Skessuhorn


Skessuhorn - 13.10.2004, Side 4

Skessuhorn - 13.10.2004, Side 4
4 MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 2004 ^ntSSUtlu... WWW.SKESSUHORN.IS Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is 894 8998 mognus@skessuhorn.is ritstjori@skessuhorn.is iris@$kessuhorn.is gudrun@skessuhorn.is Útgefandi: Skessuhorn ehf Fromkv.stj. og blm. Mognús Magnússon Ritstjóri og óbm: Gísli Einarsson 899 4098 Augl. og dreifing: íris Arthúrsdóttir 696 7139 Umbrot: Guðrún Björk Friðriksdóttir 437 1677 Prentun: Prentmet ehf. Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á hriðjudögum. Auglýsendum er bent a að panta auglýsingaplass timanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á priðjudögum. Blaðið er gefið út í 4.000 eintökum og selt til áskrifenda oa í lausasölu. Askriftarverð er 850 krónur með vsk. á mánuði en krónur 750 sé greitt með greiðslukorti. Verð í lausasölu er 300 kr. 433 5500 Mín eigin • • samgongu- áætlun Gísli Einarsson, ritstjóri. Þegar ég lít hlutlaust á málið þá liggur það ljóst fyrir að ekki er hægt að efast um skynsemi mína eða andlegt atgervi mitt yfirhöf- uð. Hinsvegar má kannski spyrja sig að því hvort ég sé að nota þessa yfirburði mína til góðs í einstökum málum. Við getum nefht sem dæmi að ég er einlægur áhugamaður um bættar samgöngur og opinberlega er það vegna þess að ég trúi því að framfarir í samgöngumálum séu eitt stærsta byggðamálið í dag og landi og þjóð til heilla. Þar er sama hvort sem um er að ræða í lofti láði eða legi, samgöngur í farartækjum eða á öldum ljós- vakans í formi fjarskipta. Hið rétta er að sjálfsögðu að þarna eru það eiginhagsmunir sem ráða för. Eg hef fyrst og fremst áhuga á góðu vegasambandi milli staða á Vesturlandi, upp í Lundarreykja- dal, út á Skaga og vestur á Snæfellsnes. Ég er líka hlynntur jarð- göngum frá Kjalarnesi undir Reykjavík og langleiðina út á Kefla- víkurflugvöll. Á sjó hef ég áhuga á stöðugum skipaferðum milli Grundartanga og Halifaxhrepps á Englandi og hvað varðar flugsamgöngur hef ég áhuga á að Stóra Kroppsflugvöllur verði gerður að alþjóðaflug- velli. , I fjarskiptamálum hentar mér vel að netsambandið sé þannig uppbyggt að það tryggi mér sem best aðgengi að vefjum sem fjalla um ensku knattspyrnuna og vel völdum klámsíðum. Með öðrum orðum þá upplýsist það hér með að mér þykir það eðlilegt að allar samgöngubætur hér eftir verði sniðnar að mínum þörfum og áhugamálum. Vandamálið er hinsvegar að það er ekki ég sem ræð. Ennþá stærra vandamál er að þeir sem ráða hafa því miður ekki sömu vandamál og þarfir og ég. Stærsta vandamálið er þó það að þeir eru engu minni eiginhagsmunaseggir en ég og ætla sér að sníða sér samgönguáætlanir eftir sínum vexti. Fyrrverandi hæstvirtur samgönguráðherra, Halldór Blöndal vill núna láta gera nýja heimreið fyrir sig til Akureyrar þar sem farið yrði fjarri ströndum, yfir hálendið og hvergi staðnæmst fyrr en í Eyjafirði. Akureyringar eiga vissulega allt gott skilið en það eiga hinsveg- ar margir fleiri. Ég geri mér líka grein fyrir að það eru eitthvað fleiri sem eiga leið þangað en í Lundarreykjadalinn svo ótrúlegt sem það kann að virðast. Núverandi leið til Akureyrar nýtist hins- vegar mörgum öðrum stöðum. Hin nýja hálendisleið myndi ekki nýtast öðrum en þeim sem eiga leið milli Akureyrar og Reykjavík- urhrepps. Hugsanlega þó einhverjum útilegumönnum en kannski vilja þeir bara fá að vera í friði. Vegir liggja til allra átta segir í dægurlagatexta einum og þannig á það að vera en ekki bara til Akureyrar. Gísli Einarsson, vegvísir. Samvinna slökkviliða á sunnanverðu Vesturlandi Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. hefur unnið skýrslu um samvinnu slökkvi- liða á sunnanverðu Vesturlandi þar sem m.a. er fjallað um eld- varnaeftirlit og mengunarvarn- ir á svæðinu. Bæjarráð Akranes- kaupstaðar fjallaði á síðasta fundi sínum um efni skýrslunn- ar og tók undir hana efnislega og í framhaldi af því var bæjar- stjóra og slökkviliðsstjóra falið að taka upp viðræður um málið. Gísli