Skessuhorn


Skessuhorn - 08.02.2006, Síða 10

Skessuhorn - 08.02.2006, Síða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRUAR 2006 Stórlega hefur dregið úr hassneyslu ungmenna 112 dagurinn á Vesturlandi Þorragolfí Grundarfirði Kylfingar landsins nýtajafnan bvetja stund sem gefst til aí iSka golfíþróttina. Það er hinsvegar fremur sjaldgœft að grfi til golf- spilunar á Þorra. Þeir Magnús Alfsson, Sverrir Karlsson og Gísli Kristjánsson brugðu undir sig betti fatinum um helgina og nýttu ágcetis veður og aðstæður á golfvelli Grundfirðinga og tóku léttan hring. 112 dagurinn verður haldinn í annað sinn á landsvísu laugardag- inn 11. febrúar nk. A Akranesi verður fjölbreytt dagskrá til að minna á starfsemi þeirra aðila sem sinna björgun og viðbúnaði af ýmsu tagi. Markmiðið með degin- um er að kynna neyðarnúmerið 112, starfsemi viðbragðsaðila, efla vitund fólks um mikilvægi þessarar starfsemi og hvernig hiín nýtist al- menningi. Markmið dagsins er einnig að efla samstöðu og sam- kennd þeirra sem starfa að forvörn- um, björgun og almannavörnum og undirstrika mikilvægi samstarfs þeirra og samhæfmgar. Starfsemi neyðarlínunnar, sem nú fagnar tíu ára afmæli sínu og viðbragðsaðilar á Akranesi, þ.e. Sjúkrahúsið og heilsugæslustöðin, sjúkrafluminga- og slökkviliðsmenn, lögregla og björgunarfélag hafa ákveðið að standa að sameiginlegri kynningu á starfsemi sinni og húsakynnum með því að hafa opið hús á starfs- stöðvum sínum þennan dag. Guð- jón Brjánsson, ffamkvæmdastjóri SHA sagði í samtali við Skessuhom að 112 dagurinn í fyrra hafi heppn- ast vel og stefht sé að því að hafa þennan viðburð árlega. Samkvæmt heimildum Skessu- horns verður einnig dagskrá og opið hús hjá viðbragðsaðilum í Borgarnesi, Grundarfirði og Snæ- fellsbæ en ekki lágu fyrir upplýs- ingar um dagskrá áður en blaðið fór í prenmn. Umferðaróhöppum, sem lögreglan á Akranesi sinnti, fjölgaði á árinu en þá verður að hafa í huga að starfssvæðið hefur stækkað með aukinni samvinnu við lögreglu í ná- grannabyggðarlögum. KOO María er fyrsti lista- maður mánaðarins María Kristín Magnúsdóttir skó- hönnuður er fyrstd listamaðurinn sem nýtdr nýja sýningaraðstöðu í Safhaskálanum á Akranesi. Eins og fram kemur í frétt í Skessuhomi á öðmm stað í blaðinu hefur verið komið fyrir sýningarskáp þar sem listamenn munu sýna mánaðarlega undir heitinu „listamaður mánað- arins.“ Á sýningunni, sem opnaði um síðustu helgi, sýnir María skó sem hún hefur hannað. María er eini starfandi skóhönnuðurinn á Islandi sem stendur. Hún er uppalin á Sel- fossi og fór í myndlistamám til Kaupmannahafhar og að því loknu fór hún í hönnunarnám til Lundúnum. Hún starfaði um nokkurra ára skeið sem hönnuður hjá XI8 en hóf síðan eigin ffam- leiðslu undir merkjum MKM- footwear ehf. Hún hannar bæði sumar- og vetrarlínu úr íslensku laxa- og hlýraroði, sem sútað er hjá Sjávarleðri á Sauðárkróki. Auk þess vinnur hún úr kínversku geita- skinni. Allir skórnir eru framleidd- ir í Kína. María setti fyrst upp sýningu í Listasafni Arnesinga í Hveragerði vorið 2004 og nýverið opnaði sýn- ing með verkum hennar í Bæjar- og hérðasbókasafninu á Selfossi. Þá mun hún opna sýningu í Arbæjar- safni í sumar. HJ Samkvæmt könnun Rannsóknar og greiningar hefur hassneysla minnkað úr að vera 22% meðal barna í 10. bekk grunnskólanna á Akranesi árið 2001 niður í 3% árið 2005. Þetta kemur m.a. ffarn í ný- útgefmni skýrslu, Stefhumótun og markmiðssetning lögreglunnar á Akranesi, sem unnin var af Jóni S. Olafssyni yftrlögregluþjóni og fleirum. Fram kemur í skýrslunni að mikið forvarnarstarf hafi átt sér stað undanfarin ár þar sem mikil áhersla hafi verið lögð á foreldra- fræðslu og jafnffamt hefur samstarf lögreglu við foreldrafélög grunn- skólanna aukist til muna. „Avinn- ingur lögreglunnar er að kynna starfsemi sína og koma á auknum tengslum við börn, ungmenni og for- eldra og auka þar með jákvæð sam- skipti og upplýsinga- streymi ffá hinum al- menna borgara til lögreglu," segir í skýrslunni. Starf lögreglunnar á Akranesi árið 2005 gekk að mörgu leyti vel þar sem skemmdarverkum, slys- um í umferð og afskiptum af fíkni- efhamálum fækkaði en fjöldi inn- brota var svipaður frá árinu áður. C~Q n«uu»»u<t En það var guðlegt glapparskot - að gera mann úr honum! Stundum verður manni það á að velta fyrir sér þeirri spurningu hvað lengi sé hægt að hækka laun