Skessuhorn - 12.02.2003, Blaðsíða 7
SkíSSWhökit'i
MIÐVIKUDAGUR 12. FEBRÚAR 2003
7
Badmintonfélag Akraness stefiiir
á toppinn í öllum flokkum
Rætt við badmintonfólk á Skaganum sem náð hefur góðum árangri en stefnir enn ofar
Starfsemi Badmintondeildar
Akraness hefur verið afar blóm-
legt í gegnum árin og iðulega
hefur góður árangur náðst hjá
yngri keppendum. Samt sem
áður hefur aldrei náðst að byggja
upp öflugan meistaraflokki en
þótt margir efnilegir spilarar
hafi komið fram á sjónarsviðið á
Skaganum þá hafa þeir flestir
hætt þegar þeir hafa komist upp
í meistaraflokks eða flutt í burtu
og keppt með öðrum liðum. Nú
horfa badmintoniðkendur á
Skaganum hinsvegar fram á enn
betri tíma en nokkru sinni fyrr
og gera sér vonir um að þeir sem
nú eru á toppnum í yngri flokk-
unum eigi eftir að halda áfram
og gera góða hluti í meistara-
flokki. Yngri deildin hefur sjald-
an eða aldrei verið öflugri og
Karitas Osk
Hólmsteinn
hefur badmintonfélag Akraness
náð að velgja stórveldinu TBR
vel undir uggum og hafa krakk-
arnir sópað til sín verðlaunum á
öllum mótum að undanförnu.
Blaðamaður Skessuhorns leit við
á Landsbankamótinu á Akranesi
sem Badmintonfélag Akraness
hélt um síðustu helgi og ræddi
við formann félagsins og tvær af
stjörnunum.
Alltaf átt
sterka yngri flokka
„Við erum vonandi loksins að
komast á toppinn í öllum flokk-
um,“ segir Asa Pálsdóttir for-
maður Badmintonfélags Akra-
ness og einn af þjálfurum félags-
ins. „Við höfum aldrei átt öflug-
an meistaraflokk, þrátt fyrir gott
yngri flokkastarf. Það má segja
að við höfum alltaf átt sterka
yngri flokka en það hefur aldrei
skilað sér alla leið. Það hefur
verið mikið brottfall og sumir
hafa flutt í burtu og haldið áfram
annarsstaðar, ég þar á meðal á
sínum tíma. Það kann að vera að
aðstaðan hafi spilað inn í. Fyrir
sunnan er svolítið stílað inn á
morgunæfingar, sem henta
mörgum, en á þeim tíma eru í-
þróttahúsin hérna upptekin. Eg
tel hinsvegar að það séu allar
forsendur fyrir sterkum meist-
araflokki eftir þrjú ár eða svo.
Við erum með mjög góða ung-
linga sem eru ákveðnir í að halda
áfram. Við höfum líka sterka
stjórn, en þar eru einstaklingar
sem hafa sjálfir reynslu af stífum
æfingum og keppni þannig að
þeir vita hvað þarf til. Það þarf
að senda krakkana á sem flest
mót, bæði hér heima og erlendis
og styðja þau vel í því sem þau
eru að gera. Það þarf að æfa ó-
hemju vel til að ná árangri í
meistaraflokki. Eg hef hinvegar
fulla trú á að við séum að sigla
inn í gullaldartímabil," segir Asa.
Mikið um að vera
Meðal þess sem hefur verið á
dagskrá Badmintonfélagsins, að
undanförnu, er árlegt Grislinga-
mót félagsins sem fór ffam fyrir
stuttu. Þar var blandað saman
einstaklingum úr öllum liðum
sem þátt tóku í mótinu og búin
til lið sem skírð voru efrir lönd-
um. Mótið tókst í alla staði vel og
þar sáust efni í marga toppspilara
framtíðarinnar.