Gíslason, bæjarstjóri, sagði í samtali við Skessuhorn að skýrslan hafi verið unnin með styrk frá Brunamálastofn- un og væri ætlun hennar að meta umfang raunverulegs eld- varnareftirlits og nauðsynlegan mengunarvarnarbúnað fyrir slökkvilið á sunnanverðu Vest- urlandi. „I skýrslunni er m.a. lagt til að sveitarfélögin á svæð- inu stofni með sér samstarfs- nefrid um brunavarnir og sam- einist um kaup á búnaði vegna hugsanlegra mengunaróhappa. Nú er reyndar í gildi samning- ur milli Slökkviliðsins á Akra- nesi og Brunavarna Borgar- fjarðar um gagnkvæma aðstoð, en aukið samstarf á þessu sviði mun tryggja bætt öryggi. Því var samþykkt í bæjarráði að óska eftir viðræðum um þessi atriði við rekstraraðila slökkvi- liða í nágrenni við okkur,“ sagði Gísli Gíslason. MM Slökkviðliðmenn búnir að mestu að ráða niðurlögum eldsins. Síðar um kvöldið var kveikt aftur í húsinu og mannskapurinn æfði sig m.a. í að slökkva eld í þaki. Kveikt í Borgartúni fyrir æfingu slökkviliðsins Síðastliðið miðvikudagskvöld hélt Slökkvilið Akraness alls- herjaræfingu þar sem allir liðs- menn slökkviliðsins voru kallað- ir út. Kveikt var í gömlu stein- húsi sem staðið hefur í áratugi við Þjóðbrautina (hét Borgartún en oft nefnt Heimsendi), en húsið hefur staðið autt í nokkur ár. Að sögn Guðlaugs Þórðar- sonar, slökkviliðsstjóra, gekk æf- ingin í alla staði vel. „Þessi æfing var sérstaklega hugsuð til að æfa reykkafara í að fara inn í hús. Þeir þurfa að reykkafa ákeðið marga tíma á ári til að halda sér við og því var kærkomið tæki- færi fyrir okkur að æfa okkur þarna í ljósi þess að til stóð að rífa húsið hvort sem var.“ MM Félag ungra framsókn- armanna í Dölum og á Ströndum Síðastliðinn föstudag var haldinn stofnfundur félags ungra framsóknarmanna í Stranda- og Dalasýslum í barna- skólanum á Borðeyri. A þessu svæði hefur engin formleg starfsemi verið hjá ung- um framsóknarmönnum og finnst aðstandendum þessa fé- lags kominn tími á það núna. Heiðursgestir á fundinum voru þeir Halldór Asgrímsson forsæt- isráðherra, Magnús Stefánsson alþingismaður og Kristinn H Gunnarsson alþingismaður. GE Halldór Ásgrímsson, forsætis- ráðherra, var einn heiðursgesta á stofnfundinum. Nýtt starf for- vama- og tóm- stundafulltrúa Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga birti í síðustu viku auglýsingu í Skessu- horni þar sem auglýst er eft- ir umsóknum urn stöðu For- varna- og tómstundafulltrúa fyrir Snæfellsnes. Um er að ræða nýja stöðu sem er sam- starfsverkefni Rauða kross deildanna á Vesturlandi og byggðasamlags um rekstur Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga. Forvarna- og tómstundafulltrúa er ætlað að taka forystu um vímu- efhaforvarnir á Snæfellsnesi, leiða saman Iykilaðila og vinna að stefnumótun í þess- um málaflokki. MM Húsafiriðunar- nefitid spurð álits Bæjarráð Borgarbyggðar hefur fjallað um athuga- semdir vegna skipulags gamla miðbæjarins í Borgar- nesi. Akveðið var að hafa samráð við Húsafriðunar- nefnd áður en endanleg á- kvörðun verður tekin um niðurrif gamla mjólkursam- lagsins við Skúlagötu en skiptar skoðanir eru innan sveitarfélagsins um hvort húsið skuli vera eða fara. GE Adantsolíu úthlutað lóð Á síðasta fundi bæjar- stjórnar Stykkishólms var lóðarumsókn Atlantsolíu af- greidd. Bæjarráð úthlutaði Atlantsolíu lóð við Aðalgötu ofan við veginn að golfskál- anum. Einnig var samþykkt tillaga hafitarnefndar urn að úthluta Atlantsolíu aðstöðu á grjótgarði við Árnasteina. GE Biðstaða vegna sameiningar Björg Ágústsdóttdr bæjar- stjóri Grundarfjarðar hefur sent bæjarstjómum Stykkis- hólms og Snæfellsbæjar er- indi þar sem óskað er eftir af- stöðu um áframhaldandi samstarf vegna útboðs í sorp- málum. Núverandi sam- starfssamningur sveitarfélag- anna rennur út næsta haust. Stykkishólmsbær hefur sam- þykkt að taka upp viðræður en bæjarstjóm Snæfellsbæjar samþykkti að í ljósi skoðunar á kostum og göllum samein- ingar sveitarfélaga sé ekki tírnabært að taka afstöðu til erindisins. GE

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.