Skessuhorn


Skessuhorn - 13.11.2002, Qupperneq 4

Skessuhorn - 13.11.2002, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. NÓVEMBER 2002 WWW.SKESSUHORN.IS Borgarnesi: Borgarbraut 23 Sími: 431 5040 Fax: 431 5041 Akranesi: Kirkjubraut 3 Sími: 431 4222 Skrifstofur blaðsins eru OPNAR KL. 9- 16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Tiðindamenn ehf 431 5040 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjóri og óbm: Gísli Einorsson 892 4098 ritstjori@skessuhorn.is Blaðamaður: Hjörtur J. Hjortarson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is Auglýsingor: Hjörtur J. Hjartorson 864 3228 hjortur@skessuhorn.is Prófarkalestur: Anna S. Einarsdóttir anna@skessuhorn.is Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir gudrun@skessuhorn.is Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 ú þriðjudögum. Auglýsendum er bent ó að panta auglýsingaplóss tímanlega. Skilafrestur smóauglysinga er til 12:00 ó þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til úskrifenda oa í lausasölu. Áskriftarverð er 850 krónur með vsk. ó mónuði en krónur/50 sé greitt með greiðslukorti. Veið í lausasölu er 250 kr. 431 5040 Skemmtileg leiðindi Þótt síst sé skortur á afþreyingu hverskonar í nútíma þjóðfélagi þá eru það ekki nýjustu tölvuleikirnir eða önn- ur afkvæmi tölvualdar sem heilla mest þegar upp er stað- ið. Þrátt fyrir endalausar nýjungar þá er það í þessu tilfelli eins og oft áður það gamla og góða sem stendur upp úr. Því hefur það ekkert breyst að engu er meira gaman að en góðum leiðindum. Þegar leitað er að leiðindum er ekki betra að róa á nokkur mið en þau pólitísku. Það sanna svo um munar at- burðir helgarinnar þegar Sjálfstæðismenn efndu til próf- kjörs með ófýrirséðum afleiðingum. Þar kom berlega í ljós að prófkjör er einstaklingsíþrótt og þar er enginn annars bróðir í leik þegar upp er staðið. Þótt það komi þessu máli ekki við þá gerði ég þau stóru mistök fyrir skömmu að reyna að kenna syni mínum skák og var nokkuð hreykinn af því framtaki mínu enda taldi ég þetta sterkan leik í uppeldislegu tilliti þar sem skák er afar þroskandi íþrótt og lítið um íþróttameiðsl, alla jafna. Annað kom hinsvegar á daginn því eftir að sonur minn hafði náð sæmilegu valdi á mannganginum taldi hann enga ástæðu til að láta í minnipokann fyrir sköllóttum föður sínum. Þegar það gekk ekki eftir sakaði hann föður sinn um svindl og barði hann með taflborðinu svo að stórsá á hvorutveggja. Sem betur fer er pilturinn ekki nema sex ára og því nokkuð langt í að hann hafi mögu- leika á að taka þátt í prófkjöri. Ekki ætla ég að taka afstöðu til þess hver hefði með réttu átt að vinna og hver að tapa í prófkjöri Sjálfstæðis- flokksins í Norðvesturkjördæmi, hver var hæfastur, hver vanhæfastur eða hver svindlaði mest, minnst eða bara alls ekki. Sem fréttamaður nýt ég að sjálfsögðu til fullnustu ánægjulegra illinda en samt sem áður hef ég fulla samúð með þeim ágætu frambjóðendum sem standa frammi fyr- ir því að það eina sem skiptir máli eftir allra þeirra baráttu er að hugsanlega hafi verið brögð í tafli. Ekki síst vor- kenni ég sigurvegurum prófkjörsins sem fá ekki tækifæri til að njóta uppskerunnar fyrir eftirmálunum. Ennfremur harma ég það sem Vestlendingur að suðurhluti þessa bráðum