Skessuhorn


Skessuhorn - 02.06.2004, Qupperneq 12

Skessuhorn - 02.06.2004, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 2. JL XI 2(104 Siguijón Þórðarson Hugleiðing um sameiningu sveitmfélaga Hækkar Framsókn sem- entsverð á landsbyggðinni? Valgerður Sverrisdóttir ráðherra byggðamála lagði fram frumvarp í vor, sem miðar að því að leggja niður alla flutningsjöfnun á sem- enti. Það mun hafa í för með sér að verð á sementi hækkar um tugi prósenta á landsbyggðinni að mati Ey- vindar G. Gunnarssonar, formanns flutningsjöfnunar- sjóðs. Nefndar hafa verið tölur á borð við 30 - 45 %. hækkun á sementi en að vísu hafa stjórnendur Sements- verksmiðjunnar dregið þessar hækkanir í efa en eft- ir stendur að allri verðjöfn- un verður hætt þann 1. júní n.k. ef lögin verða samþykkt. Það er ótrúlegt að ráð- herra byggðamála skuli leggja fram frumvarp sem þetta sem mun án efa raska búsetuskilyrðum lands- manna. Eru þetta aðgerð- irnar sem Framsóknarflokk- urinn lofaði í byggðamálum fyrir síðustu kosningar? Nú er því ekki haldið því fram að ekki megi fara rækilega yfir umræddar reglur um flutningsjöfnun á sementi og koma á almennri flutnings- jöfnun á vörum. Að vísu segir Valgerður Sverrisdóttir vera að skoða einhverjar almennar aðgerð- ir til að jafna flutningskostn- að á landsbyggðinni. Eg veit ekki betur en að þessi skoð- un hafi staðið svo árum skipti og ekkert bólar á þeim aðgerðum frekar en öðrum í byggðamálum. Byggðastefnan í verki Athyglisvert er að lands- byggðarþingmennirnir í stjórnarflokkunum Fram- sóknar- og Sjálfstæðisflokki með Kristinn H. Gunnars- son í fararbroddi hafa sam- þykkt þetta frumvarp at- hugasemdalaust. Eru þetta loforðin sem borin voru á borð fyrir kjósendur lands- byggðarinnar fyrir um ári síðan? Þetta mál er enn eitt dæm- ið sem sýnir berlega að byggðastefna Framsóknar- flokks og Sjálfstæðisflokks er eingöngu í orði en ekki borði. Hægri höndin veit ekki hvað sú vinstri gerir Kostulegt er að þegar Framsóknarflokkurinn er að leggja til að hætta að jafna út flutningskostnað á sementi þá er landbúnaðarráðuneyt- ið að skila af sér skýrslu um nauðsyn þess að jafna út flutningskostnaði á sauðfé til slátrunar. Auðvitað er þetta enn eitt sjálfskaparvíti ríkis- stjórnarinnar sem lagði I hundruði milljónir í að úr- elda og fækka sláturhúsum á I landinu. Eftir sitja bændur landsins uppi með þá stöðu að þurfa að flytja með ærn- um kostnaði sauðfé mörg hundruð kílómetra til slátr- unar. Þennan kostnað þarf I nú að jafna. Sigurjón Þórðarson al])ingismaður I l/[inAhe>’inié Skrokkinn sannan skortir yl sviðum. hugsaði Allt er breyt- ingum undirorpið í heimi hér og löngu ljóst að öllu fer aftur sem er fullfarið fram. Þó er það svo að menn una aftur- förinni misvel enda kemur hún fram á ýmsum Vigfús Pétursson leit til baka og með sér: Bjarni Gíslason sendi kunningja sínum þessa vísu í bréfi: Þaö er sagt menn verbi í Vík vanans fylgja nótum, en þú hefur ekki í fjöidans flík flcekst á gatnamótum. Ekki veit ég hver orti svo og þætti raun- ar fengur í ef einhver gæti ffætt mig þar Ég er breyttur innst sem yst, öllu hrakar sýnist mér. Ég hef œöi mikiö misst - man bara ekki hvaö þaö er. Káinn fann líka til breytinga: Skrokkinn sannan skortir yl, skáldiö fer aö eldast. Svo er annaö sjáöu til - sálin er aö geldast! Hjörleifur Jónsson gerði sér á sama hátt ljós þessi sannindi: Reynist flest í veröld valt, vinmál standa í skoröum og