Skessuhorn


Skessuhorn - 13.10.2004, Page 6

Skessuhorn - 13.10.2004, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 2004 ^&csauiu/b Snœfellsbœr -þarsem Jökulinn berviðloft AÐALBÓKARI Snæfellsbær óskar eftir að ráða aðalbókara í 100% starf á skrifstofur bæjarins. Viðkomandi þarf að geta hafíð störf 1. nóvember. Við leitum að einstaklingi sem hefur góða bókhalds- og tölvuþekkingu. Æskilegt er að umscekjandi hafi viðskipta- eða rekstrarfrœðimenntun, það er þó ekki skilyrði en gerð er krafa um stúdentspróf Nánari upplýsingar gefur bæjarritari í . síma 436-6900 / 895-6714, netfang lilja@snb.is o ; Skriflegum umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu Snæfellsbæjar fyrir 21. október n.k. s Umsœkjendur athugið að Bœjarskrifstofur Snœfellsbœjar eru reyklaus vinnustaður. VIÐURKENNING TIL FRAMÚRSKARANDI MENNINGARSTARFS Á LANDSBYGGÐINNI Vorið 2004 undirrituðu Listahátíð i Reykjavík, Byggðastofnun og Flugfélag íslands samning um eflingu menningarlífs á landsbyggðinni. Við það tækifæri var ákveðið að efna til viðurkenningar sem hlotið hefur nafnið Eyrarrósin og er markmiðið með henni að verðlauna árlega eitt afburða menningarverkefni á landsbyggðinni, á starfssvæði Byggðastofnunar. • Úthlutunarnefnd tilnefnir þrjú verkefni úr hópi umsækjenda um Eyrarrósina 2005. • Eitt þeirra hlýtur viðurkenninguna, kr. 1.500.000 og verðlaunagrip til eignar. • Viðurkenningin verður afhent í fyrsta sinn í ársbyrjun 2005 á Bessastöðum. • Verkefnið sem hlýtur viðurkenninguna fær sérstaka kynningu í tengslum við Listahátíð í Reykjavík 2005. • Verndari Eyrarrósarinnar er Dorrit Moussaieff forsetafrú. HER MEÐ ER AUGLYST EFTI UM EYRARRÓSINA 2005 UMS0KNUM SKAL FYLGJA: Lýsing á verkefninu Lögð skal fram greinargóð lýsing á verkefniny^u sögu og markmiðum. Tíma- og verkáætlun Gerð skal grein fyrir stöðu og áætlaðri framvindu verkefnisins og áformum á árinu 2005. Skilyrði er að verkefninu hafi nú þegar verið hleypt af stokkunum. Upplýsingar um aðstandendur Lagðar skulu fram ítarlegar upplýsingar um helstu aðila sem að verkefninu standa og gerð grein fyrir þeirra þætti í því. Fjárhagsáætlun Tilgreina skal tekjur og gjöld verkefnisins á þessu ári. Uppgjör ársins 2003 fylgi umsókn. • Ef umsókn fylgja ekki ofangreindar upplýsingar verður hún ekki tekin til greina. • Umsækjendur geta verið m.a. stofnun, safn, tímabundið verkefni eða menningarhátíð. • Umsóknarfrestur er til 1. nóvember 2004 og verður öllum umsóknum svarað. • Viðurkenningin verður veitt í janúar 2005. • Umsóknir skal senda til Listahátíðar í Reykjavík, pósthólf 88,121 Reykjavík, merktar Eyrarrósin. ReyFgavtkArtsFestival Byggdastofnun FLUGFÉLAG ÍSIANDS Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri Listahátíðar á skrifstofu Listahátíðar i Reykjavík í sima 561 2444, artfest@artfest.is www.listahatid.is Náttúruvemd og umhverfismál Dagana 8. og 9. október komu fulltrúar sveitarfélaga víðs vegar að af landinu saman í Hvalfirði og ræddu margvísleg málefni sveitarfélaganna, er lúta að náttúruvernd og velferð þeirra til framtíðar. Fulltrúar náttúruverndameínda sveitarfé- laga funduðu, skilgreindu hlut- verk sitt og hlýddu á fyrirlestra sem m.a. tengdust náttúruvernd, ferðaþjónustu og friðlýsingu svæða. A laugardeginum var síð- an haldin árleg ráðstefna um málefni Staðardagskrár 21 og sjálfbæra þróun. Yfirskrift ráð- stefnunnar var að þessu sinni: Sjálfbærar byggðir. Dagskráin var fjölbreytt en megin áhersla var lögð á byggðir í landinu með tilliti til atvinnulífsins. Fróðleg erindi vom flutt um ferðaþjón- usm, landbúnað, fiskveiðar og álframleiðslu. Þá greindu full- trúar sveitarfélaga ffá Staðar- dagskrárstarfinu heima fyrir og áhersla var einnig lögð á grænar lykiltölur, sem talsvert hafa verið í umræðunni undanfarið. Umhverfisráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir, ásamt fúll- trúum þriggja sveitarfélaga und- irritaði Olafsvíkuryfirlýsinguna, sem sveitarfélögin hafa sam- þykkt. Olafsvíkuryfirlýsingin er yfirlýsing um framlag íslenskra sveitarfélag til sjálfbærrar þró- unar og hafa nú 36 sveitarfélög