil
eftir hálftíma leik. Finnur Jónsson
minnkaði muninn á 36. mínútu
með góðu marki og Skallagríms-
menn voru þar með aftur komnir
inn í leikinn.
Ekki voru nema þrjár mínútur
liðnar af síðari hálfleik þegar Völs-
ungar bættu við þriðja markinu og
munurinn því aftur orðinn tvö
mörk.
Tíu mínútum síðar var einum
gestanna vikið af leikvelli með
rautt spjald. Skallagrímsmönnum
tókst hinsvegar ekki að nýta sér
liðsmuninn og urðu lokatölur 1 -3.
Skallagrímur er í slæmum mál-
um á botni deildarinnar án stiga,
níu stigum frá áttunda sæti og er
því með afgerandi „forystu" á
botni deildarinnar. Liðið er eins og
áður segir með 0 stig og þar að
auki hefur liðið skorað fæst mörk í
deildinni en fengið flest á sig.
Valdimar þjálfari Sigurðsson verð-
ur því heldur betur að fara að töfra
fram einhverjar lausnir ef liðið á að
halda sæti sínu í deildinni.
Molar
íslandsmeistarar ÍA halda á sunnu-
daginn til Bosníu þar sem þeir meeta
Zeijeznicar í fyrstu umferð forkeppni
Meistaradeildarinnar á miðvikudag-
inn. Reiknað er með að ferðalagið
taki um 14 tíma og ættu Skagamenn
því að vera komnir á áfangastað um
miðjan dag á mánudaginn.
Hjálmur Dór Hjálmsson fer ekki með
liðinu til Bosníu þar sem hann er í leik-
banni. Hjálmur fékk rautt spjald í fyrri
leiknum gegn Club Brugge í fyrra fyr-
ir litlar sakir og í kjölfarið fékk Hjálmur
öllum að óvörum fjögurra leikja bann.
Komist Skagamenn áfram í aðra um-
ferð getur Hjálmur tekið þátt í seinni
leik liðsins gegn Lilleström.
Bjarki Gunnlaugsson mun heldur
ekki fara til Bosníu en af öðrum á-
stæðum en Hjálmur. Mikið álag verð-
ur á leikmönnum ÍA í júlí og þar sem
Bjarki er í raun meiddur hyggst Ólafur
Þórðarson ekki taka áhættuna á því
að ofkeyra hann með of mörgum
leikjum.
Hart var barist í sannkölluðum
Vesturlandsslag þegar HSH og Bruni
skildu jöfn 1-1 í 3. deildinni um síð-
ustu helgi. Eftir leikinn er Bruni I
fjórða sæti með 10 stig en HSH í því
fimmta með fimm stig.
Hálfdán Gíslason lék sinn 100. leik
fyrir ÍA þegar hann kom inn á í leikn-
um gegn Fylki. í þessum 100 leikjum
hefur Hálfdán skorað 39 mörk. Grétar
Rafn Steinsson náði einnig 100 leikja t
markinu á dögunum. Áfanganum
náði Grétar í sigurleiknum gegn
Keflavík í sjöttu umferð.
3. flokki karla ÍA í knattspyrnu geng-
ur allt í haginn þessa dagana og sitja
strákarnir í efsta sæti deildarinnar eft-
ir 4-6 sigur á KR í Frostaskjólinu síð-
astliðinn föstudag. Skagamenn skor-
uðu tvö mörk snemma í leiknum en
staðan í byrjun seinni hálfleiks var
orðin 4-3 KR-ingum í vil. Skagamenn
gáfust ekki upp og skoruðu ein þrjú
mörk á síðustu 25 mínútum leiksins
og eru nú í fyrsta sæti deildarinnar á-
samt Frömurum sem eru með lakara
markahlutfall. Á sunnudag tryggðu
leikmenn 3. flokks sérsvo sæti í und-
anúrslitum bikarkeppninnar með 5-2
sigri á Fylkismönnum á Akranesvelli.
2. flokkur karla ÍA sigraði Hauka í 16
liða úrslitum í bikarkeppni KSÍ um
helgina. Garðar Gunnlaugsson skor-
aði fyrsta mark leiksins úr vítaspyrnu
þegar aðeins 2 mínútur voru liðnar af
leiknum. Staðan var orðin 3-0 fyrir
leikhlé en Haukar klóruðu í bakkann í
síðari hálfleik og skoruðu eitt mark.
Lokatölur urðu því 3-1.
Borgfirðingar - Nærsveitarmenn
Komið og skoðið myndlistarsýninguna í Hótel
Reykholti n.k. laugardag milli 16:00 og
j 18:00 og þiggið léttar veitingar
HHH
Auglýsing
um deiliskipulag golfvallar í
landi Hrebavatns,
Borgarbyggb.
Samkvæmt ákvæöum 18. og 25. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997, með síðari
breytingum, er hér með lýst eftir athugasemdum
við ofangreint deiliskipulag.
Tillagan mun liggja frammi á Bœjarskrifstofu
Borgarbyggbar frá 12. júlí2002 til 9. ágúst 2002.
Athugasemdum skal skila á bæjarskrifstofuna fyrir
j^^23Tógúst 2002 og skulu þær vera skriflegar.
Borgarnesi 2. júlí 2002
Byggingarfulltrúinn í Borgarbyggb