Skessuhorn


Skessuhorn - 13.11.2002, Síða 6

Skessuhorn - 13.11.2002, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. NOVEMBER 2002 ^áfi»unu^i „Gáðunúaðþér Guðsteinn minn“ í síðasta tölublaði Skessu- horns ritar kaupfélagsstjóri KB Guðsteinn Einarsson opið bréf til bæjarstjórnar Borgarbyggðar. í bréfinu víkur kaupfélags- stjórinn að Búnaðarbanka Is- lands hf. með ómaklegum hætti sem kemur mjög á óvart og ekki er hægt að láta ósvarað. Kaupfélagsstjórinn vitnar í viðskipti Búnaðarbankans og Kaupfélagsins og veit fullvel að ég get ekki svarað honum vegna bankaleyndar. Eg get þó upplýst að öllum erindum til bankans er svarað og eru þar af leiðandi öll svaraverð. Kaupfélagsstjórinn gerir bankastjórn Búnaðarbankans þá hugsun upp að hún telji fjárfest- ingar í Borgarfjarðarhéraði „utan hins byggilega heims!“ eins og hann orðar það. Ekki benda móttökur Borgfirðinga og Mýramanna til þess að þeir séu óánægðir með bankann. Þvert á móti. Ég vil minna á það að alls staðar þar sem einn banki starfar í héraði hefur sá hinn sami að sjálfsögðu skipt sköpum í sam- bandi við uppbyggingu og ffam- farir. Hverju skyldi Búnaðar- bankinn hafa breytt í Stykkis- hólmi, Dalasýslu, Strandasýslu, Skagafirði, eða Austur- Húna- vatnssýslu þar sem kaupfélags- stjórinn þekkir vel til, eða nýjasta dæmið á Hellu þar sem bankinn gekk í að leysa mjög erfið mál með farsæld byggðar- lagsins í huga. Sést á þessari upptalningu að uppbygging sé verri þar sem þessi bankastofnun hefur ein séð um þjónustuna? Af hverju gefur kaupfélagsstjór- inn í skyn opinberlega að bank- inn hafi ekki og muni ekki koma jafn vel að málum og annar banki? Ekki sýna dæmin úr öðrum héruðum það. Ég vil minna kaupfélagsstjór- ann og lesendur þessarar greinar á það að ein meginforsenda stofnunar útibús Búnaðarbank- ans í Borgarnesi voru margþætt áralöng og farsæl viðskipti bank- ans við Kaupfélag Borgfirðinga. Búnaðarbankinn fjármagnaði m.a. afurðalán Kaupfélagsins um árabil og tók þar með þátt í þeirri miklu uppbyggingu sem átti sér stað á blómatíma kaupfé- lagsins. Astæða þessara við- skipta var sú að ekki var hægt að fjármagna afurðalánin í héraði og því kom Búnaðarbankinn þar að verki. Þessu má kaupfélagsstjóri Kaupfélags Borgfirðinga ekki gleyma og þessu hafa viðskipta- vinir Búnaðarbankans í héraði ekki gleymt. Mér finnst afar mikilvægt að fólk hugsi út í það að alls staðar þar sem bankinn hefur sett upp útibú úti á landi hefur hann fest rætur og ekki farið aftur heldur stuðlað mark- visst að góðri og bættri þjónustu við viðskiptamenn sína. Þegar farið er að ræða álitamál á opinberum vettvangi í samfé- lagi eins og okkar er eitt það mikilvægasta að ræða málin mál- efnalega og af sanngirni og gæta hófs í orðavali. Við þurfum að standa saman til að styrkja okkar samfélag og ættum að varast að fara of geyst í dómum um ná- ungann eða félög og fýrirtæki. Jákvæðnin getur fleytt okkur langt ef við stöndum saman. Þess vegna dátt mér eftirfar- andi vísukorn í hug þegar ég las þessa grein kaupfélagsstjórans og hnaut við orðasambandið „hinn byggilega Heim“ og orðið „flaðurlæti" og „ekki svaraverð“ Þó að þér hlaupi kapp í kinn kerskni við notum tregir. Gáðu nú að þér Guðsteinn minn og gættu að hvað þú segir. Með bestu kveðjum, Kristján Bjöm Snorrason útibússtjóri. Styrktarsjóður stofnaður til minningar um Ragnhildi Rún Draumuriim að geta endurgoldið stuðninginn segir Hrafnhildur Jóna sem missti dóttur sína eftir langvarandi veikindi Fyrir skemmstu setti Hrafnhildur Jóna Jónasdóttir í Grundarfirði og fjölskydda hennar á stofh styrktarsjóð í nafni dóttur Hrafnhildar, Ragn- hildar Rúnar sem lést 16. apríl 1998 aðeins þriggja og hálfs árs gömul. Styrktarsj óðurinn mun m.a. standa fýrir sölu jólakorta til að safna fé og mun ágóðinn renna tdl, eins og við köllum það, málefna Grundfirskra barna. I ár mun 60% ágóðans renna til leik- skólans í Grundarfirði og verður honum varið til að kaupa tæki sem þroska hugarflug barna. Fjörutíu prósent verða varðveitt á bók til að nota ef upp koma veikindi eða erf- iðleikar hjá bömum í byggðarlag- inu. Þá er stjórn sjóðsins heimilt að úthluta styrkjum til foreldra í slík- um tilfellum. Hrafnhildur málar sjálf á