Skessuhorn - 13.10.2004, Side 8
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 2004
t>uíji)9U tlV/tv.
Oviðunandi fiarsldpta-
samband
A fundi sveitarstjórnar Dala-
byggðar, sem haldinn var 21.
september sl. var samþykkt á-
lyktun vegna símamála í sveit-
arfélaginu. Tillagan var
svohljóðandi: „Sveitarstjórn
Dalabyggðar skorar á Símann
að bæta úr því ófremdarástandi
sem ríkir í sveitarfélaginu vegna
lélegs fjarskiptasambands.
GSM símasamband er víða í
Dalabyggð til mikilla óþæginda
bæði fyrir heimamenn og gesti.
Mikil aukning ferðamanna hef-
ur verið á undanförnum arum.
Sem dæmi má nefna að gestir á
Eiríksstöðum í Haukadal hafa
undanfarin ár verið um 10.000.
Þar er ekkert GSM símasam-
band og einungis á nokkrum
í Dölum
stöðum hægt að notast við
NMT síma. Ekki batnar á-
standið þegar gagnaflutningur
um netið er skoðaður. Víða í
sveitum héraðsins er samband-
ið það slæmt að varla er hægt að
notast við netið. I þéttbýl-
iskjarna sveitarfélagsins, Búðar-
dal, er ekki einu sinni komin
ADSL tenging. A Laugum í
Sælingsdal er rekið hótel. Þar
næst hvorki GSM símasam-
band né NMT og nettenging
óviðunandi. Með vísan til ífam-
anritaðs er það krafa sveitar-
stjórnar að úr þessu verði bætt
þannig að íbúar sveitarfélagsins
og gestir þess geti notast við
fyrsta flokks þjónustu hvað fjar-
skiptasamskipti varðar.“ MM
Góður tími fyrir góð kaup!
Fullt hús matar
Súper sjónuarpstilboð
29" sjónvarp kr.
29.990
BORGARNESI j
Góður kostur...
Stórmarkaður Hyrnutorgi S. 430 5533
Opið virka daga frá kl. 09-19
laugardaga frá kl.10 -19
sunnudaga frá kl. 12-19
www.kb.is
Kr'rTgottva!
Akranesi
opið alla daga
sími: 431 4030
Grundarfirði
opið alla daga
sími: 438 6979
Segulmiðaleikur
Skessuhorns
'Utfzfcwleifcur ?em'affír hftgjaft me&/
Vinningsnúmer 40. tölublaðs er:
1837
Vinningur er 15.000 króna
vöruúttekt í KB Hyrnutorgi eða
Grundavalsbúðunum á Akranesi
eða í Grundarfirði.
Avísunfyrír vöruúttekt skal vinningshafi
vitja á skrifstofu Skessuhorns í síma
433-5500.
Aðalfundur félags smábátaeigenda á
Snæfellsnesi
Lúðvík Smárason að færír Bergi gjöf frá féiaginnu
Snæfell félag smábátaeigenda
á Snæfellsnesi hélt aðalfund
sinn sunnudaginn 3. okt sl. A
fundinum bar það hæst að
Bergur Garðarsson lét af for-
mennsku í félaginu en hann
hefur verið formaður ffá 1991
eða í 13 ár. Bergur hefur einnig
verið varaformaður Landssam-
bands smábátaeiganda í mörg
ár. Voru Bergi færðar bestu
þakkir fyrir góð störf í þágu fé-
lagsins og í tilefni að því færð
gjöf frá því.
Nýr formaður Snæfells var
kosinn Símon Sturluson frá
Stykkishólmi. A fundinum, sem
var vel sóttur,
voru sam-
þykktur fjöldi
ályktana til
landsfundar
LS. Meðal
annars var á-
lyktað um
línuívilnun,
grásleppumál
og stærðar-
mörk smábáta.
Einnig lýsti
fundurinn áhyggjum sínum af
miklurn veiðum í flotvörpu og
vill að þær verði rannsakaðar ít-
arlega með tilliti til seiðadráps.
Fundurinn mótmælti vinnu-
brögðum við ákvarðanir á
loðnukvóta og vill að loðnuveið-
ar verði bannaðar á Breiðafirði.
--------------^------------
Hættumat fyrir Olafsvík staðfest
Umhverfisráðherra, Sigríður
Anna Þórðardóttir, hefur stað-
fest tillögu hættumatsnefndar
Snæfellsbæjar að hættumati
vegna ofanflóða fyrir Olafsvík.
