Skessuhorn - 10.03.2004, Page 5
^nessuiiu^ i
MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004
5
Ibúð í Borgarnesi
Skessuhorns hefur nú þegar ver-
ið rætt við Slippstöðina í Reykja-
vík um hugsanlegan flutning fyr-
irtækisins á Grundartanga. Gísli
Staðfestir að rætt hafi verið við
fulltrúa Slippstöðvarinnar og að
vel kunni að vera að skipaiðnað-
ur verði einn sá þáttur sem skjóti
rótum á Grundartanga í fram-
tíðinni.
GE
Fjórar hafitiir sameinaðar í eitt fyrirtæki í árslok
Gríðarlega stórt skref íyrir allar hafiiimar
segir Gísli Gíslason bæjarstjóri Akraness
Spurningakeppni
UMSB
Þriðja umferð og úrslit í spumingakeppni UMSB
fer fram föstudaginn Í2. mars kl. 20:30 á
Hótelinu í Borgarnesi
Þau lið sem þar mæta eru:
Borgarfjarðarsveit, Humar- og álafélagið, Jörvi
Hvanneyri og KB banki Borgarnesi.
Skemmtiatriði:
I Snorri Hjálmarsson og Gunnar Öm Guðmundsson
í syngja við undirleik Viðars Guðmundssonar.
I Munnhörputríóið spilar.
Aðgangseyrir er kr. 500 og frítt fyrir 16 ára og
yngri.
Fjölmennið og styðjið ykkar lið.
Styrktaraðilar:
Steinsnar ehf. Fossatúni, ÍSÍ og Skessuhorn.
éMuðin
VESTURGÖTU 147 • AKRANESI
SÍMI 431 1753 & 861 1599
í gær var undirrituð, í bæjar-
þingsalnum á Akranesi, viljayfir-
lýsing fulltrúa tíu sveitarfélaga á
suðvesturhorninu um samein-
ingu Grundartangahafnar,
Reykjavíkurhafnar, Akranes-
hafnar og Borgarneshafnar.
Stefiit er að sameiningu hafn-
anna í eitt fyrirtæki fr á og með 1.
janúar 2005 en skipaður verður
starfshópur til að vinna að sam-
einingunni í samræmi við vilja-
yfirlýsingu sveitarfélaganna.
Eignarhlutar í sameinuðu fyr-
irtæki skiptast þannig á milli
hafnanna að Reykjavíkurhöfn
mun eiga 75%, Grundartanga-
höfn 22% og Akraneshöfh 3%.
Eignarhlutarnir skiptast þannig
á milli sveitarfélaganna að
Reykjavíkurborg á 75%, Akra-
neskaupstaður 10%, Borgar-
byggð 3,828%, Hvalfjarðar-
strandahreppur, Innri - Akranes-
hreppur, Leirár- og Melahrepp-
ur og Skilmannahreppur 2,2%,
hver um sig, Hérðaðsnefnd
Borgarfjarðarsýslu (Borgarfjarð-
arsveit og Skorradalshreppur)
1,54% og Hvítársíðuhreppur
0,132%. Gert er ráð fyrir átta
manna stjórn í hinu sameinaða
fyrirtæki og mun Reykjavíkur-
borg skipa fimm stjórnarmenn,
Akraneskaupstaður, sveitarfélög-
in í Borgarfirði norðan Skarðs-
heiðar einn og Sveitarfélögin í
Borgarfirði sunnan Skarðsheiðar
einn.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni
ætla eigendur sameinaðs fyrir-
tækis að tryggja að starfsmenn
hafhanna fái vinnu í sameinuðu
fyrirtæki og haldi áunnum rétt-
indum sínum.
