Skessuhorn


Skessuhorn - 19.05.2004, Qupperneq 11

Skessuhorn - 19.05.2004, Qupperneq 11
^ttUsvnv/.. MIÐVIKUDAGUR 19. MAI 2004 11 / „Island augum litíðu Þriðjudagskvöldið 25. maí kl. 20:30 flytur Sigríður Björk Jónsdóttir, sagn- og listfræðingur fyrirlestur sem nefnist, Island augum litið, í bókhlöðu Snorrastofu í Reykholti. I fyrirlestrinum mun Sigríður íjalla sérstaklega um ferðir breska ljóðskáldsins og hönnuðarins William Morris til íslands 1871 og ‘73. Reynt verður að greina hvaða áhrif ferðalög hans til eyjarinnar í norðri höíðu á verk hans og kenningar um listina en ekki síst hugmyndir hans um fyrirmyndaríkið eða útópíuna. F)nirlesturinn er að hluta til byggður á MA ritgerð Sigríðar sem fjallar um ferðir William Morris til Islands, samskipti hans við heimamenn og persónulega upplifun hans af því samfélagi sem mætti honum á ofanverðri 19. öld. I fyrirlestrinum verður einnig fjallað um frásagnir erlendra ferðamanna úr Borgarfirðinum og þá einkum úr Reykholti sem var og er einn helsti viðkomustaður þeirra sem áhuga hafa á norrænum fræðum. Sigríður Björk lauk BAjarófi í sagnfræði við Háskóla íslands 1995 og meistaraprófi í byggingarlistasögu frá háskólanum í Essex í Englandi árið 2001. Einnig hefur hún lokið MBA prófi frá Háskólanum í Reykjavík. Sigríður starfar nú sem verkefnisstjóri miðlunar í Snorrastofu í Reykholti og kennir byggingarlistasögu við Listaháskóla Islands. Eftir Sigríði hafa birst greinar um byggingarlist í dagblöðum og tímaritum. Greinin „Borg minninganna“, birtist í ritinu, Borgarbrot. Sextán sjónarhorn á borgarsamfélagið, sem gefin var út af Háskólaútgáfunni haustið 2003. Að loknum fyrirlestri er boðið upp á veitingar en síðan gefst gestum tækifæri á að ræða efhi fyrirlestrarins. Aðgangseyrir er 500 kr. og eru allir velkomnir! Línudanshópurirm Silfurperlan frá Akranesi varð Islandsmeistari í 13- 16 ára flokki á Islands- og bikarmeistaramótinu f Línudansi sem haldið var fyrir skömmu. éúéiít^i Helga Halldórsdóttir Hugleiðing um sameiningu sveitarfélaga Eg hef lengi verið þeirrar skoðunar að sveitarfélögin fjögur norðan Skarðsheiðar þ.e. Borgarbyggð, Borgar- fjarðarsveit, Hvítársíða og Skorradalur ættu að vera eitt sveitarfélag. Þessi fjögur sveitarfélög sameinuð í eitt verður sterk eining. Við höf- um orðið þess vör sveitar- stjórnarmenn að slagkraftur okkar og árangur er mestur þegar við komum fram sem ein heild fyrir þessi fjögur sveitarfélög. Fyrir aðeins 10 árum voru 13 sveitarfélög á þessu sama svæði. Sameiningarferli und- anfarinna ára hefur leitt til þess að þau eru nú 4 og verða, ef íbúarnir samþykkja vorið 2005, eitt sveitarfélag frá sveitarstjórnarkosningum 2006. Hefði orðið sú upp- bygging á svæðinu sem stað- reynd er ef sveitarfélögin væru ennþá 13 ? Breytt atvinnuumhverfi A þessu tímabili hefur orðið mikil breyting í atvinnumál- um í héraðinu. I stað þess að aðalatvinnugreinarnar séu landbúnaður og fullvinnsla landbúnaðarafurða er héraðið orðið háskólasamfélag. Iðn- aður, ferðaþjónusta og upp- bygging sumarhúsabyggða skipar nú æ stærri sess í mann- lífi okkar íbúa þessa héraðs. Auk þess sem á undan er talið er ljóst að með tilkomu Hvalfjarðarganga og upp- byggingu á Grundartanga gef- ur nálægðin við höfuðborgar- svæðið okkur ákveðin tæki- færi. Tækifæri vissulega en nálægðin ein og sér er ekki nóg. Sveitarstjórnarmenn á landsbyggðinni eru jafnan duglegir að benda stjórnmála- mönnum á hin ýmsu tækifæri sem gefast til að staðsetja op- inber störf utan við höfuð- borgarsvæðið. Við höfum hinsvegar sjaldnast árangur sem erfiði. Til að fólk vilji setjast að þarf atvinna að vera fyrir hendi og atvinnuum- hverfi er jafn viðkvæmt hjá okkur í Borgarfirði og öðrum sveitarfélögum sem lengra eru frá höfuðborgarsvæðinu. Engar kröfur gerðar íyrirfram Sveitarfélögin íjögur koma að sameiningarborðinu án nokkurra kvaða eða krafha um ákveðna þætti svo sem skóla- mál. Við höfum fengið fagað- ila til að gera úttekt á skóla- málum og fjármálum auk þess sem vinnunefndir fara yfir stjórnsýsluna og umhverfis- og skipulagsmál. l’illögur frá nefndum og fagaðilum verða síðan kynntar íbúum og á- kvarðanir teknar sem grund- valla síðan sameiningartillög- Það sem að mér finnst á- nægjulegast í okkar vinnu hér á þessu svæði og lýsir fram- sýni sveitarstjórnarmanna, er að okkur hefur lánast að