Skessuhorn - 09.06.2004, Side 6
('(/‘(MUHtr
Umsjón: Iris Arthúrsdóttir.
Þeir sem liafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina
sína geta sent hana inn ásamt ljósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða
stærri), fullu nafhi, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhom.is
MIÐVIKUDAGUR 9. JUNI 2004
^&tissunu^
Jeppamenn bjóða föthiðum í ökuferð:
Kærkomin tilbreyting
Síðastliðinn laugardag buðu fé-
lagar úr Vesturlandsdeild 4X4
skjólstæðingum Svæðisskrifstofu
málefna íadaðra á Vesturlandi í
ökuferð um Snæfellsnes. Flestir
voru þetta íbúar á sambýlum fad-
aðra af öllu Vesturlandi. Farið var
af stað á 20 jeppum klukkan 10 um
morguninn og fólkinu saínað í bíl-
ana fyrst á sambýlunum á Akranesi
en aðrir voru teknir upp í Hym-
unni í Borgamesi. Alls vom 53 sem
þáðu boðið í ferðina og þar af vom
fjórir í hjólastólum.
Gísli Bjömsson, sjúkraflutninga-
maður á Akranesi var í undirbún-
ingshópnum sem skipulagði ferð-
ina fyrir 4X4 félaga. Hann lýsir
ferðinni svona: „Ekið var sem leið
lá vestur á Mýrar og farin leiðin að
Álftanesi og þaðan að Okrum þar
sem áð var og fólki hleypt út tíl
leiks í fjörunni. Síðan var ekið að
Snorrastöðum en þar var hápunkt-
ur ferðarinnar fyrir marga. Þar var
grillað fyrir mannskapinn af félög-
um 4X4 klúbbsins. Allir tóku
hressilega tíl matar síns og tóku
jafnvel þátt í átkeppni. Sá sem met-
ið áttí náði að sporðrenna fjórum
hamborgurum og 2 pylsum,“ segir
Gísli.
Hann segir þetta vera fjórða árið
sem farið er með fadaða í
slíka ferð og vekji hún
alltaf upp mikla tilhlökk-
un hjá fólkinu. „Farið er
að spyrja okkur út í
hvenær næsta ferð verði
farin með löngum fyrir-
vara, enda hefur ijölgað
mjög í þessum ferðum og
hafa aldrei farið fleiri með
en núna. Tilhlökkun skín
úr hverju andlití og gleði
og þakklætí firá fólkinu
fyrir kærkomna tilbreyt-
ingu í þeirra daglega líf. Á haustín
köllum við síðan hópinn saman aft-
ur en þá er vaninn að vera með
myndakvöld frá ferðunum,“ sagði
Gísh.
Vildi hann jafnframt koma sér-
stöku þakklæti á framfæri til ábú-
Auðvitaö
var gítarinn með í för.
enda á Snorrastöðum sem létu
klúbbnum í té alla aðstöðu þeim að
kostnaðarlausu. Einnig styrkti
Verslun Einars Olafcsonar á Akra-
nesi klúbbinn með mat og gos-
drykkjum auk þess sem Olís gaf
grillkol.
Skagadömur til Slóvaldu
Þann 18. júlí næstkomandi
mun 12 stelpna vinahópur ffá
Akranesi halda til Michalovce f
Slóvakíu í tíu daga ferð. Tilgang-
ur ferðarinnar er að mynda tengsl
við unglinga í Austur-Evrópu og
ffæðast um þeirra lönd og rnenn-
ingu. Hópurinn samanstendur af
stelpum úr bæði Grundaskóla og
Brekkubæjarskóla en hann hefúr
hist vikulega í Amardal undanfar-
in tvö ár.
UFE áædunin (Ungt fólk í
Evrópu) styrkir stelpumar til far-
arinnar en yfirskrift hennar er
„On the Wings of Friendship".
Stelpumar hafa undanfarið verið
duglegar við diskótekahald,
blaðaútburð og fleira til þess að
safna fyrir utanlandsferðinni, auk
þess sem þær koma tíl með að sjá
um sölu á lúnum ýmsu stöðum á
17. júní.
Flogið verður tíl Kaupmanna-
hafnar, þaðan tíl Prag og loks tíl
Slóvakíu þar sem slóvensku stúlk-
umar munu taka á móti hópnum.
I ferðinni verður ýmislegt gert, til
dæmis verður sett upp leiksýning
sem sýnd verður í nærliggjandi
sumarbúðum í Slóvakíu. Svo fá
stelpumar að læra að gera leir-
potta að aldagamalli slóvenskri
hefð og að því loknu verða um-
ræður milli hópanna um gamlar
hefðir í löndunum tveimur. Farið
verður yfir íslenska og slóvenska
söngva og stelpumar kynna sér
hvað slóvensk ungmenni gera í
sínum ffístundum á sumrin. Mat-
armenning, fjölskyldulíf og trú-
mál í löndunum tveimur verða
einnig borin saman á hflegan hátt
svo fátt eitt sé nefht.
Fararstjórar ferðarinnar verða
þær Anna Margrét Tómasdóttir,
tómstundafúlltrúi Amardals og
Sigrún Osk Kristjánsdóttir, mark-
aðs- og atvinnufúlitrúi Akraness.
Allt sem heitir Egils-
eitthvað í
uppáhaldi!
