Skessuhorn - 12.03.2003, Blaðsíða 2
2
MIÐVIKUDAGUR 12. MARS 2003
Þjóðgarðar
eflast
Nýlega ákvað umhverfis-
ráðherra, Siv Friðleifsdóttír,
að heilsársstarfsmenn yrðu
ráðnir til þjóðgarðanna Snæ-
fellsjökuls, í Skaftafelli og í
Jökulsárgljúfrum. Einn
starfsmaður verður ráðinn í
hvern þjóðgarð og mun hann
starfa með þjóðgarðsverði að
skipulagi og við rekstur þjóð-
garðsins. Þetta er framfara-
spor fyrir þjóðgarðana að
sögn Guðbjargar Gunnars-
dóttur þjóðgarðsvarðar á
Snæfellsnesi en hingað til
hafa þjóðgarðsverðir starfað
einir meiri hluta ársins.
Sinueldar
Slökkvilið Borgarness var
kallað út vegna sinuelda að
Bifröst síðastliðið mánu-
dagskvöld. Greiðlega gekk
að slökkva eldinn að sögn
Bjarna Þorsteinssonar
slökkviliðsstjóra. Segir
Bjarni að nokkuð hafi verið
um sinuelda í héraðinu síð-
ustu daga og biður hann fólk
að hafa varann á vegna
þessa.
GE
Fíkn er
íjötur
„Eg var bara hluti af hópn-
um, pældi ekkert sérstaklega í
þessu“
„Þetta byrjaði allt með fiktí
í reykingum, síðan leiddi eitt
af öðru.“
„ Eg fór að drekka áfengi og
kynntist þá einn daginn fólki
sem var með hass.“
„ Eg var í sálrænni kreppu
og óöryggi. Víman og nýi fé-
lagsskapurinn hjálpaði mér að
gleyma vandamálum sem ég
stóð ffammi fyrir og gat ekki
leyst.“
Svona eru svör margra ung-
menna sem lent hafa í fíkni-
efnaneyslu og í kröppum
dansi í lífinu.
Laugardaginn 22. mars kl.
17.00 verða haldnir stórtón-
leikar í Hallgrímskirkju með
þátttöku ljölmargra kóra og
landsþekktra listamanna.
Allur ágóði af þessum tón-
leikum rennur í fomvamar-
sjóð UMFI í baráttunni gegn
fíkniefhanotkun. I samvinnu
við forvamardeild lögreglunn-
ar verður lögð verður áhersla á
að ffæða foreldra um fyrstu
einkenni og rétt viðbrögð við
ftkniefnaneyslu unglinga.
(Fréttatilkynning)
Leitað að vélsleða-
mönnum á Langjökli
Hátt í 300 björgunarsveitarmenn
víðsvegar að af landinu leituðu
tveggja vélsleðamanna á langjökli
Ifá því um þrjúleytið á sunnudag til
hádegis á mánudag. Mennirnir
fundust heilir á húfi og var flogið
með þá til Reykjavíkur með þyrlu
Landhelgisgæslunnar.
Fimm menn á vélsleðum lögðu
af stað ffá Hveravöllum á sunnu-
dagsmorgun og hrepptu aftakaveð-
ur á Langjökli. Tveir mannanna
komust niður að Tjaldafelli en
höfðu þá ekki séð félaga sína síðan
þeir vom við Þursaborgir. Þeir
gerðu Neyðarlínu aðvart og leit var
hafin að mönnunum um þrjúleytið.
Fljótlega náðist fjarskiptasamband
við eirrn mannanna og gat hann
gefið upp staðsetningu og var á-
kveðið að hann myndi grafa sig í
fönn og bíða átekta. Hinir menn-
imir tveir vom ekki með fjarskipta-
tæki og auk þess var vitað að stað-
setningartæki þeirra væm í ólagi.
Aðfaranótt mánudagsins fannst
sleði annars mannsins en mennirn-
Frá langjökli í lok leitar
ir tveir fundust sem fyrr segir
skömmu fýrir hádegi á mánudag og
vom þá nokkuð hraktir en að öðm
leytd amaði ekkert að þeim.
Bjöm Bjömsson hjá Björgunar-
sveitinni Ok í Borgarfirði var einn
þeirra fýrstu sem lagði af stað í leit-
ina. Haim sagði mikla mildi að
mennimir skyldu vera heilir á húfi
og sagði það skynsamlegt að menn
kynntu sér veðurspá áður en lagt
væri af stað í leiðangur sem þennan
en veðurspáin var slæm fýrir þetta
svæði. GE
Allsherjarathugun héraðslækna og Krabbameinsfélagsins 2002:
Reykingar grunnskólanema á
Vesturlandi minnka ve
Um 7% grunnskólanema á
aldrinum 12-16 ára reykja, sam-
kvæmt könnun sem héraðslæknar
gerðu í fýrravor í samvinnu við
Krabbameinsfélag Reykjavíkur
og með stuðningi Tóbaksvarna-
nefndar. Þessi tala var 11,4% árið
1998 og hefúr því lækkað mikið. í
Reykjavík var hlutfallið 7,7% árið
2002 en hafði verið 32,0% árið
1974.
Könnunin, sem gerð var í apr-
ílmánuði 2002, náði til rúmlega
tutmgu þúsund nemenda á aldr-
inum 10-16 ára um land allt og
var sambærileg við kannanir sem
gerðar hafa verið á fjögurra ára
fresti, á landsvísu síðan 1990 og í
Reykjavík síðan 1974.
Helstu niðurstöður fýrir landið
í heild sýna að nú reykja 7,0%
pilta og 6,5% stúlkna, og er þá
miðað við allar reykingar í aldurs-
hópnum 12-16 ára. Ef aðeins er
litið á daglegar reykingar lækkar
hlutfallið hjá piltum í 5,4% og hjá
stúlkum í 3,7%.