byggja upp traust milli manna og stíga út úr gamla hreppa- rígnum og snúa bökum sam- an. Við höfum undanfarið ár náð að starfa af einhug og trú- mennsku að undirbúningi sameiningar sveitarfélaganna. I þessum fjórum sveitarfélög- um er nú þegar mikil hefð fyr- ir samvinnu og menningarlega og atvinnulega séð erum við sama svæðið. Ibúar sveitarfé- laganna hafa haft mikil og góð samskipti, það sem mun breytast er að í stað fjögurra sveitarfélaga verður til eitt með um 3.400 íbúa, tvo há- skóla og umhverfi þar sem fólki hefur farið fjölgandi. Að sjálfögðu eru ekki allir jafn sannfærðir í trúnni og ég. Fólk hefur eðlilegar efasemdir og óttast að breytingar verði á þeirri þjónustu sem stendur þeim nærri. Við munum hinsvegar vinna allar hug- myndir í samráði við íbúana og leitast við að taka fullt tillit til samfélagslegra þátta ekki síður en fjárhagslegra. Hvað hefur breyst á 10 árum ? En hvað hefur gerst á þess- um 10 árum sem hvetur okkur til að sameinast ? Það er trú- lega rekstur grunnskólanna og stjórnsýslulögin sem fyrst koma í hugann. Stjórnsýslu- lögin kveða skýrt á um máls- meðferð sveitarstjórnarmanna gagnvart íbúunum. Þau tryggja í raun íbúunum rétt- láta meðferð sambærilegra er- inda og veita sveitarstjórnar- mönnum ákveðinn ramma til að vinna eftir. Akvarðanir eru teknar eftir ákveðna málsmeð- ferð, geðþótta ákvarðanir stjórnenda sveitarfélaga eða kjörinna fulltrúa, samræmast ekki stjórnsýslulögum. Með auknum verkefnum verður erfiðara fyrir hin fámennari sveitarfélög að sinna þeim verkefnum sem sinna þarf. Sveitarstj ómarmað- urinn - aukastarf ? Störf að sveitarstjórnarmál- um eru krefjandi en skemmti- leg. Það er áhyggjuefni hversu ör mannaskipti eru í sveitarstjórnum. Það er al- gengt að kjörnir fulltrúar séu einungis starfandi eitt kjör- tímabil eða jafnvel minna. Það tekur hinsvegar ríflega hálft kjörtímabil að kynnast vel starfinu og komast inní það umhverfi sem fylgir störf- um að sveitarstjórnarmálum. Þetta bendir til þess að álag- ið sé mikið og það er mikið að sinna fullu starfi auk sveitar- stjórnarmála og þar að auki fjölskyldu og heimili. Slíkt heldur fólk ekki út nema í tak- markaðan tíma. Sveitarstjórn- armaðurinn er alltaf á vakt- inni, vakinn og sofinn að sinna málefnum síns samfélags. Fundartíminn er auk þess yfir- leitt seini part dags og um helgar. Þessu þarf að breyta. Kjörinn fulltrúi á að vera þannig launaður að hann líti ekki á sveitarstjórnarstarfið sem aukastarf. Miklar breytingar framundan Það er nú ljóst að framund- an eru frekari breytingar í starfsumhverfi sveitarfélaga. Samband íslenskra sveitarfé- laga ásamt með félagsmála- ráðuneytinu hefur kynnt til- lögur um eflingu sveitar- stjórnarstigsins sem gerir ráð fyrir að flest öll nærþjónusta við íbúana verði innan fárra ára í verkahring sveitarfélag- anna. Til að sveitarfélög nái að sinna með sóma þeim verk- efnum er æskilegur íbúafjöldi 3-4 þúsund manns. Byggða- samlög um hina ýmsu mála- flokka er ekki góður valkostur að mínu mati. Þó reynslan af byggðasamlögum sé ekki slæm hvað varðar samskipti við nágrannana þá er það stað- reynd að byggðasamlag er í raun millistig í stjórnsýslunni rp- y-'m »JÉÉÉi '. og flækir og tefur ákvarðana- tökur oft á tíðum. Tillaga félagsmálaráðuneyt- isins vegna verkefnisins um eflingu sveitarstjórnarstigsins, gerir ráð fyrir því að framlög jöfnunarsjóðs skerðist ekki komi til sameiningar og verði óbreytt í 5 ár að sameiningar- ári meðtöldu. Þetta er mjög mikilvægt fyrir sveitarstjórn- armenn að hafa sem veganesti í sinni vinnu því það dró kraft- inn vissulega úr mönnum að sjá fram á minna fjármagn eft- ir sameiningu en verið hafði í spilunum. Þeirri óvissu hefur nú verið eytt. Sterkara samfélag Oflugt sveitarfélag með 3- 4000 manns í Mýra- og Borg- arfjarðarsýslu, norðan Skarðs- heiðar er óskastaða. Ekki er þá ólíklegt að ætla að það henti íbúum í Kolbeinsstaða- hreppi betur að sameinast suður á bóginn með tilliti til þjónustu og atvinnusvæðis. Með sameiningu eflum við samfélagslega þætti, gerum stjórnsýsluna einfaldari og öfl- ugri. Það verður einnig íjár- hagslegur ávinningur en mesti ávinningurinn verður enn betra og sterkara samfélag í Borgarfirði. Borgamesi 16. maí 2004. Helga Halldórsdóttir Forseti bæjarstjómar Borgarbyggðar.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.