Skessuhorn


Skessuhorn - 08.01.2003, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 08.01.2003, Blaðsíða 3
.Mjsaaunw.- MIÐVIKUDAGUR 8. JANÚAR 2003 3 Umtalsverð ljölgnn ferðamanna á upplýsingamiðstöðvum Vesturlands Hrafnhildur Tryggvadóttir í Upplýs- mga og kyimingamiðstöih Vesturlands í Borgamesi. Fjölgun ferðamanna á Vestur- landi var umtalsverð á síðasta ári ef marka má tölur um aðsókn að upplýsingamiðstöðvum á svæð- inu. Á Vesturlandi eru starffækt- ar 6 upplýsingamiðstöðvar fýrir ferðamenn, þar af tvær með heilsársopnun en aðrar opnar yfir sumartímann. Akranes Upplýsingamiðstöðin á Akra- nesi er til húsa í Safnaskálanum að Görðum, og er rekin þar af einkaaðilum samhliða rekstri Safnaskálans. Safnaskálinn er opinn allt árið og hefúr heimsóknum fjölgað tdl muna á svæðið síðastliðið ár. Að sögn Hrafnhildar Tryggvadóttur for- stöðumanns Upplýsinga og kynningamiðstöðvar Vestur- lands, sem tekið hefur saman tölur um aðsókn hjá upplýsinga- miðstöðvunum, voru gestir safnasvæðisins á árinu milli 16 og 17 þúsund manns. Hins veg- ar liggja ekki fyrir tölur um hversu margir komu gagngert til að leita sér upplýsinga eða hversu margir komu eingöngu til að skoða söfnin. Til saman- burðar voru gestir safnasvæðis- ins 4 - 5000 árið 2001. Mikill meirihluti gesta í Safhaskálann eru Islendingar eða um 80% og eru það í miklum inæli Akurnes- ingar og aðrir Vesdendingar sem heimsækja söfnin með gesti sína, fjölskyldur í dagsferðum af höf- uðborgarsvæðinu og hópar hvers konar. Erlendir gestir sem heimsækja svæðið eru Evrópu- búar í miklum tneirihluta og það eru erlendu gestirnir sem koma frekar til að leita upplýsinga en að heimsækja svæðið. Borgarfjörður Upplýsinga og kynningamið- stöð Vesturlands í Borgarnesi gegnir þeirri sérstöðu að vera svokölluð Landshlutamiðstöð og er styrkt af Ferðamálaráði til þjónustu fyrir allan landshlut- ann. Að sögn Hrafnhildar eru gestir UKV að miklu leyti fólk sem ferðast á eigin vegum, þ.e. á hjólum, á bílaleigubílum eða með sérleyfisbílum. „Einnighef- ur aukist umferð „hópa“ sem stansa í Borgarnesi sérstaklega og skýrist það af betri vitund leiðsögumanna og bílstjóra og ekki síst heimafólks á Vestur- landi um tilvist UKV,“ segir Hrafnhildur Gestir árið 2002 voru tæp 7000 allt árið, þar af tæp fimm þúsund í júní, júlí og ágúst. Gestum hefur fjölgað jafnt og þétt þau þrjú sumur sem Upp- lýsingamiðstöðin hefur verið rekin í núverandi mynd. Sumar- ið 2000 voru gestir um 1900 og sumarið 2001 voru þeir um 3200. Síðasta sumar voru gestir um fimm þúsund sem fyrr segir. Erlendir gestir koma flestir ffá löndum Mið og Suður Evrópu, en einnig hefur orðið aukning í komum gesta af Norðurlöndum og Ameríku, að sögn Hrafnhild- ar. Heimskringla í Reykholti veitir ferðamönnum þjónustu og upplýsingar um sögu staðarins yfir sumartímann. Um þessa upplýsingamiðstöð sem staðsett er í kjallara Reykholtskirkju, gildir að mestu það sama og um upplýsingamiðstöðina á Akra- nesi, þ.e. að starfsemin er tengd annars konar starfsemi. Því er erfitt að telja þá gesti sem koma gagngert til að leita sér upplýs- inga í upplýsingamiðstöðinni. Gestir heimskringlu árið 2002 voru á tnilli fjórtán og fimmtán þúsund en það er lítil breyting á milli ára. Gestir eru ekki flokk- aðir eftir þjóðerni en talið er að um helmingur sé