Skessuhorn - 13.10.2004, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 13. OKTOBER 2004
15
Háspenna í Ðorgarnesi
Naumt tap í
Grindavík
Stuðningsmenn Skallagríms
fengu peninganna virði og vel
það þegar þeir mættu til að
hvetja sína menn í fyrsta leik
Skallanna í úrvalsdeildinni eftir
ársdvöl í þeirri fyrstu. Skalla-
grímur tók á móti nýbökuðum
Reykjavíkurmeisturum ÍR á
fimmtudag og Ijóst frá upphafi
að þar yrði baráttuleikur. Sú
varð líka raunin og úrslitin réð-
ust ekki fyrr en í framlengingu
en þá náðu heimamenn að
knýja fram sigur, 103 -100.
Skallagrímur byrjaði mun
betur og leiddi lengi framan af.
Staðan í leikhléi var 45 - 38 en
mest fór munurinn í 14 stig. í
síðasta leikhluta
komust ÍR-ingar
yfir og náðu af-
gerandi forystu á
tímabili og allt út-
lit fyrir að þeir ætl-
uðu að stela
sigrinum. Það var
hinsvegar Hafþór
Gunnarsson sem
tók þá málin í sín-
ar hendur, setti
niður nokkrar vel valdar körfur í
blálokin og náði síðan að jafna
nokkrum sekúndum fyrir leiks-
lok.
í framlengingunni gerðu
Skallarnir ekki mörg mistök og
uppskáru sætan sigur.
Hafþór var bestur af nokk-
uð jöfnu og góðu liði Skalla-
gríms. Þá var Clifton Cook
mjög góður og sömuleiðis
Jovan Zdravevski sem virðist
mikill happafengur. Derbrell
Brown, þriðji erlendi leikmað-
urinn olli hinsvegar nokkrum
vonbrigðum. Hann hefur að
vísu stærðina sem vantar svo
sárlega í liðið en hann hafði
Tölurnar - Skallagrímur
NrNafn Mín HF STOSTIG
5 Clifton Cook 33 7 7 22
6 Ari Gunnarsson 13 2 1 0
7 Þálmi Þ Sævarsson 19 1 1 9
8 Finnur Jónsson 2 0 0 0
9 Hafþór 1 Gunnarsson 36 1 7 23
11 Jón Þ Jónasson 5 1 0 0
12 Ragnar N Steinsson 22 5 3 8
13 Kerbrell Brown 30 11 1 9
14 Jovan Zdravevski 36 4 5 18
15 Egill Ö Egilsson 29 3 1 14
Lokahóf meistara-
flokks kvenna í ÍA
Meistaraflokkur kvenna hélt
lokahóf í samvinnu við Meist-
araflokk karla að Jaðarsbökk-
um sl. föstudagskvöld. Veislu-
gestir voru um 200 talsins og
glatt á hjalla þegar knatt-
spyrnufólk hélt upp á ágætan
árangur sumarsins. Kvöldið
hófst með fordrykk, síðan var
tvíréttaður matseðill sem
veisluþjónustan Fortuna sá
um. Haldnar voru langar og
stuttar ræður, sýnd skemmti-
atriði og veittar margar viður-
kenningar. Þetta kvöld var
skemmtilegur endir á frábæru
sumri hjá meistaraflokki
kvenna sem nú er kominn í
efstu deild. Fráfarandi þjálfari,
Sigurður Halldórsson, var
kvaddur með virktum. Á þessu
nýafstaðna tímabili var marka-
hæsta knattspyrnukonan Ás-
laug Ragna Ákadóttir, efnileg-
ust var valin Helga Sjöfn Jó-
hannesdóttir og best að dómi
leikmanna var valin Magnea
Guðlaugsdóttir. Það skemmti-
lega var að maðurinn hennar
Stefán Þórðarson var valinn
bestur í Meistaraflokki karla.
Búið er að ráða þjáfara fyrir
meistaraflokk kvenna næsta
tímabil. Fyrir valinu var Skaga-
maðurinn Jóhannes Guð-
laugsson. Bæði stjórn og leik-
menn eru mjög ánægð með
ráðninguna og er menn á-
kveðnir í að halda áfram að
starfa vel bæði innan vallar
sem og utan hans.
