Skessuhorn - 19.02.2003, Qupperneq 8
8
MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 2003
^■uUísunuK.
Akraneskaupstaður
gefur SHA giöf
Fulltrúar bæjarráðs Akraness
ásamt bæjarstjóra færðu Sjúkra-
húsi og heilsugæslustöð Akra-
ness málverk að gjöf í tíleíni af
hálfrar aldar afmæli stoíhunar-
innar á nýliðnu ári. Málverkið
er eftir Bjarna Þór Bjarnason og
sýnir Akrafjallið með kaupstað-
inn í forgrunni. A myndinni má
sjá fulltrúa Akraneskaupstaðar
og með þeim eru þeir Guðni
Tryggvason, formaður stjórnar
SHA, og Guðjón Brjánsson
framkvæmdarstjóri SHA.
HJH
Alfbeiður I Olafsdóttir fier se'r hákarlsbita og fimist hann bara mjög góður.
Þorrablót yngri
kynslóðarinnar
Það er ekki bara fullorðnir
sem halda sín árlegu þorrablót,
leikskólabörn gera það líka.
Leikskólakrakkar á Sólvöll-
um í Grundarfirði héldu sitt
þorrablót á dögunum.
Sú hefð er fýrir því að bjóða
1. bekk í Grunnskólanum til
þessara hátíðar.
Einnig var foreldrum boðið
á blótið.
Eins og á stórum þorrablót-
um var boðið upp á fjölbreytt
skemmtiatriði sem margir
höfðu gaman af. Að loknum
skemmtiatriðunum var boðið
upp á hefðbundinn þorramat
td. hákarl, hangikjöt, sviða-
sultu, hrútspunga og m.fl.
73
Eigi skal höggva!
Þegar ég var lítill sagði
amma mín mér sögu af tröll-
karlinum Loðinbarða sem
minnti á sig fýrir utan bæ með
því að pissa á skjáinn. Fóru þá
bóndadætur út að sendast fýrir
gamlan föður sinn af því að
alltaf fannst þeim regnið dynja
á glugganum og vildu hlífa
karlinum viðvætunni. Uti fýr-
ir beið Loðinbarði þeirra og
hafði þær á brott með sér í
helli sinn eina af annarri. I æv-
intýrum er þetta algengt
minni, tröll og forynjur hafa af
búaliði það sem því er kærast
en oftar en ekki eru einhverjar
góðar vættir kynntar til sögu
sem koma tíl bjargar á ögur-
stundu og leiða heim kúna eða
frelsa dæturnar úr hellinum.
I grein í síðasta tölublaði
Skessuhorns ritar Runólfur
Agústsson grein sem einna
helst virðist rituð til að slá
skjaldborg um Sparisjóð
Mýrasýslu og kallar hann til
liðs við sig konur og menn. Er
að sjá að ég og aðrir í forystu-
sveit Borgarbyggðarlistans
séum í hlutverki Loðinbarða í
ævintýrinu um sparisjóðinn.
Því þykir mér rétt að skýra í
stuttu máli frá því hvernig
þetta mál kemur mér fýrir
sjónir.
Sparisjóði Mýrasýslu er stýrt
af fimm manna stjórn og spari-
sjóðsstjóra. Stjórnarmenn eru
kjörnir af fulltrúaráði en full-
trúaráðsmenn eru tilnefhdir af
sveitarstjórnarmönnum.
Stofhfjáreigendur í sjóðnum
eru Borgarbyggð og Hvítár-
síðuhreppur.
Eftír að ný sveitarstjórn tók
við síðasta sumar hér í Borgar-
byggð þótti rétt að kanna
hvort mögulegt og fýsilegt
þætti að sveitarfélagið seldi
stofhfé sitt í sjóðnum. Kom
þar einkum þrennt tíl, miklar
breytingar voru að verða á
eignarhaldi á bönkunum, fjár-
hagsstaða sveitarfélagsins var
slæm og ljóst var að tiltekinn
banki væri tilbúinn til við-
ræðna við sveitarstjórnarmenn
um kaup á stofnfé Borgar-
byggðar í sjóðnum. I kjölfarið
var málið rætt innan meiri-
hlutans í bæjarstjórn og málið
kynnt fýrir fulltrúum meiri-
hlutans í stjórn sparisjóðsins
og síðan sparisjóðsstjóra
skömmu áður en gengið var til
kosninga í annað sinn í byrjun
desember. A þessum fundum
upplýstu stjórnarmenn bæjar-
fulltrúa um framtíðarstefnu-
mótun í sjóðnum.
