Skessuhorn - 15.02.2006, Qupperneq 15
gSBSSliHÖBí:
MIÐVIKUDAGUR 15. FEBRÚAR 2006
15
Að auka varðveislugildi
gömlu húsanna við BrákarpoU
Nýverið birtist grein eftir Ingi-
mund Grétarsson í Skessuhorni
sem hann kallar „Til varnar gömlu
húsunum við Brákarpoll." I grein-
inni fullyrðir hann að fyrirhuguð
tengibygging á milli húsanna að
Brákarbraut 13 og 15 misbjóði
þessum gömlu húsum, auk þess
sem hann átelur virmubrögð húsa-
friðunarnefndar, bæjarstjórnar
Borgarbyggðar og starfsmanna
sveitarfélagsins. I þessari grein eru
ýmsar fullyrðingar og dylgjur sem
ekki eiga við rök að styðjast og því
nauðsynlegt að leiðrétta þær.
Var bæjarstjóm
í feluleik?
Bæjarstjórn Borgarbyggðar stóð
fyrir endurgerð gamla Pakkhússins
við Brákarpoll og lauk því verki
árið 2004. Það var ljóst ffá upp-
hafi að mikilvægt væri að finna
húsinu nýtt hlutverk, en fyrir end-
urgerð var það nýtt sem geymsla
fyrir Safnahús Borgarfjarðar. A
vordögum 2004 kviknaði sú hug-
mynd að nýta húsið undir starf-
semi Landnámsseturs, en frá
haustinu 2003 hafa bæjaryfirvöld í
Borgarbyggð í samvinnu við þau
Kjartan Ragnarsson og Sigríði M.
Guðmundsdóttur unnið að þróun
hugmyndar um Landnámssetur í
Borgarnesi. Það var mat stjórnar
Landnámsseturs að nauðsynlegt
væri að stækka aðstöðuna ef nýta
ætti húsið undir starfsemi seturs-
ins. Þegar fyrir lá vilji eigenda
hússins nr. 13 við Brákarbraut að
tengjast starfsemi Landnámsset-
urs, þá leitaði stjórn setursins til
Sigríði Sigþórsdóttur arkitekts um
að hanna byggingu við húsið sem
tengdi það við Brákarbraut 13.
Hugmynd Sigríðar um tengibygg-
inguna var kynnt ýtarlega við opn-
un Pakkhússins eftir endurbætur í
júní 2004. Eftir að Húsafriðunar-
nefnd hafði gefið byggingunni já-
kvæða umsögn og taldi að auka
mætti varðveislugildi húsanna með
byggingunni, var skipuð bygging-
arnefnd þar sem stjórn Landnáms-
seturs, Borgarbyggð og eigendur
hússins að Brákarbraut 13 áttu
fulltrúa. Sú nefnd var skipuð effir
að búið var að senda deiliskipulag
gamla miðbæjarins í auglýsingu.
Því var ákvörðun um byggingar-
reitinn á milli húsanna nr. 13 og 15
tekin eftir að skipulagið fór í aug-
lýsingu. Það er því röng fullyrðing
hjá Ingimundi Grétarssyni að það
hafi verið meðvituð ákvörðun bæj-
arstjórnar að gefa íbúum ekki færi
á að kynna sér þessar hugmyndir.
Kærunefnd hafnaði
ógildingn
deiliskipulagsins
Eftir gildistöku áðurnefnds
deiliskipulags kærði Ingimundur
Grétarsson ákvörðun bæjarstjórn-
ar sem hlotið hafði staðfestingu
Skipulagsstofiiunar til Úrskurðar-
nefndar byggingar og skipulags-
mála. I kæru sinni krafðist Ingi-
mundur þess að deiliskipulagið
fyrir gamla miðbæinn í Borgarnesi
yrði fellt úr gildi og til vara setti
hann fram þá kröfu að fram færi
grenndarkynning vegna tengi-
byggingar við húsin Brákarbraut
13 og 15. I úrskurðarorðum
nefndarinnar segir að „Kröfu kær-
anda um ógildingu hinnar kærðu
skipulagsákvörðunar er hafhað að
öðru leyti en því að felld er úr gildi
heimild fyrir tengi- og viðbygg-
ingu að Brákarbraut 13 og 15 í
Borgarbyggð, sem gert er ráð fyrir
í auglýstu skipulagi. Kröfu kær-
anda um að ffarn fari grenndar-
kynning vegna viðbyggingar við
húsin Brákarbraut 13 og 15 er vís-
að frá“. Akvörðun sína um að fella
úr gildi heimild fyrir tengibygg-
ingunni byggði nefndin á því að
annars vegar lá ekki fyrir skýr bók-
un af hálfu bæjarstjórnar um að
setja reitinn inn á skipulag og hins
vegar að kærandi eigi hagsmuni
tengda umræddri breytingu. Með
hliðsjón af þessu var afar eðlilegt
að bæjarstjórn Borgarbyggðar
samþykkti að setja af stað grennd-
arkynningu vegna tengibyggingar-
innar. Það skýtur því skökku við
þegar Ingimundur Grétarsson
kallar kynninguna marklaus sýnd-
armennsku hafandi sjálfur í kæru
gert kröfu um hana.
