Skessuhorn - 30.07.2003, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 30. TULI 2003
Jivt33unu,_
Bjami Fel. og Mr. Bean
Víkingur Ólafsvík hefur
slegið í gegn í þriðjudeildinni í
knattspyrnu í sumar og er liðið
sem stendur efst í sínum riðli,
ósigrað eftir 11 umferðir og
nánast búið að tryggja sér sæti
í úrslitakeppninni. Helsti
markaskorari liðsins er Jónas
Gestur Jónasson og er hann
gestur skráargatsins að þessu
sinni.
Nafn: Jónas Gestur Jótiasson
Fœðingadagnr og ár: 23.04.70
Staif: Endurskoðandi
Fjölskylduhagir: 1 sambúð með Steinunni Dröfii og á tvö börn El-
ínu Osk 7 ára og Höllu Sóley 2 ára
Hvernig bíl áttu: Subaru Impresa
Uppáhalds matur: Lambakjöt og humar
Uppáhalds drykkur: Vatn og Kók
Uppáhalds sjónvarpsefni: Iþróttir ogfréttir
Uppáhalds sjónvarpsmaður: Bjarni Felixson
Uppáhalds leikari innlendur: Sigurður Sigmjónsson
Uppáhalds leikari erlendur: Rowan Atkinson
Besta bíómyndin: Mr. Bean
Uppáhalds íþróttamaður: Robbie Keane
Uppáhalds íþróttafélag: Víkingur O og Tottenham Hotspur
Uppáhalds stjómmálamaður: Enginn
Uppáhalds tónlistarmaður innlendur-.Tryggvi Hafsteinsson í
Víking er upprennandi söngvari
Uppáhalds tónlistarmaður erlendur: Enginn
Uppáhalds rithöfundur: Halldór Kiljan Laxness
Ettu hlynntur eða andvígur ríkisstjórninni: Hlynntur
Hvað meturðu mest ífari annarra: Heiðarleika
Hvaðfer mest í taugarnar á þér í fari annarra: Oheiðarleiki
Hver þinn helsti kostur: Jákvæðni
Hver er þinn helsti ókostur: Vinnusjúklingur
Hefur árangur Víkinga í sumar komið þér á óvart: Já, þvt' er
ekki að neita en við vonuðumst samt eftir að verða í baráttunni um
að komast í úrslitakeppnina en að vera taplausir eftir 11 umferðir
er umfram okkar væntingar.
Hvað hefur breyst frá því jýrra: I fyrra vorum við með mjög
ungt lið sem við höfum verið að byggja upp ogþessir strákar sem eru
að spila með Víking í dag eru komnir með einhverja reynslu sem er
að nýtast okkur vel núna. Ekki má gleyma þætti þjálfarans okkar.;
Ejub Purisevic, en hann hefur unnið mjög gott starf og erum við
mjög ánægðir með hann.
Nú hefur þú heldur betur verið á markaskónum í sumar,
hver er formúlan:
Góðir samherjar sem gefii á mig á réttum stöðum og gamla góða
markheppnin.
Hverja telur þú möguleika ykkar vera á að komast upp í 2,-
deild: Eg tel möguleika okkar jafiia á við önnur lið í úrslitakeppn-
inni en erfitt er að átta sig á styrkleika liða í öðrum riðlum en hins-
vegar höjum við verið að spila vel upp á síðkastið svo við erum
bjartsýnir á að ná loksins þessum áfanga.
Eitthvað að lokum: Ég vilþakka stuðningsmönnum Víkings kær-
lega fyrir stuðninginn í sumar og vonast til að sjá sem flesta í
brekkunni á móti Drang á finmitudagskvöldið.
LATTU OKKUR
FÁÞAÐ
ÓÞVEGIÐ
Efnalaugin Múlakot elif.
Borgarbraut 55
310 Borgarnesi
Sími 437 1930
Verslunarmannahelgi 2003
Gönguferðir og bamastund
í þjóðgarðinum
Þjóðgarðurinn Snæfellsjök-
ull býður upp á fjölbreytta dag-
skrá um Verslunarmannahelg-
ina. Gönguferðir með land-
vörðum eru frá Búðum, Arnar-
stapa, Djúpalónssandi og
Gufuskálum og barnastundir á
Arnarstapa og í Ólafsvík.
Gönguferðirnar eru frá
klukkustundar rölti upp í
þriggja til fjögurra stunda
göngur og eru gestum að
kostnaðarlausu.
Barnastund verður við Arn-
arbæ á Arnarstapa á laugardag-
inn kl. 11 og á sama tíma á
sunnudaginn á tjaldstæðinu í
Olafsvík. Gönguferð frá Arnar-
stapa að Hellnum er á laugar-
daginn kl. 11 og aftur kl. 14. A
laugardaginn kl. 14 er einnig
boðið upp á göngu frá Djúpa-
lónssandi uin slóðir vermanna.
A sunnudag er boðið upp á
tvær gönguferðir frá Búðum,
annars vegar rölt að Frambúð-
um kl. 11 og hins vegar göngu-
ferð um Klettsgötu að Búða-
kletti kl. 14. Einnig er á sunnu-
dag kl. 14 ganga frá fiskbyrgj-
um skammt sunnan Gufuskála.
Síðasti dagskrárliður á vegum
þjóðgarðsins þessa mestu
ferðahelgi ársins er á mánudag
kl. 14 en þá er boðið upp á
gönguferð um Öndverðarnes-
hóla. Allir velkomnir. Nánari
upplýsingar fást á skrifstofu
Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls í
síma 4366860 / 8556860 og á
heimasíðu Umhverfisstofnunar
www.ust.is. (Fréttatilkynning)
Að mála allan heiminn
Það er með þvílíkum ólíkind-
um að eítir rúmlega viku- bar-
áttu við að fá einhvern til að
stöðva málningarframkvæmdir
á vinnusvæði Þorgeirs og Ell-
erts hf. sitjum við íbúar í ná-
grenni við þessa starfssemi uppi
með það að eiga á hættu að fá
yfir eigur okkar málningarúða
og annan óþverra.
