Skessuhorn - 22.09.2004, Blaðsíða 5
oivtasunvj..
MIÐVTKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004
5
Framkvæmdir að
hefjast á Miðbæjarreit
Síðastliðinn fimmtudag var
fyrsta skóflustungan tekin að
nýju íjölbýlishúsi við Dalbraut
1 á Akranesi. Þar með hefst
formlega fyrsti áfangi að upp-
byggingu svokallaðs Miðbæj-
arreits en fyrirhugað er að tvö
fjölbýlishús rísi á reitnum auk
4800 fermetra verslunarmið-
stöðvar.
Aður en skóflustungan var
tekin var haldinn kýnningar-
fundur fyrir verktaka, væntan-
lega leigjendur og áhugasama
um framkvæmdina. A fundin-
um var gerð grein fyrir fyrir-
huguðum framkvæmdum,
kynntar verkáætlanir, teikn-
ingar, skipulag og eigendur
lóðarinnar svöruðu fyrirspurn-
um varðandi framkvæmdirnar.
Við sama tækifæri var skrifað
undir samning milli Akranes-
kaupstaðar og framkvæmdaað-
ilans, Skagatorgs ehf. Að fram-
kvæmdunum stendur fyrirtæk-
ið Skagatorg sem er hlutafélag
í eigu Harðar Jónssonar, Giss-
urar og Pálma ehf. og Fjarðar-
móta ehf. Allt eru þetta öflug
fyrirtæki af höfuðborgarsvæð-
inu sem leggja í þetta verkefhi
saman, enda segjast eigendur
þess hafa mikla trú á fjölgun
íbúa og vaxandi atvinnutæki-
færa á og í nágrenni Akraness.
Falast hefur verið
eftir 70% rýmisins
A því svæði sem um ræðir
(Miðbæjarreit) er fyrirhugað
að byggja 4800 m2 verslunar-
miðstöð sem framkvæmdaaðil-
ar hyggjast fara með í alútboð.
I því felst að hönnun, bygging,
innréttingar og frágangur
verða boðin út sem heild. A-
ætluð verklok í byggingu versl-
unarmiðstöðvar er haustið
2005, þannig að jólaverslun
geti farið þar fram fyrir jólin
2005. Aðspurðir um væntan-
legt leiguverð eða hvort versl-
unarrými yrði fáanlegt til
kaups, vildu talsmenn verktaka
sem minnst svara í ljósi þess að
eftir væri að fá niðurstöður úr
fyrrgreindu alútboði. „Við
reiknum þó með að leiguverð í
verslunarrými gæti orðið ein-
hversstaðar á bilinu 1200-1400
krónur fyrir fermetrann“,
sagði Hörður Jónsson. „Skaga-
torg mun leggja áherslu á að
byggja eins ódýrt og mögulegt
er til að leiguverð verði sem
hagstæðast fyrir kaupmenn.
Til að mynda verður mjög tak-
markað gangrými og sameig-
inlegt rými utan verslana í
miðstöðinni, en gengið þess í
stað inn í verslanirnar sem
verða í húsinu utanfrá,“ sagði
Björn S Lárusson, talsmaður
Skagatorgs. Aðspurðir sagði
Björn að búið væri að falast
eftir um 70% af verslunarrým-
inu í húsinu. Meðal annars er
gert ráð fyrir því að í stærsta
rýminu verði matvöruverslun
og samkvæmt heimildum
Skessuhorns hyggjast Sam-
kaup, eigendur Nettó verslan-
anna, færa verslun sína þangað
frá Kalmansvöllum.
Tvö háhýsi
Auk verslunarmiðstöðvar
verða byggð tvö fjölbýlishús á
Miðbæjarreitnum sem verða 9
hæðir hvort auk þakhæðar eða
alls 10 hæða byggingar. Hér er
því um að ræða háreistustu í-
búðabyggingar á Vesturlandi.
Bygging fyrra fjölbýlishússins
hefst í vor en verktakar tóku
það fram að aðstæður á fast-
eignamarkaðnum á Akranesi
réðu því hvenær bygging
seinna fjölbýlishússins hæfist,
en það verður með húsnúmer
19 við Stillholt.
