Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2006, Blaðsíða 3

Skessuhorn - 04.01.2006, Blaðsíða 3
 MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 2006 3 Met í íjölda fæðinga á SHA síðan 1973 fallið 227 börn fæddust á fæðingadeild Sjúkrahúss Akraness á nýliðnu ári, 127 sveinbörn og 100 meybörn. Þar með er fæðingamet síðan árið 1973 fallið en þá fæddust 226 börn á deildinni. Þess má geta að samkvæmt bráða- birgðatölum Hagstofunn- ar um mannfjöldaaukn- ingu á Vesturlandi þá hef- ur Vesdendingum fjölgað um rúm 3% á þessu ári. En konur sem velja að fæða börn sín á Akranesi koma ekki endilega af Akranesi. Um 20% fæð- inga eru hjá konum sem eiga búsetu utan Vestur- landskjördæmis. Hróður fæðingadeildar SHA hefur spurst út og færist í vöxt að konur velji að njóta at- lætis á nýlegri deild með úrvali af reyndu starfsfólki og aðstæðum sem vart gerast betri. Anna Björnsdóttir, deildarstjóri fæðinga- deildar SHA segir margt hafa breyst síðan árið 1973 þegar fýrra fæðinga- met var sett. Hún segir að árið 1973 hafi verið algjör bomba, aukning um 30% í fæðing- um ffá því árinu á undan. A þessum tíma voru tæplega helmingi færri ljósmæður starfandi á deildinni en eru í dag og stóðu þær bakvaktir til skiptis. Þó fæðingar hafi aldrei verið fleiri á Sjúkrahúsi Akraness þá hef- ur keisaraskurðum fækkað um 6% ef borið er saman við árið 2004 sem telst góður árangur og segir Anna ástæðu þess vera að mestu leyti góð aðhlynning og aðstaða á meðan á meðgöngu og fæðingu stendur. Nýja fæðingadeildin algjör bylting Ný fæðingadeild Sjúkrahúss Akraness var tekin í notkun 30. apríl 2004. Starfsfólk deildarinnar segir nýju aðstöðuna vera algjöra byltingu. I stað einnar fjögurra manna stofu eru nú fjórar tveggja manna stofur, einbýli og svíta og hafa allar legukonur eigin salernis- og snyrtiaðstöðu. Fæðingastofurn- ar eru nú tvær. A deildinni er heit- ur pottur, herbergi er fýrir óm- skoðun og eftirlit auk bið- herbergis. A deildinni eru starfandi tveir læknar, 10 ljósmæður í 6,7 stöðugild- um auk sjúkraliða. Asamt kvensjúkdómadeild sinnir fæðingadeildin öllu sem viðkemur meðgöngu, fæð- ingu og sængurlegu. Þess að auki sinnir deildin allri almennri göngudeildar- þjónustu þar sem verðandi og nýorðnar mæður get leitað aðstoðar með allt sem tengist meðgöngu, fæðingar og umönnunar- ferlinu, hvort sem það telst líkamlegt eða andlegt. Notkun á þessarri þjónustu hefur aukist síðasta ár um 20%. „Ríflega 20% þeirra sem hér fæða koma af höfuð- borgarsvæðinu og er það auðvitað mjög jákvætt fýrir okkur. Við viljum að allt gangi fyrir sig hér á sem náttúrulegastan hátt. Við höfum nýjan heitan pott sem er mikið nýttur, þá fyrir verkjastill- ingu í vatni, og hefur hann nýst mjög vel. I raun mega konur fæða allsstaðar á landinu, sama hvar þær hafa sótt meðgönguþjónustu fyrr á meðgöngunni," bætir Anna við. BG Akranes verði lykilembætti í stað Borgamess Embætti lögreglustjórans á Akranesi verður lykilembætti en ekki embættið í Borgarnesi eins og tillögur höfðu verið gerðar um. Þá mun lögreglan í Búðardal flytjast undir embættið í Borgarnesi. Þetta kom fram í tillögum sem Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í morg- un. Sem kunnugt er lagði nefnd um nýskipan lögreglumála það til í haust að embætti lögreglustjórans í Borgarnesi yrði svokallað lykilembætti. Jafnframt yrði stofn- uð þar rannsóknardeild en rann- sóknardeild sem starfað hefur um áratuga skeið á Akranesi yrði jafn- framt lögð niður. Eins og fram kom í fréttum Skessuhorns féllu tillögur þessar í grýttan jarðveg hjá sýslumanninum á Akranesi og einnig tók bæjarstjórn Akraness undir gagnrýni sýslumannsins. Að loknum kynningarfundum nefnd- arinnar lagði hún til við dóms- málaráðherra að embættið á Akra- nesi yrði lykilembætti í stað Borg- arness og hefur hann því fallist á þá tillögu. I upphaflegum tillögum nefhd- arinnar var gert einnig gert ráð fýrir því að lögreglustjórn í Búðar- dal og Hólmavík færðist undir embættið í Borgarnesi svo og lög- gæsla í Reykhólahreppi. Nefndin féll síðar frá þessari tillögu sinni og nú leggur dómsmálaráðherra Bjöm Bjamason, dómsmálaráðherra til að Hólmavík og Reykhóla- hreppur falli undir embættið á Isa- firði en Búðardalur falli undir embættið í Borgarnesi eins og áður var lagt til. I Stykkishómi verður áfram embætti lögreglu- stjóra. Þá er einnig lagt til að lítil sýslu- mannsembætti verði efld með flutningi verkefna og starfa frá ráðuneytum og stofnunum til embættanna og þegar hafi verið lögð drög að slíkum flumingi. Má þar nefna flutning innheimmmið- stöðvar sekta og sakarkosmaðar til Blönduóss. I fréttatilkynningu frá dóms- málaráðuneytinu kemur fram að frumvarp til breytinga á lögreglu- lögum verði lagt fram á vorþingi. HJ Þrettándabrenna á Seleyri •200® Þrettándabrenna verður á Seleyri föstudaginn 6. janúar kl. 20.00 Það eru Borgarbyggð, Njarðtak, Sparisjóður Mýrasýslu og Björgunarsveitin Brák sem standa fyrir brennu og flugeldasýningu á þrettándakvöld. - Fjölmennum og fögnum saman nýju ári!

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.