Skessuhorn - 30.07.2003, Side 12
PÓSTURINN
Þú pantar.
Pósturinn afhendir.
LÁTTU
OKKUR
FÁ ÞAÐ
Heimsending um allt land
ÓÞVEGIÐ
Efnalaunin Múlakot ehf.
Bornarhraut 55
310 Borgarnesi
Sími 437 1930
Víkingar öruggir
í úrslit
Víkingur Ólafsvík gerði
góða ferð vestur á firði um síð-
ustu helgi. Liðið lék þar tvo
leiki gegn Bolungarvík og BI
og sigraði þá báða. A föstu-
dagskvöldið unnu þeir Bol-
ungarvík, 4-1 með mörkum frá
Tryggva Hafsteinssyni, Jónasi
Gesti Jónassyni, Helga Reyni
Guðmundssyni og Jóhanni
Ragnarssyni. Staðan í leikhléi
var 3-0.
A sunnudaginn mættu Vík-
ingar svo BI og áttu ekki í
miklum vandræðum með að
innbyrða níunda sigur sinn í
sumar. Hermann Geir Þórsson
kom Víkingum yfir á 29.mín-
útu og á þeirri 61. skoraði El-
ínbergur Sveinsson.
Nú þegar þrjár umferðir eru
eftir eru Víkingar næsta ör-
uggir með sæti í úrslita-
keppninni. Víkingar eru með
29 stig en liðið í þriðja sæti er
með 23 stig og mun lakari
markatölu.
HJH
Nýr lögreglubíll
F.v. Kristján lngi Hjörvarsson, Steinar Snorrason, Stefiín Skarphéíinsson,
sýslumaður, Theodór Þóröarson , yfirlögrelguþjónn. Mynd: GE
Lögreglan í Borgarnesi fékk lögreglunnar þá eru menn þar
afhentan nýjan lögreglubíl í ánægðir með að hafa fengið
gær. Bíllin er af gerðinni Volvo nýjan, kraftmikinn og traustan
S-80 og er framdrifinn með bíl til umráða.
164 hestafla díselvél. Að sögn GE
Faxaborg
Nýir bátar í Rif
Nýverið komu tveir nýir bát- sama nafni. Hinn báturinn
ar til hafnar í Rifi í fyrsta sinn. heitir Guðbjartur SH-45 og er
KG hefur keypt bátinn Skarf í eigu Jóhanns Guðbjartssonar
GK og heitir hann nú Faxaborg á Hellissandi.
og kemur í stað eldra skips með GE
Bæringsstofa opnuð
Síðastliðið föstudagskvöld
var Bæringsstofa í Grundarfirði
formlega opnuð en hún er hluti
af fyrsta áfanga Eyrbyggju
sögumiðstöðvar í Grundarfirði.
Bæringsstofa er minjastofa um
Bæring heitinn Cecilsson, heið-
ursborgara í Grundarfirði.
Hann var mikilvirkur ljós-
myndari og kvikmyndatöku-
maður og meðal annars um ára-
tuga skeið fféttaritar sjónvarps
á Snæfellsnesi. Bæring ánafn-
aði sveitungum sínum mynda-
safn sitt ásamt tækjum. Salurinn
er einkar fallegur og búinn öfl-
ugu tölvukerfi sem nýtist til
kvikmyndasýninga, hverskonar
íýrirlestra- og fundahalds. Að
sögn Inga Hans Jónssonar hjá
Sögumiðstöðinni í Grundar-
firði er Bæringsstofa einhver
glæsilegasti sýningarsalur
landsins og algjörlega gagnvirk-
ur en þar geta gestir m.a. skoð-
I Bæringsstofu.
að myndasafn Bærings og
myndefhi af filmum og í fram-
tíðinni er gert ráð fýrir að fleira
verði þar í boði. Salurinn verð-
ur einnig leigður til námskeiða-
halds og iýrirlestra.
Það var Sturla Böðvarsson,
samgönguráðherra sem opnaði
Bæringsstofu með því að ýta á
„entertakkann“ á sýningartölv-
unni.
GE
Þrettán mörk voru skoruð á
Skallagrímsvelli í gærkvöld
þegar heimamenn kjöldrógu
Deiglumenn með stórsigri 11-
2, eftir að staðan hafði verið 7-
0 í hálfleik. Gamla markamask-
ínan Valdimar K. Sigurðsson
skoraði fjögur mörk, þ.a. eitt
með skalla en síðasta skalla-
mark Valdimars mun að sögn
kunnugra hafa komið árið 1993
gegn Haukum. Sveinbjörn
Hlöðversson, Guðlaugur Ax-
elsson og Guðni Kristjánsson
skoruðu tvö mörk hver og As-
geir Karl Jónsson eitt. Þess má
til gamans geta að nokkrir
Skagamenn leika með liði
Deiglunnar, þar á meðal Rós-
ant Birgisson sem sýndi oft á
A myndinni má sjá þegar hnötturinn er á leiðyfir marklinu Deiglumanna í
jjóða sinn. Lengst til vinstri má fiá Valdimar K. Sigurðsson sem hafði sekúndu
áður skallað boltann.
tíðum glæsilega takta. Með
sigrinum eru Skallagrímsmenn
aðeins einu stigi á eftir Núma
sem er í öðru sæti en eiga leik
til góða. Næsti leikur Skalla-
gríms er einmitt gegn Núma
fimmtudaginn 7. ágúst.
HJH
Skallagrímur burstaði Deigluna
Blaðamaður óskast
Óskum eftir að ráða blaðamann í fullt starf.
Þarf að geta hafíð störf sem fyrst.
Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri í síma 437 1677
Netfang: skessuhorn @skessuhorn.is