Skessuhorn - 30.07.2003, Blaðsíða 1
Deilur magnast vegna skemmda á bílum
Einn verktakanna íhugar að fara í
meiðyrðamál við einn tjónþolanna
Meistaramót Islands í frjálsum Iþróttum var haldið í Borgamesi um helgina en það er ífyrsta sinn sem mótið er haldið
utan höfiiðborgarsvæðisins. Skagamaðurinn, Sigurkarl Gústafsson úr UMSB, gerði sér lítið fyrir og setti Islandsmet á
mótinu í 400 metra hlaupi. Sjá nánar á bls. 10.
Ríflega þriðjungur
beltislaus
Skessuhorn greindi firá því í
síðustu viku að töluverður fjölda
bfla í kringum Skipasmíðastöð
Þorgeirs og Ellert hefði fengið á
sig skipamálningu við sprautun
tveggja skipa sem þar eru í
vinnslu. Tveir af þremur verk-
tökunum sem standa að verkinu
tjáðu sig um málið og báðir töldu
litlar sem engar bkur væru á því
að málningin kæmi frá þeirn.
Ekki náðist í fulltrúa þriðja verk-
takans, Skipamálning hf., í síð-
ustu viku en þegar Skessuhorn
ræddi við hann í gær hafhaði
hann því einnig að eiga aðild að
málinu.
Haraldur Lárusson er annar
eiganda Skipamálningar og
hafhaði hann því algjörlega að
hans fyrirtæki bæri nokkra
ábyrgð á því tjóni sem bfleigend-
ur á neðri Skaga hefðu orðið fyr-
ir.. „Mér finnst það mjög lág-
kúrulegt hvernig hinir verktak-
arnir tala í þessu máli. Kjölur
segist ekki hafa verið að vinna á
laugardaginn en við horfðum á
þá vera að því, þannig að þeir
ljúga ef þeir segja eitthvað ann-
að. Þeir frá Skipaþjónustinni
voru að sprauta allan föstudags-
eftirmiðdaginn en við hættum
að sprauta á hádegi vegna þess
að okkur þótti alltof hvasst. Við
vöruðum þá meira að segja við
því að vera sprauta en þeir öns-
uðu því ekki og héldu bara
áffiam. Við höfum tvisvar hringt
á lögregluna til að láta þá vita af
þessum vinnubrögðum hjá hin-
um verktökunum [Kili og Skipa-
þjónustinni] þ.e. þegar þeir voru
að sprauta í vindátt sem var
óhagstæð til þessara verka. Við
vorum að sprauta í einn klukku-
tíma á laugardaginn og þá var
aðeins hægur andvari útá sjó.
Það er því afar lélegt ef fólk ætl-
ar að reyna kenna okkur um
þetta,“ segir Haraldur.
Meiðyrðamál
„Síðan er þessi Guðmundur
[Sigurbjömsson] kominn á hálan
ís þegar hann segir að á okkur
hafi borist 20-30 kærur á síðasta
ári vegna skemmda á bílum.
Þetta er alrangt og emm við
jafnvel að hugsa um að fara í
meiðyrðamál við hann vegna
þessa. Hann getur heldur ekki
sagt mikið þar sem hann hagaði
sér með afar ósmekklegum hætti
þegar hann kom og sakaði okkur
um að bera ábyrgð í þessu máli.
Þegar einn starfsmanna minna
svaraði ásökunum hans með
þeim hætti að segja honum að
sanna þessar ásakanir, þá reif
hann duglega í hann og kallaði
hann bjána,“ sagði Haraldur að
lokum. HJH
Nýr
skólastjóri
Elísabet Haraldsdóttir
kennari við Andakílsskóla á
Hvanneyri hefur verið ráðin
skólastjóri við skólann í stað
Guðlaugar Erlu Gunnars-
dóttur. Fjórir umsækjendur
vom um stöðuna.
Umferðarfulltrúi Vesmrlands
og Reykjaness framkvæmdi
könnun á bílbeltanotkun við
þjóðveg 1 í Borgarnesi síðast-
liðinn miðvikudag. Tvöhund-
mð og sextán bílar vom stöðv-
aðir 37,5% tilfella vora öku-
menn bifreiðanna ekki í belti
eða 81 en 135 notuðu bílbelti.
Af 142 farþegum vom 123 far-
þegar með bílbelti en 19 án
þeirra eða 13,3%. Þar af vora
nokkur börn sem sátu laus í
fremra farþegasæti. A sama stað
var gerð stefnuljósakönnun og
24% úrtaksins notaði ekki
stefnuljós.
Magnús B. Jóhannsson um-
ferðarfulltrúi Vesturlands og
Reykjaness segir niðurstöður
könnunarinnar vera sláandi og
að sér komi veralega á óvart
hversu mjög bflbeltanotkun sé
ábótavant. GE
Bókagjöf
Bæjarráði Snæfellsbæjar barst
í síðusm viku bréf ffiá Helga
Sæmundssyni, ffiæðimanni, og
Valnýju Bárðardótmr þar sem
tilkynnt er um gjöf á bókasafni
þeirra hjóna til sveitarfélagsins.
Bókasafnið telur á fimmta þús-
und bindi og þar á meðal marg-
ar mjög verðmætar bækur að
sögn Kristins Jónassonar, bæj-
arstjóra Snæfellsbæjar.
Hyrnan: Bensínstöð -Verslun - Veitingar - Hraðbanki - Rútuferðir - Upplýsingamiðstöð Hyrnutorg: Stórmarkaður - Hraðbanki J
r r
( ,
Opið um helgina
Laugardag kl. 10-19
Sunnudag kl. 12-19
Mánudag kl. 12-19
Góður kostur