Mér finnst til skammar
hvernig forráðamenn þeirra
fyrirtækja sem eiga hlut að máli
hafa hagað sér. Þorgeir Jósefs-
son hjá Þ&E hf. sem ég hafði
fyrstan samband við mánudags-
morguninn 21. júlí hann sagist
ekkert geta gert því þetta væru
undirverktakar og ég yrði bara
að tala við þá, hann vildi ekkert
kannast við að fyrirtækið bæri
einhverja ábyrgð á þeim þótt
þeir væru að vinna á umráða-
svæði fyrirtækisins.
Undirverktakarnir í þessu
máli eru Trésmiðjan Kjölur hf.,
Skipaþjónusta Islands hf. og
síðast en ekki síst, Skipamálning
h£, en til að gera langa sögu
stutta þá þræta þeir bara og vísa
hver á annan. Eftir því sem ég
kemst næst þá voru þeir hjá
Skipamálningu hf. hér niður við
höfn í fyrrasumar að sprautu-
mála skip frá Haraldi Böðvars-
syni hf. og fékk þá lögreglan á
milli 20-30 kvartanir útaf máln-
ingarúða á eigum fólks út í bæ
og nú eru þeir aftur á ferð og
ætla greinilega að gera ennþá
betur en í fyrra og mála ennþá
fleiri eignir, því mér skilst að
þeir eigi að fara að sprautumála
Ingunni AK niður við höfn
þegar þeir eru búnir hjá Þ&E
hfi, ég held að það væri kannski
umhugsunarefni fyrir bæði
Þ&E hf. og H.B hf. hverja þeir
ráða til sín í vinnu ef þetta er sú
ábyrgð $em þeir sína bæjarbú-
um.
í ffamhaldi af því langar mig
að hvetja íbúa í nágrenni við
hafharsvæðið að láta lögreglu
og heilbrigðisfulltrúa í sér
heyra, áður en skaðinn er skeð-
ur.
Haukur Þórisson hjá Tré-
smiðjunni Kili hf. hvítþvær fyr-
irtækið af þessu máli sem hlýtur
að teljast hálf undarlegt í ljósi
þess að ég fór mánudagsmorg-
uninn 21. júlí efrir samtal mitt
við Þorgeir Jósefsson og talaði
við verkstjóra Kjalar hf. á
vinnusvæði Þ&E hfi, hann
sagðist ætla að tala við Hauk og
gera honum grein fyrir fyrir á-
standi mála, en fékk þau skila-
boð stuttu seinna ffá Hauki um
að halda bara áffam að sprautu-
mála þótt honurn væri að fullu
ljóst að meiri skaði hlytist af ef
sprautumálað væri við þá vind-
átt sem þá var.
Hjá Akraneskaupstað fékk ég
þau svör að þeir gætu lítið að-
hafst í þessu máli þrátt fyrir að
þeir væru eigendur á skipalyft-
unni hjá Þ&E hf. en þessir
verktakar eru að vinna á skipa-
lyftunni.
Það er líka umhugsunarefhi
fyrir heilbrigðisfulltrúa og bæj-
aryfirvöld að þetta vinnusvæði
skuli vera algerlega opið þannig
að það dregur til sín forvitin og
uppátækjasöm börn sem getur
verið þeim stórhættulegt.
Það er okkur íbúum í ná-
grenni við fyrirtækis Þorgeirs
og Ellerts hf. með öllu óskiljan-
legt hvað yfirvöld sem með
þetta mál hafa að gera þ.e.a.s
lögreglan, heilbrigðisfulltrúi og
bæjar yfirvöld geta lítdð aðhafst,
á meðan við íbúar á þessu svæði
hreinlega horfum uppá það að
eigur okkar eru skemmdar ekki
bara á einum degi heldur dag
eftir dag og engin gemr stöðvað
þessar framkvæmdir, það getur
varla talist eðlilegt að engin úr-
ræði séu til. Eg er alveg viss um
það að ef við íbúarnir hér fær-
urn og spraumðum málningu
yfir eigur þessa fyrirtækis að við
yrðum handtekin á staðnum og
gert að greiða kosmað við þrif-
in, fáranleikinn í þessu máli er
því a lger.
Fólk sem ég hef talað við hér
í nágrenninu sagði mér að það
hefði kvartað yfir þessu oft á
liðnum ámm og þurft í flestum
tilfellum að standa undir kostn-
aði við þrif á eigum sínuin efrir
svona uppákomur. Það er með
öllu óþolandi að þurfa að standa
undir óhemju kostnaði við það
eitt að fá rétt sinn virtan og á að
sjálfsögðu ekki að vera á hönd-
um okkar að þurfa að standa í
málsóknum þegar svona hlutir
gerast heldur á það að vera
tryggt að ef svona uppákomur
eiga sér stað að viðkomandi fyr-
irtæki sýni þá ábyrgð að bæta
tjónið sem af hlíst.
Eins og áður er getið hlýtur
því að teljast eðlileg krafa okkar
íbúa þessa svæðis að tryggt
verði að svona uppákomur séu
ekki daglegt brauð hjá okkur
eins og verið hefur og hægt sé
að stöðva framkvæmdir strax
þegar ljóst er að hætta sé á tjóni
hjá íbúum þessa svæðis og að
tryggt sé að fyrirtækið sem við á
bæti þann skaða sem hlotist hef-
ur.
Kveðja.
Guðmundur Sigurbjörnsson
Bakkatúni 4