MM
Fá ekki afiiot af kennslu-
stofum í verkfalli
Nokkrir nemendur Grunda-
skóla á Akranesi hafa lýst yfir ó-
ánægju með að fá ekki að nýta
kennslustofur skólans á skóla-
tíma á meðan á verkfalli stend-
ur. Jóhanna Gísladóttir, nem-
andi í 10. bekk Grundaskóla
segir að hún og nokkrar bekkj-
arsystur hennar hafi viljað fá að
læra sjálfar í skólanum til að
nota tímann sem best í verkfall-
inu. „Við æduðum að læra sam-
an í hópi því þá getum við
kennt hvor annarri, sú sem er
góð í íslensku segir hinum til
o.s.fv. Við fengum hinsvegar
ekki að fara inn vegna þess að
það var talið vera verkfalls-
brot,“ segir Jóhanna. Hún segir
að í staðinn verði hún og vin-
konur hennar að finna sér pláss
í einhverri kjallarageymslu eða í
einhverju öðru óhentugu hús-
næði.
Guðbjartur Hannesson
skólastjóri Grundaskóla sagði
það ekki koma til greina að hafa
nemendur eftirlitslausa í
kennslustofum á skólatíma og
ef ætti að hafa starfsmann yfir
þeim þá væri það skýlaust verk-
fallsbrot. Hann kvaðst hinsveg-
ar skilja afstöðu nemenda sinna
og ef það hefði verið mögulegt
þá hefði hann komið til móts
við þeirra óskir. GE
LEIKSKÓLAKENNARA
VANTAR I BORGARBYGGÐ
Leikskólinn Hraunborq á Bifröst
Vi& leikskólann Hraunborg á Bifröst vantar leikskólakennara í fullt starf.
Ráðning í hlutastarf kemur einnig til greina.
Leikskólinn Hraunborg er þriggja deilda leikskóli sem er þægilega staösettur
í háskólaþorpinu Bifröst (www.bifrost.is). Þar eru aö jafnaði 56 börn á
aldrinum 2 - 5 ára, flest í heilsdagsvistun, og um 15 starfsmenn.
Umsóknarfrestur er til 27. september 2004.
Nánari upplýsingar veitir Þórdís G. Magnúsdóttir, leikskólastjóri,
í síma 435-0077. Einnig má hafa samband á netfangiö:
hraunborg@borgarbyggd.is
Leikskólinn á Varmalandi
Við leikskólann á Varmalandi vantar leikskólakennara í hálft starf.
Leikskólinn á Varmalandi er einnar deildar leikskóli. Þar eru að jafnaði 10-
12 börn á aldrinum 2 - 5 ára, flest í heilsdagsvistun, og 4-5 starfsmenn.
Umsóknarfrestur er til 27. september 2004.
Nánari upplýsingar veitir Ingunn Jóhannesdóttir, leikskólastjóri,
í síma 430-1512. Einnig má hafa samband á netfangiö:
varmalancf.leik@borgarbyggd. is
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi áhuga á að vinna með
börnum og búi yfirfærni í mannlegum samskiptum.
Fáist ekki leikskólakennarar verða ráðnir starfsmenn með háskólapróf
eða aðra uppeldismenntun og/eða reynslu.
í samræmi við jafnréttisstefnu Borgarbyggðar eru jafnt karlar sem
konur hvött til að sækja um störf njá sveitarfélaginu.
Forstööumaöur frceöslu-
og menningarsviös Borgarbyggöar
BORGARBYGGÐ
Auglýsendur
athugið!
í næstu viku verður óhefðbundinn útgáfudagur á Skessuhorni
þar sem blaðið kemur út degi síðar en venjulega, þ.e.
fimmtudaginn 30. september. Undanfarin ár hefur það tíðkast
að gefa blaðið út í stærra upplagi einu sinni til tvisvar á ári í
kynningarskyni og verður þessu tölublaði af Skessuhorni því
dreift í 6000 eintökum inn á öll heimili ogfyrirtæki áVesturlandi.
Vegna umfangs prentunar og tímafrekrar vinnslu blaðsins er
auglýsendum sem hyggjast nýta sér þetta frábæra tækifæri, bent
á að staðfesta þarf og senda inn efni í auglýsingar í síðasta lagi
fyrir klukkan 16:00, föstudaginn 24. september.
Efni þessa blaðs verður af ýmsum toga, fjölbreytt, fræðandi og
skemmtilegt. Samhliða dreifingu blaðsins fylgir því óvæntur
glaðningur og spennandi leikur, sem ekki verður upplýst um
nánar að sinni. Við lofum hinsvegar að það mun vekja athygli
og því munu auglýsingar hitta í mark, nú sem fyrr!
Auglýsingasími blaðsins er 433-5500
og netfang skessuhorn@skessuhorn.is
m