fyrrverandi kjördæmis skuli í seinni tíð vera orð- inn nokkurskonar Flórída norðursins því að hér virðist það vera orðið að einhverskonar náttúrulögmáli að ekki sé hægt að framkvæma einfalda kosningu án þess að það hafi einhver eftirmál. Hvort sem niðurstaðan verður sú að kosningarétturinn verði tekinn af Vestlendingum samkvæmt fýrirskipun Davíðs þá styður þessi uppákoma enn og aftur þá skoðun mína að lýðræði eigi engan rétt á sér. Gísli Einarsson stjórnmálafræðingur Nýr yfirlæknir fæðinga- og kvensjúkdómalæknir kominn til starfa Vilhjálmur Kr. Andrésson, sér- fræðingur í fæðingum og kven- sjúkdómum hefur verið ráðinn yf- irlæknir kvensjúkdómaaeiningar fæðinga- og kvensjúkdómadeildar Sjúkrahússins á Akranesi. Vil- hjálmur er fæddur í Reykjavík árið 1951, lauk almennu lækna- námi á Islandi árið 1980 og sér- fræðinámi í kvenlækningum í Noregi 1987 og starfaði nú síðast á FSA sem forstöðulæknir kvennadeildar. Hann verður í fullu starfi á SHA og verður jafn- hliða með stofumóttöku. Vil- hjálmur er kvæntur Kristínu Jó- hannsdóttur, hjúkrunarfræðingi og eiga þau 3 börn, tvö eru upp- komin en 19 ára sonur stundar nám við Fjölbrautarskóla Vestur- lands. Fjölskyldan er búsett á Akranesi. HH Utíbú Hafró í Olafcvík Þöglir ganga þorskar og aðrir fiskar í ála, sumir ómeðvitaðir um að þeir eru starfskraftar Hafrann- sóknastofnunar og safna upplýs- ingum um ferðir og útbreiðslu sinnar tegundar. í haust bárust útibúinu nokkrir skarkolar sem flestir voru merktir í Faxaflóa en veiddust í Breiðafirði og við Vestfirði. Tveir ufsar feng- ust og höfðu þeir ekki farið um langan veg. Oðru máli gegnir um þorsk sem veiddist á grunninu suður af Haga á Barðaströnd . Sá var merktur á grunnslóð út af Bjarnarfirði á Ströndum ári áður. Auk þess fengust 11 þorskar sem merktir voru út af Ólafsvík og á Skarðsvík í júní s.l., flestir mjög nærri merkingarstað. Efdrfarandi bátar veiddu þá: Benjamín Guð- mundsson SH, Esjar SH, Gísli SH, Guðbjartur SH, Gunnar Bjarnason SH, Jóhanna SH, Magnús Ingimarsson SH og Þor- steinn SH, Sjómönnum er þökkuð skilvísin, og þeir jafnframt hvattir til að koma með merki á útibúið í Ólaf- vík. Nýr bátur til Olafsvíkur Draumabátur til Olafsvíkur Það var sannkallaður gleðidagur fyrir skömmu í Ólafsvík er þangað kom splunkunýr bámr. Báturinn sem ber nafnið Kristinn SH 112 var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak ehf. Báturinn er byggður úr plasti og er 11,35 m langur, breiddin er 3,9 m og dýptdn er 1,55 m. Kristinn SH er af gerðinni Vík- ingur 1135 og mælist 14,9 lestir. Eigendur eru þeir feðgar Þor- steinn og faðir hans Bárður Guð- mundsson en þeir reka fyrirtækið Breiðavík ehf en einnig eiga þeir bátinn Gægir sem notaður er til grásleppuveiða. Sögðu þeir báðir að báturinn hefði reynst mjög vel í prufusiglingunni og einnig við veiðamar. Þeir em búinir að róa nokkra róðra og sögðu að þetta væri sannkallaður draumabátur sem þeir væra með svo vel hafði hann reynst þeim. í Kristni SH er vél af gerðinni Catepillar 3196 og er hún aflmikil eða 660 hö og báturinn gengur því mjög vel eða um 26 sml á klst þó miðað sé aðeins við 80% af vélar- afli. Nýjustu siglingar- og fiskileit- artæki er í bámum frá Mareind ehf í Gmndarfirði Mjög góð aðstaða er til vinnu um borð í Krismi