ég er sjálfur oröinn allt ööruvísi en foröum. Þó eru til menn sem neita að breytast, að minnsta kosti eftír kenningum fjöldans og halda fast í sínar gömlu hefðir saman- ber Stefán Stefánsson: Aldrei breyta árin mér öls þó neyti ég glaöur, Drottinn veit þaö aö ég er alltaf sveitamaöur. Oröin er hvella raustin rám, rökkvar nú sjón í augum blám, hann sem aö yrkja kunni klám kaldur er oröinn upp aö hnjám. Hvort sem menn verða nú fótkaldir með árunum eður ei er traustur og farsæll lífsförunautur öllum mikilvægur og missir hans flestu þungbærari. Jón Þorsteinsson ffá Arnarvatni orti við lát konu sinnar: LÍÖur allt þó líöi ei fljótt lán og sorgin ríka. Mér var þungbœr þessi nótt - þó er hún búin líka. Sigurlína Davíðsdóttir kona Ragnars Inga Aðalsteinssonar varð fyrir því óláni að fótbrotna og þar sem hún lá gifsuð í fótbrotinu orti hennar ástkæri ektamaki: Sjáiöi bara Sigurlína situr nú hér meö brotinn fót; fyrrum var hún hin fráa snót,- nú er hún búin aö brjóta og týna. Einhvernvegin fannst Ragnari á svip- brigðum eiginkonunnar að hann hefði ekki hitt fyllilega í mark með þessum kveðskap og orti því bragarbót: Sjáiöi bara Sigurlínu, situr hún hér meö brotinn fót. Hún er svo góö og göfug snót aö girndin sýöur í holdi mínu. Þessi útgáfa mun hafa fengið mun skárri undirtektir en það er nú ekki alltaf hægt að hitta fullkomlega í mark enda væri þá eng- inn spenningur hvort menn hittu eða ekki. Eftir Bjarna Gíslason er þessi ágæta vísa: Oftlega mér yfirsást oft ég kenndi nauöa, stundum brann ég upp af ást eöa fraus til dauöa. Kjartan Sveinsson sem kallaður var Svartaskáld enda ekki þekktur að sálma- kveðskap orti um sínar innri hugleiðingar: Oft er mínum innsta strák ofraun þar af sprottin, í mér tefla alltaf skák Andskotinn og Drottinn. Stundum verður samband tveggja aðila með þeim hætti að ekki er ljóst hver þjón- ar hverjum og kallar slíkt ástand á sam- ráðsfundi sem að vísu enda yfirleitt með friðsamlegum samningum. Ingvar Magn- ússon ortí um sinn trygga og trúa förunaut sem lengi hafði þjónað honum á lífsgöng- þess. Valdimar Sveinbjörnsson orti um mann sem hafði þó farið þar um nokkuð gálauslega: Svo gengur þú hœgt um gleöinnar dyr og glöggt aö hyggur, aö enginn veit sína cefina fyr - en útúr liggur. Gleðimenn ekki síður en aðrir þekkja vel það ástand sem á fínu máli er kallað „tregt sjóðstreymi" og er algengt vanda- mál og hefur hrjáð margan mann. Þó er spurning hvort það er nokkuð betra að eiga svo mikið af peningum að vera í stöð- ugum ótta að tapa þeim. Jón Sigfinnsson orti um sitt viðhorf til þessara mála: F/'nn ég oft til fátœktar, fátt þó um þaö spjalla. En fyrir ástum ágirndar aldrei mun ég falla. Að endingu skulum við taka til umþenk- ingar þessa ágætu lífsreglu sem bundin er í stuðla af Guðmundi Sigurðssyni og láta hana verða lokaorðin að sinni: Göethe karlinn sem grúskaði þó í flestu á gamalsaldri oss taldi það fýrir bestu að taka lífinu létt á hverju sem gengi - maður lifir svo stutt og er dauður svo óralengi. Aöur fyrr hann verk sitt vann, varö á sjaldan skyssa, en nú er ei hœgt aö nota hann nema til aö pissa. Stundum er minnst á þörf þess að ganga hægt um gleðinnar dyr sem er vissulega nauðsynlegt en þar með er ekki sagt að alls ekki megi ganga um þær enda eru þær til Með þökk fyrir lesturinn Dagbjartur K. Dagbjartsson Refsstöðum 320 Reykholt S435 1367 dd@hvippinn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.