Skessuhorn


Skessuhorn - 10.03.2004, Side 10

Skessuhorn - 10.03.2004, Side 10
10 MIÐVIKUDAGUR 10. MARS 2004 ^&usunu.. Þeir Indriði og Páll tóku sig vel út í tækjurtum enda vanir menn í nýj- um bolum. Bolir á Borgnesinga Sparisjóður Mýrasýslu afhenti um*. Við höfum verið að nýlega Páli Brynjarssyni bæjar- stjóra Borgarbyggðar, Indriða Jósafatssyni íþrótta- og æsku- lýðsfulltrúa og Irisi Grönfeld í- þróttafræðingi boli til brúkunar í þreksalnum. „Við viljum með þessu taka þátt í því heilsuátaki sem er hér í bænum en mörg fyrirtæki hafa styrkt starfsfólk sitt með kaupum á fyrirtækja- kortum í þreksalinn. Niður- staða okkar var að afhenda þeim sem stunda líkamsrækt í þreksalnum og sundleikfimi boli með áletruninni „Með á nótun- styrkja börn og unglinga til í- þróttastarfs en nú vildum við einbeita okkur að fullorðna fólk- inu,“ sagði Guðrún Daníels- dóttir hjá Sparisjóði Mýrasýslu. Frá því að átakið hófst s.l. haust og farið væri að selja sérstök fyr- irtækjakort í þreksalinn hafa 100 árskort bæst við. Síðasta ár voru rúmlega 167.000 heimsóknir í Iþróttamiðstöðina, sem er met. Það ætti því að vera mikil eftir- spurn eftir æfingabolum en þeir verða afhentir í Iþróttamiðstöð- inni ffam á fimmtudag. -hdp Olíusparnaður hjá HB Nú stendur yfir úttekt á olíu- notkun um borð í Ingunni AK- 150 þar sem verið er að skoða leiðir til að spara orkunotkun um borð. Það er fyrirtækið MarOrka sem sér um mæling- arnar og kemur Ingunn mjög vel út en olíunotkun skipsins hefur verið um 30% undir við- miðunarstuðlum Fiskifélags Is- lands. Forsvarsmenn HB telja þó að hægt sé að gera enn betur og verður hugbúnaðurinn, Maren EMT sem er orku- stjórnunarkerfi, nú settur upp í borð í Ingunni. Um nýjung er að ræða sem bætir yfirsýn vél- stjóra og annarra skipstjórnar- manna auk þess sem kerfis- bundið er leitað leiða til að lág- marka olíunotkun. Sú reynsla sem fæst af kerfinu hjá Ingunni verður svo færð yfir á önnur skip HB en uppsetning á Maren EMT er einn liður í að uppfylla markmið HB í umhverfismál- um. -háp Sldpaskoðun Sýnis ehf Þann 1. mars sl. breyttust reglur um skipaskoðun hér á landi. Sama dag fékk Sýni skoðunarstofa ehf. starfsleyfi til reksturs faggiltrar skoðunar- stofu á sviði skipaskoðunar á skipum og bátum undir 400 brúttótonnum frá Siglinga- stofnun. Skipaskoðun var áður á hendi Siglingastofnunar en færist nú yfir til einkarekinna skoðunarstofa. Þrír skoðunarmenn með víðtæka reynslu á sviði skipa- eftirlits hafa verið ráðnir til starfa hjá Sýni á skipaskoðunar- sviðinu. Það eru þeir Herbert Bjarnason, skipatæknifræðing- ur, Einar J. Hilmarsson, vél- stjóri og Oli Austfjörð, raf- virkjameistari. Sýni skoðunarstofa ehf hefur sinnt skoðunum á aðstöðu, hreinlæti og innra eftirliti vinnsluleyfishafa í sjávarútvegi síðan 1998, en þetta nýja svið mun standa útgerðarmönnum til boða og stuðla að einföldun og hagræðingu á skipulagi og tilhögun eftirlits í skipum og bátum þeirra. Frekari upplýsingar gefa Reynir Þrastarson, fram- kvæmdastjóri (sími 590-6990, farsími 899-4291, reynir@adalskodun.is) og Her- bert Bjarnason, tæknistjóri (síma 590-6990, gsm 8678628, herbert@adalskodun.is) (Fréttatilkynning) Oft hefég iUa sofið l/llHáhtWlié Hin æðstu metorð hafa alltaf verið nokkuð eftir- sótt hvort sem þau reynast nú eins eftirsókn- arverð þegar þau eru fengin eins og meðan þau eru enn bara fjarlægur draumur. Um tilkynningu til forsetaffamboðs orti Ein- ar Kolbeinsson: Fráleitt hefur fengið nóg, frakkur sýnir þráann. Astþór reynir aftur þó enginn vilji sjá hann. Mér segir svo hugur að Kristján heit- inn Eldjárn hafi verið búinn að gegna forsetaembætti um nokkurt skeið þegar hann orti: Það er erfitt orðið mér að una gervilífi. Taugakeifið orðið er eins og herfi í þýfi. Margir spáðu á sínum tíma vel fyrir þeim Karli Bretaprins og Díönu