I lok síðasta árs tóku gildi ný
lög um fjármálafýrirtæki.
Sparisjóðir falla undir þessi lög
og var ljóst af lögunum að ekki
væri lengur hægt að selja
stofnfé í sparisjóði nema tíl
annars sparisjóðs. Því þótti
sitjandi meirihluta rétt að
kanna hvort enn væri gerlegt
fýrir sveitarfélagið að losna út
úr rekstri sjóðsins þannig að
arður af sölu eignarhlutar íbúa
Borgarbyggðar í sjóðnum
rynni til sveitarfélagsins. Leit-
að var álits lögmanna á þessu
og þar sem þeir töldu að þetta
væri unnt var ákveðið að kanna
hvort bankar hefðu áhuga á að
kaupa rekstur sjóðsins. Stjórn-
armenn í sparisjóðnum og
sparisjóðsstjóri voru upplýstír
um óformlegar viðræður sem
fýlgdu í kjölfarið.
Það er óumdeilt að kjörnir
bæjarfulltrúar fara með stofh-
fjáreign sveitarfélagsins í
Sparisjóði Mýrasýslu. Stjórn
sjóðsins og sparisjóðsstjóri fara
með stjórn hans og bera á-
byrgð á rekstrinum. Það er því
afar mikilvægt að þarna á milli
ríki trúnaður og hvorir um sig
virði skyldur hinna. Það er
rétt að það komi skýrt fram að
hvorki ég né nokkrir aðrir
sveitarstjórnarmenn höfum
haft afskipti af störfum stjórn-
armanna né brotið trúnað við
þá á nokkurn hátt! Það vekur
hinsvegar upp spurningar
hvaða tílgangi það þjónar að
skrifa um það í blöð að sveitar-
stjórnarmenn vinni að því að
Finnbogi Rögnvaldsson
setja sparisjóðinn á uppboðs-
markað og fækka störfum í
sveitarfélaginu. Varla er þetta
sett frani í þeim tilgangi að efla
starfsemi sparisjóðsins. Og
ekki er Runólfur svo barnaleg-
ur að halda að formaður bæj-
arráðs labbi með Sparisjóði
Mýrasýslu á markað og selji
hann fýrir poka af baunum!
Það hlýtur að vera mönnum
nokkurs virði að kanna, svo
óyggjandi sé, hvernig hags-
rnunir íbúa sveitarfélagsins séu
best tryggðir. Ef menn komast
að því að hagfellt sé að losa
sveitarfélagið út úr starfsemi
fjármálafýrirtækja ber mönn-
um að sjálfsögðu að velja þann
kost. En það hefur enginn selt
neitt! Hér er eingöngu um
það að ræða að menn vilja vita
hvernig hagsmunir sveitarfé-
lagsins séu best tryggðir.
Einu sinni var rekið mjólk-
ursamlag í Borgarnesi. Það
var lagt niður. Sparisjóður
Mýrasýslu er vel rekið fjár-
málafýrirtæki, ekki mjólkur-
samlag, ekki mjólkurkýr og
ekki forsenda þess að fólk búi í
Borgarfirði. Það væru stór
mistök að grípa til þeirra ráð-
stafana sem drægju þrótt úr
starfandi fýrirtækjum í sveitar-
félaginu, hvaða fýrirtæki sem
þar ættu í hlut. Slíkt er ekki á
döfinni.
Margt hefur hinsvegar
breyst á þeim rúmlega 90
árum sem Sparisjóður Mýra-
sýslu hefur starfað. I 80 ár var
þetta eina fjármálafýrirtækið í
héraðinu (undanskilin er fjár-
umsýsla kaupfélagsins) og því
má heita að öll atvinnuupp-
bygging í Borgarfirði sem nú á
sér stað hafi orðið fýrir tilstyrk
fýrirtækisins. A undanförnum
árum hafa hinsvegar orðið
miklar og örar breytingar á
þessu sviði sem öðrum, fjár-
málafyrirtækjum fjölgar og
samkeppni fer vaxandi á
bankamarkaði á sama tíma og
opinberir aðilar eru að mestu
hættir afskiptum af bankastarf-
semi. Merm hljóta því að
spyrja sig hvort skuldsett sveit-
arfélag sé réttí aðilinn tíl að
standa að rekstri sparisjóðs. I
þeirri umræðu ættu menn
hinsvegar að fara varlega og
láta ekki stundarbræði hlaupa
með sig í gönur. Eigi skal
höggva!
Finnbogi Rögnvaldsson
formaður bæjarráðs
Borgarbyggðar