Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2006, Side 5

Skessuhorn - 04.01.2006, Side 5
§HéSSíUIS©ISí3 MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 2006 5 Hringur SH til heimahafhar á gamlársdag Hringur SH 153 leggur að bryggju. Hringur SH-153, sem Guð- mundur Rrmólfsson hf. keypti frá Skotlandi fyrir skömmu, kom í fyrsta skipti til heimahafnar í Grundarfirði að morgni gamlárs- dags. Eins og sagt var frá í frétt Skessuhorns fyrir nokkru fór skipið til Póllands í endurbætur og þaðan til Reykjavíkur þar sem gert var við María Guðmundsdóttir gaf skipinu nafr. lítilsháttar skemmdir sem urðu á skrúfu skipsins á heimsigl- ingunni. Skipið er smíðað 1999 og er 29 metrar að lengd og 9,5 metrar að breidd. Hinn nýi Hringur kemur í stað skips með sama nafn sem fyrirtækið hefur gert út undanfarin ár en verður nú lagt. Skipinu var fagnað með flug- eldasýningu við komuna til Grundarfjarðar. Þeg- ar það hafði lagst að bryggju flutti fram- kvæmdastjóri útgerðar- innar, Guðmundur Smári Guðmundsson ávarp. Að því loknu gaf María Guðmundsdóttir skipinu formlega nafn. Séra Elín- borg Sturludóttir blessaði skipið og áhöfii þess og árnaði því heilla. Skipstjóri á Hring er Ingimar Hin- rik Reynisson og heldur það til veiða strax eftir áramót. HJ/ Ljósm: Gaui Ella. Besta jóla- skreytingin að Leynisbraut 27 Orkuveita Reykjavíkur hefur að vanda valið bestu jólaskreytingar í bæjarfélögum á veitu- svæði OR fyrir raforku. Veittar voru viður- kenningar í Reykjavík, Akranesi, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnamesi og í Kópavogi. A Akranesi kom viðurkenningin í hlut eigenda Leynisbrautar 27, en þar búa Eygló Tómas- dóttir og Þorgils Sigurþórsson. Þóttu skreyt- ingar þeirra sérlega skemmtilegar og þar að auki að stómm hluta heimasmíðaðar. MM ÚTSALAN HEFST FIMMTUDAGINN 5. JANÚAR borgorsport hyrnutorgi - borgornesi - simi 437 1707 UTSALAN ER HAFIN! 20 - 70% AFSLÁTTUR KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI SÍMI431 1753 & 861 1599 www.skessuhom.is Starfsfólk íþróttamiðstöðvarinnar f Borgarnesi

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.