samþykkt hana. MM Húsnæðisþörf bóka- safiisins skoðuð Bæjarráð Akraneskaupstaðar hefur ákveðið að setja á stofn nefnd sem kanni framtíðarhús- næðisþörf bókasafnsins og hér- aðsskjalasafnsins við Heiðar- braut. Gísli Gíslason, bæjarstjóri sagði í samtali við Skessuhorn að ýmsir möguleikar hafi verið skoðaðir á liðnum misseram, m.a. endurnýjun og stækkun bókhlöðunnar við Heiðarbraut, fluming starfseminnar í annað húsnæði eða bygging á nýju safnahúsi. „Ollum hefur verið ljóst um langt skeið að brýn verkefni bíða varðandi húsnæði bókasafnsins og skjalasafnsins. Nú, þegar nokkur hreyfing er komin á ýmis skipulagsmál bæj- arins, er nauðsynlegt að móta stefnu um þetta verkefni þannig að unnt verði að koma verkefn- inu á framkvæmdastig. Stað- seming bókasafnsins skiptir miklu máli í því þjónusmum- hverfi sem bærinn vill skapa bæjarbúum og hvort það verður áffam á sama stað í endurnýjuðu húsnæði eða fært annað ræðst af niðurstöðu þeirrar nefndar sem mun skoða málið,“ sagði Gísli. Frá borg- firskum sauðum Þökkum frábærar viðtök- ur við Sauðamessu 2004 í Borgarnesi þann 9. qktóber sl. Sérstaklega viljum við þakka þeim fjölmörgu sem studdu framtakið með fjár- útlátum, (bæði sauðfé og reiðufé.) Viljum við nefna sérstaklega Sparisjóð Mýra- sýslu, Sauðfjárræktarfélag Borgarfjarðar, Borgarbyggð, Borgarfjarðarsveit, Njarð- tak, Landssamband sauðfjár- bænda, Vírnet - Garðastál, Vís, Sjóvá-Almennar, Verka- lýðsfélag Borgarness, Bændasamtök Islands, Bún- aðarsamtök Vesmrlands, Leikdeild Skallagríms, Sól- fell og Björgunarsveitina Brák, Guðmund Hallgríms- son, KB ehf, Finnboga Rögnvaldsson, sem og öllum öðram sem komu að hátíð- inni með einum eða öðram hætti. Með sauðum skal land byggja! Borgfirskir sauðamenn ('fréttatilkynning) MM Þeir Björn Þorsteinsson prófessor við Landbúnað- arháskólann á Hvanneyri og Guðmundur Hallgríms- son á Hvanneyri voru á- búðarfullir þegar þeir stóðu á skurðbakka við tún á Hvanneyri í gær og störðu ofan í vatnið sem þar steymdi eftir miklar rigningar. Þeir voru að vinna við tilraun sem Björn stjórnar og á að sýna fram á hversu mikið af næringarefnum tapast úr ræktunarlandi með af- rennslisvatni. ., . __ Mynd: GE Félag gigtarsjúklinga stofiiað Stofnfundur Vesturlands- deildar, Giktarfélags Islands, var haldin í Borgarnesi þann 18. september síðastliðinn. Góð mæting var á fundinn og var fullt út úr dyrum. Jón Atli Árnason, giktarsérfræðingur á Akranesi og Jósep Blöndal sjúkrahússlæknir i Stykkis- hólmi flutm erindu og urðu nokkrar umræður að þeim loknum. Stjórn var kosin á fundinum og er stefnt að aðalfúndi í mars eða apríl í vor. Stjórnin hefur nú skipt með sér verkum og er Jóhanna Leópoldsdóttir Akra- nesi, formaður, Steinunn Frið- riksdóttir Borgarnesi ritari, Jónína Ingólfsdóttir Akranesi gjaldkeri og meðstjórnendur eru Pémr V. Jónsson, Sveins- stöðum og Sigrún V Elíasdótt- ir Borgarnesi. Að sögn Jóhönnu er stefnt að því á næsm mánuðum að halda nokkra fræðslu- og kynningarfundi, þann fyrsta í Borgarnesi í nóvember. Síðar verða haldnir fundir í Snæfells- bæ, Stykkishólmi eða Grund- arfirði, Búðardal og á Akra- nesi. Jóhanna býst við að það muni taka nokkurn tíma að byggja upp starf á svo stóru svæði sem Vesturland er, en því fleiri sem taki þátt, þeim mun betur muni ganga. Jóhanna sagði í samtali við Skessuhorn að því miður fái allt of margir giktarsjúkdóma og flestir þurfa að breyta lífi sínu mikið og læra að takast á við lífið við svo breytta gem. „Sjúkdómurinn er í fæstum til- fellum sýnilegur og því búa margir við lítinn skilning sam- ferðafólks. Með fræðslu, auk- inni þekkingu og stuðningi annarra með svipaða sjúkdóma má oftast létta aðlögun og líf fólks,“ segir Jóhanna. Hún vonast til að starfið geti farið farsællega af stað og giktarfólk geti stutt hvert annað í þeirri glímu sem óhjákvæmilega fylg- ir langvinnum sjúkdómi. Þeir sem vilja ganga í Gikt- arfélagið er bent á að hafa sam- band við skrifstofu þess í Reykjavík. Heimilisfangið er Armúli 5 108 Reykjavík og netfang: gigt@gigt.is, sími

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.