kortin sem seld eru til styrktar sjóðnum og era þau seld í tíu stykkja búntum hjá Gallerí Grúsk í Grundarfirði, Hrannarbúðinni í Grandarfirði, Blómaversluninni Hvönn í Stykkis- hólmi og Breiðholtsblómum í Reykjavík. Einnig er hægt að panta þau í síma 438 6505. Ragnhildur Rún fæddist árið 1994 og kom í ljós strax efrir fæð- inguna að hún væri alvarlega veik. Hana vantaði í bom höfuðkúpunn- ar fýrir ofan kok og var opið upp í heila. Þetta mein var þá alls óþekkt hér á landi og ekki vit- að um mörg slík tilfelli í heiminum og ekkert vitað um hvað gera skildi. Tók nú við langvarandi dvöl á Barnaspítala Hrings- ins. þar sem unnið var að því nótt og dag að finna út hvað gera skildi. Að lokum fannst lækningaaðferð en því miður þurfri að bíða með aðgerð þar ril Ragnhildur Rún stækkaði. Meðan á biðinni stóð veiktist Ragnhildur nokkram sinnum af heilahimnubólgum, sem svo síðar kom í ljós að urðu þess valdandi að hún varð mikið hreyfihömluð. Þriggja mánaða fór hún í aðgerð sem lagaði meinið og tók það svo nokkra mánuði í viðbót að bíða eft- ir nógum bata til að fá að fara heim. „Heim fóram við ril Grandarfjarð- ar og hófum að byggja okkar líf, nokkuð öðravísi en í upphafi var ætlað með fyrsta barnið, þar sem lífið snérist um að aðlaga allt við það að eiga barn með miklar hreyfihömlur,“ segir Hrafnhildur. „I Grandarfirði beið okkar samfé- lag dásamlegs fólks sem allt vildi gera til að létta okkur lífið, nálægð- arsamfélag lítils bæjar. Skemmst er frá því að segja að lífið varð eins og best verður á kosið, við eignuðumst annað barn '97 alheilbrigðan dreng og nú héldum við að við væram búin með okkar skammt. En það var víst ekki svo 16 aprfl '98 bank- aði ógæfan aftur dyra og veiktist Ragnhildur af heilahimnubólgu og vegna fyrri sögu var aldrei nokkur von. A rétt rúmum 1/2 sólahring frá því hún veikist lést hún á Land- spítalanum. Ragnhildur snart alla sem á vegi hennar urðu, með fal- legu augunum sínum og smitandi hlátri, og hundrað samúðarkorta til okkar og fjölskyldna okkar segir allt sem segja þarf. Stuðningur Grund- firðinga var með ólíkindum, allir boðnir og búnir til að veita okkur ástúð og hlýju. Síðan þá hefur blundað sú ósk að geta endurgoldið þennan stuðning, og eram við að reyna með styrktarsjóðnum að gera það. einnig vitum við af fenginni reynslu að veikindi bamanna okkar gera ekki boð á undan sér og um nóg er að hugsa þótt ekki bætist við áhyggjur af fjármálum og öðra slíku,“ segir Hrafrihildur. GE Taktu lagið Lóa í Brún í Bæjarsveit Leikdeild Umf. íslendings æfir nú af fullum krafti leikritið Taktu lagið Lóa eftir leikskáldið vinsæla Jim Cartwright. Hópurinn stefnir að því að ffumsýna verkið föstu- dagskvöldið 15. nóvember. Leikrit- ið Taktu lagið Lóa var sett upp í þjóðleikhúsinu árið 1994 en það hefur ekki verið sett upp hjá ís- lensku áhugaleikhúsi áður. Það má teljast mikil áskorun fýrir lítið leik- félag á landsbyggðinni að takast á við svo vandasamt verk sem þetta. Verkið gerir miklar kröfur til leik- ara, ljósamanna og annarra sem koma að uppsetningu sýningarinn- ar. Þó svo að leikritið sé ekki mannmargt þá er ögranin mikil að takast á við svo krefjandi verk. Leikdeild Umf. Islendings ræðst því ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og verður spennandi að fylgjast með útkomunni á framsýn- ingu. Leikstjóri er Guðmundur Ingi Þorvaldsson og er þetta í fyrsta sinn sem hann tekur að sér leik- stjórn hjá áhugamannafélagi á landsbyggðinni en áður hefur hann sett upp þrjú verk með framhalds- skólum á höfuðborgarsvæðinu. Guðmundur er borinn og bam- fæddur í Reykholtsdal og má því segja að hann sé hér á heimaslóð- um. Leikarar í sýningunni era sex og era þeir flestir í veigamiklum hlutverkum. Fjögurra manna hljómsveit spilar imdir á sýningum. Leikrit Jim Cartwright hafa not- ið mikilla vinsælda undanfarin ár bæði hér á landi sem erlendis. Flest verk hans hafa verið sett upp í ís- lenskum leikhúsum og má þar nefna verkin Stræti, Barpar og Sto- ne Free. Þar sem um óvenju metnaðar- frilla sýningu hjá áhugamannafélagi er að ræða ætti enginn áhugamað- ur um leiklist að láta þessa sýningu fram hjá sér fara. G.E.G.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.