Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2003, Side 5

Skessuhorn - 19.02.2003, Side 5
5 ^&CSSUIIVS... MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 2003 Þrek og tár frumsýnt í „Engj aásleikhúsinuu Frá æfingu á Þrek og tár. Mynd: GHP Æfingar standa nú sem hæst hjá Leikdeild UMF Skallagríms á leikritinu Þrek og tár efrir Olaf Hauk Símonarson. Leikritið fjallar um kaupmannsfjölskyldu í Reykjavík í byrjun sjöunda ára- tugarins. Tónlistarhæfileikar íjölskyldtmnar brjótast út á mis- munandi hátt hjá meðlimum hennar og krydda verkið. Tón- listin er dægurflugur þess tíma en undir niðri krauma óuppgerð átakamál, beiskleiki, og útskúfun takast á við umburðarlyndi og mannúð. Sextán leikarar taka þátt í sýn- ingunni, en með helstu hlutverk fara þau Guðjón Viggósson, Jón Guðbrandsson, Birna Þorsteins- dóttir og Aslaug Júlíusdóttir. Sérstök hljómsveit var stofnuð fyrir sýninguna, hljómsveit hússins, en hún er skipuð þeim Viðari Guðmundssyni, Hauki Gíslasyni, Þorvaldi Jónssyni, Gunnari Ringsted og Sigurþóri Kristjánssyni. Leikstjóri verksins er hinn reyndi leikari og leik- stjóri Skúli Gautason. Eins og margir muna setti leikdeild Skallagríms upp Leik- ritið Djöflaeyjuna síðastliðinn vetur við góðar undirtektir. Sýn- ingar fóru fram í Engjaáshúsinu við Olafsvíkurvegamótin og aft- ur hefur leikdeildin hreiðrað um sig þar en á öðrum stað í húsinu. „Við stefnum á að leika í öllu húsinu áður en yfir lýkur en ég held að flestir vonist nú til að húsið verði selt undir aðra starf- semi áður en það verður. Við höfum víst ekki efni á að fjárfesta í fjögurþúsund fermetra leikhúsi þótt við vildum. Það er hinsveg- ar frábært að fá að nýta þetta hús á meðan það er ekki notað und- ir annað og við kunnum Búnað- arbankanum bestu þakkir fyrir að lána okkur húsið endurgjalds- laust og styðja þannig við bakið á áhugaleiklistinni á svæðinu,“ segir Axel Vamsdal formaður leikdeildar Skallagríms. Aædað er að frumsýna Þrek og tár í „Engjaásleikhúsinu“ þann 28. febrúar nk. GE Það er ávallt mikið lagt í þorrablótin í Stykkishólmi og á því var engin breyting nú. Hólmarar settu á svið vand- aða skemmtidagskrá með leik og söngþar sem stiklað var á stóni í baýarlífinu. Fjöl- margir leikarar og söngvar- arfóru þar á kostum og meðal annars var frammi- staða bœjarstjórans, Ola Jóns Gunnarssonar hlaðin lofi. Hann sést hér á myndinni til hliðar minnast við torkenni- legt blásturshljóðfori. Myndir: Svanur Steinarsson. 60 cvia afmœii í dag fimmtudaginn 20. febrúar er sextug Inga Björk Halldórsdóttir sem dvelur nú á St. Franciskusspítalum í Stykkishómli. I tilefni afmœlisins tekur hún á móti vinum og vandamönnum í Félagsbœ Borgarnesi milli kl 15 og 17 laugardaginn 22.febrúar. JJÚ Fundarboð Sjálfstæðisfélag Mýrasýslu boðar til félagsfundar fimmtudaginn 27. febrúar kl. 20.30 í Sjálfstæðishúsinu í Borgarnesi. Fundarefni: Kjör fulltrúa á landsfund Sjálfstæðisflokksins. Önnur mál. Stjórnin /11J IQiVZaU l f J oJ ItMli Bíó í félagsheimilinu Óðali fimmtudaginn 20. febrúar kl 20:00 Mlðaverð 600 kr. Atvinnuátaksverkefni Akraneskaupstaður og Borgarbyggð vilja sameiginlega hvetja fyrirtæki og stofnanir á starfssvæðinu til að nýta sér þær leiðir og styrki sem Svæðisvinnumiðlun Vesturlands býður vinnuveitendum til sértækra atvinnuátaksverkefna og starfsþjálfunarsamninga. Erfitt atvinnuástand er á svæðinu og vilja bæjarfélögin hvetja aðila til að leggjast á eitt til að bæta úr því. Atvinnurekendum er bent á að hægt er að sækja um stuðning til niðurgreiðslu launa er nemur atvinnuleysisbótum gegn mótframlagi atvinnurekandans til að ákvæðum kjarasamninga sé fylgt. Sveitarfélögin bjóða fram aðstoð við útfyllingu umsókna og almenna leiðsögn í þessum málum. Nánari upplýsingar veita: Akraneskaupstaður: Markaðs- og atvinnufulltrúar í síma 4331000. Borgarbyggð: Félagsmálastjóri í síma 4371224. Einnig má leita nánari upplýsinga hjá Svæðisvinnumiðlun Vesturlands í síma 430 5400 eða á vefslóðinni www.vinnumidlun.is Jón Pálmi Pálsson, bæjarritari Akraneskaupstað Eiríkur Óiafsson, bæjarritari Borgarbyggð

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.