Skessuhorn - 30.07.2003, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 30. JULI 2003
11
jíitasunu..
Trausti Eiríksson varð unglingameistari, Guðmundur Daníelsson meist-
ari Golfklúbbs Borgarness annað árið í röð og Júiiana Jónsdóttir meist-
ari í kvennaflokki GB einnig annað árið i röð.
Meistaramót Golfklúbbs Borgarness
Guðmundur meist-
ari annað árið í röð
Meistaramót Golfklúbbs
Borgarness fór fram dagana
16.-19. júlí. Alls tóku 45 fé-
lagsmenn þátt í meistaramót-
inu að þessu sinni, sem verður
að teljast nokkuð gott miðað
við stærð klúbbsins. Veðrið var
með eindæmum gott alla dag-
ana og völlurinn skartaði sínu
fegursta.
Guðmundur Daníelsson lék
á 300 höggum og jafnaði þar
með meistaramótsmet Har-
aldar Más Stefánssonar frá ár-
inu 1995. Önnur úrslit urðu
þessi:
Meistaraflokkur karla:
1. Guðmundur Daníelsson, 300
högg
2. Hlynur Þór Stefánsson, 317
högg
3. Ómar Örn Ragnarsson, 329
högg
1. flokkur karla
1. Heiðar Lind Hanss., 343 högg
2. Jón G. Ragnarsson, 349 högg
3. Bergsveinn Símonarson, 357
högg
1. flokkur kvenna
1. Júlíana Jónsdóttir, 384 högg
2. Þuriður Jóhannsdóttir, 399
högg
3. Fjóla Pétursdóttir, 401 högg
2. flokkur karla
1. Finnur Jónsson, 345 högg
2. Sigurgeir Ertendss., 366 högg
3. Stefán Einar Stefánsson, 368
högg
2. flokkur kvenna
1. Auðbjörg Pétursd., 456 högg
2. Kristín H. Vigfúsd., 489 högg
3. Guðrún Sverrisd., 512 högg
3. flokkur karla
1. Magnús Gunnar Pálsson, 478
högg
2. Þráinn Gústafsson, 483 högg
Öldungaflokkur karla
1. Þórður Sigurðsson, 376 högg
2. Erling Garðar Jónasson, 391
högg
3. Albert Þorkelsson, 398 högg
14 ára og yngri
1. Trausti Eiriksson, 359 högg
9. holu flokkur
1. Magnús Sigursson, 171 högg
2. Sigurður Þórarinss., 187 högg
3. Bjarki Pétursson, 198 högg
Opið golfmót fyrir
unglinga að Hamri
Síðastliðinn sunnudag fór
fram opið golfmót fyrir ung-
linga á Hamarsvelli í Borgar-
nesi.
Veður var mjög gott, hlýtt
og hægur andvari en stöku
skúrir féllu um miðjan daginn.
Nokkur vonbrigði voru með
hve keppendur voru fáir en
þeir komu frá 8 klúbbum víðs-
vegar á landinu.
Fyrirkomulag keppninnar
var punktakeppni í þremur
flokkum og voru úrslit þessi:
9 - 12 ára:
1. Trausti Eiríksson, GB, 33 pt.
2. Sigurður Sigurðss., GB, 26 pt.
3. Sigurður Þórarinss., GB, 25 pt.
13 - 14 ára:
1. Ivar H. Sævarss., GL, 41 pt
2. Arnar M. Róbertss.,GSS, 31 pt
3. Davíð Jónsson, GP, 30 pt
15-16 ára:
1. Benedikt Ö. Bjarnas., GR, 41 pt.
2. Axel Már Karlsson, GL, 31 pt
3. Vignir Karl Gylfason, GK, 29 pt
Shellstöðin í Borgarnesi og
Skeljungur hf. gáfu glæsileg
verðlaun í mótið en það voru
verðlaunabikarar frá Úra- og
skartgripaverslun Guðmundar
B. Hannah auk gjafabréfa í
versluninni Útilíf. Einnig var
dregið úr skorkortum í móts-
lok og fengu þrír heppnir
Þróttur-í/^1-3
Besti leikur IA í sumar
Skagamenn spiluðu sinn
besta leik í sumar þegar þeir
unnu öruggan sigur á Þróttur-
um í Laugardalnum í síðustu
viku. Loksins brast markastífl-
an eftir ríflega 240 mínútna
þurrk ef frá er talið sjálfsmark
Grindvíkinga í bikarnum um
daginn.
Fyrri hálfleikur spilaðist
reyndar eins og svo margir
aðrir leikir í sumar hjá ÍA.
Skagamenn stjórnuðu leikn-
um og voru að spila vel úti á
vellinum en var gjörsamlega
fyrirmunað að skora þrátt fyrir
heldur fleiri og opnari færi en í
flestu leikjum liðsins í sumar.
Skagamenn urðu fyrir áfalli á
39.mínútu þegar Grétar Rafn
Steinsson borinn af leikvelli
og eins og lesa má hér ann-
arsstaðar á síðunni eru
meiðslin alvarleg. Staðan
markalaus í leikhléi en ekki
hefði verið ósanngjarnt ef
Skagamenn hefðu 3-4 marka
forystu.