en hann er á línuveiðum. Róið er með 30 til 40 bala í hverjum róðri og afli hef- ur verið þokkalegur hjá þeim feðg- um. Alls em þrír í áhöfh á bátnum og einnig er fólk í landi til að beita. Bárður og Þorsteinn hafa á Krismi SH um 290 þorskígildistonn. Þeir vom sammála um það að það væri ótrúlegt að búið væri að friða þorskinn í nær 20 ár en sögulegt lágmark væri á þeim afla sem á land mættd koma. „Við emm bjartsýnir um að betri tímar séu framundan“ sögðu þeir feðgar að lokum. PJ Ný gangbraut- arljós við Grundaskóla Ný handstýrð gangbrautarljós á gönguleið milli Gmndaskóla og íþróttamiðstöðvarinnar á Jaðarsbökkum vom tekin í notk- un í vikunni. Fjöldi bama geng- ur þessa leið á degi hverjum og Ijósin því löngu tímabær. HJH Úr dagbók lögreglunmr Undanfarna daga hafa lög- reglumenn á Akranesi haft af- skipti af ökumönnum sem ekki nota lögbundinn öryggis og vemdarbúnað. Það er nokkuð áberandi að fólk lætur hjá líða að spenna öryggisbeltin þegar það fer á milli staða. í síðastliðinni viku vom 10 ökumenn og 2 far- þegar kærðir vegna þessara brota. Sektin við þessu broti er 5000 krónur. Lögreglan mun fylgjast grannt með þessum brotum sem og því hvort notaður er viðeig- andi öryggisbúnaður fýrir börn í bílum. Ökumaður einn er gmnaður um nytjastuld, ölvunarakstur og að hafa ekið án réttinda. Hann tók traustataki biffeið sem hann var farþegi í, rétt á meðan öku- maðurinn brá sér út úr bifreið- inni. Biffeiðin fannst óskemmd skömmu síðar og var maður handtekinn gmnaður um ffam- angreind brot. Málið er í rann- sókn. Leik- skólavefiir Leikskólinn Klettaborg í Borgarnesi hefur opnað heima- síðu þar sem foreldrar og aðrir geta fengið allar mögulegar upplýsingar um skólann. Slóðin er borgarbyggd.is/ldettaborg. Síðan er hönnuð af Ágústu Kristínu Bjarnadótmr starfs- manni leikskólans. GE Rokkað í Reykholtsdal Dægurlagakeppni Borgarfjarðar haldin í 5. sinn Fyrir skömmu var auglýst eftir þátttakendum í Dægurlagakeppni Borgarfjarðar í Skessuhorni. Blaðamaður hitti Sigríðijónsdóttur á förnum vegi og spurði hana út í keppnina og þá fyrst hvaða fýrir- bæri þetta væri. „.Dægurlagakeppni Borgarfjarðar er stórskemmtilegt fýrirbrigði sem fæddist sem viðbót inn í menningarflóm héraðsins fýr- ir nokkmm ámm síðan. Hún var fýrst haldin árið 1997, var þá hald- in 2 ár í röð en síðan féll hún niður 1 skipti en hefur verið haldin síðan við sívaxandi vinsældir og er nú orðin ómissandi hluti af starfi Ung- mennafélags Reykdæla. Lögunum fer sífellt fjölgandi og vora þau 18 talsins, víðsvegar að af Vesturlandi og ffá Suðvesturhorninu. Af þess- um 18 lögum komast svo einungis 8 lög áffam í lokakeppnina en það er ákvörðun dægurlaganefndar að hafa lögin ekki fleiri. Til mikils er að vinna því í verðlaun era stúdíó- tímar í Hljóðveri Péturs Hjaltested sem hann og Sparisjóður Mýrasýslu hafa gefið af miklu örlæti.“ Auk keppninnar sjálfrar er háð- fuglinn Bjartmar Hannesson einn af föstum punktum kvöldins þar sem hann mun að vanda „hrauna“ yfir allt og alla eins og honum ein- um er lagið. Að lokinni keppni og skemmtidagskrá verður síðan dans- leikur fram eftir nóttu þar sem Stuðbandalagið sér um stuðið en þeir sjá einnig um undirleik í dæg- urlagakeppninni. GE

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.