Ámælisverð stjómsýsla?
I grein sinni er Ingimundi tíð-
rætt um ámælisverða stjórnsýslu
sveitarfélagsins Borgarbyggðar í
málinu öllu. Vissulega er það svo
að stjórnsýsla sveitarfélagsins er
stöðugt til endurskoðunar og allar
ábendingar um það sem betur má
fara eru vel þegnar. Hins vegar
láðist honum að geta þess að
haustið 2004 sendi hann umhverf-
is- og skipulagsnefnd Borgar-
byggðar erindi þar sem hann
óskaði eftir því að reisa allt að 70
fm. bílskúr á lóðinni nr 11 við
Brákarbraut. Með hliðsjón af
byggingareglugerð taldi nefhdin
að ekki væri hægt að líta á erindið
sem byggingarleyfisumsókn þar
sem deiliskipulag lá ekki fyrir auk
þess sem að ýmis gögn sem fylgja
eiga umsókn vantaði með erind-
inu. Þessari niðurstöðu undi Ingi-
mundur ekki og kærði hana til Úr-
skurðarnefndar byggingar og
skipulagsmál í ágúst 2005 eftir að
Umboðsmaður Alþingis hafði vís-
að henni frá. I kærunni telur hann
að bæjaryfirvöld hafi með margvís-
legum hætti staðið rangt að af-
greiðslu málsins. I niðurstöðu
nefndarinnar segir að „réttilega
hafi verið litið á erindi kærenda
sem fyrirspurn" og í ratm engar at-
hugasemdir gerðar við afgreiðslu
erindisins og kærtmni því vísað frá.
Þarna var því ekki um að ræða
ámælisverða stjórnsýslu heldur
umsókn sem ekki uppfyllti lagaleg
skilyrði.
Að auka
varðveislugildi húsanna
Ingimundur Grétarsson og bæj-
aryfirvöld í Borgarbyggð eru sam-
mála um að hlúa eigi að gömlu
húsunum við Brákarpoll en greinir
á um hvernig að því skuli staðið.
Bæjaryfirvöld fylgdu þeirri megin-
reglu að leita álits Húsafriðunar-
nefndar ríkisins, enda segir í lög-
um um húsafriðun að það sé hlut-
verk nefridarinnar að „gefa álit á
áformum um breytingar, flutning,
eða niðurrif húsa sem reist eru á
milli 1850 og 1918“. í áliti nefnd-
arinnar segir að skálinn raski ekki
götumynd og er í sátt við gömlu
húsin sem fyrir eru auk þess sem
hann myndi styðja við starfsemi í
báðum húsunum og auka varð-
veislugildi þeirra. Þetta hlýtur að
teljast jákvæð umsögn og sýnir að
bæjaryfirvöld og Húsafriðunar-
nefnd ganga í takt í þessu máli.
Það er vonandi að áætlanir um
opnun Landnámsseturs í vor í
gömlu húsunum við Brákarbraut
13 og 15 gangi eftir því ég er sann-
færður um að setrið á eftir að auka
verulega heimsóknir ferðamanna
til Borgarness og efla enn frekar
áhuga og meðvitund íbúa sveitar-
félagsins fyrir sögunni sem er
ótæmandi auðlind í Borgarfirði og
á Mýrum. Gömlu húsin við Brák-
arpoll mtmu ganga í endurnýjun
lífdaga og verða til sóma fyrir okk-
ur öll.
Páll S. Brynjarsson
Bæjarstjóri í Borgarbyggð
*.............................^ ,.
Til foreldra!
Fyrirlestur fyrir foreldra "allra" barna
um tölvunotkun barna og örugga netnotkim
í Grundaskóla fimmtudagskvöldiö
16. febrúar kl. 20:30
Allir foreldrar hvattir til að mæta!
Einar Ásbjörnsson
Sigríöur Sigurðardóttir
Sigrún Ríkharðsdóttir
Nemar íTómstunda- og félagsmálafræði við KHÍ
1 1 •
www.skessi ihom.is
f/lótnanlt's/i
Við bjóðum upp á glæsitegt pakkatilboð á
Hótel Reykjavik og Rauöará steikhúsi frá
janúar og út mars. Fyrir aðeins kr. 7.450 á
mann fær parið gistingu í huggulegu tveggja
manna herbergi, morgunverð og rómantískan
þriggja rétta kvöldverð á Rauðará steikhúsi.
Bókið á www.reykjavikhotels.is
eða bokun@hotelreykjavik.is
eða I síma 514-7000
Hótel Reykjavík og Rauðará steikhús,
Rauðarárstíg 37, Reykjavík