Skessuhorn


Skessuhorn - 30.07.2003, Qupperneq 5

Skessuhorn - 30.07.2003, Qupperneq 5
jívtaaunvj.. MIDWKUDAGUR 30. JULI 2003 5 Orgeltónleikar um verslunarmannahelgi Orgeltónleikar í Reykholts- kirkju, laugardaginn 2. ágúst n.k. klukkan 20:30 Laugardaginn 2. ágúst verð- ur Douglas A Brotchie, organisti Háteigskirkju með tónleika í Reykholtskirkju. Leikur hann verk eftir Buxtehude, Bohm, Bach, Haydn, Jón Leifs, Messiaen og Franck. Þetta er í sjötta sinn á þessu sumri, sem Félag ís- lenskra organleikara og Orgel- og söngmálasjóður Bjarna Bjarnasonar á Skáney standa fyrir tónleikum til styrktar org- elinu í Reykholtskirkju. Lokatónleikar suinarsins verða laugardaginn 9. ágúst, en þá mun Marteinn H. Friðriksson setjast við orgelið. Agóði af tónleikaröðinni rennur óskipt- ur til orgelsjóðsins. Dr Douglas A. Brotchie er skoti, fæddur í Edinborg. Hann byrjaði að læra á orgel þar um fermingaraldur og strax við sextán ára aldur var hann fast- ráðinn organisti og kórstjóri við Balerno sóknarkirkjuna, kirkju sem er staðsett í þorpi sem var á þeim tíma í útjaðri Edinborgar. Douglas flutti til íslands 1981. Hann hefur lokið kantorsprófi og orgeleinleik- Douglas A Brotchie. araprófi frá Tónskóla Þjóð- kirkjunnar, var annar organisti Dómkirkju Krists Konungs (Landakotskirkju) í mörg ár og var organisti Hallgrímskirkju um eins árs skeið í leyfi Harðar Askelssonar. Hann er nú org- anisti og kórstjóri Háteigs- kirkju og kennari við Tónskóla þjóðkirkjunnar. Douglas hefur haldið tón- leika víða urn Evrópu, bæði sem einleikari svo og sem meðleik- ari m.a. í Söngsveitinni Fíl- harmóníu, Mótettukór Hall- grímskirkju og Schola cantor- um, hefur oft komið fram sem organisti í sjónvarpi og útvarpi og hefur auk þess leikið inn á fjölda geisladiska. Bókasafu Grundarjjarðar Bókasafn Grundar- íjarðar 80 ára Áttatíu ára afmæli Bókasafns Grundaríjarðar var fagnað á hátíðinni Á góðri stundu um síðustu helgi og var gestum boðið að kynna sér sögu safns- ins í nýjum húsakynnum þess. Við sama tækifæri tók Byggða- safh Snæfellinga og Hnappdæla við niununi úr búi sr. Jens Hjaltalín til varðveislu. Árið 1923 gekkst Ung- mannafélagið í Eyrarsveit fyrir stofnun bókasafns sem fékk nafnið Lestrarfélag Eyrarsveit- ar. Það var rekið sem sjálfstæð stofnun og fylgdi umsjónar- mönnum sínum milli húsa. Árið 1939 tók Ungmennafélag- ið við rekstrinum og nefndi það Bókasafn U.M.F. Grundfirð- inga. Eftir breytingu á lögum frá Alþingi færðist reksturinn til sveitarinnar og nefndist það Bókasafn Eyrarsveitar þar til sveitarfélagið fékk nýtt stjórn- sýsluheiti árið 2001 að það fékk núverandi nafn sitt, Bókasafn Grandarfjarðar. GE Grettissögu-teikningar Halldórs Péturssonar firumsýndar Sýning á teikningum hins vin- sæla teiknara Halldórs Péturs- sonar, sem unnar eru upp úr Grettis sögu, verður opnuð á Hótel Eddu að Laugarbakka í Miðfirði þriðjudaginn 29. júlí nk. Um er að ræða myndir sem Hall- dór vann árið 1976 í tengslum við fyrirhugaða útgáfu á sögunni sem fallið var ffá. Teikningarnar, sem eru 14 talsins, hafa því aldrei í heild sinni birst almenningi fyrr en nú. Halldór Pétursson fæddist í Reykjavík, 26. september 1916. Hann nam auglýsingateikningu við Kunsthaandværkerskolen í Kaupmannahöfii og því næst við Art Students League í New York. Ohætt er að fúllyrða að Halldór Pétursson er einn vinsælasti teiknari þjóðarinnar og hafa myndir hans prýtt fjölda bóka og blaða í gegnum tíðina. Þekktast- ur er hann fyrir einstaka næmni sína í gerð teikninga og málverka af íslenska hestinum. Þá þekkja margir myndir hans úr íslenskum þjóðsögum. Skákeinvígi Fishers og Spasskys árið 1972 gerði hann og góð skil en myndirnar sem hann teiknaði af einvíginu á sín- um tíma komust í dreifingu víða um heim í formi póstkorta og á síðum stærstu dagblaða heims. Sýningin er hluti Grettishá- tíðar sem haldin verður í Húna- þingi helgina 16.