Skessuhorn


Skessuhorn - 04.01.2006, Page 10

Skessuhorn - 04.01.2006, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 2006 ^sunu^. Kvöldstund með skáldi Þriðjudagskvöldið 13. desember sl. gengust Snorrastofa og Safnahús Borgar- fjarðar fyrir dagskrá um Stefán Jónsson skáld. Undirritaður var svo heppinn að taka kvöldið ffá. Stefán heillaði mig sem barn eins og svo marga aðra hér áður fyrr. Skáldsögur Stefáns voru lesnar fyrir okkur og af okkur í skólanum og eins heima. Sér- staklega var saga hans um Hjalta lida mörgum hugleikin. En víkjum að hinu ffábæra kvöldi sem við áttum, listamenn og áheyrendur, í Snorrastofu. I upphafi kynnti Bergur for- stöðumaður Snorrastofú dagskrá kvölds- ins og fór nokkrum orðum um lífshlaup Stefáns, en Stefán var Hvítsíðingur fædd- ur að Háafelli árið 1905. Vilborg Dag- bjartsdóttir sagði ffá skáldinu og kennar- anum Stefáni Jónssyni en þau kenndu saman við Austurbæjarskólann á annan tug ára. Erindi Vilborgar var skemmtilegt og pólitískt eins og skáldið var alla sína tíð. Þá komu þeir Bjarni á Hvanneyri, Þor- valdur í Brekkukoti og Snorri á Fossum og sungu lög við ljóð skáldsins sem þeir gerðu einstaklega vel. Síðasta atriði fyrir hlé var erindi Dagnýjar Kristjánsdóttur þar sem hún fjallaði um persónur í verkum Stefáns. Heimskringla, bauð í kaffi, jólaöl og ýmislegt góðgæti, sérlega vel til fallið. Takk fyrir Dagný. Silvía Aðalsteinsdóttir hóf dagskrána eftir hlé með yfirliti um skáldið og verk þess, þar sem hún dró ffam virðingu skáldsins með konum, börnum og þeim sem minna máttu sín. Aftur stigu þeir söngfélagar á svið og nú voru það Gutta- vísur og aftur fóru þremenningarnir á flug. Síðasti ræðumaður kvöldsins var Þorleifur Hauksson sem rýnt hefur í bréf og dag- bækur skáldsins. Var einkar skemmtilegt að hlýða á Þorleif lesa brot úr dagbókum Stefáns og ekki síður úr bréfum hans til fyrrum sveitunga í Hvítársíðu. Skemmtilegt og ógleymanlegt kvöld var á enda. Kærar þakkir til þeirra sem að stóðu og til þeirra listamanna sem komu ffam. Flemming jfessen DregiS í getrauninni. Silvta Llorens ogjóhanna HeiSur Gestsdóttir draga úr úrlausnum. Umferðargetraun á Akranesi Grunnskólabörn á Akranesi eins og annarsstaðar á landinu tóku þátt í umferðargetraun Umferðarstofu. Getraunin var ætluð börnum í fyrsta til fimmta bekk og var þátttaka mjög góð, en um 80% barnanna skiluðu inn úrlausnum. Lögreglan leitaði til fjölda fyrirtækja á Akranesi til að fjármagna kaup á verðlaunum og voru viðtökur framúrskarandi. Leiddi það til þess að hægt var að veita 50 bömum verðlaun fyrir réttar úrlausnir. Dregið var úr úrlausnum skömmu fyrir jól og keyrðu lögreglumenn verðlaunin til vinningshafa á Þorláksmessu og aðfangadag. MM Auglýst eftir stefnu Akraneskaupstaðar í öldurnarmálum Á þessu ári, 2005 em um 30 ár síð- an fyrsta stjóm Dvalarheimilisins Höfða var kosin. Til þess tíma hafði Byggingamefhd Höfða starfað allt ffá árinu 1971 og lokið fyrsta bygg- ingaráfanga Höfða sem í vom 32 einstaklingsíbúðir og 6 hjónaíbúðir eða íbúðarrými fyrir 44 vistmenn. A ámnum 1984-1986 vom byggðar 20 sjálfseignaríbúðir á lóð Höfða. Síðar, eða árið 1993 var síðan bætt við 7 sj álfseignaríbúðum.. Byggingar- og fjáröflunarnefnd fyrir II. áfanga Höfða var skipuð árið 1986. Efri hæð nýbyggingar var full- búin árið 1990 fyrir 24 íbúa. Árið 1992 var síðan lokið við þennan á- fanga. Byggingamefhdin sem kosin var og starfaði til ársins 1974 eins og áður er getið hafði gert ráð fyrir byggingu á 3. 