Skessuhorn


Skessuhorn - 10.03.2004, Side 4

Skessuhorn - 10.03.2004, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 oAtasunu... Sunda- braut Það næst besta sem ég tek mér fyrir hendur alla jafna er að fara til Reykjavíkur. Það besta sem ég geri er hinsvegar að fara þaðan en það gæti ég ekki leyft mér nema hitt kæmi á undan. Reykjavík er að mörgu leyti ágæt borg og á að sjálfsögðu sess í hjarta hvers al- vöru Islendings sem höfuðborg landsins en best er hún þó í baksýnisspeglinum. Það er líka ágætt að njóta hennar þar í svolitla stund og því liggur manni kannski ekki svo ógurlega mikið á þegar maður fer út úr borginni. A hinn bóginn er það brýnt að ferðin til borgarinnar taki sem skjótast af svo hægt sé að fara að huga að heimferð. Þar kemur Sundabrautin til sögunnar en hún kemur tilmeð að stytta leiðina til Reykjavíkur til muna og auðvelda allan framgang ferðalagsins. Mosfellsbær var í einhverju hugsunarleysi skellt á miðja leiðina milli Vesturlands og Vesturbæjar og er hann mjög til trafala og einhver alversti farartálmi sem hægt er að hugsa sér að öllum landsins snjósköflum meðtöldum. Sundabrautin mun hafa þann kost að liggja ekki í gegnum Mosfellsbæinn og vera að mestu laus við óþarfa sveigjur og beigjur. Vegir hér á landi eru fæstir þannig úr garði gerðir að þeir séu ákjósanlegir til skemmtiferða og því hlýtur það að vera reglan að því styttri sem þeir eru því betri. Eg geri mér vissulega grein fyrir að sundabrautir kosta alveg heilan haug af peningum en mér skilst að Héðinsfjarðargöng og álíka vörur séu einnig í nokkuð háu verði. Fyrirhuguð sameining hafna á Stór-Skilmanna- hreppsvæðinu mun að öllum líkindum flýta fyrir því að Sundabrautin margumtalaða verði að veruleika. Ef það er það sem til þarf þá hvet ég til að allt verði sam- einað sem hendi er næst ef það megi verða til að flýta eitthvað fýrir samgöngubótum. Gísli Einarsson, samgönguráðherra. Gísli Einarsson, ritstjóri. Lambeyrar fengu Landbúnaðar- verðlaunin 2004 Lambeyrar í Dölum, Vallanes á Fljótsdalshéraði og Stóra Hildis- ey II í Rangárvallasýslu fengu Landbúnaðarverðlaunin 2004 en afhending fór fram við setningu Búnaðarþings á sunnudag. Bóndi á Lambeyrum er Daði Einarsson og hlaut hann verðlaunin „fyrir margar nýjungar sem hann hefur fundið upp og beitir í búskap sín- um og fyrir að hafa verið í forystu í þróun nýrra búskaparhátta í sauðþárrækt," eins og landbúnað- arráðherra komst að orði við af- hendingu verðlaunanna. I um- sögn um Lambeyrarbúið sagði ráðherra meðal annars. ,Árið 1997 var hafist handa um breytingar á öllum húsakosti fjár- búsins með það fyrir augum að létta vinnuna, hagræða á öllum sviðum og auka afurðir búsins. Eitt atriðið var að taka upp gjafagrindur heimahannaðar, í stað gömlu garðanna, annað að hagræða fóðurflutningi og svo að auðvelda flutning kinda innan húsanna og utan húsa var hagrætt með tilliti til fjárrags. Einstætt skipulag á vinnubrögðum á sauð- burði er hluti af þessu en það er löngu landsþekkt. Flatgryfjur fengu nýtt hlutverk, sem burðar- stíur eða fyrir geldneyti. Háreist Frá afhendingu Landbúnaðarverðlaunanna á sunnudag. Daði Einars- son er lengst til vinstri. stórbaggahlaða