Skessuhorn - 12.03.2003, Qupperneq 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 10. tbl. 6. árg. 12. mars 2003
Kr. 250 í lausasölu
Tilboð opnuð í
Kolgrafarfjörð
Síðastliðinn mánudag
voru opnuð tilboð í brú yfir
Kolgrafarfjörð á Snæfells-
nesi ásamt vegtengingum.
Urn er að ræða 230 m. langa
steypta brú og rúmlega sjö
kílómetra langar vegfylling-
ar. Kostnaðaráætlun vega-
gerðarinnar hljóðaði upp á
625 milljónir en lægsta boð í
verkið nemur 517 milljón-
um króna og kemur frá Jarð-
vélum ehf. í Kópavogi. Alls
buðu tólf aðilar í verkið en
það er boðið út á evrópska
efnahagssvæðinu. Verkinu á
að vera að fullu lokið þann 1.
október 2005.
GE
Fegurðar-
samkeppni
Vesturlands
Skessuhorn heldur áfram
að kynna keppendur í Feg-
urðarsamkeppni Vesturlands
sem fram fer í Bíóhöllinni á
Akranesi þann 22. mars n.k.
Sjá bls. 7
Hópur manna á Akranesi hefur lýst yfir áhuga á að kaupa Sementsverksmiðjuna
Verksmiðjan rifin og íbúða-
byggð reist í staðinn
Ahersla lögð á áframhaldandi rekstur á sama stað segir Gísli Gíslason bæjarstjóri
Hópur manna á Akranesi,
undir forystu Gunnars Leifs
Stefánssonar, hefur óskað eftir
því við iðnaðarráðherra að taka
upp viðræður um kaup Sements-
verksmiðju ríkisins á Akranesi
með það fyrir augurn að rífa nú-
verandi verksmiðjuhús og breyta
verksmiðjusvæðinu í íbúðar-
svæði. Ætlunin er hinsvegar ekki
að hætta sementsframleiðslu
heldur að setja hluta verksmiðj-
unnar upp á Grundartanga.
Gjallframleiðslu yrði hinsvegar
hætt en það flutt inn og malað
og pakkað til sölu innanlands.
„Við teljum nauðsynlegt að
tryggja áframhaldandi sements-
framleiðslu á Islandi til þess að
koma í veg fyrir að Aalborg
Portland komist í
einokunaraðstöðu.
Við teljum einnig
að staðsetning
verksmiðju af þessu
tagi í miðju þéttbýli
sé tímaskekkja.
Með því að tjar-
lægja verksmiðjuna
skapaðist pláss fyrir
snyrtilegt bryggju-
hverfi með allt að
tvö hundruð íbúð-
um og ásýnd Akraness myndi
breytast verulega til bamaðar,“
segir Gunnar Leifur.
Hehnings fækkun
Aðspurður urn hversu mikið
störfum við verskmiðjuna rnuni
Gunnar Leifur Stefánssm
fækka við umræddar
breytingar segir hann
að ijöldi starfsmanna
við nýja sementsverk-
smiðju á Grundar-
tanga yrði um 30 og
því um að ræða rúm-
lega helmings fækkun.
„Við höfum heimildir
fyrir því að þeir aðilar
sem þegar eru í við-
ræðum við yfirvöld um
kaup á verksmiðjunni
hafi í huga að fækka
starfsmönnum um ríf-
lega helming þrátt fyr-
ir að þeir ætli að reka
hana á sama stað. Við
teljum ómögulegt að verksmiðj-
an geti verið samkeppnisfær við
innflutningsaðila
miðað við óbreyttar
forsendur. Með því
að flytja inn gjall ffá
evrópska efnahags-
svæðinu og nýta
mylluhluta verk-
smiðjunnar væri
hægt að ná þeirri
hagkvæmni sem til
þarf. Sementsverk-
smiðjan er barn síns
tíma, en sá tími er
því miður liðinn.“
Ekki hefur verið gefið upp
hverjir aðrir hafa sýnt áhuga á að
kaupa Sementsverksmiðjuna en
samkvæmt heimildum Skessu-
horns eru einstakar steypustöðv-
ar þar á meðal.
SementsverksmiSjan á Akranesi
Blönduð íbúðabyggð
Hugmyndir Gunnars Leifs
um uppbyggingu á núverandi at-
hafnasvæði Sementsverksmiðj-
unnar ganga út á að þar verði
blönduð íbúðabyggð ásamt
þjónustu. „Okkar hugmyndir
miða við að næst sjónum verði
biyggjuhverfi og inn af því svæði
þar sem sementsbryggjan er ný
yrði smábátahöfh. I slakkanum
umhverfis verksmiðjuna yrðu
stór einbýlishús og fjölbýlishús
með ffábæru útsýni. Niðri á
flötinni yrði blönduð byggð með
verslana- og þjónustumiðstöð á-
samt litlu útivistartorgi."
Gegn flutningi
„Bæjarráð og fulltrúar starfs-
manna fóru á fund iðnaðar-
nefhdar Alþingis fyrir skömmu
og þar var lögð mikil áhersla á að
þeir sem tækju við verksmiðj-
unni væru tilbúnir að reka hana
áffam á sama stað,“ segir Gísli
Gíslason bæjarstjóri Akraness og
stjórnarmaður í Sementsverk-
smiðjunni. „Allar hugmyndir
um stærri aðgerðir þyrfti að
kynna vel og víða. Vonir manna
standa til að verksmiðjan fái að
halda áfram starfsemi en bæjar-
stjórn Akraness leggur áherslu á
að við höfum eitthvað um lóða-
málin að segja. Akranesbær af-
henti ríkinu lóðina til að reka
þar sementsverksmiðju og
breytingar á starseminni þar
verða ekki gerðar nema í sam-
ráði við bæinn,“ segir Gísli.
GE
[imíi
Tilboðin hefjast fimmtudaginn 13. inars og gilda á meðan birgðir endast
9- 19 virkadaga
10- 19 laugardaga
12-19 sunnudaga
^Uerið velL
omin
Verö nú Verð nú
Svínahakk (úr kjötborði) 199 kr/kg. Kindasnitzel (úr kjötborði) 899 kr/kg.
Svínakótilettur (úr kjötborði) 689 kr/kg. Kindagúllas (úr kjötborði) 899 kr/kg.
Svínahnakki úrb. (úr kjötborði) 599 kr/kg. Saltað folaldakjöt (úr kjötborði) 349 kr/kg.
Svínagúllas (úr kjötborði) 599 kr/kg. Saltað hrossakjöt (úr kjötborði) 469 kr/kg.
Svínalundir(úr kjötborði) 1.299 kr/kg. 4 ^ ,
lVýtt kortatímabil hefst fimmtudaginn Í3. mars