Síðari hálfleikur var ekki
nema þriggja mínútna gamall
þegar hræðilegur dómari
leiksins dæmdi vítaspyrnu á
ÍA þegar hann taldi Gunnlaug
Jónsson hafa brotið á einum
leikmanni Þróttar. Úr víta-
spyrnunni skoruðu síðan
Þróttarar fyrsta mark leiksins.
Skagamenn voru ekki lengi að
jafna sig á markinu því tveim-
ur mínútum síðar skoraði
Gunnlaugur laglegt skalla-
mark eftir hornspyrnu Stefáns
Þórðarsonar. Stórsókn
Skagamanna hélt áfram og á
57. mínútu skoruðu þeir aftur.
Sama formúla var að öðru
markinu og því fyrsta, Stefán
með hornspyrnu og í þetta
sinnið var það varamaðurinn
Guðjón Sveinsson sem átti
kollspyrnuna sem kom bolt-
anum yfir línuna. Eftir þennan
góða kafla Skagamanna var
allur vindur úr Þrótturum og í
raun aldrei spurning um hvort
liðið færi með sigur af hólmi.
Vörn heimamanna var sem
Grétar Rafn frá
í 6-8 mánuði
Grétar Rafn
S t e i n s s o n
varð fyrir því
óláni að slíta
krossbönd í
leiknum gegn
Þrótti í síð-
ustu viku sem
þýðir að hann verður frá
keppni í allt að 6-8 mánuði.
Meiðsli Grétars eru mikið áfall
fyrir ÍA þar sem hann hefur
verið einn öflugasti leikmaður
liðsins í sumar. Auk leikjanna
sem Grétar missir af með ÍA
getur hann ekki leikið með
21árs landsliðinu sem leikur
þrjá leiki í haust. Sjálfur er
Grétar æðrulaus gagnvart
þessu áfalli og harðákveðinn
að koma tvíefldur til baka. í
samtali við Skessuhorn sagði
Grétar meiðslin vissulega
vera gífurlega svekkjandi en
svona hlutir kæmu fyrir og við
þeim væri ekkert að gera ann-
að en að vinna sig útúr þeim.
Það hugðist hann gera og
stefnan væri tekin á næsta
tímabil. Reiknað er með að
Grétar fari í aðgerð strax eftir
næstu helgi. HJH
Verðlaunahafar á mótinu.
keppendur pizzu-veislu frá
Shellstöðinni.
Keppendur og gestir voru
mjög ánægðir með mótið og
allar aðstæður, enda Hamars-
völlur frábær um þessar
mundir og höfðu nokkrir á orði
að þeir myndu örugglega
koma aftur að ári en stefnt er
að því að opin unglingamót
verði árviss viðburður að
Hamri.
gatasigti hvert færið rak á fjör-
ur Skagamanna. Aðeins eitt
þeirra nýttist áður en yfir lauk
og var þar að verki Hjörtur
Hjartarson átt mínútum fyrir
leikslok með sitt fyrsta mark í
sumar. Þegar tvær mínútur
voru komnar framyfir venju-
legan leiktíma fékk Guðjón úr-
valsfæri á að bæta við fjórða
markinu en skot hans fór
naumlega framhjá.
Eins og áður segir var spila-
mennska ÍA í leiknum líkast til
sú besta sem liðið hefur sýnt í
sumar. Eina sem mætti setja
útá er nýting marktækifær-
anna en þrjú þeirra nýttust
sem dugði í þetta sinn. Allir
leikmenn liðsins voru að spila
vel í leiknum. Gunnlaugur fór
fyrir sínum mönnum í vörn og
sókn, Grétar var duglegur
meðan hans naut við sem og
hinn feykiduglegi Færeyjingur
Julian Johnson. Við sigurinn
fóru Skagamenn upp um eitt
sæti, úr því níunda í það átt-
unda.
Molar
Aleksander Linta er geng-
inn til liðs við Víking Ólafsvík.
Eins og Skessuhorn greindi
frá í siðustu viku ákvað
stjórn ÍA að semja ekki við
Linta þar sem hann þótti
ekki standa undir vænting-
um. Aleksander lék sina
fyrstu leiki með Vikingum um
síðustu helgi.
Reynir Leósson var ekki
með gegn
Þrótturum
v e g n a
m e i ðs I a.
Ekki reiknað
með að
Reynir verði
með gegn
KR í kvöld en leikirnir eru
þeir fyrstu sem hann missir
af tæp þrjú ár.
Gunnlaugur Jónsson fékk
sitt fjórða gula spjald í leikn-
um gegn
Þrótti og er
því á leið-
inni í eins
leiks bann.
Bannið tek-
ur gildi á há-
degi á föstu-
daginn og missir Gunnlaug-
ur þvi af leiknum gegn Fram
í 13.umferð.
Skagamennirnir Heimir
Einarsson og Arnar Már
Guðjónsson eru báðir í leik-
mannahópi 17 ára landsliðs
íslands sem tekur þessa
dagana þátt í í Opna Norður-
landamótinu sem fram fer í
Noregi. Liðið lék í gær gegn
Englendingum og mætir
Norðmönnum í dag.