Skessuhorn - 04.01.2006, Page 9
SlfflessiíHÖM
MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 2006
9
Hæstiréttur staðfesti for-
kaupsrétt að Stóra - Skógi
Hæstiréttur hefur staðfest dóm
Héraðsdóms Vesturlands þar sem
viðurkenndur er forkaupsréttur
Fjólu Benediktsdóttur að jörðinni
Stóra - Skógi í Dalabyggð á
grundvelli kaupsamnings Dala-
byggðar og Lífsvals ehf. á jörðinni
frá 16. ágúst 2004. Er Dalabyggð
gert að gefa út afsal fyrir jörðinni
gegn greiðslu kaupverðs að Ijár-
hæð 56 milljónir króna. Þá hafnar
dómurinn að Fjóla þurfi að upp-
fylla það skilyrði í kaupsamningn-
um að hefja mjólkurframleiðslu á
jörðinni og á samliggjandi jörð,
Skógskoti, og að ráðast í að reisa
fjós á jörðinni. Akvæði þess efnis
var í samningi milli Dalabyggðar
og Lífsvals ehf.
Forsaga málsins er sú að jörðin
Stóri-Skógur var um langt árabil í
Félagsleg
heimaþjónusta
hækkar
AKRANES: Bæjarráð Akraness
hefur samþykkt tillögu félags-
málaráðs um að hækka gjald-
skrá fyrir félagslega heimaþjón-
ustu. Gjald fyrir þjónustuna hjá
þeim sem greiða fullt gjald
verður framvegis 965 krónur og
afsláttargjald verður 392 krón-
ur. Um er að ræða tæplega 11 %
hækkun gjaldskrárinnar. Hún
breyttist síðast þann 3. mars
2005. Samkvæmt reglum um
félagslega heimaþjónustu skal
greiða gjald fyrir hana sem
nemur 45% af ákveðnum
launaflokki bæjarstarfsmanna.
Undanþegnir gjaldskyldu eru
þeir sem ekki hafa aðrar tekjur
en ellilífeyri, örorkulífeyri,
tekjutryggingu, heimilisuppbót
og sérstaka heimilisuppbót frá
Tryggingastofnun. Aðrir en
elli- og örorkulífeyrisþegar
greiða heimaþjónustu að fullu
nema félagsmálaráð ákveði
annað. -hj
Á ofsahraða
KJALARNES: Við umferðar-
eftirlit sl. fimmtudag stöðvaði
lögreglan á Akranesi för ungs
ökumanns eftir að hann hafði
verið mældur á 157 km/klst
hraða þar sem hámarkshraði er
90 km/klst. Atvikið átti sér stað
á Kjalarnesi og voru akstursað-
stæður fremur slæmar. Atvikið
var tekið upp á „Eye withness"
búnað og má ökumaðurinn
reikna með hárri fjársekt og
ökuleyfissviptingu.
-mm
Aldrei færri
banaslys
LANDIÐ: Árið 2005 létust 28
einstaklingur í slysum hér á
landi og 3 erlendis. Aldrei hafa
banaslysin verið jafn fá sam-
kvæmt skráningu Slysavarnafé-
lagsins Landsbjargar frá því að
byrjað var að skrá öll slys árið
1941. Árið 2005 urðu flest slys-
in í tengslum við umferðina
eins og svo oft áður, þar sem
létust 19 manns í 16 slysum.
Næstflest urðu slysin í flokkn-
um vinnuslys þar sem létust 4
einstaklingar sem er óvenju
mikið.
-mm
eigu Fjólu og annars einstaklings.
Með samningi í mars 2004 afréðu
þau að selja jörðina á 49,5 milljón-
ir króna. I samningnum var ákvæði
um forkaupsrétt eigenda jarðar-
innar Álfheima, sem er Fjóla,
kæmi til sölu Stóra - Skógs síðar.
Kaupendur Stóra - Skógs gerðu
jafnframt kaupsamning um jörðina
Skógskot að fjárhæð 29,5 milljónir
króna.
Á fundi sveitarstjórnar Dala-
byggðar þann 13. apríl var ákveðið
að neyta forkaupsréttar að jörðun-
um tveimur samkvæmt ákvæði
jarðalaga. Síðar gerði Dalabyggð
samning um sölu jarðanna til Lífs-
vals. Söluverð Stóra - Skógs var 56
milljónir króna og því til viðbótar
var heimilt að krefja kaupanda um
2,8 milljónir króna í fjármagns-
kostnað. Kaupverðið var stað-
greitt. I samningnum var svofellt
skilyrði: „Af hálfu Dalabyggðar er
sala jarðarinnar háð því skilyrði að
kaupandi, sem þegar annast starf-
semi á sviði landbúnaðar og mjólk-
urframleiðslu, hefji mjólkurfram-
leiðslu á jörðinni og á samliggjandi
jörð, Skógskoti, og að ráðist verði
í uppbyggingu fjóss á jörðinni með
þetta að markmiði. Gangi það ekki
eftir, og hafi kaupandi ekki lagt
ffam áætlun um nýrækt og teikn-
ingar að mannvirkjum, þ.m.t. fjós-
byggingu, fyrir 31. desember
2004, og hafi kaupandi ekki hafið
þar mjólkurframleiðslu, sem mið-
ast við 400.000 lítra mjólkur á ári
(350-420.000 lítra fjós), fyrir 31.
desember 2005, er sveitarstjórn
Dalabyggðar heimilt að fella kaup-
samning þennan út gildi einhliða.
