Skessuhorn - 12.02.2003, Qupperneq 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRUAR 2003
úuiissunu^
Framhaldsaðalfundur VLFA heldur áfram en ekki lokið
Hervar Gunnarsson sagði af sér formennsku
-öll stjórnin samþykkti að gera slíkt hið sama og skipa starfsstjórn til bráðabrigða
Hervar Gunnarsson
Hervar Gunnarsson, formaður
Verkalýðsfélags Akraness, sagði
óvænt af sér formennsku í félag-
inu við upphaf framhaldsaðal-
fundar þess í gærkvöld. Jafhframt
gerði Hervar það að tillögu sinni
að allir aðrir stjórnarmenn sam-
þykktu að gera slíkt hið sama, sem
hún og gerði. Hervar lagði til að
þriggja manna starfsstjóm yrði
skipuð til að annast daglegan
rekstur félagsins ffam að næsta
aðalfundi í maí og að sá fundur
skyldi einnig klára yfirstandandi
aðalfund. Þá tillögu samþykktu
fundargestir með miklum meiri-
hluta en starfsstjórnina munu
skipa þeir Láras Ingibergsson,
Pétur Svanbergsson og Pétur
Ottesen.
Hlutverk starfsstjórnarinnar
verður einungis að taka á dagleg-
um vandamálum sem upp koma
en aðallega þó að undirbúa aðal-
fundin í maí. Komi upp eitthvert
mál sem fellur utan þess ramma
að geta talist dagleg stjórnun skal
boða til félagsfundar um þau mál
hverju sinni.
Vegna deilna innan félagsins og
ásakana Vilhjálms um bókhalds-
óreiðu, lagði Hervar til að utan-
aðkomandi aðilar yrðu fengnir til
að fara yfir fjárreiður félagsins frá
1997 til 2002 að báðum árum
meðtöldum. Orðrétt segir í til-
lögunni; „Sá aðili skal skila til að-
alfundar 2003 skýrslu um fjár-
reiður félagsins, meðferð fjár-
muna, ávöxtun og annað það sem
hann kann að verða áskynja við
skoðun bókhalds vegna þessara
ára.“
Fyrir aðalfundinn í maí mun
starfsstjórnin stilla upp lista til
stjómarkjörs og sjá um alla ffam-
kvæmd þeim að lútandi. Eins
mun starfsstjórnin í samvinnu við
ASI skipa kjörstjórn sem stjórni
kosningu ef til hennar kemur,
þ.e.a.s. ef félagsmenn munu
leggja ffam annan eða aðra lista
en þann sem starfsstjórnin kemur
til með að stilla upp.
Ekki áfiýjað
I tillögu Hervars var einnig að
fundurinn afgreiddi aðeins tvö
mál, þ.e. reglugerðarbreytingu
Sjúkrasjóðs og að hann tæki af-
stöðu til áffýjunar í máli því sem
Vilhjálmur Birgisson höfðaði
gegn félaginu. Allar áðurnefndar
tillögur, sem í raun var ein tillaga
í átta liðum, vora samþykktar af
yfirgnæfandi meirihluta fundar-
gesta enda höfðu þá þegar allir
stjórnarmenn samþykkt að leggja
hana fram eftir að fundarstjóri
hafði boðað til tíu mínúma fund-
arhlés.
Reglugerðabreytingin um
Sjúkrasjóðinn var samþykkt ein-
róma enda allir sammála um að
boðaðar breytingar væru kjarabót
fyrir félagsmenn.
Fyrirff am var búist við að harð-
ar umræður myndu skapast á
fundinum þegar áfrýjunin til
Hæstaréttar yrði tekin á dagskrá
en í kjölfar ræðu Hervars og sam-
þykktar á tillögum hans var ljóst
að ekki skipti miklu máli að fá
efhislega niðurstöðu frá Hæsta-
rétti um málið þar sem fundurinn
hafði þegar samþykkt að umrædd
bókhaldsgögn yrðu skoðuð. Þessu
var meirihluti fundarins sammála
og mun því úrskurður Héraðs-
dóms Vesturlands í máli Vil-
hjálms Birgissonar gegn VLFA
standa.
Afsögn
Það kom flestum í opna skjöldu
þegar Hervar bar upp þá tillögu í
upphafi fundarins að öll stjórnin,
þar með talið hann, segði af sér á
einu bretti. Hervar tók það þó
skýrt fram að hvort sem aðrir
stjórnarmenn samþykktu tillögu
hans eður ei myndi hann stíga af
stóli formanns við lok ræðu sinn-
ar. Hervar sagði að tillaga hans
væri lokatilraun til að lægja þær
öldurnar. Auk þess tók hann fram
að heilsu sinnar vegna ákvæði
hann að hætta sem formaður. „-
Heilsu minnar vegna get ég ekki
haldið áfram að taka þátt í þessum
harmleik sem þessar deilur era
orðnar. Þó tel ég að söguskoðarar
ffamtíðarinnar munu sjá að þetta
mál er ekki rninn harmleikur
heldur annarra." Um viðbrögð
félagsmanna við uppsögn sinni
sagði Hervar í ræðustól; „Eflaust
finnst sumum ég vera bregðast
ykkur með þessari afsögn en aðr-
ir munu öragglega stíga stríðs-
dans af ánægju."
