Skessuhorn - 04.01.2006, Blaðsíða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 2006
SBESSlíiiöEKI
Friðsæl áramót
SNÆFELLSNES: Ekkert mál
kom til kasta lögreglunnar á
Snæfellsnesi um áramótin að
sögn Olafs Guðmundssonar,
yfirlögregluþjóns á Snæfells-
nesi. Hann sagði töluverða um-
ferð hafa verið við brennur á
svæðinu og mikil aðsókn hefði
verið á dansleikjum á nýársnótt.
Veður hefði verið með besta
móti og fólk hafi því trúlega
verið í ennþá betra skapi en
venjulega. -hj
Best rekna
stofhunin
AKRANES: Bæjarráð Akraness
veitir árlega viðurkenningu til
þeirrar stofnunar bæjarins sem
best hefur staðið sig í rekstri og
nýbreytni í starfi. A fundi bæj-
arráðs skömmu fyrir jól var
samþykkt að veita Grundaskóla
þessa viðurkenningu árið 2005.
„Rekstur Grundaskóla hefur á
undanförnum árum verið í
samræmi við fjárhagsáætlun og
verið til fýrirmyndar í þeim
efhum. Auk þess hefur Grunda-
skóli staðið vel að faglegu starfi
og nýbreytni og hlaut m.a. Is-
lensku menntaverðlaunin fyrr á
árinu. Af því tilefni samþykkir
bæjarráð að veita Grundaskóla
viðurkenningu að fjárhæð kr.
500.000,- til kaupa á tækjum og
áhöldum eða annarra skil-
greindra verkefna," segir í frétt
ffá Akraneskaupstað.
-mm
Lýst upp fyrir
Loftorku
BORGARNES: Svæðisstjóri
Vegagerðarinnar á Vesturlandi
hefur fallist á að Borgarbyggð
setji upp lýsingu frá gatnamót-
um Sólbakka upp fýrir inn-
keyrslu að athafnasvæði
Loftorku. Vegagerðin mun
endurgreiða sveitarfélaginu
kostnað við framkvæmdir þegar
fjárvæitingar fást til verksins.
-hj
Samið um upp-
byggingu í Sæl-
ingsdalstungu
DALIR: Hreppsnefnd Dala-
byggðar og Nýsir hf. hafa gert
með sér samning um umfangs-
mikla uppbyggingu sumarhúsa-
byggðar í Sælingsdalstungu.
Samningurinn gerir ráð fýrir að
Nýsir annist uppbyggingu
svæðisins en afhendi Dala-
byggð að uppbyggingu lokinni
vegi og önnur mannvirki til
rekstrar. Nýsir mun meðal ann-
ars sjá um lagningu nýrrar
vatnslagnar frá Svínadal að
sumarhúsabyggðinni og Laug-
um. Gert er ráð fýrir að fram-
kvæmdir hefjist á næsta ári og
þeim verði lokið árið 2010.
Samkvæmt deiliskipulagi er
gert ráð fýrir byggingu 57 sum-
arhúsa á svæðinu og einnig er
ákvæði í samningnum um
byggingu golfvallar á svæðinu.
-hj
Guðmimdur Páll riddari
íslensku fálkaorðunnar
Forseti íslands veitti á nýársdag
Guðmundi Páli Olafssyni, nátt-
úrufræðingi í Stykkishólmi, ridd-
arakross hinnar íslensku fálkaorðu
fýrir ritstörf í þágu náttúruvernd-
ar. Veitti Guðmundur orðunni
viðtöku á Bessastöðum.
Guðmundur Páll er fæddur árið
1941 á Húsavík. Störf hans þarf
vart að kynna lesendum Skessu-
horns en meðal bóka sem hann
hefur gefið út á undanförnum
arum má nefna Perlur í náttúru ís-
lands, Ströndin í náttúru íslands,
Um víðerni Snæfells, Hálendið í
náttúru íslands og Fuglar í náttúru
íslands.
Guðmundur Páll hefur hlotið
margvíslegar viðurkenningar fýrir
störf sín. Hann er giftur Ingunni
K. Jakobsdóttur kennara og dætur
hans eru Blær, Ingibjörg Snædal
og Halla Brynhildur.