-17. ágúst nk. Hátíðin hefst með menningar- og skemmtidagskrá í félags- heimilinu Hvammstanga, 16. ágúst kl. 20, þar sem fram koma m.a. Einar Kárason, Þórarinn Eldjárn og Ólafúr Kjartan Sig- urðarson. Á sunnudegi verður haldin fjölskylduskemmtun á Bjargi í Miðfirði þar sem hin ár- lega aflraunakeppni skipar önd- vegi. Sýningunni lýkur 17. ágúst 2003. Kvöld- ganga um Hreðavatn Fimmtudaginn 31. júlí kl 20:00 verður gengið um hið fagra umhverfi Hreðavatns. Upphafsstaður göngu er á hlaðinu við Hreðavatnsbæ- inn. Farið er þá af þjóðvegi nr. 1 rétt sunnan við Bifröst. Þaðan verður gengið með austurbakka vatnsins og út í fallegan hólma í vatninu. Það er Ungmennasamband Borgarfjarðar sem stendur fyrir göngunni í samvinnu við Veiðimálastofnun - Vestur- landsdeild í tilefni af ári ferskvatnsins Leiðangursstjórar verða Sigurður Már Einarsson ffá Veiðimálastofnun og Birgir Hauksson frá Skógrækt ríkis- ins. Fjallað verður um lífríki vatnsins og umhverfi þess. Gangan er fremur stutt og ætti að henta öllum aldurs- hópum. Fjölmennum og njótum náttúrunnar okkur til heilsu- bótar og ffæðslu. Munið að taka stimpilbókina með eða fá afhenta bók eftir gönguna! (Fréttatilkynning) Fjölskyldan Fagnar Verslunarmannahelgin að Uti- lífsmiðstöð skáta Ulfljótsvatni Að venju verður Utilífsmið- stöð skáta Ulfljótsvatni opin al- menningi urn Verslunarmanna- helgina og er barnafjölskyldum sem geta séð um sig sjálfar og fagnað saman sérstaklega bent á aðstöðuna. Ekki er um eigin- lega hátíð að ræða og enginn sérstakur aðgangseyrir aðeins tjaldstæðisgjald sem um helgina verður kr. 3.000,- pr. tjald frá föstudegi og kr. 2.000.- pr. tjald frá laugardegi. Þá verður engin hljómsveit á staðnum, engin aðkeypt skemmtiatriði eða af- þreying verður um að ræða, en svæðið býður upp fjölmarga möguleika fyrir fjölskylduna til að fagna saman um helgina og fá tjaldsvæði bjóða upp á viðlíka aðstöðu. Á svæðinu er báta- leiga, vatnasafarí, klifurturn, ýmsar þrautabrautir, aðstaða til boltaleikja, golfbraut og kassa- bílar. Þá verður skipulögð dag- skrá um Verslunarmannahelg- ina sem ræðst nokkuð af fjölda þeirra sem dvelja á svæðinu en meðal þess sem verður í boði er: fótbolti, blak, hoppikastali, skipulagðar gönguferðir við allra hæfi, Ullaleikar, ratleikir, veiðikeppni, barnadagskrá og barnadiskótek, föndursmiðjur og auðvitað varðeldur. Fjöl- skyldan fagnar því saman og með öðrum fjölskyldum. Nán- ari upplýsingar um d^gskrá má finna á heimasíðu Utilífsmið- stöðvar skáta Úlfljótsvatni: www.skatar.is/ulfljotavatn. (Fréttatilkynning) Borgames ■ morgmræstíng Ræstir ehf. óskar eftir starfsmanni við morgunræstingar í Borgarnesi. Um er að ræða ræstingu 3 morgna í viku, mán., mið. og fös. kl. 9. Upplýsingar í síma 897 1012 BORGARBYGGÐ Skrifstofustarf Laust er til umsóknar starf skrifstofumanns á skrifstofu Borgarbyggbar. Starfið felst einkum í tölvuvinnslu, reikningagerð, innheimtu, bréfaskriftum, símsvörun og almennum skrifstofustörfum. Æskilegt er að umsækjendur hafi verslunarpróf eða sambærilega menntun og/eða reynslu af skrifstofustörfum. Laun skv. kjarasamningum Starfsmannafélags Borgarbyggðar. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir skulu berast á bcejarskrifstofuna ab Borgarbraut 7 7 fyrir 8. ágúst nk. Nánari upplýsingar gefa bcejarritari eba bæjarstjóri í síma 437-1224 eba á skrifstofunni. Borgarnesi 25. júlí2003. Bœjarritari.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.