þeirra lægstlaunuðu og kannske ekki síður spurningunni; Hvernig komast þeir hæstlaunuðu yfir að eyða tekjvmum sínum? Einhver köku- stærð er til skiptanna og ef einhver fær meira hlýtur einhver annar þar með að fá minna. Mér sýnist líka nokkuð ljóst að ef eitthvað fæst óeðhlega ódýrt, er einhver á lágu kaupi í framleiðsluferlinu. A einhverjum samninga- tímum fyrir nokkrum árum orti Jakob heitinn Jónsson: Þaö gengur afar illa um þessar mundir, allar stéttir barlómssönginn kyrja. C jörvöll þjóöin er aö veröa undir. - Undir hverju? - Má ég kannske spyrja? Bjami Jónsson ffá Gröf í Víðidal, úrsmiður á Akureyri var prýðissnjall hagyrðingur en hefur vafalaust ekki verið of fjáður þegar hann orti: Ég er ekki alveg snauöur allt þó bresti mig. Því fátæktin er einnig auöur útaf fyrir sig. Allt údit er fýrir að lausafjárstaða Emils Petersen hafi verið með knappara móti (það mun hún reyndar hafa verið megnið af ævi hans), þegar hann orti: Auraleysis þreytir þraut - þaö er gömul saga. Eg hef aldrei ort fyrir graut alla mína daga. Á sínum tíma var margt rætt um heilsufars- legan gagnagrunn þjóðarinnar og hvort ein- stakir menn eða fyrirtæki skyldu hafa þar að- gang að. Um það leytd sem þessi umræða var hvað háværust ákvað Bjöm Ingólfsson að leggja sín hráefhi í gagnagrunninn með þessu fororði: Hérna er kassi Kári minn, komdu nú þessu í grunninn þinn. Ég valdi úr aöaleinkennin, ágallana og veikindin. Hér er bœöi heymœöin, hjartastopp og kíghóstinn, getuleysi og gigtveikin, gyllinæö og kvensemin. Æöahnútar, uppköstin, iörakvefiö, rístillinn, lakastíflan, líkþornin, lifrarbólga og vesöldin. Minnisleysiö, martrööin, matgræögin og sjóveikin, blóöleysiö, hæsin og brjóstsviöinn og blööruhálskirtilsandskotinn. P.S. Vitaskuld er þessi upptalning klén en óþarft aö hafa þaö meira aö sinni. Ég fullyröi aö hœlbíts- og hýenugen hafa ekki fundist í ættinni minni. Ekki veit ég hver það var sem Birgir Hart- mannsson lýstd með eftdrfarandi orðum en þessi mannlýsing gæti ekki síður en hvað ann- að átt etdndi í genabankann: Hjá honum litlar ég gáfur fæ greint, grannleiki vitsins er manninum talsveröur bagi. Ég segi ekki aö vant' íhann btaösíöur beint, en blekiö var sparaö og skriftin í daufara lagi. Oðrum kunningja sínum lýsti Birgir svona: Þennan hrjáir mjaömamein, mæöist því aö vonum, náttúran var nauöasein aö ná sér upp í honum. Jón Jens Kristjánsson orti um þann ffæga mann Michael Jackson og má í því samhengi velta fyrir sér hvort allar þær aðgerðir sem sá bamgóði maður hefur gengið í gegnum hafa haff áhrif á erfðamengið: Oft þarf í hasti aö umbreytast, á þaö íkasti aö friö'ann. En allt þetta plast er víst ekki fast sem árlega er klastraö viö hann. Eitthvað hefur víst Drottinn verið misríf- legur í útlátum við okkur mannfólkið með sköpunargáfuna. Hvort sem hún snýr að and- legri, veraldlegri eða líkamlegri nýsmíði. Bjami ffá Gröf ortd um eitt margnotað hrá- efni: Aö leirnum veröa lengi not Ijóöasnillingonum. En þaö var guölegt glappaskot aö gera mann úr honum. Effir Bjama er líka þessi ágæta hugleiðing um lífið: Aö fæöast þaö er mikil guöagjöf, því gaman er á þessum heimi aö lenda. En eftir stutta eöa langa töf öllu drasli veröur fólk aö henda. Aö rusla manni í raka moldargröf er rúsínan í lífsins pylsuenda. Ekki veit ég hver fékk þessa umsögn hjá Sigurði Ámasyni á Raufarhöfn en ekki efa ég að viðkomandi hafi verið hennar verðugur: Duglegur í dagsins önn, drengur fjarri táli. Nú hefur líka tímans tönn talaö sínu máli. Einari Árnasyni frá Finnstöðum hefur væntanlega ekki fundist lífið brosa neitt sér- lega hlýlega við sér þegar hann orti: Aldrei hef ég aö því gáö eins og vera bœrí Aö til er heilbrígt heilsuráö - aö hengja sig í snæri. t Björn S. Blöndal sem lengi var vinnumaður í Grímstungu fékk sinn skammt vel útlátdnn af mótlæti lífsins. Hann kunni þó mótleik: Þegar erfitt finnst oss flest, fátt um gæfuvinning. Beiskar stundir blíökar mest bjartra daga minning. Þessum þætti skulum við svo ljúka með þessu erindi efidr Sigurgeir Þorvaldsson öðm nafni „Slána Slagbrandsson": Aö þekkja blóm sem engin á en er svo blítt í framan. Og vera aumt og vesalt strá sem vekur blómsins ástarþrá er guödómlegt og gaman. Með þökkjyrir lesturinn, Daghjartur Dagbjartsson Rejistöðum 320 Reykholt S 435 1361 og 849 2115 dd@simnet.is

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.