Skessuhorn - 04.01.2006, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 4. JANUAR 2006
11
Björgin borin í bú
Margir fróðir
menn telja að
ffamundan sé harður
vetur þar sem mikið
hefur orðið vart við
músagang í haust.
Aðrir telja að skýr-
ingin sé sú að tíðar-
farið undanfarið ár
hafi verið svo gott að
músum hafi fjölgað
meira en góðu hófi
gegnir af þeim sök-
um. Hver sem skýr-
ingin er, þá geta þessi ferfættu nag-
dýr verið býsna útsjónar- og fyrir-
hyggjusöm. Mynd sem sýnir ágæt-
lega hversu mýs geta verið myndar-
legar „húsmæður“ var send Skessu-
horni. Hún sýnir barnavagn sem
geymdur var í bílskúr nokkrum í
Borgarfirði en í hann höfðu mýsn-
ar haft fyrir að flytja hvorki meira
né minna en 7 kíló af hundamat
sem geymdur hafði verið í poka á
öðrum stað í skúrnum. Þetta hefur
verið mikið fyrirtækið því vagninn
stóð úti á gólfi og því ekkert sér-
staklega greiðfært að komast um
borð í hann fyrir mýs. Þangað voru
þær engu að síður búnar að flytja
þessi 7 kíló og ekki nóg með það;
þær höfðu að mestu flokkað matinn
eftir lit og bragði því gulu köggl-
arnir voru að mestu sér og þeir
brúnu sér, líklega aðgreindur í
morgun- og kvöldverð. Þarna gæti
verið komin skýringin á því að
frændur þeirra nefnast „hamstrar".
MM
Vegfarendur töfoust
aðóþörfu
Klukkan rúmlega fimm síðdegis
á mánudag barst lögreglu tilkynn-
ing um umferðarslys á þjóðvegi 1 á
Kjalarnesi. Fólksbíll og jeppi skullu
þar saman og valt jeppinn en fólks-
bíllinn endaði fyrir utan veg. Lög-
reglan á Akranesi kom fyrst á vett-
vang og kl. 17.15 óskaði hún effir
því að Hvalfjarðargöngum yrði
lokað. Einnig var umferð stöðvuð
sunnan við slysstaðinn. Þegar lög-
reglan í Reykjavík kom á slysstað
tók hún við stjórn á vettvangi. Svo
virðist sem töluverðir hnökrar hafi
verið á umferðarstjórn í kjölfar
slyssins. Hvalfjarðargöngin voru
lokuð í einn og hálfan klukkutíma
þegar auðveldlega hefði mátt beina
umferð um Kjósarskarð. Tilkynn-
ing um óhappið var auk þess lesin
of seint í Ríkisútvarpinu. Sem von
er mynduðust miklar raðir bíla
annars vegar ffá gjaldskýli Hval-
fjarðarganga og hins vegar sunnan
slysstaðarins enda mesti umferðar-
tími dagsins. Vegfarendur sem
höfðu samband við Skessuhorn
kvörtuðu undan hversu seint um-
ferð var beint um Kjósarskarð sem
fært var á þessum tíma. Einnig er
nefnt að tilkynning um slysið hafi
birst mjög seint í Ríkisútvarpinu
sem hefur öryggishlutverki að
gegna. Ekki urðu alvarleg slys á
fólki í óhappinu, en klippa þurfti
annan bílinn til að koma ökumanni
hans út. Sjá nánar á
www.skessuhom.is HJ
( ^
£)jJ£jJjJ2JjJjJj
2JUjÍU1/JjJjJ1J J JjuJjJ
Svæöisskrifstofa Vesturlands rekur skammtímavist
fyrir fötluö börn og unglinga í Holti í Borgarbyggð.
Viö leitum að fólki sem hefur áhuga á að taka þátt í
fjölbreyttu starfi meö börnum.
Um er að ræða hiutastörf á kvöldin og um helgar.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum SFR og ríkisins.
Auk þess leitar Svæöisskrifstofa Vesturlands aö
stuðningsfjölskyldum sem vilja taka að sér fatlað barn
i eða ungmenni 2-4 sólarhringa í mánuði.
Upplýsingar veitir Kristrún Sigurjónsdóttir
forstöðuþroskaþjálfi í síma 8939588.
* Umsóknir sendist til Svæðisskrifstofu Vesturlands
Bjarnarbraut 8, 310 Borgarnes.
%
SÍM6NNTUNARMIÐSTOÐIN
Á VGSTURLANDI
Námsvísir vorannar kemur
út í næstu viku.
www.simenntun.is - sími: 437 2390
Við söfnum jólatrjám!
Jóíatijám verður safnað saman
Laugardaginn 7. janúar og mánudaginn
9. janúarfrá kl 8:00 -16:00.
Við biðjum fólk að setja jóíatré á
gangstéttar jyrírframan hús sín þessa daga.
Nánarí upplýsingar í síma: 899-9755
Við óskum Akurnesingum gleðilegs nýs
árs og þökkum samstarfið á nýliðnu árí!
i
Akraneskaupstað ur
Akraneskaupstað ur
Blysför og
þrettandabrenna
verður föstudaginn 6. janúar 2006
Blysförin hefst við Arnardal kl. 18:00 (stundvíslega) og endar hjá
brennu að Jaðarsbökkum við þyrlupallinn, þar sem stiginn verður
álfadans. Fyrir göngunni fara kóngur, drottning, álfar, Grýla,
Leppalúði, jólasveinar og fleiri.
Krakkar! Klæðið ykkur eins og ykkur langar til, mætið síðan í
gönguna og takið mömmu og pabba með.
Flugeldasýning
Flugeldasýning verður rétt fyrir kl. 1 9jj0 í umsjón
felaga úr Kiwanisklúbbnum Þyrli.
íþróttamaður Akraness 2005
Strax að lokinni brennu og flugeldasýningu verða úrslit tilkynnt
í kjöri íþróttamanns Akraness 2005. Af því tilefni býður
íþróttabandalag Akraness bæjarbúum í íþróttamiðstöoina að
Jaðarsbökkum, þiggja veitingar
og fylgjast með atnöfninni.
Akraneskaupstaður og íþróttabandalag Akraness
UPPHAF
== VORANNAR 2006
Stundatöflur fyrir vorönn 2006 verða afhentar
föstudaginn 6. janúar kl. 13 til 16.
Nýir nemendur eiga að mæta kl. 13.
Heimavistin opnar föstudaginn 6. janúar kl. 12.
Kennsla hefst skv. stundaskrá mánudaginn
9. janúar kl. 8.
Skólabíll fer frá Borgarnesi föstudaginn 6. janúar
kl. 12:15 og til baka kl. 15.
Reglulegur skólaakstur frá Borgarnesi hefst
mánudaginn 9. janúar kl. 7:15.
^ | A I A Pennipn' Kirkjubraut 54 Akranesi, verður með þær bækur
I I lí t\ I til söLu sem notaðar eru í kennsiu í Fjölbrautaskóla
U l\«Jf 1 Lfl Vesturlands.
Bókalista og fieirí gagntegar upptýsingar má finna á heimasíðu skótans: www.fva.is