HJ
Fjölgun íbúa á Snæfellsnesi
sérstaklega ánægjuleg
Kristinn Jónasson bæjarstjóri
Snæfellsbæjar segir fjölgun íbúa á
Vesturlandi á síðasta ári afar
ánægjulega og sérstaklega þá fjölg-
un sem varð á Snæfellsnesi. Eins
og fram kemur í frétt Skessuhorns
í dag fjölgaði íbúum á Vesturlandi
á milli ára um 445 og íbúum Snæ-
fellsbæjar fjölgaði um 29. Kristinn
segir þessa fjölgun rökrétt fram-
hald af því sem gerst hefur á svæð-
inu á undanförnum árum. I því
sambandi nefnir hann stofnun
Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
„Stofnun skólans hefur gert það að
verkum að fjölskyldum er gert
auðveldara að búa hér áfram þegar
börn komast á framhaldsskólaald-
ur. I upphafi var gert ráð fýrir að
nemendur í skólanum yrðu 170
haustið 2006 og þá yrði hann full-
setinn. I dag eru 235 nemendur í
dagskóla,“ segir Kristinn.
Þá nefnir Kristinn öflugt at-
vinnulíf sem eina ástæðu fjölgunar
íbúa. „Atvinnulíf í Snæfellsbæ er
mjög öflugt og það er frumfor-
senda þess að fólk vilji búa á svæð-
inu. Þá má heldur ekki gleyma því
að samgöngur eru alltaf að verða
betri og betri. Sá þáttur í búsetu er
mjög mikilvægur en því miður oft
vanmetinn. Nútíminn krefst þess
að samgöngur séu greiðar og fólk
eigi auðvelt með að koma á milli
svæða og hægt sé að treysta á vega-
kerfið þegar veður leyfir. Auk þess
hefur Snæfellsbær lagt ríka áherslu
Kristinn Jónasson, bœjarsljóri
í Snœfellsbœ.
á að sú þjónusta sem sveitarfélagið
býður upp á sé eins og hún gerist
best þó alltaf megi gera betur,“
segir Kristinn að lokum. HJ
Leikskólagjöld lækka
í Dalabyggð
Sveitarstjórn Dalabyggðar hefur
samþykkt að lækka leikskólagjöld
við leikskólann Vinabæ um 24% frá
1. janúar 2006. Að sögn Haraldar
L. Haraldssonar sveitarstjóra er hér
um að ræða mikla kjarabót fýrir
bamafjölskyldur. ,JVIeð þessu er
sveitarstjóm að fýlgja eftir stefnu
sinni um að bæta búsetuskilyrðin í
sveitarfélaginu. Jafhffamt býður
sveitarfélagið áfram upp á ffían
akstur fýrir leikskólabörn úr dreif-
býlinu, heiman og heim úr leikskól-
anum,“ segir hann.
Eins og áður hefur komið ffam í
fféttum Skessuhoms hefur að und-
anfömu verið unnið að undirbún-
ingi byggingar nýs leikskóla í Búð-
ardal. Að sögn Haraldar standa nú
yfir viðræður við Félagsmálaráðu-
neytið um mótffamlag vegna bygg-
ingarinnar og er þar um að ræða
allt að 50% framlag af kosmaði við
bygginguna. Kostnaðaráætlun
hljóðar upp á um kr. 60 milljónir.
Framlagið úr Jöfnunarsjóði er háð
sameiningu sveitarfélaga. Haraldur
segir sveitarstjórn stefna að því,
verði farið í byggingu nýs leikskóla,
að það verði gert án lántöku. Jafn-
framt sé stefnt að því að vinna hratt
að málinu með hliðsjón af húsnæð-
isvanda leikskólans. HJ
Nýr sérleyfishafi tekur við
Vesturlandi
Hópferðamiðstöðin - Vest-
fjarðaleið í Reykjavík tók um ára-
mótin við sérleyfisakstri milli
Reykjavíkur og helstu staða á Vest-
urlandi. Lauk þar með nærfellt
hálfrar aldar sérleyfisakstri Sæ-
mundar Sigmundssonar á þessari
leið.
Alls mun Hópferðamiðstöðin
fara 9 ferðir á viku milli Snæfells-
ness og Reykjavíkur og em tvær
ferðir á föstudögum og sunnudög-
um. Farið er frá Hellissandi kl.
7.40 og Stykkishólmi kl. 8.10. Far-
ið er úr Reykjavík kl. 18.30 og hafa
því íbúar á Snæfellsnesi möguleika
á að ferðast fram og til baka sama
daginn sem kemur sér vel fýrir þá
sem reka þurfa stutt erindi á höf-
uðborgarsvæðinu.
Milli Borgarness og Reykjavíkur
verða þrjár ferðir alla daga. Fyrsta
ferð er úr Reykjavík kl. 8.30 og
fýrsta ferð úr Borgarnesi kl. 9.45.
Fimm ferðir verða vikulega frá
Reykjavík til Búðardals og þaðan
em síðan tvær ferðir í viku til
Króksfjarðarness og Reykhóla.