var byggð þar sem hlaða má böggum í fimm hæðir, en má síðan nota sem við- bótarfjárhús ef með þarf á sauð- burði. Rimlagólf fjárhúsanna með plastvörðum rimlum er nýjung og uppfinning heimamanna. Girðingar á Lambeyrum, sem eru miklar, eru allar með nýju sniði og er þar um merka uppfinningu heimamanna að ræða. Rafmagns- girðingar á íslenskframleiddum plaststaurum og þannig gerðar að Taizé-messa í Grundar^ arðarldrkju Sunnudagskvöldið 14. mars kl. 20 verður Taizé messa í Grundar- fjarðarkirkju. Taizé er lítið þorp í Frakklandi og þar er samkirkjulegt samfélag kristinna bræðra og systra. Þetta samfélag hefur vakið mikla at- hygli síðustu áratugi fyrir bæna- hald sitt og íhugunartónlist. Á hverju ári koma þusundir manna til Taizé til að taka þátt í kyrrðar- dögum og bænahaldi. Taizé tónlistin á sér djúpar ræt- ur í bænahefð og tónlistararfi hinnar kristnu kirkju og einkenn- ist af stuttum lögum og bænum sem auðvelt er að læra. Hið á- nægjulega er, að tónlistin höfðar ekki síst til ungs fólks sem kemur mikið til Taizé til að takast á við áhyggjur sínar og tilvistarvanda á trúarlegum forsendum. Þetta messuform á sérlega vel við nú á föstunni þegar við beinum sjón- um inn á við og hugum að þeim gildum sem við byggjum líf okk- ar og tilveru á. Kirkjukór Grund- arfjarðarkirkju leiðir söng. Org- anisti er Friðrik Vignir Stefáns- son og prestur er sr. Elínborg Sturludóttir. (Fréttatilkynningu) Ferðamáiasamtök ístands standa fyrir námskeiðum á 14 stöðum á landinu í mars og apríl í ár fyrir fulltrúa ferðaþjónustufyrirtækja. Á námskeiðunum er m.a. farið yfir gerð viðskiptaáættana, bókhaid, fjár- mögnun í bankaviðskipti ofl. Fyrsta námskeiðið var haldið í Borgar- nesi síðastliðinn fimmtudag. Mynd: Askell Þórisson. auðvelt er að leggja þær niður eða lyfta upp og raunar einnig að flytja þær til, allt eftir þörfum." GE Jörvamenn á sigurbraut Átta liða úrslit í Spuminga- keppni UMSB fóm ffam í Fé- lagsheimilinu Brún á sunnu- dagskvöldið fyrir troðfullu húsi. Sigurliðið frá í fyrra, Jörvi, kom þá inn í keppnina og tryggði sér sæti í undanúr- slimm með sigri á bæjarskrif- stofum Borgarbyggðar en úr- slit úr þeirri viðureign urðu 32 stig gegn 22. Borgarfjarðar- sveit gjörsigraði Skessuhorn, 23 - 11 og Olsen Olsen klúbb- urinn bar lægri hiut gegn Humar og áiafélaginu með 14 stigum gegn 21. Loks sigraði KB banki Landbúnaðarháskól- ann á Hvanneyri með 22 stig- um gegn 17. Úrslitakeppnin verður á föstudagskvöld á Hótel Borg- amesi. ✓ Urbætur í sorpmálum Starfshópur um Gámu hefur lagt ffam tillögur til skoðunar á breytingu á fyrirkomulagi við meðhöndlun sorps á Akranesi. Megin inntak tillagnanna er að innan fjögurra ára verði tekið upp sambærilegt fyrirkomulag og er á starfssvæði hvað varðar móttöku á sorpi og innheimtu gjalda. Ef tillögurnar ná ffam að ganga hefur það í för með sér að auka verði flokkun og einnig vigtun sorps. Sorp- flokkun fór nokkur skref afturábak vorið 2000 þegar Skagamenn fóm að urða sorp í Fíflholtum. Starfshópurinn mun ræða tillögurnar við bæj- arráð nú í vikunni. Ætla má að fljótlega komi í ljós hvort að þeim verði unnið.

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.