sálugu þó margt færi þar eins og víðar öðruvísi en ætlað var. Meðan á tilhugalífi þeirra stóð var nokkur umræða um ræktun lax- veiðiáa og varð Omari Ragnarssyni þá að orði: Góða veiði hefur hreppt hörkuskeiðin Díana, Kalli gleiður getur sleppt gönguseiðum í'ana. Ráðherraembætti bæði á íslandi og annarsstaðar eru kannske ekki tryggustu framtíðarstörf sem bjóðast. Þegar Davíð Oddsson birti ráðherralista núverandi stjórnar og Sólveig Pémrsdóttir var ekki á listanuin var kveðið: Strikuð út úr stjórnarbók stoð þó œtti ríka. Drottinn gafog Drottinn tók -Davíð gerir það líka! Oft hefúr verið ófriðvænlegt fyrir botni Miðjarðarhafs og fyrir allmörgum árum þegar ófriður var í Líbanon varð Jóni Þ. Björnssyni að orði. I Beirút liggja nú líkin í hrönnum og Líbanon stynur afhryggð. Vor einlœga samúð með Israelsmönnum er orðin að viðurstyggð. Það er nefhilega hægt að fara svo með fullkomna og einlæga samúð að hún snú- ist upp í algera andstæðu sína og um svip- að leyti eða í utanríkisráðherratíð Geirs Hallgrímssonar mun hafa verið ort: Þeir eru að berjast í Beirút svo blíðmœlgi þarlendra deyr út. Til að þeir hœtti ég held að það œtti að hóta að senda þeim Geir út. Því miður hafa margir saklausir og sjálfsagt margir sekir lflta látið lífið á þessum slóðum á undanförnum áratug- um og óvíst hvort þeir hafa allir hugsað til eftirlifenda á svipaðan hátt og K.N. í vísum sínum um Dakótasólina: Þegar ég erfallinnfrá ogfúna í jörðu beinin verður fögur sjón að sjá sólina skína á steininn. Það er nú svo, eins og ég hef víst áður sagt og á sjálfsagt effir að segja einhvern- tíma aftur að þó allir vilji bæta heiminn dettur fæstum í hug að byrja á sjálfúm sér. Einhver gaf þetta heilræði fyrir margt löngu: Hugsaðu ekki um himininn hvað hann muni vera, handa þér mun heimurinn hafa nóg að gera. Einhver sómakona fékk sömuleiðis þessa ffómu ósk þegar fór að halla á æf- ina: Eftir lífsins amagust, eikin linnafitja, á himnaríkis bæjarburst berðu þig að sitja. Norður í landi andaðist eitt sinn ein- stæðingur að nafni Hjörtur og er kom að jarðsetningu reyndist gröfin of stutt og varð nokkur bið á meðan bætt var úr. Þá varð konu sem þar var viðstödd að orði: Sólarlöndin blika björt bak við dauðahöfm. Þar mun ekki þröngt um Hjört þó að stutt sé gröfin. Stundum er sagt að góður sé hver genginn en þó verða nú nokkuð misjöfii orð sem menn fá eftir dauðann. Jóhann- es á Skjögrastöðum kvað: Fallinn lofar margur maður margan kauðann. Ætli ég verði annálaður eftir dauðann, Mig minnir að það hafi verið Eggert Norðdal sem orti: Oft ég hefi illa sofið, örlög hafa gert mig snauðan. Mig hryllir við að heyra lofið sem heimur ber svo á mig dauðan. Ásgrími Kristinssyni frá Ásbrekku í Vatnsdal varð að orði á seinni árum sín- um: Eytt og glatað er mérflest, œfifatið slitið. Þung er gatan, þrekið mest þutfti í matarstritið. Það er nú svo að alltaf fer umtalsverð- ur skammtur af lífsorkunni í matarstritið en oftast hefst þetta nú einhvernveginn, hvað sannfærður sem maður verður stundum um að það hafist ekki. Á þeim tíma sem húsnæðisekla var hvað mest í Reykjavík var Númi Þorbergsson í hús- næðishraki eins og fleiri og kom að máli við Jakob Thorarensen sem átti hús þar sem gamli kirkjugarðurinn var hinumeg- in götu. Jakob mun ekki hafa þekkt Núma en gaf lítinn kost á húsnæði ef um- sækjandi gæti gert vísu. Númi svaraði: / vesturbœnum virðist mér vísust leið til glötunar. Allir dauðir eru hér öðrum megin götunnar. Númi fékk íbúðina. Botninn sláum við svo í þennan þátt með einu af gullkornum Rósbergs Snæ- dal: Geng ég um hin glæstu torg gyllt með húsum nýjum. Þó hefég miklu betri borg byggt úr tómum skýjum. Með þökkfyrir lesturinn. Dagbjartur K. Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S 435 1367 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.