Einnig era tvær ferðir í viku í
Reykholt í Borgarfirði.
Að sögn Jóns Gunnars Borg-
þórssonar framkvæmdastjóra fýrir-
tækisins er með áætlunini reynt að
höfða til og þjóna hagsmunum
sem flestra íbúa á Vesturlandi.
Hann nefnir sérstaklega þá ný-
breytni sem felst í áætlun á Snæ-
fellsnes því þar sé reynt að koma
til móts við fjölmargar óskir um að
hægt verði að komast til og ffá
höfuðborginni samdægurs. Hann
segir starfsmenn fyrirtækisins
munu leggja sig alla ffam um að
veita eins mikla þjónustu og
mögulegt er eins og ávallt hafi ver-
ið keppikeflið í áratuga rekstri fýr-
irtækisins.
Nánari upplýsingar um sérleyfis-
ferðirnar má finna á heimasíðu fýr-
irtækisins www.hopferd.is/isl/-
Vestur06vetur.htm. HJ
lvo
fíkniefhamál
BORGARNES. Tvö fíkni-
efhamál komu upp í Borgarnesi
um helgina. Á föstudagskvöld
var biffeið stöðvuð sem í vora
fjögur ungmenni. Kösmðu þau
úr bílnum efni sem reyndist
vera kannabisefni. Ungmennin
vora handtekin og vora í haldi
lögreglu þar til málið taldist
upplýst. Að morgni nýársdags
þurfti lögreglan að hafa afskipti
af manni. Við athugun kom í
ljós að hann hafði undir hönd-
um kannabisefni. Að lokinni yf-
irheyrslu var hann látinn laus.
Að sögu Theodórs Þórðarsonar
yfirlögregluþjóns fór skemmt-
anahald um áramót mjög vel
fram og kom ekki til afskipta
lögreglu vegna skemmtana-
haldsins. -hj
Tveir bílar
eyðilögust í bíl-
veltum á Nesinu
SNÆFELLSNES: Tvö um-
ferðaróhöpp urðu á Snæfells-
nesi liðinn miðvikudag. Fyrra
slysið varð í þjóðgarðinum um
klukkan eitt þegar kona missti
stjórn á bifreið sinni sem fór
eina veltu. Vegna lélegs síma-
sambands á þessum kafla varð
hún að bíða í tæpa tvo tíma eft-
ir næsta bíl. Meiðsli hennar
reyndust minniháttar við skoð-
un, enda var hún í bílbelti.
Seinni bílveltan varð um fimm-
leytið við Enni, utan Olafsvík.
Veður var slæmt og mjög hált.
Maður missti stjórn á jeppabif-
reið sinni í einni vindhviðunni
og fór tvær til þrjár veltur. Bíl-
stjórinn slasaðist ekki enda not-
aði hann einnig bílbelti.
-mm
Eigendaskipti að
bæjarblaði
STYKKISHÓLMUR. Nú um
áramótin urðu eigendaskipti að
Stykkishólmspóstinum. Elín
Bergmann Kristinsdóttir hefur
nú selt og við tekur Anok marg-
miðlun ehf. sem er í eigu hjón-
anna Onnu Melsteð og Sigurð-
ar R Bjarnasonar. Þau munu
hafa aðsetur í Egilsenshúsi.
-mm
Róleg áramót
AKRANES: Áramótin vora ró-
leg hjá lögreglunni á Akranesi.
Utköll voru fá og engin slys af
völdttm flugelda svo vitað sé.
Mikið var af fólki á ferðinni á
gamlárskvöld að venju en allir í
besta skapi og hvergi kom til af-
skipta lögreglu þó víða væri
gleðskapur í heimahúsum ffarn
eftir nóttu. Tvær minniháttar
líkamsárásir vora þó kærðar til
lögreglu. í báðum tilfellum
hafði komið til riskinga á
skemmtistöðum bæjarins. Vik-
una áður var brotist inn í fjórar
bifreiðar í bæjarfélaginu. I
þremur tilfellanna var stolið
ffamhliðum af geislaspiluram.
-mm
WWW.SKESSUHORN.IS
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhorn kemur út alla mibvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1000 krónur með vsk. á mánuði en krónur 900
sé greitt með greiðslukorti. Verb í lausasölu er 300 kr.
SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-14 ALLA VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blabamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Fréttaritarar: Gísli Einarsson 899 4098 gisli@skessuhorn.is
Ófeigur Gestsson 892 4383 sf@simnet.is
Augl. og dreifing: Iris Arthúrsd. iris@skessuhorn.is
Umbrot: Gubrún Björk Friðriksd. 4371677 gudrun@skessuhorn.is