Skessuhorn - 13.10.2004, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 2004
Gísli Laxdal og Kristín Sveinsdóttir ásamt „Hjálpfús“ á leikskólanum
Vallarseli.
Hjálpfós heimsældr
leikskólann
Starfsmenn Rauða kross ís-
lands heimsóttu nýlega leik-
skóla í landinu og færðu þeim
að gjöf námsefnið „Hjálpfús,"
sem miðar að því að börn læri
hversu mikilvægt það er að
rétta fólki hjálparhönd þegar
eitthvað bjátar á. Hjálpfús kom
til langdvalar á öllum leikskól-
um Akraness í byrjun mánaðar-
ins í fylgd Lilju Halldórsdóttur
hjá Akranesdeild RKI til þess
að fræða og skemmta krökkun-
um. Lilja segir að honum hafi
verið vel tekið og að gjöfin sé
liður í því að kynna fyrir leik-
skólabörnum þær hugsjónir og
áherslur sem Rauði krossinn
starfar eftir. Sú hefð hefur skap-
ast að leikskólabörn komi í
heimsókn að skoða sjúkrabílana
og kynnast þeirri hlið á rekstri
Rauða krossins en með Hjápfús
er verið að auka þetta samstarf.
Námsefnið um Hjálpfúsan
fellur undir aðalnámskrá leik-
skóla sem kveður á um að efla
skuli lífsleikni til aukins tilfinn-
inga-, félags- og vitsmuna-
þroska og að leggja beri áherslu
á samkennd og samstöðu. Um
er að ræða sex sögur sem börn-
unum er sagðar með hjálp
fingrabrúðunnar Hjálpfúss og
sögumanns og miða þær að því
að fræða börnin um gildi vin-
áttunnar, mikilvægi samvinnu
og þess að setja sig í spor ann-
arra. Að auki er fjallað um við-
fangseíhi eins og ólíka menn-
ingarheima, kjör barna í öðrum
löndum og hjálparstarf. Sög-
urnar eru fjölbreyttar og eiga
því erindi jafnt við yngstu og
elstu börnin og nýtast á öllum
deildum leikskólanna. ALS
Stórsigur Skalla-
gríms í bikarnum
Tveir af yngstu leikmönnunum, þeir Flosi H Sigurðsson og Heiðar Lind
Hansson fengu að spreyta sig töluvert í leiknum og stóðu sig með mik-
illi prýði. Hér er Flosi á ferðinni í síðasta leikhluta. Mynd: GE
Skallagrímur tók á móti
Tindastóli frá Sauðárkróki í
fyrri viðureign liðanna í fyrstu
umferð Hópbílabikarsins og
fór leikurinn fram í Borgarnesi
á sunnudag. Það er skemmst
frá því að segja að heimamenn
höfðu yfirhöndina frá fyrstu
mínútu og unnu stórsigur, 119
- 74 og standa því vel að vígi
fyrir seinni leikinn sem fram fer
á Króknum í vikunni.
Makedóníumaðurinn Jovan
Zdravevski var yfirburðamaður
á vellinum og sýndi stórleik.
Hann skoraði 33 stig en næst-
ur honum kom Clifton Cook
sem einnig átti stórleik og
greinilegt að þar er á ferðinni
maður sem getur unnið leiki
upp á eigin spítur. Egill Örn
Egilsson skoraði 18 stig [
leiknum og Hafþór I Gunnars-
son 17. GE
Lokahóf knattspyrnudeildar
Víkings var haldið fyrir
skömmu í Félagsheimilinu Klifi
í Ólafsvík. Eins og kunnugt er
hafnaði lið meistarflokks Vík-
ings í 2. sæti ( 2. deildinni og
vann sér þannig inn sæti í 1.
deildinni að ári. Andinn á loka-
hófinu var líka í samræmi við
það en stuðningsmenn Víkings
fjölmenntu og skemmtu sér vel
undir öruggri stjórn Friðriks
Rúnars Friðrikssonar sem
stýrði hófinu. Ræðumaður
kvöldsins var hinsvegar Stein-
ar Dagur Adólfsson, fyrrver-
andi landsliðsmaður sem er
einn af frægari sonum Ólafs-
víkur á fótboltavellinum.
Félagið fékk fjölda gjafa í til-
efni af góðum árangri, m.a.
stórgjöf frá Hraðfrystihúsi Hell-
issands sem er einn af aðal-
stuðningsaðilum félagsins.
Hermann Geir Þórsson tók
við verðlaunum sem besti leik-
maður Víkings árið 2004 og
fékk hann einnig gullskóinn
fyrir að vera markahæstur á
tímabilinu. Elinbergur Sveins-
son var valinn efnilegasti leik-
maðurinn og Kjartan Einarsson
fékk viðurkenningu fyrir flestar
stoðsendingar.
Það var síðan hljómsveitin
Klakabandið sem hélt uppi
stuði fram eftir nóttu. GE
Gengið tíl góðs með RKÍ
Laugardaginn 2. október stóð
Rauði kross Islands fyrir lands-
söfnuninni Göngum til góðs.
Safnað var til hjálpar börnum
sem búa við hörmungar styrjald-
arátaka og markmiðið var að fá
2500 sjálfboðaliða um land allt
til þess að ganga í hús og safna fé
til styrktar málefninu. Lilja
Halldórsdóttir, hjá Akranesdeild
RKI, segir söfnunina hafa geng-
ið ótrúlega vel. Gengið var í hús
við allar götur bæjarins og söfh-
uðu sjálfboðaliðar á Akranesi
rúmum 496.000 krónum. Þá er
ótalið það fé sem safnaðist í
gegnum söfnunarsíma sem op-
inn var samhliða átakinu.
Talið er að síðastliðinn áratug
hafi tvær milljónir barna týnt líf-
inu af völdum stríðs, sex milljón-
ir særst eða hlotið varanlegan
líkamlegan skaða og tólf millj-
ónir flosnað upp af heimilum
sínum. Þá hafa að minnsta kosti
300 þúsund börn leiðst út í
Þórunn Steinarsdóttir var ein þeirra sem gekk til góðs á laugardaginn
og hér er hún mætt til Guðrúnar Aðalsteinsdóttur og Dóru Bjarkar
Scott, stjórnarmanna í Akranesdeildinni, sem stóðu vaktina við skrán-
ingu sjálfboðaliða. Tæplega hálf milljón króna safnaðist á Akranesi.
hernað, lang flest nauðug, og
hafa þannig tekið þátt í hörm-
ungum stríðsátaka sem ekkert
barn á að þurfa að upplifa. Það
fé sem safinaðist á laugardaginn
mun nýtast til þess að bæta að-
stöðu þessara barna með marg-
víslegum hætti og vill Akranes-
deild RKÍ koma á framfæri
þakklæti til allra þeirra sem
lögðu lóð á vogarskálamar.
ALS
Gerfigrasvöllurinn
í Grundarfirði
Á myndini eru ungar íþróttakonur í Grundarfirði, talið frá vinstri þær
Steinunn, Marta, Guðrún, Hanna, Silja, Rebekka, Dæja, Guðbjörg og
Silja Rán. Þær spila allar með 4. flokki og eru mjög ánægðar með nýja
gerfigrasvöllinn í Grundarfirði. í vetur munu þær spila einu sinni í viku á
vellinum. MM/ Ljósmynd Sverrir