erlendir ferða- menn og þar af flestir ffá Norð- urlöndum. Snæfellsnes og Dalir Efling Stykkishólms sér um rekstur tjaldsvæðis og upplýs- ingamiðstöðvar í Iþróttamiðstöð bæjarins. Þar fjölgar heimsókn- um milli ára sem og á öðrum stöðum á Vesturlandi. Aðsóknin í sumar var um 4700 gestir en það er tvöföldun á milli ára að sögn Hrafnhildar. I gamla Pakkhúsinu í Olafsvík er rekin upplýsingamiðstöð yfir sumartímann en Pakkhúsið hýs- ir einnig byggðasafii og ýmsar listsýningar. Gestir hússins voru um 6900 árið 2002 en um 5600 árið áður. I Búðardal er upplýsingamið- stöðin rekin í samvinnu við handverkshópinn Bolla sem þar er með handverksmarkað. Að sögn Hrafnhildar var einnig fjölgun þar síðasta sumar en töl- ur um gestafjölda hafa hins veg- ar ekki borist til UKV Mikilvæg þjónusta „Gestum hefur greinilega fjölgað í öllum á upplýsingamið- stöðvum á Vesturlandi, hvort sem þær eru reknar einar eða í tengslum við aðra ferðaþjón- ustu. Það sýnir fram á mikilvægi þeirra og það að ferðamenn eru í auknum mæli að nýta sér þessa þjónustu. Erlendir ferðamenn ferðast í auknum mæli á eigin vegum og hafa þá ekki skipulagt ferðir sínar á landinu til fúlln- ustu þegar komið er til landsins. Veður ræður miklu um það hvert fólk fer, og er því mikið spurt um veður og færð á land- inu. Islendingar nýta í auknum mæli þá þjónustu sem upplýs- ingamiðstöðvar veita og eins þá þjónustu ferðaþjónustuaðila og sveitarfélaga sem fólgin er í út- gáfú fjölbreytts kynningarefnis. Samstarf þeirra stofnana og grasrótarsamtaka sem vinna í ferðamálum á Vesturlandi er að aukast og m.a. voru Ferðamála- samtök Vesturlands 20 ára á ár- inu og var það sameiginlegt verkefni FV, UKV og Ferða- málafulltrúa Atvinnuráðgjafar SSV að gera afmælinu góð skil, m.a, með afmælishátíð í Reyk- holti og útgáfu Sögukorts fyrir Vesturland, sem nú er komið í dreifmgu. Þótt það sé kannski ekki nákvæmur mælikvarði þá má gera því skóna að aukning í heimsóknum upplýsingamið- stöðvanna endurspegli aukinn ferðamannastraum á Vestur- land,“ segir Hrafúhildur. GE aeigendur fá __ a egt bókmenntaverk að eigin vali: íslensku orðabókina Ritverk Snorra fimmhundruð milljónir yfir|ÍTlllll1|ljllí*ltKj*llllllIjTnTj dreifast á heppna miðaeigendur á árinu. Akranes Rammar og Myndir Skólabraut 27 sími 431-1313 Reykholt Asthildur Thorsteinsson Hurðarbaki sími 435-1455 Hellissandur Jensína Guðmundsdóttir Bárðarási 4 sími 436-6600 Borgarnes Dalbrún ehf. Brákarbraut 3 sími 437-1421 Högni Gunnarsson Hjarðarfelli sími 435-6666 Ólafsvík Lovísa Olga Sævarsdóttir Staðarbakka, Arnarstapa sími 435-6758 Verslunin Hrund Grundarbraut 6 sími 436-11 65 Grundarfjörður Hrannarbúðin Hrannarstíg 5 sími 438-6725 Stykkishólmur Verslunin Sjávarborg Hafnargötu 4 sími 438-1121 Króksfjarðarnes Halldór D. Gunnarsson Ljósheimum sími 434-7770/434-7766 Búðardalur Boga Thorlacius Blómalindin Vesturbraut 6 sími 434-1606 Jóhann G. Pétursson Stóru-Tungu, Fellsströnd sími 434-1479 Umboðsmenn Vesturland eöa meira árið 2003 gið út í júní Vertu með ... ... af því að þú veist aldrei V/SA dregið verður 14. janúar 37.621 vinningar verða dregnir út á árinu. Óbreytt miðaverð 800 kr. Tryggðu þér miða, eitt símtal nægir 552 21 50 eða á www.sibs.is H APPDRÆTTI ... fyrir lífið sjálft

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.