4. og 5. áfanga sem yrðu nýjar vistdeildir, fjölbýlishús og raðhús sem nánar yrði ákveðið síðar. Nú fyrst eftir rúm 30 ár bólar á einum þessara áfanga, þ.e. bygging íbúða á lóð Höfða. Því miður að því er virðist úti á klettum. Túnið er frá- tekið fyrir fótboltann. Ekkert sér- stakt þjónusturými er nú á lóð Höfða fyrir íbúa rúmlega 30 einýlishúsa við Höfða og þá 37 vistmenn sem dvelja á dvalardeild Höfða. Samt sem áður er reynt að veita alla þá þjónusm sem mögulegt er í þröngu húsnæði sem annars mundi verða veitt í sérstakri byggingu þar sem boðið er upp á alls konar þjónustu fyrir aldraða, t.d. hárgreiðslu, fótsnyrtingu, póst- og bankaþjónsutu o.fl. Þá er víða að- staða til veisluhalda í þessum bygg- ingum fyrir afmælisveislur og spila- kvöld. Félög eldri borgara hafa venjulega þama aðstöðu sína og veita öldmð- um ýmsa ráðgjöf á ákveðnum tímum. Venjulega em veitingar keyptar af tilteknum stofnunum á svæðinu fyrir afmælisveislur og aðra fagnaði. Þessi þjónusta hefur allsstaðar mælst vel fyrir og er mikill sómi fyrir hvert sveitarfélag. Undirritaður hef komið á nokkra staði þar sem þessi starfsemi er með miklum blóma. Breytingar á vistrými Höfða Um einu ári eftir að efri hæð ný- byggingarinnar, þ.e. II. áfangi var fullbúinn var farið að huga að því að breyta tilteknum fjölda rýma í hjúkr- unarrými, m.a. vegna erfiðleika í rekstri stofnunarinnar. Ennfremur, eðli málsins samkvæmt, hækkaði ald- ur vistmanna og heilsa þeirra dapraðist. Árið 1992 fékkst heimild til að breyta 12 rýmum í hjúkrunarrými og árið 1995 öðrum 12 rýmum. Þá var 7 rýmum breytt árið 1998 og 8 rýmum var síðan breytt árið 1999. Síðan 1. mars 1999 hafa 39 hjúkrunarrými verið á Höfða en á síðasta ári fékkst heimild fyrir 2 rýmum til viðbótar. I dag eru því 41 hjúkrunarrými á Höfða og 37 dvalarrými. Þá er umhugsunarvert að biðlisti eftir vistun á dvalardeild hefur lengi verið lengri en biðlisti eftir vismn á sjúkradeild. Þrátt fyrir það virðist áhersla lögð á að fjölga rýmum á sjúkradeild með því að fækka rýmum á dvalardeild. Daggjöld aldraðra Það er skoðun undirritaðs að or- sökin fyrir þeirri ásókn í að fjölga hjúkrunarrýmum sé mismunur á greiðslum daggjalda en greiðsla fyrir hvern vistmann á dvalardeild er í dag um kr. 6.000 en fyrir hvem vistmann á sjúkradeild um kr. 13.000. Stærðir vistrýma Þær breytingar sem hér um ræðir hafa einnig valdið erfiðleikum. Hús- ið er byggt sem dvalarheimili en ekki sem hjúkrunarheimili og hefur íbúð- um verið breytt í sjúkrastofur. Þá em stærðir á sjúkrastofúm fyrir hvern vistmann langt undir því sem nú er gert ráð fyrir. Einstaklingsherbergi em aðeins 5 og em um 15 fermetrar að flatarmáli. Það em því um 36 af 41 sjúklingi sem býr með öðrum í herbergi. Flest herbergi á hjúkmnardeild Höfða, em eins og áður kemur ffam, tveggja manna herbergi og em köll- uð hjúkmnaríbúðir og em 27 fer- metrar að flatarmáli eða 13,5 ferm. á hvem vistmann. I dag er reiknað með að