Skessuhorn - 08.02.2006, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 8. FEBRÚAR 2006
11
Stjóm íþróttafélags - Ertþú til í slaginn? Nú um daginn voru íþróttamenn grími, eða alla vega sumum þeirra í Borgarfirði heiðraðir íyrir afrek og hefur starfið því lent á einum sín og árangur á árinu 2005. Vil ég eða fáum. nota þetta tækifæri og óska þeim til Nú í febrúar 2006 verða aðal- hamingju með það. Hinir vilja oft fundir einstakra deilda og vil ég gleymast sem standa við bakið á hvetja alla til þess að mæta á þá og þessum afreksmönnum og öllum sýna þannig stuðning sinn við það
hinum sem einnig eru að iðka sínar
íþróttir af kappi og dugnaði. A ég
þarna við stjórnarmenn í íþróttafé-
lögunum og deildum þeirra. Vinna
þessir aðilar óeigingjarnt sjálfboða-
liðastarf eftir bestu getu, en hljóta
oftar en ekki vanþakklæti að laun-
um. Nú um nokkurt skeið hefur
borið svo við að erfitt hefur verið
að fá aðila til þess að taka við setu í
stjómum deilda hjá ungmennafé-
laginu okkar í Borgarnesi, Skalla-
starf sem þar er unnið og jafiivel að
bjóða sig ffarn til starfa í stjórn eða
í sérstök afmörkuð verkefhi, því
margar hendur vinna létt verk.
Að afloknum aðalfundum ein-
stakra deilda verður aðalfundur
UMF Skallagríms haldinn, væntan-
lega í lok febrúar eða í byrjun mars.
A þeim fundi verður m.a. kjörin ný
aðalstjóm félagsins. Eg undirritað-
ur hef verið formaður aðalstjórnar
félagsins undanfarin þrjú ár og ætla
mér að hætta því starfi á næsta að-
alfundi. Oska ég hér með eftir að
þeir sem áhuga hafa á að starfa að
málefnum íþróttafélaga hafi sam-
band til að hægt sé að stálla upp öfl-
ugri forystu í félaginu. Einnig þigg
ég allar ábendingar um góða aðila
til starfa.
Konráð Konráðsson
Formaður Umf Skallagn'ms
skallagrimur@skallagrimur. is
Til vamar görnlu
húsunum við Brákarpoll
Ötrúverðug
vinnubrögð
Það var í senn metnaðarfullt og
skynsamlegt hjá bæjarstjórn Borg-
arbyggðar að taka ákvörðun um að
gera upp gömlu húsin við Brákar-
poll, rífa viðbyggingar og koma
húsunum í upprunalegt horf. Hús-
in geyma merka sögu um upphaf
verslunar og um leið byggðar í
Borgarnesi. Af þeim ástæðum og út
frá verndargildi ætti því að taka
ákvörðun um friðun húsanna og
hafna um leið þeim áformum bæj-
arstjórnar að byggja 150 ferm. og
660 rúmm. viðbyggingu við húsin.
Hið fullkomna
ósamræmi
Fyrirhuguð bygging mun mis-
bjóða gömlu húsunum og nánasta
umhverfi. Byggingin verður ekki í
nokkru samræmi við gömlu húsin -
í raun er þarna á ferð hið fullkomna
stílbrot! Aformin eru ekkert annað
en atlaga gegn þessum gömlu og
merku húsum. Af einhverjum
ástæðum hafa talsmenn verkefnis-
ins valið að kynna áformin í fjöl-
miðlum sem „létta tengibyggingu“
eða „glerhýsi.“ Þarna er um hreinar
rangfærslur að ræða; fyrirætlanirn-
ar snúast hvorki um létta tengi-
byggingu né glerbyggingu heldur
verða þetta gluggalausir
skúrakumbaldar með mikilli vegg-
hæð. Þar sem metnaður ríkir í varð-
veislu gamalla húsa eins og t.d. í
Stykkishólmi, Flatey og Isafirði
hefur aldrei hvarflað að nokkrum
manni að ganga frarn með þessum
hætti gagnvart sögunni og bygg-
ingararfinum.
Stjórnendur sveitarfélagsins hafa
reynt að skýla sér á bak við sem þeir
kalla „Mjög svo lofsamlega umsögn
húsafriðunarnefndar." Bókun
nefndarinnar er í raun afar fátækleg
og lélegt skjól fýrir ákvörðun bæj-
arstjórnar. Þar segir: „Skálinn rask-
ar ekki götumyndinni. Auk þess
mun hann styðja við starfsemi í
báðum húsum en slíkt stuðlar að
varðveislu húsanna." Fráleitt er að
halda því ffarn að skálinn muni ekki
raska götumyndinni og ásýnd hús-
anna. Síðari hluti bókunarinnar er
rakalaus fullyrðing og út í bláinn.
Vinnubrögð sem þessi eru nefnd-
inni ekki sæmandi. Þetta minnir þó
um margt á Iðnó-klúðrið forðum
sem endaði með því að viðbygging-
in var rifin sömu nefnd til háðung-
ar. Svo geta glerþykktir og glugga-
krækjur í gömlum húsum valdið
sömu nefnd ómældu hugarangri; í
þessu ljósi er ekki gott að átta sig á
hlutverki nefndarinnar. Kjörnir
fulltrúar eiga þess nú kost að end-
urskoða áform sín, því eins og for-
stöðumaður húsafriðunarnefndar
orðaði það nýverið af öðru en engu
merkara tilefhi; að aldrei væri of
seint að hætta við rangar ákvarðan-
ir. Ef þörf er á að tengja húsin sam-
an þá er það hægt með mun vægari
úrræðum t.d. með niðurgröfnum
tengigangi sem hægt er að fela með
frágangi lóðar. Aformin eru til
marks um fáheyrða skammsýni, al-
gert smekkleysi og fullkomna
óvirðingu við gömlu húsin við
Brákarpoll.