Jón H Allansson er forstöðumaður
Byggðasafns Akraness og nærsveita. Á Safna-
svæðinu á Akranesi hafa staðið yfir miklar
framkvæmdir undanfarin ár, söfnum fjölgað
og svæðið orðið vinsælt heim að sækja. Um síðustu helgi komu t.d. 700
gestir á svæðið enda mikið um að vera og framundan margir spennandi
viðburðir. Jón veitir starfsemi Safúasvæðisins forstöðu og er gesmr Skrá-
argatsins að þessu sinni.
Fnllt nafn:Ján Heiðar Allanssm
Starf: Forstoðamaður Byggðasajns Akraness og nœrsveita
Fæðingardagur og ár: 9. desember 1958
Fjölskylduhagir: Giftur Heiðnínujamisardóttur. Eigum 3 b'trm; 14,17 og22
ára
Hvemig bíl áttu? Toyota Carina E, árg. 1993, gefur ekki feilpúst!
Uppáhalds matur? Alæta á allt sern að kjafti kemur; júlarjúpan klikkar aldrei,
finn sennilega gamlar birgðir í kistunni!
Uppáhalds drykkur? Egils bistall, Egils appekín og Egils bjór.
Uppáhalds sjónvarpsefni? Iþróttir, enskir sakamálaþættir og enskt skemmti-
efni
Uppáhalds sjónvarpsmaður? Gísli Einarsson
Uppáhalds innlendur leikari? Sigurður Sigurjónssm
Uppáhalds erlerulur leikari? Gene Hackmann
Besta bíómymlin? Gamall, klasstskur vestri; High nom með Gary Cooper,
Grace Kelly, Lee Van Cleef ogfleirum.
Uppáhalds íþróttamaður? Cmterinn bjá Arsenal; Thiery Hemy
Uppáhalds ijrróttafélag? IA og Arsenal
Uppáhalds stjómmálamaður? Ingibjörg Sólrún þegar Edda Heiðnín Back-
man leikur hana
Uppáhalds innlendur tónlistarmaður? Megas
Uppáhalds erlendur tónlistammður? Van Morrism, Neil Ymng og hljóm-
sveitin Steely Dan
Uppáhalds rithöfundur? Gamli skólabróðir minn Amaldur Indriðasm
Ertufylgjandi eða andvígur ríkisstjómmni? Pass
Hvað meturðu mest ífari annarra? Heiðarleiki
Hvaðfer mest í taugarnar á þér ífari annarra? Óheiðarleiki og óstundvísi
Hver er þinn helsti kostur? Gott skap
Hver erþinn helsti ókostur? Þaðfer ægilega í taugamar á mörgum hvað ég
er lengi að borða!
Hvemig leggst ferðasumarið í þig? Leggst mj'óg vel í mig, sumarið byrjar
mj'óg vel og líkur áfleiri gestmn en á síðasta ári.
Eru eitthverjar breytingar framundan á Safnasvæðinu ? Hellingur. Við
erum að undirbúa flutning Stúkuhússins upp að G'órðum og erum að umbylta
umhverfi Safnasvæðisins. Þar verður engin stóðnun á næstu árum.
Eitthvað að hkum? Vona að ÍA hirði bæði íslands- og bikarmeistaratitilinn.
Hópurinn saman kominn ásamt fararskjótum.
Myndir: Gísli Björnsson
Sherrýfrómas í sparifötunum
Þennan rétt er hægt að bera
fram sem Ijúffengan sparieftirrétt
eða sem tertu í veisluna.
Útheimtir að vísu smá undir-
búning en er svo sannarlega vel
þess virði.
Marengs :
150 gr. hakkaðar m 'óndlur
200 gr. sykur
4 stk eggjahvítur
1/2 tsk lyftiduft
Eggjahvíturnar þeyttar og sykri
bætt út í smátt og smátt. Hrærið
lyftidufti og möndlum varlega
saman við. Setjið í 26 - 28 cm
springform (smurt eða með smjör-
pappír). Bakið á 120°C í blæstri
eða 160-180°C í venjulegum ofni í
ca 1 - 2 klst. Gott er líka að láta
hann kólna í ofninum yfir nótt.
Frómas :
2 egg
100 gr sykur
1/2 líter rjúmi
1 dl sherrý
6 blöð matarlím
7 0 gr suðusiikkulaði
Egg og sykur
þeytt saman. Þeytið
rjómann. Leysið
upp matarlímið, bætið sherrýinu
út í og kælið aðeins. Súkkulaðið
saxað og blandað út í eggja-
hræruna. Því næst er matarlíms-
blöndunni bætt í og hrært vel. Að
lokum er þeytta rjómanum bland-
að varlega í með písk. Hellið
frómasþykkninu í formið ofan á
kökubotninn (gott að vera búinn
að losa hann upp áður). Athugið að
nauðsynlegt er að þjappa vel svo
ekki myndist loftrúm á milli laga.
Marsipanhjúpur :
200 gr marsipan
Fletjið marsipanið út og setjið
ofan á kökuna þegar allt er orðið
stíft. Best að setja á tertuna 1-1 1/2
sólahring áður en hún er borin
fram.
HUSRAÐ
Frábær handmaski , sprautið olíu
í skál og hellið slurk af strásykri út í,
hrærið í þykkan lög. Makið á hend-
urnar og nuddið vel. Húðin verður
silkimjúk.