Skessuhorn


Skessuhorn - 22.09.2004, Síða 6

Skessuhorn - 22.09.2004, Síða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. SEPTEMBER 2004 ^ntsaunu... Bæjarstjóm Borgarbyggðar sammála um þrjú forgangsatriði Atvinnumál, samgöngumál og málefhi aldraðra Tilraun gerð til að virkja bæjarfulltrúa betur með nýjum starfsháttum bæjarstjórnar y'mAfl/u/ wAff/uiar Umsjón: Iris Arthúrsdóttir. Þeir sem hafa áhuga á að láta birta uppáhalds uppskriftina sína geta sent hana inn ásamt Ijósmynd af sjálfum sér eða réttinum (500 kb eða stærri), fullu nafni, heimilisfangi og síma á netfangið iris@skessuhom.is HÚSRAÐ Ef hunangið hefur sykrast er hægt að setja krukkuna í pott með sjóðandi vatni. Á síðasta fundi bæjarstjórnar Borgarbyggðar var gerð sam- hljóða samþykkt um þrjú megin- stefnumál sem meirihluti og minnihluti voru sammmála um að vinna að í sameiningu út yfir- standandi kjörtímabil. I bókun bæjarstjórnar segir m.a.: „Bæjar- stjórn Borgarbyggðar er sam- mála um að mikilvægt sé að vinna ötullega að eflingu at- vinnulífs í Borgarbyggð, bættum samgöngum, uppbyggingu hús- næðis eldri borgara og Dvalar- heimilis aldraðra í Borgarnesi á næstu tveimur árum. Til að vinna þessum málum ffamgang verða settir á stofh vinnuhópar sem mimu einbeita sér að áður- nefndum málefnum. Þessi verk- efhi krefjast þess að þau séu unn- in í góðri sátt við ýmsa hags- munaaðila og lýsir bæjarstjórn Borgarbyggðar sig reiðubúna til samstarfs við þá.“ ,ÁIenn voru sammmála um að skipa vinnuhópa sem í sitji bæj- arfulltrúar og með því er verið að ræða um að þeir komi meira inn í ýmiskonar stefhumótunar- vinnu,“ segir Páll S Brynjarsson bæjarstjóri. „Við erum með þessu að víkka svolítið út starf- svið bæjarstjórnar en mönnum hefur fundist að bæjarstjórnar- menn séu mest í að afgreiða mál með handauppréttingum en þetta eru tímamót að því leyti að hér verður ákveðin breyting á starfsháttum bæjarstjórnar. Það má því líta á þetta sem tilraun til að virkja bæjarfulltrúana meira en verið hefur og menn voru sammála um að gefa þessu tvö ár, eða fram að lokum kjörtímabils- ins.“ Unnið með öðrum Þá segir Páll að með um- ræddri samþykkt sé bæjarstjórn að lýsa yfir vilja til að vinna með öðrum aðilum að helstu fram- faramálum. Atvinnumálin eru sem fýrr segir eitt af þeim þrem- ur atriðum sem sett eru í forgang en í því sambandi má reyndar geta þess að það hefur verið yfir- lýst stefna Borgarbyggðar að taka ekki beinan þátt í atvinnu- rekstri í sveitarfélaginu nema brýna nauðsyn beri til. Þá má einnig geta þess að á síðasta kjörtímabili var atvinnumála- nefnd sveitarfélagsins lögð niður og því má spyrja hvort þarna sé stefnubreyting af hálfu meiru- hlutans og hvort verið sé að klóra í bakkann? „Nei það er ekki hægt að segja það. Þegar at- vinnumálanefndin var lögð nið- ur fluttust hennar málefhi yfir á bæjarráð. Við höfum hinsvegar gjarnan viljað komast í meira samstarf við atvinnulífið og höf- um hvatt til þess að stofhuð verði hagsmunasamtök fýrir- tækja í sveitarfélaginu. Þetta snýst líka um að við viljum marka okkur stefhu í atvinnu- máfum og gera það í sátt og samstarfi við þá sem eiga hags- muna að gæta. Þess má reyndar líka geta að SSV ráðgjöf hefur tekið ákveðið frumkvæði í þess- ari stefnumótun og er um þessar mundir að vinna að svokölluðu klasaverkefhi fýrir Borgarfjörð- Frostxós Þessi ísterta er konunglegur eftirréttur, eða glaðningur í klúbbana sem fara að vakna til lífsins með haustinu. Volg kara- mellu- eða súkkulaðisósa spillir ekki fýrir. 1 svamphotn 1 marensbotn 1 box jarðarber 1 lítil dósperur Vanillu ís Jarðaberja ís 1/2 líter þeyttur rjómi Skraut eftir smekk (nammi, ber eða annað) Bleytið svampbotninn með perusafanum. Raðið ískúlum, perum og jarðarberjum þétt ofan á bominn. Setjið marens- inn ofan á og skreytið með þeyttum rjóma og ávöxtum eða nammi að vild. Látið bíða í kæli í 15-20 mínútur áður en hún er borin fram. Atvinnumálin eru meðal þriggja forgangsatriða bæjarstjornar Borgar- byggðar það sem eftir er af þessu kjörtímabili. Ljósm. MM inn. Við viljum hinsvegar koma þessum málum í ákveðið form og finna út hvemig sveitarfélag- ið getur best komið að því að liðka fýrir atvinnuuppbyggingu án þess að fara sjálft út í beinan rekstur.