Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2006, Síða 7

Skessuhorn - 04.01.2006, Síða 7
glESSIÍIS©lSRI MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 2006 7 Útskriftprnemar á haustönn ásamt skólameistara og aðstoðarskólameistara. Ljósm: Myndsmiöjan. Akranesi. Utskrift frá Fjölbrautaskóla Vesturlands Brautskráning nemenda úr Fjöl- brautaskóla Vesturlands á Akranesi fór fram á sal skólans þann 21. des- ember sl. Alls voru 45 nemendur brautskráðir að þessu sinni. Einar Agúst Gylfason hlaut viðurkenn- ingur fyrir bestan árangur á stúd- entsprófi. Anna Þóra Jóhannsdótt- ir fékk viðurkennignu fyrir ágætan árangur í líffræði; Arni Gunnars- son fyrir ágætan árangur í efna- fræði og líffræði; Eiríkur Böðvar Rúnarsson fyrir ágætan árangur í dönsku; Gísli Laxdal Sturlaugsson fyrir ágætan árangur í eðlis- og efnafræði; Gunnar Þóroddsson fyrir ágætan árangur í verklegum greinum og Tinna Björg Kristins- dóttir hlaut viðurkenningu fyrir störf sín að forvarnamálum innan skólans. Hörður O Helgason skólameist- ari setti athöfnina sem að venju fór vel fram. Flutt voru tónlistaratriði fyrir og meðan á athöfninni stóð í samvinnu við Tónlistarskóla Akra- ness. Þar á meðal þá lék Kristín Sigurjónsdóttir jólalag á fiðlu við undirspil Bryndísar Bragadóttur á píanó. Þess má geta að Kristín var meðal þeirra sem brautskráðust og lauk hún námi sínu á stystum tíma, eða 5 önnum með stúdentspróf og tónlistarbraut skólans sem telst einkar góður árangur á þetta styttri tíma en gengur og gerist. BG s- Kristín Sigurjónsdóttir nýstúdent spilaSi á athöfninni Einar Agúst með bestan námsárangur Einar Ágúst Gylfason hlaut við- urkenningu fyrir bestan árangur á stúdentsprófi á haustönn 2005 við útskrift úr Fjölbrautaskóla Vestur- lands skömmu fyrir jól. Einar Agúst lýkur námi sínu á sjö önnum. Þegar Skessuhom náði tali af Einari var hann í þann mtmd að fara að undir- búa utanför, en útskriftarnemar héldu til Spánar þann 28. desember í útskriftarferð. Þar sem Einar býr í Borgarfirði dvaldi hann á heimavist FVA allar sjö annirnar. „Eg lagði mikið á mig fyrstu annirnar sem svo nýttist mér þegar leið á og því minnkaði álagið í náminu samhliða því,“ segir Einar um námið og ár- angurinn. Hann segist hafa góðar minningar úr PVA og segir skólann og flesta kennarana hafa komið þokka- lega til móts við sig á námsferlinum. En Einar segir að nám- ið muni fá að bíða nú um sinn. Hann stefnir á að vinna eftir áramótin og jafnvel eitthvað fram á næsta vetur. En áframhaldandi nám hérlendis er þó á dagskránni hjá þessum unga náms- manni og segir hann þá stefnuna jafhvel vera á verk- fræði. BG Einar Agúst Gylfason tekur viS viSurkenningu frá HerSi Helgasyni skólameistara. Brunavamaáætlun í Borgarfirði Nýverið rituðu íúlltrúar sveitar- félaganna Borgarfjarðarsveitar, Hvítársíðuhrepps og Skorradals- hrepps undir nýja brunavarnaáæd- un fyrir slökkvilið Borgarfjarðar- dala sem gildir næstu 5 árin. Mark- mið áædunarinnar er: „Að tryggja að slökkvilið sé þannig mannað, skipulagt, útbúið tækjum, menntað og þjálfað að það ráði við þau verk- eftii sem því er falið með lögum og reglugerðum settum samkvæmt þeim,“ eins og segir í 13. grein laga um brunavarnir. Að sögn Péturs Jónssonar, slökkviliðsstjóra eru nú að fara í gang viðræður um hvernig fyrirkomulagi slökkviliðsmála verð- ur fyrir komið á svæðinu í framtíð- inni m.t.t. þess að sveitarfélögin á starfssvæðinu eru flest að sameinast í vor. MM Frá vinstri er Ólafur GuSmundsson, oddviti HvítársíSuhrepps, Pétur Jónsson, slökkviliSsstjóri, Bjóm Karlsson, brunamálasljóri, Davt'S Pétursson, oddviti Skotradalshrepps og Sveinbjöm Eyjólfsson, oddviti BorgarfjarSarsveitar. Ljósm: PD

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.