Vinna við hættumat fyrir Olafs-
vík hófst árið 2000 og lauk með
skýrslu sem kynnt var á borgara-
fundi í Olafsvík sl. vor. Helstu
niðurstöður skýrslunnar eru eft-
irfarandi:
Lítill hluti byggðar í Olafsvík
er á hættusvæðum. Aðeins tvö
hús eru á hættusvæði C auk iðn-
aðarhúsnæðis undir Ennishlíð
vestan Hjartans og bílageymslu
heilsugæslunnar.
Tvísteinahlíð er mjög sérstakt
snjóflóðasvæði og á sér ekki
hliðstæðu í þéttbýli hér á landi.
Það gerir hættumat erfiðara en
ella þar sem ekki er unnt að bera
svæðið saman við hliðstæða
staði. Engu að síður er hættu-
matið þar tiltölulega öruggt
enda góð skráning á snjóflóðum
síðustu áratugi.
Hætta vegna grjóthruns og
skriða er víða nokkur, einkum
undir Olafsvíkurenni. En á
svæðinu sem er hættumetið er
hætta af völdum snjóflóða ráð-
andi.
Rými til varna undir Tví-
steinahlíð er takmarkað en hugs-
anlegt er að frekari bygging
stoðvirkja veiti fullnægjandi
vörn. Þó kann snjódýpt að verða
meiri en svo í snjóþungum vetr-
um að raunhæft sé að reisa stoð-
virki. Tiltölulega litlar fram-
kvæmdir þarf til að verjast
krapa- og aurflóðum í Bæjar-
læknum.
Hægt er að kynna sér skýrsl-
una og kort á vef Veðurstofu Is-
lands: www.vedur.is/snjoflod
/haettumat/ov MM
Minnt á nauðsyn
brjóstakrabbameinsskoðana
I októbermánuði verður vak-
in athygli á brjóstakrabbameini
hér á landi, fimmta árið í röð,
frætt um sjúkdóminn og konur
hvattar til að nýta sér boð Leit-
arstöðvar Krabbameinsfélags-
ins um röntgenmyndatöku.
Þetta er hluti af alþjóðlegu ár-
veknisátaki, að frumkvæði
Estée Lauder, en bleik slaufa en
tákn átaksins.
I tilefni átaksins hafa m.a.
veggir Sjúkrahússins og heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akranesi,
sem snúa að Kirkjubraut, verið
lýstir upp með rauðbleikum
Ijósum. Bleik lýsing verður
einnig sýnileg annars staðar á
landinu nú í byrjun október.
Sauðárkrókskirkja verður lýst
upp, KB banki á Akureyri,
Menntaskólinn á Akureyri, Eg-
ilsstaðakirkja, Heydalakirkja í
Breiðdal, Ráðhúsið á Selfossi,
Sparisjóðurinn í Keflavík og
síðast en ekki síst Bleiksárfoss á
Eskifirði. Með hliðstæðum
hætti verða lýst upp tvö hund-
ruð mannvirki í fjörutíu lönd-
um í tilefni átaksins, meðal ann-
ars Empire State í New York,
Niagara fossarnir og Harrod’s í
London.
Ar hvert greinast 160-170 ís-
lenskar konur með
brjóstakrabbamein, þar af er
nær helmjngurinn á aldrinum
frá 30 til 60 ára. Fjöldi nýrra til-
fella hefnr verið að aukast en
lífshorfurnar hafa einnig batnað
mikið. Um helmingur kvenna
sem greindust með
brjóstakrabbamein fyrir fjöru-
tíu árum lifðu í fimm ár eða
lengur en nú geta um 80%
vænst þess að lifa svo lengi. Nú
eru á lífi rúmlega 1700 konur
sem fengið hafa brjóstakrabba-
mein. Samkvæmt útreikningum
frá Krabbameinsskránni getur
tíunda hver kona búist við að fá
brjóstakrabbamein. Hér á landi
eru konur boðaðar til brjósta-
myndatöku annað hvert ár frá
og með 40 ára aldri. Erlendar
rannsóknir benda til þess að
með því að taka röntgenmyndir
reglulega af brjóstum kvenna
megi lækka dánartíðni vegna
krabbameins í brjóstum veru-
lega. MM