tveggja manna sjúkrastofur séu 34-36 fermetrar eða 17-19 ferm. á mann. Á hinu nýlega hjúkmnar- heimili Sóltúni era aðeins eins manns herbergi um 30 fermetrar en á þessu er mikill munur. Það er því ljóst að aðbúnaður sjúk- linga hvað rými varðar er ekki viðun- andi og mun fljótlega valda óánægju a.m.k. aðstandenda en svo virðist að sjúklingarnir sætti sig við nánast hvað sem er. Ollum ber saman um að þjónusta við sjúklinga á Höfða sé með miklum ágætum þótt erfitt hljóti að vera að vinna við umönnun sjúklinga í slík- um þrengslum. Rekstur Höfða Á Akranesi hefur memaður fyrir högum aldraðra ekki látið á sér kræla síðan eldhugar eins og Daníel Á- gústínusson, Bragi Níelsson o.fl. hrundu í framkvæmd byggingu Höfða. I um það bil 6 ár hefur Bæj- arstjórn Akraness ekki samþykkt eina einusm krónu til þessarar starfsemi en vísað á Ríkissjóð þegar kreppt hefur að í rekstri Höfða. Öll sú starf- semi sem fer ff am á Höfða hefur ver- ið greidd af ríkissjóði og vistmönn- um sjálfúm, í formi daggjalda, og með sérstökum fjárveitingum vin- veittra ráðherra heilbrigðismála. Þá hefur Höfða verið gert að greiða Bæjarsjóði Akraness háar greiðslur á afnomm af tölvukerfi bæjarins sem er einsdæmi á landinu. Framtíð öldrunarþjón- ustu á Akranesi I mörgum bæjarfélögum á íslandi hafa sveitarstjórnir staðið fyrir bygg- ingu á íbúðum fyrir aldraðra. Það er sá þáttur sem vantar hér á Akranesi og sem ekki hefur verið hugað að þó að ýmis fyrirtæki hafi sýnt því áhuga. Núna fyrst er farið að huga að þess- um málum eða svo virðist þótt aðeins nokkur strik hafi verið dregin á blað. En mjór er mikils vísir. Margir aðilar hafa óskað eftir að byggja íbúðir fyr- ir aldraða á lóð Höfða en engin svör fengist til þessa. Alls hafa nú 6 aðilar sótt um lóð við Höfða í þessu skyni. Eðlilegt má teljast að svörin hggi ekki á lausu því engin stefúa í öldr- unarmálum er til hjá Bæjarstjórn Akraness. Þótt að einhverjir ffam- takssamir menn byggi sölu og/eða leiguíbúðir fyrir aldraða þá vantar lögboðinn þátt sveitarfélagsins sem er áður nefnt þjónusturými fyrir vist- menn Höfða, íbúa væntanlegra í- búða og fyrir núverandi íbúa' hús- anna við Höfðagrund. Nú er hús- næði leigt að Kirkjubraut 40 sem er ágætur samkomusalur en ekki kvaða- laust fyrir leigjendur. Það hefur einnig vakið furðu mína að kjörnir fulltrúar í bæjarstjórn virðast ekki vita mikið um þennan þátt í rekstri bæjarfélaga. Ymis bæj- arfélög era vel meðvituð um skyldur sínar við aldraða sem er einn af gmnnþáttum í þjónustu bæjarfélaga, eins og dagvistarstofúanir, skólar og heilbrigðismál byggðanna. Til þess að geta tahst aðlaðandi bæjarfélag skipta alhr þessir þætti miklu máli. Þá er engin sérdeild hér á Akranesi fyrir heilabilaða (Alsheimer) sjúk- linga og engar hugmyndir um að bæta þar úr. Samkvæmt upplýsingum starfsfólks Höfða er þetta orðið vem- legt vandamál í starfseminni. Starfshópur um málefhi aldraða Þann 28.02.2003 skipaði Bæjar- stjórn Akraness þá Guðjón Brjáns- son, Láms Ársælsson og undirritað- ann í starfshóp sem skyldi m.a fjalla um: a) rekstur Höfða b) stefnu dvalarheimihsins varð- andi þjónustu við aldraða á heimilinu og utan þess og c) valkosti varðandi íbúðir fyrir aldraða í nágrermi Höfða