2. flokkur kvenna hélt sína
uppskeruhátíð 1. október að
Heiðarborg. Þar skemmtu leik-
menn sér við óhefðbundnar
sem hefðbundnar íþróttir og
margs konar skemmtiatriði
voru á boðstólnum ásamt grill-
uðu svínakjöti og meðlæti. (2.-
flokki var Hallbera Jóhannes-
dóttir markahæst, efnilegust
var valin Karitas Elvarsdóttir
og best að mati leikmanna var
Hallbera Jóhannesdóttir. 2.
flokkur varð í öðru sæti í bik-
arnum. Nýr þjálfari fyrir 2. og
3.flokk kvenna er Berglind
Þráinsdóttir, en hún var liðs-
stjóri hjá Meistaraflokki
kvenna síðastliðið sumar. Mik-
il ánægja er með með ráðn-
ingu hennar. MM
www.versla.is ÖerslP
Einfalt og þægilegt
RAFMAGNS
HLAUPAHJÓL
meö handgjöf og
handbremsu
Fyrir 75 kg. 12 km/t
Fyrir 90 kg. 14 km/t
Margir litir
Meö og án sætis
- nánar á netinu
ekki mikið meira
fram að færi í
þessum fyrsta
leik.
Að lokum má
nefna Egil Örn Eg-
ilsson, hina smáu
en knáu stór-
skyttu en hann
virðist getað skor-
að hvaðan sem er
af vellinum þegar
hann er í stuði.
GE
Jovan Zdravevski, hinn makedónski, lofar góðu.
Sigurður Þorvalds-
son átti stórleik í
Grindavík og skor-
aði 23 stig.
Snæfellingar
þurftu að byrja á
að ráðast á garð-
inn þar sem hann
var hvar hæstur
er deildarmeist-
ararnir hófu titilvörn sína á ís-
landsmótinu í körfuknattleik
með því að sækja Grindvík-
ingana heim. Heimenn unnu
sigur í spennandi leik, 90 -
80. Grindvíkingar voru yfir
mest allan tímann og leiddu í
leikhléi 51-24 en samt réðust
úrslitin ekki fyrir en í lok síð-
asta leikhluta.
GE
ERSL
Við sendum frítt
heim að dyrum
VISA
www.versla.is
Vinnur UMSB
Æskusundið?
Laugardaginn 16. október fer
fram í sundlauginni f Borgarnesi
sundkeppni milli Borgfirðinga,
Snæfellinga, Húnvetninga og
Skagfirðinga í aldursflokkum 14
ára og yngri. Slík keppni hefur
farið fram i rúm 20 ár og nefnist
Æskusund. Þar er keppt f 24
einstaklingsgreinum og 6 boð-
sundum í aldursflokkunum 13-
14 ára, 11-12 ára og 10 ára og
yngri. Lið UMSB var sigursælt
fyrstu árin en Skagfirðingar,
UMSS, hafa unnið undanfarin
ár. Á siðasta ári fórkeppnin fram
i Stykkishólmi og munaði aðeins
16 stigum á UMSS og UMSB.
Að sögn Ingimundar Ingimund-
arsonar þjálfara UMSB er lið
heimamanna sterkara en oft
áður og stefnt er að þvi að reyna
að rjúfa sigurgöngu Skagfirðing-
anna. Keppt er i útisundlauginni
og hefst keppnin kl. 13.00.
GE
Góður sigur
áVal
Snæfell sótti Valsmenn heim í
fyrstu umferð Hópbílaþikarsins
í körfuknattleik og unnu deild-
armeistararnir frá í fyrra sann-
færandi sigur, 99 - 70.
Desmond Þeþles átti stórleik í
liði Snæfells og skoraði 32 stig.
Ingvaldur Hafsteinsson skoraði
18 og Þierre Green 14.
Snæfellingar fá Valsmenn í
heimsókn á fimmtudag i seinni
leikinn í þessari viðureign og
hefst leikurinn kl. 19.15. Óhætt
er að segja að Snæfellingar
standi vel að vígi og eru komn-
ir með annan fótinn í næstu
umferð. GE
Tölurnar - Snæfell-Hamar
Nr Nafn Mín HF STOSTIG
4 Hlynur E Bæringsson 34 22 2 19
5 Ingvaldur M Hafstein 23 2 1 2
6 Bjarne Ó Nielsen 13 1 0 1
7 Gunnar M Gestsson 3 1 1 0
8 Þálmi F Sigurgeirsson 35 9 6 15
11 Sigurður Á Þorvaldss. 34 8 6 23
12 Fierre Green 26 2 1 9
14 Desmond Peoples 32 2 3 11