Skessuhorn


Skessuhorn - 10.03.2004, Page 14

Skessuhorn - 10.03.2004, Page 14
14 MIÐVTKUDAGUR 10.MARS 2004 jtttaatnu... 1 i I \ -1 j»'- •• Frá undirskrift samninganna í Golfskálanum að Hamri. F.v. Helga Halldórsdóttir, forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar, Hjörtur Árnason, Ásdís Helgadóttir og Páll S Brynjarsson bæjarstjóri Borgarbyggðar. s Atján holu völlur og golfhótel Síðastliðinn mánudag var undirritaður samningur milli Borgarbyggðar og Golfklúbbs Borgarness um aukinn stuðn- ing bæjarins við uppbyggingu golfmannvirkja á Hamri við Borgarness. Samningurinn hljóðar upp á þriggja milljóna króna framlag á ári í tíu ár en núverandi stuðningur er ein milljón króna á ári. Stækkkun golfvallarins á Hamri úr níu holum í átján hef- ur verið í undirbúningi um ára- bil og á næsta ári er ætlunin að hægt verði að leika 12 holur. Að sögn Asdísar Helgadóttur for- manns Golfklúbbs Borgarness er ætlunin að völlurinn verði orðinn 18 holu eftir 7 - 8 ár. A mánudag var einnig undir- ritaður samingur milli Golf- klúbbssins og Hjartar Arnasonar og Unnar Halldórsdóttur um rekstur golfskálans og farfugla- heimilisins að Hamri næstu tíu árin. Eins og ffam hefur komið í Skessuhorni hyggjast þau Unn- ur og Hjörtur byggja hótel við golívöllinn og var einnig gengið ífá samningi um lóð undir það. Hótelið mun rísa á næsta ári og verður fyrsta golfhótel landsins en farfuglaheimilið að Hamri er í dag eini gististaðurinn við golf- völl á íslandi. GE FVA úr leik Spurningalið Fjölbrauta- skóla Vesturlands mætti ofjörl- um sínum þegar Verslingar sóttu þá heim á Skagann s.l. fimmtudag. Keppnin sem sýnd var í sjónvarpinu fór fram í íþróttahúsinu við Vesturgötu þar sem viðbúnaður var mikill og stemmningin frábær. Lið Fjölbrautaskólans fylgdi Versl- unarskólanum framan af keppni en þegar líða tók á keppnina fór að halla undan fæti og lokatölur urðu 34-20 Versló í hag. Það var þó sam- dóma álit að í rimmu klapplið- anna hafi Verslunarskólinn ekki haft roð í Vestlendingana. Nú eru sóknarfæri fyrir Fjölbrautaskólann segir Hörður Helgason skólameistari Hörður Helgason I nýlegri ársskýrslu Fjöl- brautaskóla Vesturlands fyrir árið 2003 má sjá að fjöldi nem- endavarmeiri árið2003 en árið áður. Nemendum sem skiluðu sér til prófs í 35 einingum eða meira á skólaárinu voru 560 árið 2003 en 552 árið 2002. Brottfall nemenda úr námi var með minnsta móti á árinu. Hörður Helgason skólameistari segir þennan árangur megi rekja til aukins stuðnings og stoðþjón- ustu við nemendur og góðs starfs allra kennara og annars starfsfólks. Minna brottfall og betri nýting hefur einnig skilað sér í betri rekstrarafkomu skól- ans. „Hér hefur verið samstillt átak stjórnenda og kennara í að vinna að því að nýting í kennslu sé betri. Nemendahóparnir eru því stærri en það er krafa ráðu- neytisins að svo sé,“ segir Hörð- ur. „Annað atriði sem hefur haft áhrif á betri rekstarafkomu er breyting sem gerð var á reikni- líkani fyrir framhaldsskóla. Þessi breyting kom okkur vel en reiknilíkanið var skólanum ákaf- lega óhagstætt allt ff á því það var tekið upp árið 1998 og hafði slæm áhrif á reksturinn. Sá skuldahali sem skólinn hefur ver- ið að glíma við á undanförnum árum hefur nú minnkað nokkuð og eru nú að myndast ákveðin sóknarfæri