A unglingameistaramóti TBR
náðu Skagakrakkamir frábæmm
árangri og unnu flest gullverð-
laun allra á mótinu. Skagastúlk-
urnar unnu öll verðlaun í U-15
flokknum utan ein. Karitas Osk
Oskarsdóttir og Hólmsteinn Þór
Valdimarsson unnu bæði þrefalt í
U-17 flokknum og urðu ung-
lingameistarar TBR í einliða-tví-
liða- og tvenndarleik.
I nýafstaðinni deildarkeppni
Badmintonsambands Islands
náðu Skagamenn einnig mjög
góðum árangri, þrátt fyrit að
Nokkrir úryngri deildinni stilltu se'r uppfyrir Ijósmyndara Skessuhoms á mótinu um helgina.
senda ungt lið til keppni í full-
orðinsflokki. IA sendi tvö lið til
keppninnar og enduðu bæði lið-
in í örðu sæti, hvort í A og B
deild.
Skagamenn eiga þrjá lands-
liðsmenn í unglingalandsliði Is-
lands U -17 sem tekur þátt í al-
þjóðlegu móti á Irlandi í lok
febrúar. Það eru þau Hólm-
steinn Þór Valdimarsson, Stefán
Halldór Jónsson, Karitas Ósk
Olafsdóttir, Birgitta Rán As-
geirsdóttir og Hanna María
Guðbjartsdóttir. Ljóst er að þar
era á ferðinni ff amtíðarliðsmenn
í meistaraflokksliðinu, sem Asa
og félagar hennar eru staðráðin í
að koma upp innan þriggja ára á
Skaganum. Miðað við þann kraft
sem verið hefur í badminton-
krökkunuin á Akranesi, að und-
anförnu, er engin ástæða til að
efast um að það takist.
Ekki eins auðvelt
og margir halda
Karitas Osk Olafsdóttir er ein
þeirra sem fara til Irlands nú í
lok febrúar á vegum landsliðsins.
Hún er sextán ára og hefur æff
badminton af kraffi í fimm ár.
Hún segist hinsvegar stefna enn
hærra og ætlar að setja markið á
Ólympíuleikana 2008. „Það
verður að setja markið hátt fyrst
maður er að leggja þetta á sig á
annað borð. Það kostar vissulega
mikið puð en ég er tilbúin að
leggja mikið á mig til að sjá hvað
ég get komist langt. Badminton
er ekki eins auðveld íþrótt og
margir halda og reynir mikið að
fæturna eins og sést á hnénu á
mér þessa dagana. Við æfum
fimm sinnum í viku og föram í
þrekæfingar einu sinni í viku og
síðan bætast landsliðsæfingarnar
við. Þetta er hinsvegar erfiðisins
virði þegar góður árangur næst
og þá skiprir það ekki litlu máli
að við höfum verið mjög heppin
með þjálfara. Diphu Gosh hefur
þjálfað mig ffá því ég byrjaði og
nú er Asa komin Iíka en þau eru
bæði fyrsta flokks þjálfarar,“ seg-
ir Karitas.
Góð íþrótt
Hólmsteinn Valdimarsson er
einnig í U-17 landsliðinu og
jafngamall Karitas, en búinn að
vera lengur að. Hann hefur æff
badminton í níu ár og er ekki á
því að hætta. „Eg ætla að halda
áffam eins lengi og ég get. Eg
var um tíma í fótbolta og einnig
í keilu, en er núna alfarið kom-
inn í badmintonið. Þetta er mjög
góð íþrótt og ekki síður
skemmtileg."
Aðspurður um markmið sín í
íþróttinni segir Hólmsteinn að
þau séu fyrst og ffemst að kom-
ast í A - landsliðið og það sem
fyrst. „Mig langar líka að komast
einhverntíma til Danmerkur og
æfa þar um skeið. Við erum
reyndar að fara til Damnerkur
um páskana í æfingabúðir, en að-
stæður era hvergi betri enda era
Danir í ffemstu röð í þessari
íþrótt,“ segir Hólmsteinn.