Ámælisverð stjómsýsla
Alvarlegar athugasemdir verður
að gera við vinnubrögð bæjar-
stjórnar og starfsmanna sveitarfé-
lagsins í málinu öllu. Ljóst er að
fyrirætlanir lágu fyrir um viðbygg-
inguna áður en deiliskipulagið var
auglýst í ágúst 2004 án þess að um
það væri getið. Bæjarstjóm ætlaði
því aldrei að gefa íbúum kost á að
tjá sig um þessar fyrirædanir með
formlegum hætti, heldur var valinn
sá kostur að gera ólögmætar breyt-
ingar á skipulagsgögnum. Urskurð-
arnefnd hefur nú gert bæjarstjóm
afturreka með þessa fáheyrðu ffarn-
göngu með því að fella skipulagið
og byggingarleyfið úr gildi og átel-
ur um leið í úrskurðinum bæjar-
stjórn fyrir vinnubrögðin! Þegar
hér var komið sögu átti bæjarstjórn
þess kost að auglýsa breytingu á
deiliskipulagi þannig að allir fengju
að tjá sig um áformin. Niðurstaða
bæjarstjórnar varð hinns vegar sú;
að fram færi grenndarkynning.
Þeirri niðurstöðu verður ekki unað.
Krafa er gerð um að deiliskipulags-
breytingin verði auglýst og að öll-
um gefist kostur á að gera
athugasemdir.Grendarkynningin
sem sett var af stað tíu dögum áður
en úrskurðurinn féll er marklaus
sýndarmennska og brot gegn öllum
eðlilegum stjórnsýsluháttum.
Hryggilegast er þó að horfa uppá
þá sem með ákvörðunarvaldið fara
sem leikbrúður í sjónarspili sjón-
hverfingameistarans í leik þar sem
öllu er fórnandi fyrir hlutverk og
athygli, þar sem sómakennd og
áætlanir fjúka út í veður og vind - í
leik þar sem lögboðnar skyldur eru
misvirtar eða vanræktar. I veröld
sjónhverfingamannsins verður
óráðsían dygð. Það sannast hér enn
einu sinni að minnisvarðar og prjál
eru ær og kýr stjórnmálanna en
gallinn er sá að allt er þetta í boði
skattgreiðenda.
Ingimundur Einar Grétarsson
Borgamesi
www.bootcamp.is
Boot Camp byrjar
13. febrúar
Skráningar eru hafnar
á bootcamp.is
og í síma 862-1540
Frítt er í opinn prufutíma
Laugardaginn 11. febrúar
kl.1400 i íþróttahúsinu
Vesturgötu
www.skessuhorn.is
G^1BABAKA^/
HANDVERKSBAKARÍ *
Diyranesgötu 6 - Borgarnesi - sínii: 4372020
Tilboö föstudag - laugardag - sunnudag:
Alpabrauð 199 kr. - verð áður 298 kr.
Lúxuslengja 270.kr.—verð áður'385 kr.
Helaartilboð:
Nýbökuð runstykki 2 fyrir 1
fra kl 9:00 -12:00
Opnunartími:
Mánudaga til föstudaga kl. 9:00 -l 8:00
Laugardaga og sunnudaga 9:00 -16:00
Tillaga að Aðalskipulagi
Hvítársíðuhrepps Mýrasýslu 2003-2015
Hreppsnefnd Hvítársíðuhrepps hefur tekið aðalskipulag
Hvitársíðuhrepps til fyrri umræðu sbr. 2. mgr. 17. gr. skipulags-
og byggingarlaga nr. 73/1997.
Hreppsnefnd auglýsir hér með tiLLögu að Aóalskipulagi
Hvítársíðuhrepps 2003-2015 samkvæmt 18. gr. skipulags- og
byggingarlaga nr. 73/1997.
Greinargeró og skipulagsuppdrættir verða til sýnis frá og með 8.
febrúar 2006 til og með 8. mars 2006 á skrifstofu sveitarfélagsins
að Sámsstöðum og Skipulagsstofnun Laugaveg 166 Reykjavík.
Auglýst er óveruLeg breyting á svæðaskipulagi Mýrasýslu 1998-
2010 skv. 2. mgr.14.gr. Laga nr.73/1997. Breytingin felst í færslu
þjóðvegar í Hvítársíðuhreppi. Dregið er úr beygju við Hvítá,
vegsvæði við Kleifar fært til vesturs og vegur frá Borgarijarðarbraut
að Fróðastöðum færður til.
Hvitársíðuhreppur tekur að sér að bæta það tjón sem einstaklingar
| kynnu að verða fyrir við skipulagsbreytinguna.
| Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur
á að gera skriflegar athugasemdir við skipulagstillöguna.
- Athugasemdir skulu hafa boríst eigi síðar en 22. mars 2006.
Skila skal athugasemdum á skrífstofu sveitarfélagsins,
Sámsstöðum, 320 Reykholt. Þeir sem ekki gera athugasemdir
innan tilskilins frests teljast samþykkir tillögunni.
Sámsstöðum 8. febrúar 2006
Ólafur Guðmundsson, oddviti