Komi hins vegar upp atvik sem
kaupandi getur ekki ráðið við,
þannig að hann geti ekki hafið til-
greinda mjólkurframleiðslu innan
tímamarkanna, skal kaupandi eiga
rétt á að fresturinn framlengist
sem þeim nemur.“
Fyrir dómi krafðist Fjóla þess að
forkaupsréttur hennar yrði viður-
kenndur og einnig að ákvæði það í
samningi Dalabyggðar og Lífsvals
um mjólkurframleiðslu væri sér
óviðkomandi. Dalabyggð taldi að
ákvæði um forkaupsrétt hefðu ver-
ið virt en Fjóla hefði ekki staðið
skil á kaupverðinu í tíma og krafð-
ist því frávísunar. Til vara krafðist
Dalabyggð þess að ákvæði samn-
ingsins um mjólkurframleiðslu
gilti ef forkaupsréttur yrði nýttur.
Eins og áður sagði staðfesti
Hæstiréttur dóm Héraðsdóms
Vesturlands þar sem forkaupsrétt-
ur Fjólu var viðurkenndur og að
hún þyrfti ekki að uppfylla ákvæði
samningsins um mjólkurfram-
leiðslu. Var Dalabyggð og Lífsvali
gert að greiða málskostnað.
HJ
Obiliska reist á
aldarafinæli
vélbátaútgerðar?
í byrjun desember sendi Ingi
Hans Jónsson í Grundarfirði bæj-
arstjórn bréf þar sem hann minnir
á að á þessu ári verða 100 ár liðin
frá því vélbátaútgerð hófst í
Grundarfirði. Jafnframt kemur
hann með þá hugmynd að reist
yrði óbiliska í miðbæ Grundar-
fjarðar til minningar um þetta,
sem jafnframt yrði sú fyrsta sinnar
tegundar hér á landi. Ingi Hans
óskar eftir viðbrögðum bæjaryfir-
valda við hugmyndinni.
I bréfi sínu segir hann m.a:
„Engum blandast hugur um að
með vélbátaútgerð frá Grundar-
firði var lagður grunnur að því
samfélagi sem við lifum í hér í dag.
Af þessu tilefni er áleitin sú spurn-
ing hvort ekki sé ráð að reisa
frumherjum byggðarinnar mynd-
arlegan minnisvarða sem í senn er
bautasteinn þeirra og tákn fyrir
framsækið samfélag. Sú hugmynd
sem hér er reifuð er byggð á því að
reist verði óbiliska í miðbæ
Grundarfjarðar. Obiliskur eru
mikið sigurtákn og standa gjarnan
á fjölförnum stöðum í helstu borg-
um heims. Engin slík er á Islandi.
Gera má ráð fyrir að fjölmargir
myndu vilja leggja verkefninu lið í
formi framlaga. Obiliskan gæti
verið um 10 metra há, byggð úr
ryðfríu stáli og umhverfinu breytt
á þann hátt að súlan virðist brjót-
ast upp úr jörðinni." Erindi sínu
til stuðnings sendir Ingi Hans
meðfylgjandi mynd þar sem búið
er með aðstoð tölvutækninnar að
færa tillögu að óbilisku inn á
mynd. MM
www.skessuhorn.is
VEISLUÞJONUSTAN
í þorra!
Fyrirtæki, félagasamtök og einstaklingar!
Erum farnir að taka á móti pöntunum í
þorrahlaðborð.
Sendum í heimahús og sali á sunnanverðu
Vesturlandi.
Pantanir 1 síma : 431 3737
Netfang: fortuna@simnet.is
Umsjón með vörumóttöku og almenn afgreiðslustörf
Vinnutími: 8:00 - 18:00
Starfið er laust frá og með áramótum
Umsjón í kjötborði
Vinnutími 8:00 - 18:00
Starfið er laust frá og með áramótum
Nánari upplýsingar veitir verslunarstjóri á staðnum.
Reykjavíkur
Viðskiptavinir
athugið!
Frá áramótum hefur Orkuveita Reykjavíkur tekið við
rekstri fráveitna Reykjavíkur, Akraness, Borgarbyggðar
(Borgames, Bifröst og VarmaLand) og Borgarfjarðarsveitar
(Hvanneyri og Reykholt). Um leið og Orkuveita Reykjavíkur
býður nýja viðskiptavini velkomna, viljum við vekja
athygli á þjónustusímum Jýrírtækisins og afgreiðslutíma.
Gleðilegt ár!
StarfsfóLk Orkuveitu Reykjavikur
Skiptiborð 516 6000
Samband við allar deildir
frá kl. 8:20 til 16:15 virka daga.
Þjónustuver 516 6100
Opið frá kl. 8:20 til 16:15 virka daga.
Afgreiðsla Bæjarhálsi 1 opin 8:30 til 16:00.
Bilanavakt 516 6200 - Opið allan sólarhringinn.