fyrir skólann. Oflug verknámsdeild Að sögn Harðar er það sér- staklega ánægjulegt að sjá hversu verknámsdeildirnar hafa styrkst og eflst. Um fjórðungur allra nemenda er nú í verknámi og hefur það hlutfall farið vaxandi. „Ég man ekki eftir að fleiri hafi stundað verknám hér en nú og er það mjög ánægjuleg þróun því á sama tíma og þessi vöxtur er hér á verknám undir högg að sækja víða annars staðar á land- inu. Atvinnuhorfur fyrir þessa nemendur eru mjög góðar hér á svæðinu og er t.d. fyrirsjáanleg- ur skortur á málmiðnaðarmönn- um a næstu árum. Ein skýring á þessari fjölg- un er eflaust sú að við höf- um á að skipa mjög góðum kennurum bæði á verk- námsbraut- unum og á öðrum braut- um auðvitað líka. Tæpur helmingur nemenda skólans stundar nám á bóknáms- brautum til stúdentsprófs. Það er gaman að fylgjast með fyrr- verandi nemendum okkar, en margir þeirra eru í ffamhalds- námi hér á landi og erlendis og standa sig mjög vel. Einnig eru margir áberandi í atvinnulífmu og njóta þar velgengni." Bjart framundan Skólinn hefur sótt um þróun- arstyrk til að greina þarfir til náms. „Okkar stefna er að koma hér upp fleiri starfsnámsbraut- um sem höfða ffiekar til stúlkna sem yrði þá viðbót við það nám sem nú er í boði, s.s. sjúkraliða- braut, viðskiptabraut og uppeld- isbraut. Það er bjart ffamundan hjá okkur og ýmislegt að gerast, m.a. er nýtt kennsluhúsnæði í byggingu sem mun bæta aðstöð- una hér verulega, sérstaklega hvað varðar kennslu í raungrein- um. Fjtrstí áfanginn í þessari byggingu verður tekinn í notkun í janúar á næsta ári.“ Fjölbreytt skólaflóra Fjölbrautaskólinn hefur verið að auka samstarfið við háskólana í Borgarfirði, á Bifröst og Hvanneyri. „Við eigum nú í viðræðum við Viðskiptaháskól- ann á Bifröst um að viðskipta- brautin okkar verði í meiri tengslum við þá, einnig höfum við verið að bjóða búffæðingum frá Hvanneyri upp á ákveðinn pakka þannig að þeir ljúki stúd- entsprófi til viðbótar við sitt bú- ffæðinám. Það er líklega ekkert annað landsvæði fyrir utan höf- uðborgarsvæðið sem hefur svo sterka flóru af menntastofnun- um sem Vesturland; góðan ffamhaldsskóla og annan á leið- inni, tvo háskóla og Símenntun- armiðstöðina. Samvinna milli þessara stofhana á örugglega eft- ir að aukast. Þetta er gott fyrir Vesturland og eflir hér byggð og mannh'f," sagði Hörður að lok- um. -hdp Hollvinasamtök Hólmara Fyrirhugað er að stofna hollvinasamtök Hólmara og hefur stofnfundur verið boð- aður þann 21. mars í Breið- firðingabúð í Reykjavík. I fundarboði segir m.a. „A und- anförnum mánuðum hefur það oft verið rætt að gagnlegt væri og gaman ef brottfluttir Hólmarar ættu sér formlegan samstarfsvettvang og félags- skap. Slíkt félag hefði að markmiði að tengja saman Hólmara um allt land og gefa þeim um leið tækifæri til þess að vera virkir í ýmsum verk- efiium sem eru til heilla og eflingar þeirra gamla heima- Sjónvarpsbrunar eru með verstu brunum sem upp koma. NÚ ER KOMIN LAUSN ÞAR Á. Verndaðu þig og þína og sýndu fyrirhyggju. Sjálfvirku slökkvitækin eru komin aftur! ísetning innifalin Pantaðu strax í dag - á morgun er það kannski of seint Ekkert viðhald - virkt í minnst 10 ár Oryggismiðstöð Vesturlands sími 431 5100 - www.omv.is ^

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.