Skessuhorn - 09.06.2004, Qupperneq 14
14
MIÐVIKUDAGUR 9. TÚNÍ 2004
úntdsutiui^
Sjómannadagurinn á Akranesi
Dagskrá sjómannadagshá-
tíðahalda var með nokkuð hefð-
bundnu sniði á Akranesi í ár.
Viðburðir tengdir hátíðisdegin-
um fóru fram ýmist á vegum
sjómanna sjálfra, HB Granda
eða annarra aðila í bæjarfélag-
inu. Sjómenn heimsótm leik-
skóla á föstudeginum og gáfu
börnum harðfisk og fengu í
staðinn söng. A Iaugardeginum
var boðið upp á siglingu með
Sturlaugi H Böðvarssyni og
Höfrungi III í boði HB Granda
og grillveislu að henni lokinni
við Hafnarhúsið. Sérstakt sjó-
mannagolfmót
var haldið á
Garðavelli á
laugardeginum
og á Safnasvæð-
inu fór fram
kynning á ýms-
um fiskafurðum
í boði íyrirtækja
sem vinna úr
sjávarafla. Um
kvöldið var grill-
veisla í útitjaldi á
sama stað þar
sem í boði voru
ýmsar krásir úr
Víkingar kokkuöu heilmikla sjávarréttasúpu í stórum útipotti. Hér eru
þeir aö kenna gestum víkingaleiki á Safnasvæöinu.
Minningarathöfn í kirkjugaröinum. Sr. Eðvarö Ing-
ólfsson minntist drukknaöra og týndra sjómanna.
Mynd: HB Grandi.
sjávarfangi og skemmtun fram
eftir kvöldi.
Sjálfur sjómannadagurinn
hófst með því að fánar voru
dregnir að húni á Akratorgi en
klukkan 10 fór fram minningar-
athöfn í kirkjugarðinum, þar
sem minnst var týndra og
drukknaðra sjómanna. Klukkan
11 var á Akratorgi lagður blóm-
sveigur til minningar um
drukknaða sjómenn og sjó-
mannamessa var í kirkjunni þar
sem aldraðir sjómenn voru
heiðraðir. Tveir sjómenn voru
heiðraðir að þessu sinni og
SKOLAAKSTUR
Óskað er eftir tilboðum í skólaakstur fyrir nemendur í Fjölbrautaskóla Snæfellinga sem
hefur starfsemi sína í lok ágúst 2004 og verður staðsettur í Grundarfirði.
Nemendum verður boðið uppá akstur í og úr skólanum alla kennsludaga skólaársins.
Um er að ræða nemendur sem búsettir eru í Snæfellsbæ, Stykkishólmi og Helgafellssveit.
Nemendur eiga að vera mættir í tíma kl. 8:30 hvern dag og því þurfa þeir að vera komnir í
skólann ekki síðar en kl. 8:20.
Reiknað er með að lagt sé af stað heimleiðis kl. 16:30 dag hvern, nema föstudaga kl. 14:30.
Þær leiðir sem aka þarfhvern skóladag eru eftirfarandi:
I Stykkishólmur - Grundarfjörður (Lagt af stað um kl. 7:50)
Grundarfjörður — Stykkishólmur (Lagt af stað kl. 16:30, föstud. kl. 14:30)
Vegalengd: 39 km hvora leið.
II Hellissandur - Rif - Ólafsvík - Grundarfjörður (Lagt af stað um kl. 7:50)
Grundarfjörður — Ólafsvík — Rif — Hellissandur (Lagt af stað kl. 16:30, föstud. kl. 14:30)
Vegalengd: 36 km hvora leið.
III Akstur nemenda úr Helgafellssveit og sveitum Snæfellsbæjar verður með misjöfnum
hætti eftir önnum og því verður samið sérstaklega um þá hluta.
Gerð er krafa um að skólabifreiðarnar uppfylli almennar öryggiskröfur og æskilegt er að í
þeim séu bílbelti. Auk þess er þess krafist að bifreiðastjórar hafi lokið tilskildu námi og öðlast
réttindi til aksturs hópferðabifreiða. Þeim skal vera umhugað um öryggi farþega sinna og
leitast við að tryggja það í hvívetna.
Óskað er eftir tilboðum í allan aksturinn eða hluta hans. Vegna óvissu um nemendafjölda
verður samið til eins árs en áætlanir gera ráð fyrir að nemendur í og úr Snæfellsbæ verði 20
til 30 talsins og sömuleiðis að nemendur til og frá Stykkishólmi og Helgafellssveit verði 20
til 30 talsins.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Tilboðum skal skila til Guðbjargar Aðalbergsdóttur, skólameistara,
Borgarbraut 16, 350 Grundarfirði (gudbjorg@fsn.is, gsm: 864 9729) eða
Páturs Inga Guðmundssonar, aðstoðarskólameistara (petur@fsn.is, gsm: 868 3618).
Skilafrestur hefur verið framlengdur til 25. júní 2004.
Gísli bæjarstjóri og Gísli S Einarsson voru veislustjórar á Safnasvæð-
inu og héldu uppi mikilli stemningu í grillveislu tileinkaðri sjómanna-
deginum á laugardagskvöldiö. Mynd: Jón Allansson
þökkuð áratuga störf við sjó-
mennsku. Þetta eru þeir Jón
Skapti Kristjánsson og Huldar
Agústsson en báðir hafa þeir
verið skipverjar hjá útgerð Har-
aldar Böðvarssonar á sínum sjó-
mannsferli.
Kvennadeild Slysavarnafé-
lagsins var síðan með kaffisölu í
Jónsbúð um eftirmiðdaginn.
MM
Gaf málverk
Nýlega færði Hilmar Hálf-
dánarson Listasafni Akraness
að gjöf málverk eftir Bjarna
Þór, listamann á Akranesi.
Halldóra Jónsdóttir, forstöðu-
maður Bókasafns Akraness
veitti gjöfinni viðtöku og verð-
ur henni fundinn góður staður
við fýrsta tækifæri í einhverri
stofnun Akraneskaupstaðar.
Þess má geta að Hilmar var
nú í vor að hætta sem kennari
við Landbúnaðarháskólann á
Hvanneyri þar sem hann hefur
kennt í hartnær tvo áratugi. Af
því tilefni færðu samstarfsfélag-
ar hans við skólann honum, á
útskriftardegi skólans, gjafabréf
til kaupa á hægindastól að eigin
vali. Hilmar er því bæði gefandi
og þiggjandi vikunnar.
MM
Systur úr Borgarnesi, Eva og Ólöf Sumarliöadætur voru kátar á leik
Englands og íslands á Old Trafford í Manchester á laugardaginn en
sú fyrrnefnda vann ferð fyrir tvo á leikinn í happdrætti Spron. Þær
voru ánægðar með túrinn þrátt fyrir aö íslensku boltadrengirnir hafi
ekki staöiö sig sem skyldi.