Sveitarfélögin tíu stefha að því
að Reykjavíkurhöfh verði áfram
þróuð sem fjölbreytt inn- og út-
flugtningshöfn og að unnið
verði að því að bæta aðstöðu fyr-
ir skemmtiferðaskip þar. Gert er
ráð fyrir að Akraneshöfn verði
efld sem fiskihöfn og að aðstaða
fyrir smábáta verði bætt í Borg-
arneshöfn. Samkvæmt viljayfir-
lýsingunni verður Grundar-
tangahöfn efld til að geta tekið
við starfsemi sem fyrirhuguð var
Kveldúlfsgata
Mjög rúmgóð 2ja
herbergja íbúð á annarri
hæð, suðursvalir, útsýni
Verð 7 milljónir
Upplýsingar gefur
Davíð Sigurðsson
sími 846 2792
í Geldinganesi í Reykjavík en
hætt verði við ffamkvæmdir þar.
Hraða uppbyggingu
„Þetta er gríðarlega stórt skref
fyrir hafnimar og þetta er gríð-
arlega stórt skref fyrir sveitarfé-
lögin sem standa að þessu,“
sagði Gísli Gíslason bæjarstjóri
Akraness í samtali við Skessu-
horn.
„Hér á þessu svæði mun þetta
fyrst og fremst hraða uppbygg-
ingu á Grundartanga sem er eitt
öflugasta svæði landsins með til-
liti til þess að byggja upp iðnað
og hafnsækna starfsemi. Fyrir
Akraneshöfh verður þetta styrk-
ing á þeirri höfn sem fiskihöfh
og þegar Sundabraut verður
orðin að vemleika þá mun sam-
starf þessa svæðis ffá Hítará og
suður fyrir Reykjavík verða mun
meira en er í dag.
Sundabraut
I viljayfirlýsingunni um sam-
einingu hafnanna kemur ffam að
aðstandendur hennar ætli að
stuðla að því að undirbúningi
framkvæmda vði Sundabraut
verði hraðað enda
skipti hún miklu
máli fyrir rekstur
hafna hins nýja
fyrirtækis. Sturla
Böðvarsson, sam-
gönguráðherra
sagði að of
snemmt væri að
koma með yfirlýs-
ingar um að
Sundabraut yrði
flýtt. Hann sagði
að fýrsti áfangi
hennar væri í um-
hverfismati en að
heildarfram-
kvæmdin væri það umfangsmikil
að skoða yrði aðrar leiðir varð-
andi fjármögnun hennar en ein-
göngu af vegafé.
Samkvæmt upplýsingum
www.remax.is
Forstöðumaður
Stjórn Safnahúss Borgarfjarðar óskar eftir
forstöðumanni í 60% starf með möguleika
á auknu starfshlutfalli síðar.
/ Safnahúsi Borgarfjarðar fer fram starfsemi
Héraðsbókasafns Borgarfjarðar, Héraðsskjalasafns
Borgarfjarðar, Byggðasafns Borgfirðinga, Náttúru-
gripasafns Borgfirðinga og Listasafns Borgarness.
Starfíð er fjölbreytilegt og felur í sér:
• stjómun á daglegum rekstri
• starfsmannahald
• fjárhagsáætlanagerð
• umsjón með viðhaldi og framkvæmdum
• frumkvæði að verkefnum og öflun styrkja
• móttöku og skráningu muna og skjala
• sýningar á munum og listaverkum
Forstöðumaður er í forsvari fyrir Safnahús Borgarfjarðar.
Hann þarf að geta unnið sjálfstætt en jafnframt að vinna
náið með stjóm að uppbyggingu og stefnumörkun
safnamála í héraði.
Hæfniskröfur:
• háskólamenntun og reynsla sem nýtist í safnastarfi
• þekking á rekstri og reynsla af stjórnun
• hæfni í mannlegum samskiptum
• reglusemi og nákvæmni í vinnubrögðum
Umsóknarfrestur er til og með 19. mars og þarf
viðkomandi að geta hafið störf sem fyrst. Umsóknir
berist Safnahúsi Borgarfjarðar, Bjamarbraut 4-6, 310
Borgarnes, (merkt umsókn). Nánari upplýsingar veita
Guðrún Vala Elísdóttir í síma: 863 9124 og Kolfinna
Jóhannesdóttir í síma: 866 1314.