og þjón- ustu við þá íbúa sem þar mundi búa. Stjórn Höfða skipaði Guðlaug Hjörleifsson verkffæðing sem fuh- trúa sinn og hrepparnir sunnan Skarðsheiðar skipuðu Hjördísi Stef- ánsdóttir lögfræðing í þennan starfs- hóp. Starfshópurinn hélt marga fundi og kvaddi til sín ýmsa aðila til ráðgjafar. Þegar tillögur starfshópsins lágu fyrir kom í ljós að þær vora mjög lík- ar þeim tillögum sem gamla byggin- arnefndin sem starfaði til 1974 hafði gert ráð fyrir með byggingu 3., 4. og 5. áfanga. Þessir áfangar hafa enn ekki litið dagsins ljós en nú er mér sagt að undirbúningur sé hafmn að byggingu íbúða. Það em um 12 ár síðan þessi stefna var mótuð og samt hefur ekkert verið gert í málefúum aldraðra á Akranesi eða stefnumörk- un í málefnum aldraðra litið dagsins ljós. Byggingarnefndin gerði ráð fyrir að 3., 4. og 5. áfangi fæh í sér bygg- ingu nýrra vistdeilda, fjölbýlis- og raðhúsa. Nefndin gerði ráð fyrir að stofnunin rúmaði alls 150-160 vist- menn og að þjónustu- og félagsrými yrði fyrir alla íbúa Höfða. Á sama tíma og reikningar Bæjar- sjóðs era gerðir upp með hundrað milljóna „gengishagnaði“ má vænta að þessi málefni verði ofarlega á baugi hjá núverandi ráðamönnum. Framsóknarmenn fengu einhvern sting í sig um síðustu bæjarstjómar- kosningar og vildu leysa öll mál þ.m.t málefni aldraða helst ekki seinna en strax. Þessi stingur leið hjá en kom þó ekki í veg fyrir að byggð yrði knattspyrnuhöll. Betur að sting- urinn hefði verðið ögn sárari. Það er mikilvægt, til að tryggja að aldraðir þurfi ekki að leita út fyrir sitt bæjarfélag til að fá eðlilega þjónustu (sem þeir hafa greitt fyrir) og að ein- hverjir aðrir aðilar aðrir en sveitarfé- lag okkar bregðist við skeytingarleysi Akranesbæjar. Þeir sem láta sig þessi mál varða vita að það er staðreynd, að innan 10 ára mim vanta hér um 50 rými fyrir sjúka aldraða Akurnesinga. Það er ekki trúlegt, en satt er það samt, að Akraneskaupstaður hefur aldrei byggt leiguíbúð fyrir aldraða og þess vegna er engin leiguíbúð til á Akranesi fyrir aldraða. Undirritaður telur brýna þörf á umræðu um þessi mál hér á Akranesi til að koma í veg fyrir flótta aldraðra ffá Akranesi þar sem möguleikarnir era fleiri en á Akranesi. Samkvæmt áliti ýmsra málsmetandi manna eins og t.d. Ásmundar Stefánssonar sátta- semjara ríkisins sem birtist í blöðum fyrir nokkram mánuðum kom fram að eftirlaunaþegar yrðu síður en svo ómagar á þjóðfélaginu, miklu fremur sá hópur sem kæmi til með að hafa mjög góða afkomu og greiða þar af leiðandi skatta eins og aðrir launþeg- ar. Þökk sé hinum fjölmörgu lífeyris- sjóðum í landinu sem hafa gjörbreytt afkomu aldraðra á íslandi. Margir munu segja að sveitarfélag- ið hafi ekki í bili, fjárhagslega burði til að leggja í meiri ffamkvæmdir en þær sem nú þegar er byrjað á en víst er, að til að koma þessum málum í góðan farveg þarf ekki nema 50% af andvirði knattspymuskúrsins. Ég mun síðar lýsa þeim möguleik- um og þeim lögum sem fjalla um fjármögnun þessara mannvirkja. Eg er í engum vafa um að Akur- nesingar geta staðið vel að þessum málum ef menn fást til að skoða mál- ið með opnum huga. Baldur Olafsson Leynisbraut 17 300 Akranesi

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.