Minnst er reykt á Vestfjörðum
3,6%, síðan kemur Vesturland
4,5%, Norðurland Eystra 4,9%,
Suðurland 5,9%, Norðurland
Vestra 6,6%, Reykjanes og Aust-
urland 7,3%, en mest er um reyk-
ingar á þessum aldri í Reykjavík
7,7%. Reykingar hafa minnkað á
öllum landssvæðum nema á Aust-
urlandi samanborið við
könnunina sem gerð var fýrir
fjórum árum. Af einstökum kaup-
stöðum koma Seltjarnarnes, Isa-
fjörður og Vestmannaeyjar best
út, þar reykja innan við 2 % nem-
enda á aldrinum 12-16 ára.
Eins og gefur að skilja er meira
um reykingar í eldri aldurshóp-
unum heldur en þeim yngri. Inn-
an við 1% tólf ára nemenda
reykja en 17% þeirra sem eru
sextán ára. Fleiri piltar en stúlkur
reykja, í flestum aldursflokkum.
Urn 51% nemenda á aldrinum
10-16 ára komu frá heimilum þar
sem hvorki nemendur né aðrir
heimilismenn reyktu. Fjórum
árum áður var hlutfallið 48% og
enn lægra áður, eins og sjá má af
því að árið 1974 var þetta hlutfall
17% í Reykjavík. Könnunin sýnir
að ef einhver á heimili reykir eru
50% meiri líkur á að börnin
reyki.
Einnig var spurt um munn- og
neftóbaksnotkun í könnuninni
vorið 2002. Sögðust 1,8% nem-
enda á aldrinum 10-16 ára nota
það oft en 7,4% einstaka sinnum.
Svo virðist sem dregið hafi úr
munn- og neftóbaksnotkuninni í
heild síðustu ár. Þeir sem reykja
ekki nota yfirleitt ekki heldur
munn- og neftóbak.
Ef skoðaður er samanburður á
milli ára á Vesturlandi þá kemur í
Ijós að hlutfall reykingafólks í
hópi 12 - 16 ára grunnskólnema
hefur lækkað frá árinu 1998 úr
9,6% í 4,5% en árið 1994 var
hlutfallið hinsvegar 8,0%.
Aldrað hús á ferð
Sjálfsagt hejur engan
o'rað jyir því þegar
gamla íbúðarhúsiö í
Galtarholti í Borgar-
hreppi var byggt áriö
1895 að það ætti eftir
að leggjast íferðalög.
Sú er hinsvegar orðin
raunin, rúmwn hund-
rað árum síðar en í
gærkvöldi varþaðjlutt
í heilu lagi á nýjan stað,
að Ensku húsunum við
Langá. Stefán Olafsson
smiður á Litluhrekku
keypti húsið á síðasta
ári og hefur að undan-
fömu biiið það undir flutningmn. Hann hyggst gera hiísið upp og nýta það
undir ferðaþjónustu þar sem það er nú komið í góðan félagsskap ensku hús-
anna en þar reka þau Stefán og Ragnheiður Jóhannesdóttir kona hans gisti-
heimili jyrir ferðamenn. Mynd: GE
Borgarbyggð
hyggst selja
jarðir
Bæjarráð Borgarbyggðar
hefúr falið bæjarlögmanni að
bjóða tíl sölu hlut sveitarfélags-
ins í jörðinni Hvítstöðum og
jarðirnar Skíðsholt og Stapasel.
Jafnframt leggur bæjarráð til
að leigutökum á sumarbú-
staðalóðum í landi Syðri-
Hraundals verði boðnar lóð-
irnar til kaups.
Þá hefúr bæjarráð óskað eft-
ir því að landbúnaðarnefnd
geri tillögur til ráðsins um það
með hvað hætti hægt væri að
selja Syðri-Hraundal og hlut
Borgarbyggðar í jörðinni
Grenjum þannig að aðgangur
að affétti verði tryggður.
Eins og fram kom í grein
sem Hálfdán Helgason bóndi á
Háhóli skrifaði í Skessuhorn
fýrir skömmu eru ekki allir á
eitt sáttir um þær fýrirætlanir
Borgarbyggðar að selja jarðir í
eigu sveitarfélagins. „Land-
búnaðarnefnd var falið að
kanna hvort hægt verði að
tryggja eftir sem áður aðgengi
að afrétti en það var það sem
andstaðan hefur snúist um,“
segir Páll Brynjarsson bæjar-
stjóri Borgarbyggðar. Hann
segir ennfremur að þær jarðir
sem ákveðið hefur verið að
selja séu ekki í ábúð. GE
Þórtmn Pálsdóttir leikstjóri.
Ef ég væri
guflfiskur
Æfingar standa nú yfir á
leikritinu Ef ég væri gullfisk-
ur. Leikstjóri er Þórunn
Pálsdóttír, en með helstu hlut-
verk fara Ásgeir Ásgeirsson,
Þorbjörn Oddsson og Val-
gerður Björnsdóttir. Alls taka
tíu leikarar þátt í sýningunni.
Stefnt er að frumsýningu
föstudaginn 21. mars n.k.
Leikritið Ef væri ég gull-
fiskur, eftir Árna Ibsen, er
farsi að frönskum hætti, en
með íslenskt inntak. Það fjall-
ar um gæludýrasala sem er
með óhreint mjöl í pokahorn-
inu. Hann ætlar að stinga af
eina dimma nótt með digran
sjóð og nýja kærustu, en
óvænt næturheimsókn sonar
hans og lauslætísdrósar setur
strik í þann reikning.