Skessuhorn - 12.02.2003, Síða 5
i>n£9aums».-
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRUAR 2003
5
Stækkun Norðuráls
Vonast eíirir svörum frá
Landsvirkjun í næstu viku
Sem kunnugt er fól úrskurður
setts umhverfisráðherra, um
uppistöðulón í Þjórsárverum, í
sér breytingar frá áætlunum
Landsvirkjunar. Landsvirkjun
hefur hinsvegar ekki tekið á-
kvörðun urn hvort ráðist verður
í Norðlingaölduveitu miðað við
þau skilyrði sem úrskurðurinn
felur í sér en á því veltur hvort á-
form um stækkun Norðuráls
ganga eftir.
„Við stækkum náttúrulega
ekki nema hafa orku, það er al-
veg ljóst,“ segir Ragnar Guð-
mundsson framkvæmdastjóri
fjármálasviðs Norðuráls. „Við
vonumst til að fá svör frá Lands-
virkjun í næstu viku um hvort
ráðist verður í virkjunarfram-
kvæmdirnar. Upphaflega gerðu
þeir ráð fyrir að geta ekki svarað
okkur fyrr en í haust eru það eru
líkur á að það verði í þessum
mánuði. Hvert svarið verður hef
ég hinsvegar ekki hugmynd
um,“ segir Ragnar.
Upphaflegar áætlanir Norð-
uráls gerðu ráð fyrir að stækkun-
in yrði tekin í gagnið árið 2004,
en í dag er miðað við seinnipart
árs 2005. „Til að það gangi eftir
þurfum við að fá svör fljótlega.
Þessar tafir sem hafa orðið nú
þegar hafa ekki skaðað okkur
beint en við vonumst til að nú-
verandi áætlanir gangi eftir. Við
höfðum stílað upp á að vera ekki
með framkvæmdir f gangi á
sama tíma og Alcoa fyrir austan
þar sem við töldum það betra
bæði fyrir okkur og efnahagslíf-
ið. A móti kemur hinsvegar að
við erum á sinnhvorum staðnum
á landinu, þannig að það þarf
hugsanlega ekki að hafa mikil á-
hrif.“
Afar bjartsýnn
„Ég hef fulla trú á að af fram-
kvæmdum við Norðlingaöldu
verði,“ segir Magnús Stefánsson
alþingismaður. „Spurningin er
hvenær ákvörðun verður tekin,
en það er mikilvægt að það verði
sem allra fyrst. Eg hef ekki getað
skilið viðbrögð Landsvirkjunar á
annan veg en að þrátt fyrir
minni arðsemi en upphaflega
var áætlað þá sé þessi virkjunar-
kostur hagkvæmur. Ég er því
fullviss um að ráðist verður í
þessar framkvæmdir. Við vitum
að það er margt í biðstöðu þang-
að til svör Landsvirkjunar liggja
fyrir en ef þau verða jákvæð, eins
og ég geri ráð fyrir, þá er ljóst að
þá þegar fara jákvæðir hlutir að
gerast í þessum landshluta,“ seg-
ir Magnús. GE
Sunddeildir ÍA og Skallagríms héldu sameigmlega æfingu í sundlauginni í Borgamesi um helgina.
Aö sögn þjdlfiiranna var góð tilbreyting að hitta aðra sundkrakka og æfa sameiginlega og liður í íþróttasamstarfi bæjarjé-
laganna.
Gist var í grunnskólanum ogfarið á diskótek saman. Myndin sýnir káta sundkrakka slappa af eftir vel heppnaðar æfinga-
búðir. ij
Hörpudiskurinn í Breiðafirði
Alþingismenn Vinstri-
grænna, þeir Árni Steinar Jó-
hannsson ogjón Bjarnason hafa
lagt ffam fyrirspurn til sjávarút-
vegsráðherra varðandi stöðu
skelfiskveiða og ástands stofns-
ins í Breiðafirði. I fyrirspurn-
inni er ráðherra krafinn svara
um hvað hann hafi gert eða
hyggist gera varðandi rann-
sóknir á lífríki Breiðafjarðar í
ljósi þess ástands sem uppi er í
skelfiskveiðunum og hvort
hann hafi uppi áform um að
bregðast við vanda þeirra fisk-
vinnslufyrirtækja á svæðinu sem
hafa reitt sig á skelfiskvinnslu.
Jafnframt munu Vinstri-
grænir á Snæfellsnesi efna til
opins fundar um stöðu skelfisk-
veiða og ástand skelfisksstofns-
ins í Breiðafirði undir yfirskrift-
inni Hörpudiskurinn í Breiða-
firði - staða skelfiskveiðanna, á
Hótel Stykkishólmi mánudags-
kvöldið 17. febrúar kl. 20:00.
Gestir og fyrirlesarar á fundin-
um eru Hrafnkell Eiríksson
fiskifræðingur á Hafrannsókn-
arstofnuninni í Reykjavík, Jón
Sólntundsson fiskifræðingur og
útibússtjóri Hafrannsóknar-
stofnunarinnar í Olafsvík og
Róbert Arnar Stefánsson líf-
fræðingur og forstöðumaður
Náttúrustofu Vesturlands í
Stykkishólmi. Alþingismenn-
irnir Jón Bjarnason og Arni
Steinar Jóhannsson munu skýra
frá stöðu þessara mála á Al-
þingi.
(Fre'ttatilkynning)
LATTU
OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
UÍOKDl
( dþl*. touq
Efnalaugin Múlakot ehf.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 4371930
Bifreiðaflutningar
Hálfdán Þórísson
Borgarnesi
s. 692 5525 / 4371699
halfdant@sim.net. is
Verðdœmi SpariPlús
53.980
Ef tveir ferðast saman, 67.970 kr. á mann.
2003
Bókaðu strax
- það margborgar sig!
kr.
Mallorca
43.1401
Ef tveir ferðast saman, 54.530 kr. á mann.
Portúgal
47.267
Ef tveir ferðast saman, 69.355 kr. á mann.
44.340* plus
Ef tveir ferðast saman, 63.730 kr. á mann.
kr.
*a mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja -11 ára,
ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í tvær vikur, íslensk fararstjórn, nlucforHir fc
ferðirtil og frá flugvelli erlendisog allir fIugvaIlarskattar. *
FERÐIR
Plúsferöir • Hlíðasmára 15 • Simi 535 2100