Þung spor
en mikill léttir
Að fundi loknum sagði Hervar
í samtali við Skessuhorn að sáttar-
tillaga sín hafi verið lífsnauðsyn-
lega fýrir Verkalýðsfélag Akra-
ness. „Ég hafði heyrt það að
margir félagsmenn ætluðu að
segja sig úr félaginu á fundinum
þar sem þeir væra orðnir dauð-
leiðir á erjunum innan félagsins.
Ég taldi mig því verða að ganga á
undan öðram sem formaður og
leita allra leiða til að ná sáttum
innan félagsins. Vissulega var það
sárt að segja af sér formennsku en
ef þetta er það sem til þarf þá
verður það að vera svo því félagið
gengur fyrir. Þessi deila sem nú
hefur staðið í á þriðja ár, hefur
skaðað félagið þó off hafi hún að-
eins verið um keisarans skegg. Ég
trúi því hinsvegar að deilunum
ljúki hér með.“ Aðspurður um
líðan sína er hann tilkynnti fund-
inum um afsögn sína í ræðustóli
sagði Hervar; „Þetta vora þung
spor en mikill léttir.“
Þó Hervar segí af sér for-
mennsku í félaginu mun hann á-
fram sinna starfi sínu á skrifstofu
félagsins rétt eins og hinir tveir
starfsmennirnir, Elínbjörg Magn-
úsdóttir og Elín Hanna Kjartans-
dóttir, en báðar sögðu þær af sér
sem stjórnarmenn. Hervar sagði
að hann hefði ennþá sína kjara-
samninga við félagið og þeir
breyttust ekki þó hann segði af sér
formennsku. Starfsstjómin tæki
þó endanlega ákvörðun um ffam-
tíð starfsmanna félagsins.
Vilhjálmur Birgisson sagði það
hafa verið langfarsælast fyrir fé-
lagið að samþykkja tillögu Her-
vars. „Ég tel það eðlilegt að Her-
var skyldi stíga úr stólnum efdr
það sem á undan er gengið. Ég er
ekki í nokkram vafa um að
framundan er bara uppgangur og
bjartir tímar hjá VLFA. Algjör
uppstokkun á allri starfsemi fé-
lagsins er nauðsynleg og því eðli-
legt að allir sem að stjómun fé-
lagsins koma í augnablikinu stigi
úr stólum sínum, hvort sem það
er til lengri eða skemmri tíma.“
Um sína framtíð innan félags-
ins sagði Vilhjálmur það óráðið.
„Vilji fólksins í félaginu ræður því
hvort ég starfi áffam fýrir VLFA
eða ekki. Sjálfur hef áhuga á að
starfa áfram fýrir félagið enda tel
ég mig hafa unnin gott starf fýrir
það. Þær athugasemdir sem ég
hef komið með í gegnum tíðina
tel ég vera nauðsynlegar og til
lengri tíma litið verða þær félag-
inu til framdráttar. Ég mun ekki
sækjast eftir formennsku í félag-
inu heldur mun ég styðja Pétur
Svanbergsson í því kjöri enda ég
tel hann vera þann mann sem get-
ur stýrt félaginu inn á rétta braut
á ný.
Annars mun starfsstjórnin nú
stilla upp nýrri stjórn og ég
treysti þeim 100% til að gera
það á farsælan hátt.“
HJH
Deilur um sölu
sparísjóðsins í uppsiglingu
I gærkvöldi var haldinn fund-
ur trúnaðaráðsmanna Borgar-
byggðarlistans í Sparisjóði
Mýrasýslu þar sem ákveðið var
hver skuli vera í framboði fýrir
hönd listans í stjórnarkjöri
sjóðsins. I grein sem Runólfur
Agústsson ritar og birtist á bls 4
í blaðinu í dag kemur fram að
deilur hafi risið á þessum fundi
vegna áhuga oddvita Borgar-
byggðarlistans í bæjarstjórn
Borgarbyggðar og fleiri aðila á
að kanna möguleika á sölu
Sparisjóðs Mýrasýslu.
„Það er rétt að ég hef rætt við
Bjarna Armannsson fram-
kvæmdastjóra Islandsbanka um
hugsanlegan áhuga þeirra á að
kaupa sjóðinn," segir Finnbogi
Rögnvaldsson formaður bæjar-
ráðs Borgarbyggðar. „Tilgang-
urinn er sá að geta stillt upp
þeim möguleikum sem era í
stöðunni, hvað bíðst fýrir sjóð-
inn og hvaða starfsemi yrði þá á
hans vegum í framtíðinni. Þetta
er hinsvegar allt á athugunar-
stigi en ef menn vilja taka af-
stöðu án þess að skoða það
frekar þá er það náttúralega
þeirra mál. Umræðan er mest á
tilfmningalegum nótum og tal
að um göfuga mjólkurkú sem
eigi að fara að lóga. Þarna er
hinsvegar verið að ræða um
einn og hálfan milljarð og ef
menn vilja afskrifa þann mögu-
leika umræðulaust finnst mér
það svolítið undarlegt. Ég tel
hinsvegar að þetta þurfi að
skoða útfrá hagsmunum starfs-
manna, hagsmunum sveitarfé-
lagsins og hagsmunum við-
skiptavina sjóðsins," segir Finn-
bogi.
GE
Vilhjálntur Birgisson