Skessuhorn - 11.05.2005, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 11. MAÍ 2005
9
Ungu strákamir
þurfa tíma til að
sanna sig
segir Jón Gunnlaugsson
sparkspekingur Akraness númer eitt
„Eg veit satt besta að segja ekki
hvernig sumarið leggst í mig. Eg
er ekki sérstaklega bjartsýnn ef ég
á að segja alveg eins og er,“ segir
Jón Gunnlaugsson fyrrverandi
leikmaður IA. Jón hefur fylgst bet-
ur en flestir aðrir með gengi IA
síðustu áratugina og meðal annars
haldið utan um ítarlega tölfræði
um liðið og leikmenn þess sem
Skessuhorn hefur meðal annars
notið góðs af.
„Mér fannst í fyrra að við ættum
alla möguleika á að gera góða hluti
og við vorum á köflum með besta
liðið. Okkur hefur hinsvegar
gengið djöfullega að skora undan-
farin ár miðað við það sem við
þekktum fyrir tíu árum síðan. Með-
an þessi þáttur er ekki í lagi þá seg-
ir það sig sjálft að það er erfitt að
vera á toppnum. Síðan höfum við
misst mikið af góðum og leik-
reyndum mönnum sem voru burð-
arstólpar í fyrra. Það munar um
menn eins og Grétar Raíh, Stefán
Þórðar og Harald Ingólfs. Þótt
Haddi hafi kannski ekki verið eins
góður í fyrra og við þekktum hann
áður en hann fór út þá munaði
mikið um hans reynslu.“
Jón segir hinsvegar að ljósa hlið-
in sé sú að margir ungir og efni-
legir strákar séu að byrja að sanna
sig og framtíðin sé því björt. „Eg
kvíði ekki framtíðinni en ég býst
frekar við að það verði svona milli-
bilsástand í sumar. Mér finnst
þessir ungu strákar lofa góðu en
þeir þurfa bara sinn tíma. Það eru
mjög efnilegir guttar að koma upp
úr 2. flokknum eins og Jón Vil-
helm Akason og Andri Júlíusson.
Strákar sem hafa töluvert spilað í
vor og spjarað sig mjög vel. Haf-
þór Vilhjálmsson mætti líka nefha
og fleiri sem eiga framtíðina fyrir
sér. Það er ljóst að það kemur til
með að mæða mikið á „gömlu“
jöxlunum en vonandi ná þessir
ungu að blómstra á réttum tíma.
Vonandi er ég óþarflega svartsýnn
þegar ég spái okkur 4.-5. sæti en
það góða er að allt getur gerst líkt
og 2001 þegar enginn átti von á
miklu. Þá vorum við með ungt og
óreynt lið sem gaf öllum speking-
um langt nef og vonandi endur-
tekur sagan sig núna,“ segir Jón.
Þarf að „búa til“
nýja Skagamenn
segir Olafur Þórðarson þjálfari mfl karla
Ólafur Þórðarson þjálfari IA
hefur úr óvenju stórum hóp að
velja að þessu sinni en 25 leikmenn
hafa æft og spilað í vorleikjunum.
Þess ber hinsvegar að geta að þar á
meðal eru sex strákar sem verða
með 2. flokki í sumar og segir
Ólafur að hugsanlega fari ein-
hverjir niður aftur. „Þessir ungu
strákar hafa verið að standa sig vel
og hugsanlega eru þeifi tilbúnir til
að takast á við úrvalsdeildina. Það
kemur líka til greina að skipta ann-
ars flokks strákunum eitthvað út til
að gefa fleirum tækifæri en þessir
sem hafa verið með okkur núna
eru mjög heitir."
Aðspurður segir Ólafur að ungu
leikmennirnir séu vissulega
óþreyjufullir að fá sín tækifæri en
geri sér samt grein fyrir að hlut-
irnir taki tíma. „Við ætlum að gefa
ungu strákunum séns, það er ljóst.
Bæði er það að við höfum ekki
peninga til að kaupa þá leikmenn
sem við viljum. Líka það að ég vil
hafa sem flesta Skagamenn í liðinu
en til þess að það sé hægt þá þarf
ég að búa þá til. Það tekur tíma og
auðvitað eru þessir ungu strákar
óþolinmóðir en þetta eru skyn-
samir strákar og gera sér grein fyr-
ir að það er hægara sagt en gert að
komast í meistrarflokkinn hjá einu
besta liði landsins.“
FH og KR í sérklassa
Sem fyrr segir eru sex strákar úr
2. flokki í hópnum sem stendur og
auk þess nokkrir sem eru nýkomn-
ir upp úr 2. flokki. Burðarásarnir
eru hinsvegar leikmenn sem hafa
upplifað að hampa Islandsmeist-
aratitli, leikmenn á borð við Pálma
Haraldsson, Gunnlaug Jónsson,
Reyni Leósson og Kára Stein
Reynisson. „Þetta er hópur sem er
tilbúinn í toppbaráttuna, það er al-
veg ljóst. Okkur gekk ágætlega í
deildarbikarleikjunum en sú
keppni gefur samt ekki alltaf rétta
mynd af hlutunum. Liðin eru að
prufa hitt og þetta og flest liðin
styrkja sig eftir Deildarbikarinn
þegar menn sjá að þeir eru ekki að
koma nógu vel út,“ segir Ólafur.
Aðspurður um styrkleika ann-
arra liða í deildinni segir Ólafur að
KR-ingar verði mjög sterkir og
einnig FH-ingar. „Þetta eru lið
sem eru búin að bæta við sig mjög
sterkum leikmönnum og ættu að
vera í aðeins betri klassa en hin. Eg
er hinsvegar ekki viss um að allir
spádómar gangi eftir. Eg myndi
allavega ekki veðja á að Eyjamenn
fari niður. Þeir búa við svipaðar
aðstæður og við og hafa haft sama
hugarfar eins og við fljótum oft á,
að gefa allt sitt í leikinn. Það eru
ekki endilega alltaf bestu leik-
mennirnir í svoleiðis liðum heldur
vinnuþjarkar sem eru tilbúnir í að
hafa fyrir hlutunum,“ segir Ólafur
að lokum.
STILLHOLTI 16-18 • AKRANESI • SÍMI 431-3333
SAMSUNG ER FRAMÚRSKARANDI - NJÓTTU ÞESS HEIMA HJÁ ÞÉRl
TILBOÐSDAGAR Á SAMSUNG
SAMSUNG LW20M24C- LCD SJÓNVARP
SAMSUNG LE32A41 - LCD SJÓNVARP
SAMSUNG PS42V4- PLASMA SJÓNVARP
VIDEO OG DVD SPILARI
SAMSUNGSVDVD440
MP3 SPILARI
SAMSUNG LW17M24C- LCD SJÓNVARP
SAMSUNG LE26A41- LCD SJÓNVARP
1.000 kr.
inneign
á tonlist.is
fylgir öllum
SAMSUNG
MP3
spilurum
42" - 249.900 kr.
20" - 79.900 kr.
17"-69.900 kr.
26"- 149.900 kr.
32"- 199.900 kr.
19.990 kr.
16.990 kr.
14.990 kr.