“ Heimafyrirtækin í forgang Páll segir að ekki sé í gangi sérstakt verkefni til að laða að utanaðkomandi fýrirtæki en töluverð umræða hafi verið í gangi um hvort það sé yfirhöfuð rétt. „Við teljum ekki síður mikilvægt að þau fýrirtæki sem hér eru til staðar nú þegar eflist og dafhi. Að sjálfsögðu eru ný fýrirtæki velkomin hingað og við teljum umhverfið býsna vænlegt fýrir þau, gjöld em lág, nóg framboð af lóðum og öll þjón- usta til staðar. Á hinn bóginn viljum við skoða í ffamhaldi af þessari samþykkt hvernig við getum greitt götu þeirra fýrir- tækja sem hafa byggst upp hér í sveitarfélaginu. Það geram við hinsvegar ekki upp á okkar eigin spítur heldur verður það að vera í samráði við atvinnulífið. Þótt bæjarstjórn sé öll af vilja gerð þá gengur hún ekki til góðs í þess- um málum nema hún gangi í takt við þá sem eiga hagsmuna að gæta,“ segir Páll. Stækkun Dvalarheimilisins Varðandi málefni aldraðra viðurkennir Páll, aðspurður, að uppbygging Dvalarheimilis aldr- aðra hafi verið í nokkrum hnút undanfarin misseri. „Stjórn Dvalarheimilisins hefur verið í viðræðum við heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið í nokkur ár og vildi kaupa hluta af heilsugæslustöðinni í Borgarnesi til að stækka heimilið. Nú hefur ráðuneytið hafhað því og ætlar að fara í endurbætur á heilsu- gæslunni með það í huga að vera þar áffam. Nú er það hinsvegar stjórnar Dvalarheimilisins að finna út hvemig menn vilja bæta og stækka húsnæðið en þörfin er svo sannarlega fýrir hendi.“ Að lokum segir Páll það vera mikið ánægjuefni að bæjarstjórn í heild skuli tilbúin að sameina kraffa sfna í þeim málum sem menn vilji setja í forgang. GE Ami Böðvarsson í Kirkjuhvoli Kristján Kristjánsson, forstöðumarður Ljós- myndasafns Akraness, og Gísii Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, að spjalli á opnuninni. Laugardaginn 18. september opnaði í Listasetr- inu Kirkjuhvoli ljósmyndasýning Ljósmyndasafns Akraness á mynd- um Árna Böðvars- sonar. I tilefni sýn- ingarinnar var ráð- ist í úgáfu bókar- innar Ljósmyndir Árna Böðvarssonar sem inniheldur æviágrip ritað af Árna Ibsen, barnabarni myndasmiðsins, og úrval ljós- mynda sem hann tók á ferli sínum. Bókin er gefin út með styrk frá Menningarborgar- sjóði, KB banka og Vátygg- ingafélagi Islands. Árni Böðvarsson, sem fædd- ur var í Vogatungu í Leirársveit 15. speptember 1888, rak ljós- myndastofu á nokkrum stöð- um á Akranesi frá 1916 til 1950, síðast á Vesturgötu 80. Eftir að það húsnæði brann hætti Árni að taka myndir á stofii en Olafur sonur hans tók að sér rekstur ljósmyndastof- unnar. Árni hélt þó áfram að taka myndir á meðan kraftar og heilsa leyfðu, en hann lést tæp- lega níræður 30. apríl 1977. Kunnastur er Árni fýrir lit- uðu ljósmyndirnar sínar og prýddu þær fjölda heimila víða um land allt ffá upphafi þriðja áratugs tuttugustu aldar. Myndimar voru litaðar með olíulitum sem bornir vora á stækkaða ljósmynd með bómul. Það var Gísli Gíslason, bæj- arstjóri Akraness, sem opnaði sýninguna að viðstöddu fjöl- menni. Kristján Kristjánsson, forstöðumaður Ljósmynda- safns Akraness, færði við þetta tækifæri tengdadóttur Árna Böðvarssonar, Ingveldi Ás- mundsdóttur og barnabörnum hans, Árna Ibsen, Heiðrúnu og Brynhildi Þorgeirsdætram og Guðmtmdi Garðarssyni eintak af hinni nýútkomnu bók, Ami Ibsen flutti tölu og Bragi Þórð- arson ávarpaði opnunargesti. Góður rómur var gerður að sýningunni sem þykir gefa góða innsýn í sögu Akraness, en það vora Kristján Kristjáns- son og Friðþjófur Helgason ljósmyndari, sem áttu veg og vanda að uppsetningu hennar. Sýningin stendur til 17. októ- ber. ALS

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.